Austri - 18.07.1885, Page 1

Austri - 18.07.1885, Page 1
1 8 8 5. ar£ Reykjavík, laugardaginn 18. júlí. Nr. 16. I Al])ingi. 1 síðasta blaði voru var getið um setn- ingu alþingis, og nefnd frumvörp þau, er frá stjórninni komu. Af þvi vjer teljum vist, að lesöndum vorum þyki landsbankamálið og prestakosningamálið mestu skipta, setj- um vjer þaubjer til fróðleiksm. m. Frumvarp til laga um stofnun lands- banka (eins og það var samþykkt við 2. um- ræðu í neðri deild í gær, eptir tillög- um nefndarinnar, og því nær í einu hljóði). I. Tilgangur og starfsgögn bankans. gr. Banka skal stofna í Reykja- vík, er kallast landsbanki ; tilgangur hanser að greiða fyrir peningaviðskipt- um í landinu og styðja að framförum atvinnuveganna. Til þess að koma stofnun þessari á fót, leggur landssjóð- ur 10,000 kr. til. 2. gr. Landsbankinn fær að láni úr landssjóði allt að hálfri miljón króna, er skal vera vinnufje hans. Fje þetta greiðist bankanum smám saman, eptir því sem þörf hans krefur, í seðlum þeim, er getur um í eptirfarandi 3. grein. Bankinn greiðir landssjóði, ept- ir að 5 ár eru liðin frá stofnun hans, 1 °/0 um árið í vöxtu af skuld sinni, og leggur 2% árlega af henni í varasjóð. 3. gr. Stjórninni er heimilt að gefa út fyrir landssjóð seðla fyrir allt að hálfri miljón króna. Upphæð seðlanna sje 50 og 5 krónur, og ekki fleiri fyrst um sinn. Nákvæmari ákvæði um lög- un og útlit seðlanna eru falin stjórn- inni, sem lætur nauðsynlegar auglýs- ingar um það efni út koma. Kostn- aðinn við seðlagjörð og endurnýjun seðla ber landssjóður. 4. gr. Seðlarnir skulu gjaldgengir í landssjóð og aðra almannasjóði hjer á landi, og eru hjer manna milli lögleg- ur gjaldeyrir með fullu ákvæðisverði. Engum öðrum en landssjóði er heim- ilt að gefa út brjefpeninga hjer á landi. í bankanum má fá seðlunum skipt mót öðrum seðlum, en gegn smápeningum eptir því sem tök eru á. 5. gr. Sá, sem eptirmyndar þessa íslenzku seðla eða falsar þá, skal sæta sömu hegningu, sem ákveðið er í al- mennum hegningarlögum 25. júní 1869 266. 'gr. fyrir eptirmyndun og fölsun á dönskum peningum eða seðlum þjóð- bankans. Glæpurinn er fullkomnaður, þegar búið er að eptirmynda eða falsa seðilinn, þótt ekki sje búið að láta þann seðil úti. II. Störf bankans. 6. gr. Bankinn hefur þessi störf á eða með sparisjóðskjörum, á dálk eða á hlaupareikning. 2. Að kaupa og selja víxla og ávísan- ir, hvort sem þær eiga að greiðast heldur hjer á landi eða erlendis, út- lenda peninga, bankaseðla, brjef- peninga og auðseld arðberandi verðbrjef. 3. Að lána fje gegn tryggingu í fast- eign. 4. Að lána fje gegn handveði eða sjálf- skuldaráby rgð. 5. Að veita lán sveitum, bæjum og al- mannastofnunum hjer á landi gegn ábyrgð sveita eða bæja. 6. Að veita lánstraust gegn handveði eða sjálfskuldarábyrgð. 7. Að heimta ógreiddar skuldir. 7. gr. Bankinn má taka lán gegn tryggingu í sjálfs sins eignum. 8. gr. Nákvæmari reglur og fyrir- mæli um alla tilhögun á störfum bank- ans verður ákveðin með reglugjörð, er bankastjórnin semur frumvarp til og landshöfðingi samþykkir. 9. gr. Bankinn skal, með samþykki landshöfðingja, svo fljótt sem auðið er, setja á stofn aukabanka eða fram- kvæmdarstofur fyrir utan Reykjavík, einkum á Akureyri, ísafirði og Seyðis- firði. III. Sjerstök hlunnindi bankans. 