Fjallkonan - 05.09.1888, Page 4
104
FJALLKONAN.
5. septbr. 1888.
geysað voðastormar, er hafa gert fjarskalegan skaða
á ökrum og öllum jarðargróða og jafnvel brotið
niðr mörg hús og verksmiðjur (í Maryland, Vir-
ginia, Pensylvania og New Jersey). — Annars látið
vel af atvinnuhorfum í Bandaríkjunum.
ASIA. Keisaraekkjan í Kína, sem hefir haft
stjórnina á hendi fyrir son sinn, hefir kunngert, að
hún ætli að sleppa henni í mars næsta ár, og tekr
son hennar þá við fullum völdum. — Á Java hefir
verið uppreisn, enn er nú sefuð.
ÞYSKALAND. I ræðu, sem Vilhjálmr keisari
hélt um miðjan f. m. við afhjúpun minnisvarða yf-
ir prins Friðrik Kari i Frankfurt við Oder, lýsti
hann skorinort yfir því, að það væri einlægr vilji
hinnar þýsku þjóðar, að verja til hins ýtrasta alt
það, sem unnið hefði verið á dögum Vilhjálms I.,
og kvaðst hann vera viss um, að það væri samhuga
vilji alls herliðsins, að heidr væru allar 18 herdeild-
irnar og 42 miljónir manna látnar liggja á vígvell-
inum enn slept væri einum einasta steini af’ því,
er afi hans og Friðrik Karl hefðu unnið, og sýnir
þetta, að hann muni ekki ætla sór að siaka til með
góðu, hvað sem i skerst. — Mælt er að Bismarck
ætli að segja af sér ráðherrastjórn yfir verslunar-
málum.
FRAKKLAND. Boulanger hefir verið kosinn
í 3 kjördæmum með miklum atkvæðafjölda, og hafa
út af því spunnist óeirðir í París og viðar, svo að
lögreglustjórnin hefir haft nóg að gera, að halda
skrílnum í skefjum, sem æðir um göturnar og æpir:
„lifi Boulanger. niðr með Ferry, niðr með Fioquet“.
Er þetta talinn mikill ósigr fyrir lýðveldismenn,
enn þó eru áhangendr Boulangers ekki enn þá al-
gerlega vissir um sigr. Lýðveldismenn segja, að
Boulanger hafi eingöngu verið valinn af einvalds-
monnum og Bonapartingum, og í þessum þremr
kjördæmum sé hinir síðarnefndu meirihlutinn. —
óvíst þykir hverja stefnu ráðaneyti Floquets muni
taka, ef Boulanger kemst að.
Nýjungar frá ýmsum löndum.
I Búlg'ariu vaða ræningjar uppi, og taka ýmsa menn fasta
sem þeim þykir slægr í, og heimta ærin fégjöld af stjórninni
ef þeir skuli lausir látnir. Stjórnin hefir nft er síðast fréttist
gert ráðstafanir til að eyða óaldarflokki þessum.
Þjóðverjar hafa gert tilraunir að koma á silkirækt þar í
landi. Landbftnaðarráðherrann hefir gengist fyrir því, að æfðr
silkiræktnnarmaðr hefir fengist við þann starfa í 5 ár. Árangr-
inn hefir orðið vonum betri, og er nft talið víst, að silkirækt
geti þrifist á Þýskalandi og orðið drjúg tekjugrein fyrir landið.
Óeltta eða svikin matvæli verða nft altaf tíðari á heims-
markaðinnm. Það er fleira enn smjörið, sem þannig er til búið.
í Hollandi er búið til mikið af óekta osti, sem flytst þaðan
víða um lönd, og er hann mestmegnis gerðr ftr svínafeiti.
Tvaer ungar stúlkur háðn nýlega einvígi í Frakklandi út
af pilti, er báðar vildu eiga. Þær börðust með skammbissum
og íékk önnur þeirra banasár á hólminum.
Fútækr búndi í Rússlandi fann nýlega í jörðu tólf stór
hylki full af gömlum gullpeningum og dýrgripum. Fundrinn
Var metinn yfir 30 milj. króna virði, og fekk bóndi þriðjunginn
í fundarlaun.
Heimildarlaust hjal.
Orðrómr sá, sem gengið hefir manna á milli
hór í bænum, að ég ætti fyrir hönd Jóns kaup-
manns Jónssonar í Borgarnesi að skrifa rit um
viðskifti þeirra Jóns verslunarmanns Vídalíns, er
bygðr á heimildarlausu hjali nefnds kaupmanns og
alveg ástæðulaus frá minni hlið.
Reykjavík, 1. september 1888.
Gestr Pálsson.
Sjóskóleðr selr undirskrifaðr óvenjulega ódýrt,
fáar húðir eftir. Ennfremr allskonar leðr fyrir
skósmiði og söðlasmiði, svo og barkalit á skinn,
seglgarn, segl, ull o. fl.
Björn Kristjánsson.
~ Takiö eftir!
Hvergi fæst eins fljótt tilbúinn skófatnaðr
sj5 og hjá undirskrifuðum og smiði og efni hvergi ~
Jg betra hér á landi. «
-2 Karla og kvenna stígvél og skór tilbúin
2 eftir 8—12 tíma frá því að pantað er.
© Vatnsstígvé) tilbúin eftir 2 daga.
Raýn Sigurðsson, Reykjavik.
Tímakensla.
Ég undirskrifaðr tek að mér, að kenna piltum undir skóla
næstkomandi vetr fyrir mjög væga borgun, ef 3 eða fleiri eru
saman. Sömuleiðis veiti ég tilsögn í þýsku, ensku og frakkn-
esku, og tek að mér hverja aðra aukakenslu sem er, hvort heldr
það eru börn eða fullorðnir, alt fyrir mjög væga borgun eftir
nánara samkomulagi. Þeim sem hafa hjá mér 2 stundir á dag
veiti ég þar að auki ókeypis tilsögn 1 stund á viku, ef óskað
verðr. Hannes Dorsteinsson,
Laugaveg, nr. 24.
Hið konunglega octroyeraða ábyrgðarfélag
tekr i ábyrgð hús, alls konar vörur og innanhúsmuni fyrir
lægsta endrgjald.
Afgreiðsla: J. P. T. Brydes verzlun í Regkjavík.
Ódýrt og gott.
Fyrir 35 krónur um máuuðinn geta 10—12 menn einhleyp-
ir fengið mat, húsnæði og þjónustu næstkomandi vetr;
þeir sem sinna vilja þessu boði eru beðnir að snfta sér til und-
irskrifaðs sem allra fyrst.
B. H. Bjarnason,
Vestrgötu 17, Reykjavík.
Gaa hen i Bogladerne og abonnór paa
„NORDSTJERNEN",
koster kun
1 Krone 25 0re Kvartalet.
10 0re pr. Nummer.
„Nordstjernen44 er Nordens störste og smukkeste
illustrerede
F a m i I i e b I a d,
og bör ikke savnes i noget Hjem.
Den ny Aargang begynder lste Oktober.
Abonnement modtages i Sigf. Eymundssons Boglade.
QUEEN VICTORI A’S
HAIR-ELIXIR,
hárvaxtar-meðalið ágæta,
fæst einungis í rerslun E. Felixsonar.
Prentsmiöja Sigf. Eymundsaonar og Sig. Jónssonar.