Fróði - 09.12.1884, Side 4
142. bl.
I R Ó Ð 1.
1884.
262
263
264
\.
\:
veita sveitafjelögunum, hverju fyrir sig,
vald til að gera samþykkt um heyja-
ásetning og fjenaðarmeðferð í sveitinni,
og hreppstjóra sýslumannavaid til að fram-
fylgja samþykktinni. Tillaga um þetta
var þó áður komin fram í Fróða, en svo
hefir farib um hana sem flestar aðrar góð-
ar hugvekjur í blöðunum. J>eim er gleymt
jafnóðum. það er ljótt að segja það, og
væri betur ástæðulaust, að það, sem einna
helzt er veitt eptirtekt, sjeu skamma-
greinir.
tír brjefi úr Rangárvallasýslu 20.
sept. 1884. Hjer horfir hil vandræða
vegna fádæma óþurka. Helzt er skárst
til fjalla, og eru rnenn úr láglendari sveit-
um að koma fóðrum í hinar efri. það
er öfugt við venjuna og ískyggilegt. Sorg-
legt slys er að heyra frá Dskivötnunum,
þar drukknuðu 2 menn af veiðibát, báðir
ungir og efnilegir og er að þeim mann-
skaði mikill. Annar þeirra var Slefán
Guðlaugsson uppeldissonur prestaöldungs*
ins síra Guðmundar Jónssonar sem var á
Stóruvöllum.
XJm verðlagsskrá.
Verðlagsskrá Arnessýslu, sem gjöld
sýslubúa eiga að fara eptir á þessu far-
daga ári, er hærri enn nokkru sinni hefir
áður verið. En jafnframt því er hagur
þeirra nú svo tæpur, að langt mun vera
síðan þeir hafa verið miður færir um að
bera þungar álögur, enn nú. Maður skyldi
þó ætla að hin háa verðlagssrá stæði í
sambandi við blómlegan, eða í öllu falii
við hátl verð á verzlunarvöru þeirra. En
svo er þó ekki. Skarðið, sem fellirinn
gerði í búnaði manna, er enn lítt fyllt;
og verzlunarvaran er að falla í verði,
svo að miklu munar frá því sem veriö hef-
ir, nú um allmörg ár undan farin. það
sem gefið hefir tilefni tii þess, að verð-
lagsskráin hækkaði, er því ekki velmegnn
manna, sem þó eptir eðli hlutarins ogtil-
gangi löggjafans ætli að vera: þvert á
móti er það fæð b úp e n in g s in s
sem næstliðið ár olli verðhækkun skepna,
manna í milli, þar eð fair gátu selt, en
rnargir þurftu að kaupa. það gefur að
skilja að eptir fellir hlýtur að koma verð-
hækkun meðal landsmanna sjálfra, og
hún þess meiri sem fellirínn var skæðari.
En líka hlýtur verðlagsskráin þá að hækka,
samkvæmt þeim lögum sem hún fer eptir
og hún hlýtur að hækka þess meira sem
dýrtíðin verður þyngri. Með þeim hætti
leggst beinlínis skattur á neyð manna.
Má nærri geta að þetla hefir ekki verið
tilgangur iöggjal'ans. En í þessu lýsir sjer
ekki hvað sízt hve óheppilegt það er að
þeir setji þjóðirmi lög, sem ekki þekkja
nema að nokkru leyti, hvernig tilhagar
hjá henni. En svo ætti nú vort innlenda
löggjafarþing að láta það ásannast,
að það sje kunnugra, og hafi opin augn
fyrir öðru eins og þessu, og undir eins
vit og vllja til að bæta úr þvi. það kunna
uú að vera «misjafnir mannanna dómar»
urn, hvernig lög um verðlagsskr^ ætt.i a5
vera; gæti orðið langt og vandasamt mál
að fara út í það. Einfaldast væri að
hætta alveg við verðlagsskrár. En bvern-
ig á að komast af án þeirra? Með því:
að taka af skattinn, og leggja á toll í
staðinn; og með því að taka af tíund-
ina, og setja í staðinn gjaldasamþykktir
er hver söfnuður fyrir sig búi sjer til
sjálfur með ráði prests og sóknarnefnda.
Hið almenna löggjafaryald landsins á að
eins að veita söfnuðunum vald til þessa
enda jafnvel skipa þeim það; svo og að
setja þau formskiiyrði sem nauðsynleg
virðast fyrir gildi samþvkktanna; án þess
að grípa inn í efni þeirra. — Gott væri
að skynberandi menn vildi athuga þessa
tillögu og rita um hana i blöðin.
Rr. J.
Akureyri, 8. des. 1 884.
Verzlanirnar hjer munu fremur
byrgar af kornvöru, kaffi og sikri og
lleiri nauðsynjavörum, nema steinolíu.
