Fjallkonan - 27.08.1887, Side 4
104
FJ ALLKONAN.
inn, svo hann annað hvort hættir að skrifa um hann og kunn-
gjöra hann, eða þá hann kemur með eitthvert óheyrt og óþekkt
meistarastykki af „Pjatti". Það mundi verða töluverður prent-
unarkostnaður, ef á'þekkar auglýsingar ættu að kunngjörast um
hvern þann sem leitar að kvikindum í fjörunni, en í Þjóðvilj-
ann gæti það vel komist, því nógar eru spázíurnar. Eðafinnst
höfundinum ekki eins tilhlýðilegt að auglýsa, að landlæknir
Schierbeck sjáist nú opt svamla óskinnklæddur til að grufla ept-
ir bakteríum, eða að Doktor medicinæ Jónassen sjáist nú opt
skinnklæðalaus vera að vaða í lifrarpilsum til að leita að Echi-
nokokkum? Eða veit hann ekki að til er það sem heitir „exa-
men, observation, préparation des féces, du contenu intestinal“,
sem er ein grein náttúrufræðinnar og læknisfræðinnar — kann
ske honum þyki þetta þrifalegra en að vaða í sjónum. Enhvað
sem þessu líður, þá verður maður að halda höfundi þessum það
til góða, þótt hann sjái ekki annað en fötin og vaðalinn. Inni-
haldið er honum ðkunnugt, en eg hugga mig við það, að hann
muni þó muni þó unna mér þess að geta heitið „Realisti11 í
sumu.
21. Ágúst 1887.
Ben. GröncLal.
Nýjungar frá ýmsum löndum.
-----eoJJoj-.-
Þýzkr og enskr iðnaðr. Yerzlunarsamkepni Þjóðverja er
farin að verða Englendingum allskæð í ýmsum greinum. Áðr
hefir þýzkr iðnaðarvarningr fengið það orð að vera „ódýr og ó-
nýtr“, enn hvað sem þvi liðr, er hann tekinn að ryðja sér til
rúms á heimsmarkaðinum; verzlun með suma beztu útflutnings-
muni Englands svo sem glervöru og harðleirsvöru (stentöj), og
sérstaklega hnífa, er að miklu leyti komin í hendr Þjóðverjum.
Járnbraut yfir Síheríu. Rússakeisari hefir að sögn veitt
samþykki til að byrjað verði á járnbraut, sem á að koma höf-
uðborg rikisins í samband við Kyrrahaf, og þar með, er fram
líða stundir, við Ameriku. Nú þegar liggr járnbraut fráPétrs-
borg tii Jekaterinenburg, enn þaðan á að lengja hana austr að
Barkalvatni, og svo með landamærum Kínlands alt að Vladivo-
stock, sem er herskipa höfn Rússa við Kyrrahaf. Verði fyrir-
tæki þessu framgengt, þá mun ferðin frá Pétrsborg til Valdi-
vostock verða farin á 15 dögum. Ástæðurnar fyrir Rússa til
að leggja járnbraut þessa eru einkannlega hernaðarlegar, enn
auðvitað verðr fyrirtæki þetta einnig til mikilla framfara í
verzlunarefnum, því að Síbería er eitt hið auðugasta land að
náttúrunnar gæðum, bæði frjósamt og auðugt af dýrum málm-
um, og loftslag ekki einungis þolanlegt, heldr jafnvel ágætt.
Járnbrautargerð þessi mun vera Englendingum nokkurt áhyggju-
efni, þar sem brautin á að liggja að landamærum Kínlands.
Munu þeir áðr langt líðr leggja járnbraut sín megin gegn um
Sýrland og Evfratsdalinn til Persíuflóa, til þess að stytta leið-
ina til Indlands. Liklega verðr ekki byrjað fyrr á Síberíu-járn-
brautinni, fyr enn „transkaspiska“ járnbrautin er komin alla leið
til Bukhara, enn fyrir henni stendr Annenkoff hershöfðingi,
hinn duglegasti maðr.
AUGLÝSING AR.
með 26 vinningum, sem eru: 1. Gullúr á 100 kr.; 2. aftrhlað-
in tvíhleypa á 50 kr.; 3. koffr úr silfri; 4. karlmanns úr; 5.
