Nýárskveðja til Íslendinga frá Ameríku og Bretlandi hinu mikla - 01.01.1880, Blaðsíða 1
')í«aréft>cb)n
til Isleiiciing-a,
á Ameríkn og Bretlamli liiim mikla.
Reykjavík 1. janúar 1S80.
Með því að jeg hef álitið, að mörgum af löndum mín-
um víðsvegar um land mundi þykja fróðlegt, að lesa það, sem
hefur verið prentað um ísland í enskum blöðum, hef jeg snúið
þessum greinum, sem hjer birtast á prenti. Hin fyrri greinin
er brjef frá prófessor Willard Fiske frá Ameríku, er hann var
gestur hjá oss í sumar, og munu allir, sem nokkuð þekktu
þennan ágætismann ljúka einum munni upp um það, hversu
mikinn áhuga hann sýndi á öllum framförum vorum; hann
hafði lagt mikla stund á, að læra mál vort og kynna sjer
bókmenntir vorar og sögu landsins; hann skildi vel málið og
talaði það; hann lýsti líka bæði í orði og verki þeim
vinahug, er hann bar til hinnar íslenzku þjóðar og leitaðist
við að glæða hjá oss sjálfum virðingu fyrir öllu þjóðlegu.
J>að fór vel, að vjer tókum á móti honum og fjelögum hans,
eptir því, sem vjer höfðum bezt föng á, og sýndum þar með,
að hin forna gestrisni hinna gömlu íslendinga er enn þá lif-
andi, einkum þegar jafn ágætir menn eiga í hlut. þ>að er
enginn efi á því, að prófessor Willard Fiske muni koma oss
í meiri viðskipti við hin göfugu Bandaríki, og mun tryggja
það vinaband, er vjer íslendingar nú þegar höfum hnýtt við
þessa merkilegu þjóð.
í tilefni af brjefi prófessors Fiske hefur ritstjóri hins
mikla blaðs Times í Lundúnum látið prenta grein þá, er hjer
fylgir á eptir. Við þá grein þarf engar athugasemdir að
gjöra. Hún ber með sjer þau vina og viðurkenningar orð til
hinnar íslenzku þjóðar, er enginn sannur íslendingur mun
misskilja. þ>að má sannarlega teljast með gæfu íslands, að
vjer íslendingar eigum þar hauka í horni, þar sem eru hin
volduga enska þjóð og hin göfuga Ameríka.
Með þessum fáu inngangsorðum óska jeg öllum mínum
vinum víðsvegar um land til heilla og hamingju á nýju ári.
þorlákur 0. Johnson.
•
Útlagt úr vikublaði »Times«, dags. London 1. okt. 1879
íslancL.
Reykjavík, 20. sept. 1S79.
Alþingi eður hið íslenzka Parliament, sem haldið er
annaðhvort ár, kom saman 1. júlí, og var sagt upp 27. ágúst.
J>etta var hið þriðja þing, síðan hin nýja stjórnarskrá kom út
1874; og þannig endaði hinn fyrsti þingtími. Kosningar til
hins nýja þings eiga fram að fara á árinu 1880. Bæði efri
og neðri þingdeild notaði sjer þetta tækifæri, að senda Kristj-
áni konungi ávörp, óskandi honum til gæfu ásamt landinu,
hversu sjerstaklega vel hefði tekizt þessi tilraun landsmanna,
að stjórna sjer sjálfir, látandi í Ijósi enn þá á ný þakkir sín-
ar fyrir stjórnarskráua. þ>að getur ekki verið neinn efi um
það, að hún hefur orðið landinu til mikils gagns, þessi breyt-
ing á hinu fyrverandi ráðgefandi þingi til löggjafarþings.
Bæðurnar hafa verið haldnar með alvöru og siðprýði. Störfum
þingsins hefur verið lokið með eðlilegum hraða. Mörgum
gömlum lögum hefur verið vandlega breytt, og hin nýju lög
hafa verið svo úr garði gjörð, að þau hafa bætt kjör allra
stjetta. Fjárveitingarnar hafa verið reglulega veittar, og
skattar hafa verið svo viturlega lagðir á, að hvert tveggja ára
tímabil hefur haft afgangs 50 til 100,000 kr. Samgöngurnar
landinu hafa verið töluvert endurbættar, með því vegir hafa
verið lagðir yfir heiðar og öræfi, og nefnast þeirþjóðvegir. Ferð-
um hinna dönsku-íslenzku póstskipa hefur verið svo lagað, að
auk hinna reglulegu ferða á millum Kaupmannahafnar, Leith
og Reykjavíkur, þá hefur hitt gufuskipið farið tvær hringferðir
á ári í kringum landið og komið við á 15 höfnum. Fiski-
veiðarnar hafa aukizt, og jarðarræktin hefur tekið stórum
framförum, með því landið hefur kostað ferðir ungra jarðyrkju-
manna, er hafa verið sendir til jarðyrkjuskóla bæði í Noregi
og Svíþjóð.
