Austri - 09.07.1884, Síða 4
1. árg.J
A U S T III.
[nr. 15.
178
maður fyrr á seinustu 10 öldum séð sól skína
á Færcyjum, og því hefur sú trú myndazt, að
að sólskins verði þar aldrei vart. En það er
skakkt, því að eins og fram var tekið, var
sólskin er vér komum þangað. Að visu stóð
það ekki lengur en 87 mínútur 45 sekúndur,
og ekki var það heldur svipað sólskini við
miðbaug jarðar, er sviði á oss hár og skegg,
eða ktemi oss til að óska eptir sólhlífum, en
þó var það sólskin og að líkindum svo gott
sólskin, sem Færeyjar geta fram boðið. Og
þetta föla, daufa sólskin gerði það sem það
gat til að dubha dálítið upp hið magra út-
sýni umhverfis oss; að visu fékkst engin reglu-
leg né viðkunnanleg mynd út úr því, enjafn-
vel hið mest steikjandi sólskin frá Sahara
mundi mundi engu áorkað hafa við þessi beru
fjöll, þenna mjóa vog, þennagala, ófrjófajarð-
veg, þessa svörtu moldarkofa, þetta kyrkju-
skrípi. “
Yel segist herra Tromholt.
* *
— Kerling nokkur á írlandi, sem bað sér
beininga, sagði við vel búinn höfðingja, er
gekk fram hjá henni: „f>að vildi ég að blessun
drottins fylgdi yður alla daga“ „en — næði
yður þó aldrei“ bsetti hún við, þegar hún sá
að engin fékkst gjöfin.
— Prestur nokkur ætlaði 9ér að sætta hjón,
sem illa kom saman, og byrjaði áminningar-
ræðu sína þannig: „Ef þið að eins leit-
uðust bæði við að vera eins og í einum hug,
og að hafa ávallt hið sama mark fyrir aug-
um“. „Nei, nei, biðið þér við!“ kallaði þá
konan. „f>að er nú einmitt svo fyrir okkur
— sem þér segið — því maðurinn minn vill
öllu ráða, og ég vil það líka; en — það er
ógæfan“.
— í blaði nokkru i Ameríku segir svo;
„Maður var fluttur á spítala í Nýu Jórvik
(New Jork) því hann var lungnaveikur. Yfir-
læknir spítalans svæfði hann með klóróform
(svefnmeðali), tók úr honum hin veiku lungu,
en lét aptur í hann ný og óskemmd hestlungu
Litlu eptir þessa læknisaðgjörð var sjúkling.
urinn horfinn úr rúmi sinu. Ilarfs var víða
leitað. Loksins fannst hann standandi niðri
í hesthúsi og var þar að gleypa í sig hafra.
Yfirlæknirinn minnti hann á, hvílík fásinna
væri fyrir sjúkling að leggja sér slíkafæðu til
munns; en í stað þess að svara sparkaðihann
fótunum aptur undan sér og hneggjaði, stökk
síðan út í garðinn, og tók á rás fram og apt-
ur, þángað til hann var tekinn og fluttur til
rekkju.
Eptir að hann var orðinn hress og hraust-
ur, hefur kona hans hafið mál móti honum,
og krafizt skilnaðar; hefir hún borið þá sök
á hann, að hann trufli næturværðir sínar með
að tönnla og tyggja heydýnurnar sem þau
eiga að sofa á.
Auglýsiiigar.
þeir, sem hafa lánað hækur hjá
mér, eru beðnir að skila peijn hið
allra fyrsta.
Seyðisf. 7I7 84. David Pedersen.
Hjá undirrituðum fást pessar bækur :
Helgapostilla í kápu 6,00. Bænakver
179
Ólafs Indriðasonar í handi 0,25. Stein-
gríms Thorsteinssonar ljóðmæli í kápu
2,00. Brynjólfur Oddsson: Ljóðmæli
0,30. Sigurður Breiðfjörð: smákveðl-
ingar 0,25. Jón Ólafssonf enskunáms
hók í bandi 1,50. |>. Thoroddsens
reikningsbók í bandi 0,85. Vasakver
handa alpýðu, önnur útgáfa aukin í
bandi 0,60. Piltur og Stúlka 1,70.
Krókarefssaga 0,25. Heljarslóðar-
orusta 0,35. Konráðssaga keisara-
sonar 0,20. Bandinginn í Chillon 0,25.
Ragnarrökkur 0,40. Pílagrímur ást-
arinnar 0,20. Rímur af Finnboga
ramma 0,50. Itímur af Gísla Súrs-
syni 0,30. Landamerkjalög 0,12.
