Fjallkonan - 28.10.1887, Side 3
FJALLKONAN.
127
Ævi Jesú og frásögn um Messíashugmyndina
hjá Gyðingum, um Jóhannes skirara og trúflokka
hjá Gyðingum á Jesú dögum; eftir C. G. Nyblæus1.
Bitfregnin um þessa bók er í Gautaborgartíðind-
um á þessa leið:
„Hér liggi’ fyrir oss bók, sem líklega verðr ekki sérlega kær-
komin hinum ströngu kirkjutrúarmönnum aldar vorrar, enn alt
um það má þó óhætt fullyrða, að hún tyllir eyðu í þekkingu
lesenda á hinni hversdagslegu hlið þess ástands og þeirra at-
vika, sem mynduðu framkomu kristindómsins. Hér er skýrt
frá uppkomu Messíasar-hugmyndarinnar og áhrifum hennar i
trúarlegu, pólitisku og félagslegu tilliti, og er jatnframt vand-
lega höfð hliðsjón af stöðu Gyðinga til þeirra þjóða, sem þeir
höfðu mök við, og sem með trúarhugmyndum sínum hlutu að
hafa mikil áhrif á skoðunarhátt þeirra (sérstaklega Persaþjóð).
Höf. tekr frara að spámannsskapr (fyðinga hafi ekki verið nærri
eins framvís og sumir guðfræðingarnir fullyrða, enda þótt hin
myrku orðatiltæki hans innihaldi sumt, sem kynni aðmegafæra
því til styrkingar. Þannig er t. a. tn. auðsætt, að bibliustað-
irnir í Esaías 9. 6—7 og Mikka 5. 2 eiga að heimfærast til
ríkiserfingjans Hiskía, er einnig sem konungr lét að miklu
leyti þær vonir rætast, er menn höfðu á honum í uppvextinum.
Enn þó hafa orð þessara biblíustaða verið skilin um Krist. Höf.
segir að Messías-hugmyndin hafi 'naft alla rót sína og næringu
í hinni óbifandi sannfæringu Gyð. utn það, að þeir væru hin helzta
þjóð jarðarinnar, sem með guðs hjálp og þrátt fyrir allar hörm-
ungar og ðsigra ættu eigi að eins að varpa af sér ánauðaroki
sjálfra sín, heldr meira að segja, að hefjast til drotnunar yfir
hinum öðrum þjóðum, bæði í pólitiskum og trúarlegum efnum.
Það var lika þessi trú þjóðarinnar á sjálfri sér og köllun sinni,
sem að endingu réð forlögum hennar og reið henni að fullu.
Höf. stendr að því leyti á grundvelli guðfræðinnar, að hann
gengr út frá því, að Kristr, um leið og hann var sannarlegr
maðr, hafi einnig verið meira enn maðr, enn hann dvelr samt
einkum við fyrri hliðina, manneðli Krists, og er rannsókn hans
skarpleg og fylgislaus. Guðfræðinni, eins og hún alment ger-
ist, veitir hann að verðleikum marga ádrepu.
Sérlega fróðleg er lýsingin á umgengni Krists við kvenfólkið,
þvi hér ber að sama brunni sem i hinurn mannkærlegu viðburð-
um vorra tíma, að því er snertir kvenfólk það, er fallið hefir
í breyskleika og sem skylt væri að leiða á betri veg aftr í stað
þess að útskúfa því úr maunlegu félagi.
I þættinum með fyrirsögninni: „Jesús sem spámaðr11, er tekið
fram að áf'orm hans að því er viðvíkr Messíasríkinu (= guðs
ríki á jörðunni) hafi hvað helzt verið að innleiða entjan lclerk-
dóm eða prestaríki, og einmitt fyrir þetta áform hafi hann orðið
pislarvottr, enn óðara enn postularnir eru teknir við, bryddir á
þvi, að þeir fara að roynda sérstaklega stétt, sem ætíð hefir
smeygt sér inu með hverjum trúarsið, og sem til eigin hags-
muna hefir steypt þjóðunum í eymd og niðrlægingu. Þáttr
þessi endar með því að minna á það, að það hafi einmitt verið
skörungsskapr Páls postula, sem forðaði hinum unga trúflokki
frá því að kafna í fæðingunni. Seinna meir hafi hinir svo
nefndu eftirfylgjendr hans notað aðferð hans að skýra og aftr
að skýra sérhvað þannig, að Jesú nafn og kenning er
höfð fyrir nafnspjald (,,skilt“) (a: i blóra við Jesú nafn og
kenningu), svo bráðum varð, eins og enn er, eigí all-lítill munr
á því, að bera gullkross á brjósti og trékross á baki. Já, sá
munr, sem þegar í sjálfu sér er nógu mikill til að vekja at-
hygli hvers, sem sjálfr er fær um að liugsa, — sá munr, sem
hlutaðeigandi gullkrossberar ættu að skoða fremr sem háðung
enn heiðrandi virðingar mark.
