Fjallkonan - 30.11.1887, Page 3
FJALLKONAN.
139
fór með Eiríki rauða til Grænlands; kom hann
skipi sínu á Eyrar (þar sem nú er Eyrarbakki) og
spyr þá, að faðir hans er farinn. Lagði hann þá
í haf og ætlaði að leita föður síns. enn hann vilt-
ist langt suðr í haf. Sá hann þar skógi vaxið
land og fjallalaust, og fleiri lönd, er ekki gátu ver-
ið Grænland. Lönd þessi hyggja menn verið hafi
Nantucket (einu hnattstigi sunnar enn Boston),
Nova Scotia og Newfowndland. Bjarni lét þar eigi
að landi og hafði af því ámæli síðar, enn komst
siðan til Grrænlands.
LEIFR HEPNI.
Þá er Leifr frétti af ferðum Bjarna, fór hann
þegar á fund hans, keypti af honum skipið og réð
háseta, svo að þeir vóru hálfr fjórði tugr manna ;
létu þeir í haf og bar þar að, sem Bjarni hafði |
komið áðr. Það var árið 1000. Leifr fann fyrst !
Newfoundland, og kallaði það Helluland. Siðan
kom hann að Nova Scotia og nefndi hana Mark-
land, þvi þar er skógi vaxið, slétt og ósæbratt. Og
enn sigldu þeir lengra og komu að ey' nokkurri
og þaðan í sund það, er lá milli eyjar og ness, er
norðr gekk af landinu; þar bj uggust þeir um og
höfðu vetrsetu. Þetta lætr nærri að hafi verið
við Mount Hope Bay, og að búðir Leifs hafi stað-
ið við Fall River i Massachusets. Könnuðu þeir
nú landið betr og urðu þess vísir, að þar uxu vín-
ber. Fermdu þeir skipið vínviði og vinberjum og
sigldu heim til Grænlands um vorið. Leifr gaf
landinu nafn og kallaði Vínland. Síðan fóru aðr-
ir Islendingar sömu leið. Alls vóru famar 6 ferð-
ir til meginlands Ameríku af fornu íslendingum,
enn eigi vita menn til að þeir hafi reist þar bygð,
enda áttu þeir sífelt í ófriði við innlenda menn
(skrælingja eða Indíana?)
Sendiherra Bandarikjanna i Daumörk, Norðmaðr-
inn, Rasmus B. Anderson, hefir samið fróðlegt rit
um þenna fyrri Amerikufund. I öðru lagi hefir
ameríksk mentastúlka, Miss Marie A. Brow'n, ritað
bók um sama efni. I báðum þessum bókum er þvi
haldið fram með rökum, að Islendingar eigi heiðr-
inn fyrir að hafa fundið Ameriku fyrstir Evrópu-
manna, og að Kolumbus muui hafa orðið áskynja
um Ameríkuferðir Islendinga áðr enn hann lióf
landaleitir sínar.
Útlendar fréttir.
(Prá fréttaritara vorum).
Nýmæli frá fitlöndum eru að þessu sinni fá. — í fólks-
þingi Dana var bráðabirgðarfjárlögnnnm týrir næsta ár lirund-
ið 19. okt. með 68 at.kv. mót 25. Ríkisþiugi Irestað með kgs-
boði til 5. des., og halda flokkadeilurnar áfram með sama álmga
og áðr. Talið er líklegt, að draga muni til sumlrþykkis er
þing kemr saman aftr, og að þiugið verði rofið og nýjar kosn-
ingar fari fram. Sundrung er inikil með vinstri mönnum og
veikir það fiokk þeirra. — í Xoregi var að því komið að breyt-
ing yrði á ráðaneyti. Jiví megnasta óánægja er með Sverdrup,
enn hefir þð skipazt svo að kyrt er. — Þýzki keisarinn hefir
verið lasinn, sem vænta má á lians aldri; krónprinzinum þýzka
er að versna hálsmeinið og er sagt að það sé krabbamein, og
þykir það mikill skaði, því að af honum bafa liinir frjálslyndari
uienn vænt hins bezta, ef liann kæinist til valda. — A hrakk-
landi hefir komið upp hneykslismál, er svo er vaxið, að liers-
höfðingi nokkur, Caffarel að nafni, var höndlaðr söknm þess,
að hann hefði verzlað með lieiðrsfylkingarkrossinn og verið í
félagi um það við heimsdrósir uokkrar. Fleiri hersböfðingjar
riðnir við það. Boulanger dæmdr í 30 daga varðhald fyrir 6-
gætileg orð gegn hermálaráðgjafanuni í sambandi við þetta mál,
þótt svo virðist sem B. sé ekki bendlaðr við inálið. Verstendr
á fyrir Wilson, tengdasyni Grévys forseta. Er haun talinn
gjálífr féglæframaðr og hefir notað mægðir sínar til alls-
konar fébragða og dregr það skugga á tengdaföður hans.
Mælt er að Grévy gamli ætli að fara frá ef Wilson tekst
ekki að hreinsa sig. Ferry er nft aftr í meiri uppgangi
enn áðr. — Torymanna-stjórnin á Englandi beitir kúg-
unar valdi sínu gegn íruin, enn alt fyrir það halda þjóðernis-
félagsmenn fundi sína sem ekkert væri. Gladstone hefir ahlrei
verið ötulli enn nú, og dást menn að þreki hans og fjöri á svo
háum aldri. Halda þeir Parnell áfram brýningum sínuin og
telja menn víst að Salisbury-ráðaneytið muni innan skains fara
frá. — ítalir ætla að hefja herför á hendr Abessiníu-mönnum. —
í Bolgaríu fer alt skaplega sem stemlr. — Forsætisráðherrarnir
Crispi (frá Italíu) og Kalnoky (frá Austrríki) hafa átt fund
við Bisiuarek, svo þrí-ríkjasainbandið (Austrríki, Ítalía og
Þýskaland) stendr nú á fastari fóturn enn áðr og er það sam-
band gert mót Frakklandi og Rússlandi. Til stóð að FlúxHa
keisari kæmi til Berlínar, og hafði Bismarck látið setja i blað
sitt auglýsingu þess efnis, að sainkvæmt beinni nkipun keisar-
ans væri ríkiskanzlarinn væntanlegr til Berlínar þegar keisarinn
kæmi. Þykir af þessu mega ráða, hvern hug Bismarck beri til
Rússa. Blöð Rússa hafa orðið æf við þetta og haft i hótunuin.
Hitt fer að líkindum að Bisinarck láti iiart mæta hörðu þar sem
Rússa stjóm ofsækir þýzkt þjóðerni á Rússlandi og þröngvar
kosti þýzkra þegna sem mest iná verða.