Kaupskip, sem væntanlegt var til Gránu-
fjelagsins með allmikið af þeirri vöru
kom aldrei, svo kaupstaðurinn varð
steinolíulaus áður margir höfðu byrgt
sig með þá vöru. Það fór því allstór
lest fyrir skömmu hjeðan vestur á
Sauðárkrók til steinolfu kaupa, því
rnenn una nú illa að brenna tólgar og
lýsisljósi. í’etta sýnir að steinolía sem
varla þekktist hjer fyrir 15 árum, er
nú orðin ein af nauðsynjavörutn þeim,
sem menn ómögulega vilja án vera.
Nú er sá tími þegar á enda er
menn eru vanir að róa til fiskjar hjer
út með firði og sumir kalla haustver-
tfð. — Fiskiaflinn hefir í haust verið
mjög lítill, þó stundmn hafi reitzt dá-
lítift af fiski eða ísu. f’etta ár er því
með mestu aflaleysisárum er verið hafa
hjer við íjörðinn á síðari tímum. Afla-
lítið hefir einnig verið í haust á Skaga-
firði og ógæítir miklar á Siglufirði.
— Sjónleikir. AkureyrarmenB
eru að tala um að leika sjónleiki í vet-
ur. Eru að hugsa um að leigja hús,
sem er í smíðum, og hafa þar leiksvið
©g leika einstöku sinnurn. Ekki lítur
út fyrir að neitt verði úr því að leik-
hús verði byggt hjer, að svo komnu.
Sumum þykir óþarfi fyrir jalnlítinn bæ
að halda leikhús.
— Dansæfingar eða dansskóla
hafa verzlunarmenn og fleiri á sunnu-
dagskvöldum.
— Sunnudagaskóla halda þeir
barnakennari Páll Jónsson og Jón
Magnússou amtsskrifari og kenna á hon-
um borgunarlaust, Því miður notar
ekki unga fólkið þá kennslu, sern skyldi.
— Pessu blaði fylgir lítið rit er
nefnist „Bindindistíðindi*, búast má við
að það komi optar út og mun þá lfk-
lega fylgja með „Fróða“. Pað er gefið
út að tilhlutun Goodtemplars-fjclagsins.
Leiörjetting í „Bindindistíðindunum„ 3.
bls. bindindisfjög les: bindindisfjelög.
áugiýsingar.
Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar
Akureyrarkaupstaðar tilkynnist almenn-
ingi hjer með að frá nýári 1885 veröur
tilhögun á sjúklingahaldi við spftalann
„I. Gudmanns Minde“ á Akureyri
breytt þannig:
að fyrir fæði og aðhjúkrun innlendra
sjúklinga borgist að eins á dag 0,85 aur.
fyrir fæði og aðhjúkiun út-
lendinga borgist á dag . 1,25 —
fyrir Ijós og hita á tíinabilinu
frá 1. okt. til 1. maf fyrir
hvern sjúkling á dag . 0,15 —
Læknishjálp verða sjúklingar að
útvega sjer og borga fyrir sjálfir.
Akureyri, 24. nóvbr. 1884.
í forstöðunefnd spítalans
Eggcrt Laxdal.
Jeg bið menn að borga til
mín, ekki síðar enn um næsta nýár,
það sem þeir skulda gullsmið MagflÚSÍ
Jónssyni frá Akureyri, iyrir úr og
m. fl.
Akureyri 2. desemh. 1884.
Páll Jónsson
lýjar bitlÍHsögur
með korti. pýddar af Jóhanni fior-
steinssyni biskupsskrifara, 10'A örk,
Kosta i bandi 1 kr. og 50 a. Pást á
Akureyri bjá útg. „Fróða“ enn fremur.
JLiiil iamiafræ^i
fyrir barnaskóla, 4 arkir á stærð. Kost-
ar innbundin 75 aura.
^öiigtiiiróifsi'iiiiur
eptir Hjálmar Jónsson, kosta í kápu
1 Qkrónu.
StafFoískver
eptir Yaldimar Asmundsson, prentað i
Keykjavik 1883.
§aga Mróifs kraka
fyrsta hefti af fornaldarsögum Korður-
anda, útgefnum af Sigmundi prentara.
Bænakver og föstuhugvekj u r
eptir Dr. Pjetur biskup.
— Frá Oddeyri tapaðist í hausí,
foli brúnn fjögra vetra ómarkaður og
ójárnaður, freinur lftill, hver sem hitta
kynni fola þenna er beðinn að koma
honura íil skila inóti borgun, eða
gera vísbendingn uin hann til undir-
skrifaðs.
S> J. B. Jónsson Oddeyri.
Fjármark Jóns Jóhannssonar í
Höfn í Siglufirði er: stýft og gagnfjaðr-
aö hægra, stýft og gagnbitað vinstra.
Útgefandi og prentari: Björn Jónsson.