Síðast í bókinni er greinilegr og fróðlegr þáttr um trúflokka
Gyðinga: Saddúsea, Farísea og Essea, um ágreininga þeirra og
‘) Hinn sænski titill bókarinnar er: „Jesu Lefnad, jámte
skildring af Messiasideen hos Judarne etc., af C. G. Ny-
blæus." (Yerð 2 kr. 50 au.).
deilur í trúarlegum efnum. Einkum er fráskýringin um Essea
| fróðleiksmikil, því bæði vita menn miuua um þann trúflokkiun
enn báða hina, með þvi að Essea er látið ógetið í Nýa testa-
mentinu, og svo er það, að kristindómrinn á Esseum fjarska
mikið að þakka fyrir það, sem flokkr þeirra var áðr enn hinn
kristnaði heiðindómr byrjaði á sinum andstyggilegu og eigin-
gjarnlegu kredduþrætum.
Bók þessi, sem sýnir yfirgripsmikinn lærdóm og sjáltstæða
dómgreindargáfu, er í heild sinni hóflega samið trúsögulegt rit-
verk, og þess vert að lesið sé og íhngað af hverjum þeim, sem
lært hefir að meta liið réttmæta frelsi mannlegrar hugsunar og
sem þykir meira varið i sjálftengna skoðun með vandaðri rann-
sókn, heldr enn ambáttarlega fleiprun eftir trúarformálum ann-
ara, sem reyndar eru játning varanna enn lítið i varið að öðru
leyti“.
Daöi Níelsson fróði.1
Sá þótt væri sjálfmentaður,
Sögu var hann dyggur þegn,
Sannkallaðnr sagnamaður,
Sannleikauum trúr og gegn.
Hvorki fyrir hefð né hrósi
Hann að starfi sínu vann,
Sannleiks leitaði’ liann að ljósi,
Leitaði vel, og margt lianu fauu.
Hinu liðua heitt hann unni,
Hugall, að ei gleymdist það;
Maklegan i minnmgunni
Mörgum bjó hann samastað.
Enn — á lífsins útigangi
Enginn hæli Daða bjó,
Loksins útá víða vangi,
Varð hann úti’ í frosti’ og snjó.
Nein ei framar neyð liann pínir; —
Norðanbylur lukti hvarm
Og fannar sveiptur silfur-líni
Sofnaði’ hann við móðurbarm.
—K+
-+04---+C+-----+C+ +V+
.t Nýjungar frá ýmsum löndum, £
B-+C+—+>+- -+C+ - +C+- - +C+ +V+-S
-\A".V-V 'JV
Mark um framfarir eða þjóðmenniugu hefir það verið talið,
j hve mikið sú og sú þjóð hefir brúkað af sápu. Fyrir 50 árum
brúkuðu Englendingar 73/4 pd. af sápu á inann, enn nú 10 pd.
j — Pappírsbrúkun er og talin ekki síðr áreiðanlegt merki; fyr-
ir 50 árum brúkuðu Englendingar l'/„ pd. af pappír á mann,
enn nú 12 pd. í Bandaríkjunum koma 10 pund af pappír á
mann, á Þýzkalandi 9 pd., á Frakklandi 8 pd., á Ítalíu 4 pd.
Fastr heraili kristinna þjóða er nú talinn 4 mi!j. í Ameríku
fer til her.-ins eiun maðr af hverjum 322 vopnfærra mauna; á
Englandi 1 af 26; á Þýzkalandi 1 af 20; á Frakklandi 1 af
13; á Ítalíu 1 af 8.
Hár aldr. í Ungarn er maðr einn á lífi, sem kominn er á
131 árið, og er allfrískr enn á sál og líkama. Hann heitir
Franz Nagy og er fæddr árið 1756. Foreldrar hans voru á-
nauðugir, jarðfestufólk, og dó móðir hans, er hún hafði fætt
*) í „islenzka söguþættinum“ í þessu blaði munu áðr langt
líðr koma sögur ettir Daða fróða. Þótti því sérstaklega
vel við eiga, að flytja hér þetta kvæði, er lýsir honuin
mjög vel. Ævi Daða var hin hversdagslega islenzka
raunasaga — fátækt og örbirgð og sífeld barátta fyrir
lífsþörfunum, enn æviverk lians var ekkert bversdagslegt
verk, og það mun ekki fyrnast. Bitstj.
(