Forseti í efri deild þingsins þetta sumar var hinn heiðr-
aði öldungur, biskup íslands, dr. Pjetur Pjetursson. Forseti
neðri deildarinnar hefur áður veriðhinn gamli forseti þingsins,
lierra Jón Sigurðsson, stjórnvitringurinn þjóðholli, sem landið
á mest að þakka sín fengnu landsrjettindi. Heilsa hans er
þrotin eptir 40 ára strit og starf við stjórnmál og vísindi,
og fyllir nú sæti hans nafni hans, ágæt fyrirmynd frjáls-
borinna óðalsbænda. Á meðan þingið stóð, hjelt neðri deild-
in 61 fund, efri deildin 53, en 3 fundir voru haldnir af
hinu sameinaða þingi, sem orsakast af því, þegar deildirnar
ekki geta komið sjer saman. Af hinum nýju lögum, er mest
snerta framandi þjóðir, eru þau, sem afnema alveg lestagjald á
skipum, er sigla upp íslenzkar hafnir, og sem áður var 2 kr.
pr. ton. Vitagjaldið var einnig minnkað um helming. Til
þess, að vinna upp aptur það, sem tekjur landsins misstu við
þetta, þá var tollurinn á áfengum drykkjum hækkaður, svo að
tollurinn hjer eptir verður 30 aurar, 45 aurar og 60 aurar pr.
pott. Póstlögin voru svo eudurbætt, að póstkort verða inu-
leidd, og ferðir strandsiglingaskipsins fjölgaðar. Ýmsar mark-
verðar uppástungur viðvíkjandi menntun komu fyrir þingið.
Eitt af þeim frumvörpum, er náðu lagagildi, gjörir það að
skyldu hvers prests, að sjá um það, að öllum börnum í hans
sókn verði kennd skript og reikningur, og getur hver prestur
ásamt oddvitum i sveitarmálefnum tekið börnin í burtu frá
þeim foreldrum, er vanrækja skyldu sína í þessu efni, og
komið þeim fyrir á ánnan bæ, þar sem þeim verður kennt á
kostuað foreldranna. Lög þau, er á fyrra þingi höfðu verið
rædd, um stofnun lagaskóla í Reykjavík og gagnfræðisskóla
á Möðruvöllum voru töluvert endurbætt, bæði hvað fjölgun
kennara snerti, og laun þeirra hækkuð. Nokluar breytingar
voru gjörðar á tilhögun hins lærða skóla í Rvík, og voru þær
nauðsynlegar sökum þess, að tala skólapilta eykst árlega.
Á fáum árum hefur hið svo kallaða stiptsbókasafn lands-
ins svo aukizt af bókum, að þess fyrverandi geymslustaður
upp á lopti dómkirkjunnar virtist ónógur, eins og líka forn-
gripasafnið hefur aukizt talsvert. Safn þet’ta átti vöxt sinn
og viðgang rcest að þakka áhuga og. alúð Sigurðar sál. málara.
Til þess að útvega hæli fyrir þessi' söfn eins og önnur söfn, er
snerta náttúrufræði, veitti alþingið 100,000 kr. til þess að
reisa veglega byggingu, er um leið á að vera alþingishús.
Tvær teikningar til hússins voru lagðar fyrir þingið, og kaus
þingið hina dýrari. Lög þau er mest snerta ferðamenn, eru
þau, að þingið veitti 120,000 kr. til þess að byggja brýr
yfir jpjórsá og Ölvesá fyrir sunnan, og SkjálfandaHjót fyrir
norðan. |>essar þrjár ár eru með hinum stærstu og vatns-
mestu á íslandi, og eru opt ófærar. Ferðamaðurinn, sem ekki
dvelur lengur á íslandi, en ferðamenn eru almennt vanir að
gjöra, getur naumast gjört sjer ljósa hugmynd um framfarir
hinnar íslenzku þjóðar. Margar orsakir eru til þessara fram-
fara auk hinnar nýju stjórnarskráar. Hestakaup Englendinga