Iðunn, mánaðarrit til skemmtunar og
fróðleiks, bindið á 2,00.
Seyðisfirði, 23. júní 1884.
Aðalsteinn Friftbjarnarson.
YERZLUNIN í „LIVERPOOL44
selur matvöru og aðrar nauðsynjavör-
ur nieft taisverftnm afslætti fyrir
horgun út í hönd í peningum eða verzl-
unarvörum. Verð á íslenzkum vörum
er hið sama og við aðrar verzlanir hér
(Thostrups, Gránufélags og „Norske
verzlan11). Skyldi pað hækka við pess-
ar verzlanir, verður uppbóti borgaður
í peningum, ef reikningurinn er klár,
hverjum sem inn hefur lagt.
Til að forðast lögsókn, bið ég alla
sem skulda verzluninni að finna mig
sem fyrst til að semja við mig um
borgun skuldarinnar, par sem skuld-
irnar verða að vera kláraðar fyrir lok
júlímánaðar.
Seyðisfirði, 17. júní 1884.
Tliór. E. Tulinius.
Vegna þess ac) nú er svo á
libið, hvet ég alla þá, sem enn
Jiá ekki hafa fundið mig að gjöra
það hið allra fyrsta.
3. júlí ’84.
Sami.
Með júníferð „Lauru“, tap-
aðist frá Keykjavík til Seyðis-
fjarðar poki með hnakk, beizli,
svipu, einum skóm og nokkru af
bólcum. f»essi poki kemr hvergi
fyrir á Seyðisfirði, er því líklegt
að hann hafi fiækzt með skipinu
til annara hafna, eru því allir af-
greiðslumenn skipsms beðnir að
halda honum til mín — Einnig
er beðið, að ef poki þessi hefur
í misgripum flækzt með einhverju
því ferðafólki, sem fór i land á
Seyðisfirði, að láta mig vita það
bið fyrsta.
Brekku i Mjóafirði 7. júH 1884.
Jmrstoinn Haildórsson.
1 80
Gul kista með hvelfdu loki, negld aptur,
með ýmsum fatnaði, tóbakspípum o. fl.,
merkt „Thomsen, Seydisfjord, Passagergods",
fékkst ekki úr póstskipinu T h y r a á ferð
þess hingað frá Kaupmannahöfn í maí, og
hefur eflaust verið sett npp á einhverri höfn
síðar. Póstskipsafgreiðslumenn eða aðrir, sem
vita, hvar kista þessi er niöur komin, gjöri
svo vel að senda hana til póstskipsafgreiðslu-
mannsinns á Seyðisfirði hr. O. Wathne sem
veitir henni móttöku.
Alla pá, sem ekki hafa samið
við okkur, vörum vér við að sleppa
hestum sínum í leyfisleysi í Egilstaða-
landi, pví allir peir mega búast við
að hestar peirra verði settir inn, og
eigi sleppt nema móti skaðabótum.
Sömuleiðis seljum vér hér eptir
ferðafólki allan pann greiða, sem vér
getum úti látið.
Egilstöðum á Völlum, 7. júií 1884.
Eíríkur Halldórsson.
Sigíus Eiríksson.
V. Kpsters Mavebitter, (sá
>
einasti ekta) tilbúinn af J. Chr.
Sabroe í Randers, fæst hjá mér
með eptirfylgjandi verði, mót
borgun í peningum ;
kassi með 12 heilflöskum
(„orginal Pakning“) . . 30 kr.
ein sérstök heilfl .... 3 kr.
ein sérstök hálfflaska . 1% „
f>ar sem ég er einasti útsölu-
maður á íslandi af þessum bitter
og fæ hann beinlínis þaðan sem
hann er búinn til, ábyrgist ég að
það er ekta v. Ivpsters Mave-
bitter, sem eptir attesti margra
lækna er álitinn bezta meðal fyrir
magaveika.
Seyðisfirði, 7. júlí 1884.
J. Chr. Thostrup.
HERÖR.
Vér leyfum oss að skora á allan
almenning á Islandi, er sjálfum sér
er ráðandi, aft sækjii fnud á þing-
velli vift Öxará 10. dag júlímán-
aftar næstkomaiida, til að ræða um
nauðsynjamál landsins og leitast við
að ráða bót á pví er aflaga fer. Allir
peir er geyma minningu Jóns sál. Sig-
urðssonar í hjörtum sér, vonum vér
að sæki fundinn.
Fjögur hundruft Yestfirðingar.
Afgreiðsla „Austra“ er hjá Sig.
faktor Jónssyni á Vestdalseyid.
Abyrgðarm. PállVigfússoncanol.phil.
P r e n t a r i: Gruö.m. Sigurðarson.
60