10. gr. Nú glatast viðtökuseðill gef- inn fyrir innláni eða viðskiptabók veitt fyrir sparisjóðsinnlagi, og getur þá stjórn bankans stefnt til sín handhafa þessa viðtökuseðils eða viðskiptabókar, með 6 mánaða fyrirvara, og birta stefnuna þrisvar sinnum samfleytt i tíð- indum þeim, er flytja skulu stjórnar- valda auglýsingar hjer á landi, og ef enginn hefur sagt til sín, áður en fyrir- varinn er liðinn, getur hún greitt þeim manni upphæðina, sem fengið hefur viðtökuseðilinn eða viðskiptabókin án þess nokkur annar, er viðtökuseðillinn eða viðskiptabókin kann að hafa verið afsöluð, geti þar fyrir búið kröfu á hendur bankanum. 11. gr. Fje ófullráða manna og al- mannastofnana má um stundarsakir setja á vöxtu í bankann, þangað til því verður komið á vöxtu gegn veði í fast- eignum eða á annan lögmætan hátt. 12. gr. Fje það, er lagt hefur ver- ið í bankann, ásamt vöxtum þess, er undanþegið kyrsetning og löghaldi með- an það stendur þar. 13. gr. Bankanum er heimilt að á- skilja sjer hærri vöxtu en 4% um ár- ið af útlánum gegn fasteignarveðum. 14. gr. Nú er óskað iáns gegn fast- hendi: j eignarveði, og skal þá gefa vottorð um 1. Að taka við peningum sem innlánij fasteignina úr afsals og- veðmálabókun- um kauplaust, þegar stjórn bankans krefst þess, enda sje vottorðið ætlað bankanum einum til afnota. 15. gr. Bankinn getur löglega sam- ið svo við skuldunauta sína, að þeir taki upp { veðskuldabrjef sín til bank- ans ákvæði það, er getur um í tilskip- un i8.febr. 1847, I0- gr., um fje ómynd- ugra á íslandi. 16. gr. Eigi missir bankinn kröfu sína, þó veðið glatist fyrir óhapp. 17. gr. Bankinn hefur rjett til að láta eigin þjóna sína selja veðbrjef og annað sem hann hefur fengið að hand- veði, við uppboð á hverjum þeim stað, er þykir til þess fallinn. en aðvara skal hann veðsala um þetta i votta viður- vist með 8 daga fyrirvara. Nú er veðsali ókunnur eða menn vita eigi um heimili hans, þá skal bankinn stefna hlutaðeigandi með 14 daga fyrirvara til að leysa út veðið með auglýsingu í þeim tíðindum, sem birta skal í stjórn- arvalda auglýsingar. 18. gr. Bankinn er undanþeginn tekjuskatti eptir lögum 14. desember 1877 °S sömuleiðis útsvari. IV. Stjórn bankans. 19. gr. í stjórn bankans skal vera einn framkvæmdarstjóri, er landshöfð- ingi skipar með hálfs árs uppsagnar- fresti, og tveir gæzlustjórar, er kosnir eru sinn af hvorri deild alþingis til fjögra ára. Af gæzlustjórum þeim, sem i fyrsta skipti eru kosnir, skal þó ann- ar að2 árum liðnum frá fara eptir hlut- kesti. Endurkosning getur átt sjer stað. 20. gr. Landshöfðingi getur vikið hverjum forstjóra bankans frá um stundarsakir, þegar honum þykir á- stæða til ; hann skal þó með næstu póstferð gefa ráðgjafa lslands skýrslu um tilefnið til frávikningarinnar. þ>á er forstjóra er vikið frá um stund, eða hann fyrir sjúkdóm eða önnur forföll fær eigi gegnt störfum sínum, og sömuleiðis ef sæti verður autt í for- stjórninni. setur landshöfðingi mann til að gegna störfunum um stundarsakir. 21. gr. Heimili bankans er í Reykja- vlk, og þar skulu forstjórarnir vera búsettir. 22. gr. Framkvæmdarstjóri annast dagleg störf bankans og stýrir þeim undir umsjón gæzlustjóranna og með aðstoð þeirra. Nákvæmari fyrirmæli um sambandið miili forstjóranna verða ákveðin í reglu- gjörð þeirri, er 8. gr. um getur. 23. gr. Landshöfðingi skipar bók- ara og fjehirði bankans og víkur þeim frá, hvorttveggja eptir tillögum for- stjórnarinnar. Aðra sýslunarmenn skip- ar forstjórnin. Hún ákveður vinnutím- ann o. s. frv.

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.