6 teskeiðar úr ■ silfri; 6. rjómakanna og sykrker úr pletti á 25
kr. hvert; og þess utan 10 góðir og þarfir munir á 10 kr. hver,
og 10 góðir munir á 5 kr. hver, — verðr haldið hér í Reykja-
vík seint á þessu sumri
Seðlarnir fást hjá þessum mönnum: Sigurði Kristjánssyni i
Rvík, Þorláki Ó Johnson í Rvík, Magnúsi Zakkariassyni í Rvik,
á ísafirði hjá Þorvaldi lækni Jónssyni, áAkureyri hjá Friðbirni
Steinssynl, á Húsavík hjá Þórði faktor Guðjohnsen, áSeyðisfirði
hjá sýsluskrifara Ólafi Runólfssyni, í Hafnarfirði hjá verzlnnar-
manni Jóni Bjarnasyni, og í Keflavík hjá Jóni Gunnarssyni.
Hver seöill kostar 1 kr. — Agóðinn, ef nokkr verðr, gengr
til G.-T.-hússinsí Reykjavík, og munirnir, semallir verðavanda
aðir, verða til sýnis í Reykjavík seint i septembermánuði. Meir-
en 1200 númer verðr, þótt allt seldist upp strax, aldrei gef-
ið út.
Árni Gíslason. Indriði Einarsson.
Ofafur' Rósenkranz. Sigurður Jónsson.
TANNPÍNUMEÐUL,
Samskonar tannpínumeðul og ég hefi hingað til viðhaft við
tannlækningar heima hjá mér, en engum selt, verða nú eftir-
leiðis til sölu hjá mér.
Þess skal getið'að meðul þessi eru samsett eftir hinum heztu
ráðleggingum (recept) hr. A. Préterre í Parísarborg, sem ekki
er einungis álitinn frægastr tannlæknir meðal Frakka, heldr
■jafnvel heztr tannlæknir sem nú er uppi. Meðul þessi eru —
eins og margir munu kannast við, sem ég hefi hjálpað — svo
fljótverkandi að undrun sætir. Rvík 24. ágúst 1887.
Páll Þorkelsson
tannlæknir.
Hina lieiðruðu kaupeudr húnaðarritsins læt ég vita, að
það cr áform mitt, að reyna að halda ritinu úti næstkomandi
ár. Það eru því vinsamleg tilmæli mín að sem flestir bændr
vildu senda ritinu ýmsar hagfræðisskýrslur; enn áríðandi er að
skýrslurnar séu nákvæmar og sannar. — Enn fremr læt ég hina
heiðruðu kaupendr vita, að andvirði búnaðarritsins og hréf til
mín mega sendast næstkomandi vetur að Hléskógum pr. Akreyri.
Þó má einnig senda andvirði ritsins til Sigurðar Eristjánsson-
ar bóksala í Reykjavík.
Ég ber það traust til hinna heiðruðu kaupenda húnaðarrits-
ins, að þeir dragi það sem stytzt fram yfir gjalddaga að borga
ritið. P. t. Brjámslæk 12. ágúst 1887.
Yirðingarfyllst.
Hermann Jónasson.
Öllum þeim, er heiðruðu jarðarför mannsins míns
sáluga, prestsins séra Páls Sigurðssonar, með nœr-
veru sinni, votta ég hér með mitt innilegasta hjartans
þakldœti, enn sér í lagi þ'o þeim mörgu, sem með að-
stoð sinni gerðu þessa sorgarathöfn mjög svo liátíð-
lega.
Gaulverjabœ, 30. júlí 1887.
Margrét A. Þórðardóttir-
■ggs’v
H 2. p- a hrt
—1W ® 05 °
B CD w Cfí
h- a o: S 4 L
P uq 4 ct>
® * s S-.&K
ts <x> q.ctq < a>
<< p- ® ®
p. ^ - to
aa ct>
<X> 05 3Q hi £3
öS » £?
o: ö o £?
<Jg S.o*
» Ct> h-
CD
<
CD
<
crq
CD
8 2.
£■<§' o g*
< g. ar
OJ6 rt- 2-
<4 % K
—1 rc 3- JQ
“ ST P ®
w
3
E <
ZXD
CD
ST
t-í P
- <X>
8 el
ct>
. <X>
o'o n>
2KB
c- I—1W
E $ 2
rt 3 P
9?
CD
H—*
OQ
03
9?
Pa
CD
O
Examíneraðr tannlæknir,
cand. pharm. fíickolin,
gegnir lækningum frá kl. 11 til 3, nema á sunnudögum. Fyrir
fátækliuga þriðjudag, fimmtudag og laugardag kl. 10—11.
Holar tennr eru fylltar sársaukalaust fyrir 1—3 kr. hver.
2STIE3. Tannpina stillist þegar i stað, og meðalið með
fyrirsögn um notkun þess fæst fyrir 1 kr. Það er ómissandi
á hverju heimili, þar sem tannpína þekkist. — Bústaðr í húsi
Guðnýjar Möller í Reykjavik.
Prentsmlðja S. Eymundssonar og S. Jónssonar.
Prentari Th. Jensen.