Fjallkonan


Fjallkonan - 29.07.1889, Síða 2

Fjallkonan - 29.07.1889, Síða 2
86 FJALLKONAN. VI, 22. Þess vegna er morð og stórþjófnað að skoða sem tiltölulega skaðlitla glæpi hjá þeim glæp, að vopna hleypidóm almennings og valdamanna gegn þeim mönnum, sem af köllun og kristilegri trú vilja reyna að vekja nýjar lífs- og trúar skoðanir í spiltum og sofandi söfnuðum. Og það, að slíkir menn eigi óðara að yfirgefa trúarfélag sitt, er þeir trúa ekki lengr bókstaf biblíuskýrenda 16. aldarinnar. er röng setning; með því móti yrðu þegar í dag trúarfélögin hér á landi eins mörg og kirkju- staðirnir. Yilji menn hafa, halda og kosta kirkju, sem lifir, og ekki er lifandi dauð, verða menn að læra svo inikið frelsi, svo mikið frjálslyndi, að ment- að fólk ekki fyrirlíti kirkju og kennimenn, né flestir andans menn ýmist snúi baki við eða stökkvi úr landi. Trú og kristindómr á ekki að mynda kirkjur og söfnuði, sem líkja má við stöðuvötn og polla, sem safna slýi og óheilnæmi, enn hvorki fá eða gefa ferska strauma. Trúin, eins og Jesús Kristr kendi hana, er lifandi lind, hinn lifandi umsær, sem veitir því rotnaða salt, hinu þyrsta svölun, hinu deyjanda líf. Dixi et animam liberavi! (o: nú hefi eg sagt það og samviskunni borgið). P. t. Reykjavík, 27. júlí 1889. Matth. Jochumsson. Alþingi. IV. Stjórnarskrármálið. Nefndin (Eir. Briem, Jón Jónsson þm. N.-Þ., Jón Jónsson þm. N.-M., Páll Briem, Sig. Stefánsson, Þorleifr Jónsson og Þorv. Kjerulf) hefir nú kornið með álit sitt. Auk nokk- urra orðabreytinga leggr hún til, að breytingar séu gerðar á kosningum til efri deildar og skipun deildanna; eftir þeim breytingum eru ákvæðin um þessi atriði þannig: „ A alþingi eiga sæti 36 menn; í fyrsta skifti, sem alþing kemr saman samkvæmt stjórnarskrá þessari, taka sæti í því 32 þjóðkjörnir alþingismenn og 4 alþingismenn er iandstjóri kveðr til þingsetu. Alþingi skiftist i 2 deildir, efri þing- deild og neðri þingdeild. I efri deildinni sitja 12 þingmenn, enn 24 í neðri deildinni. Tölu alþing- ismanna og tölu þingmanna í deildunum má breyta með lögum. Alþingismenn þeir, er landstjóri kveðr til þingsetu, eiga allir sæti í efri deildinni, enn hina þingmennina i efri deildina kjósa hinir þjóð- kjörnu þingmenn úr sínum flokki . .. alþingismenn í efri deildinni eiga sæti í deildinni, þangað til þeir eru sjötugir að aldri. Yerði nokkurt sæti laust i efri deildinni, kýs neðri deild með óbundnum kosningum mann úr sínum flokki í hið lausa sæti“. „Engan má kjósa í autt sæti í efri deild, nema hann hafi setið á tveim reglulegum alþingum“. Kjörtíminn til neðri deildar á að vera 6 ár, eins og nú er. Þinginaimafruinvörp (framh.). Um endrreisn Kjalarnesþinga prestakalls (J. Þórarinsson); um að nema úr löguin 15 rdl. aukaborgun, sem með kon- ungsúrsk. 25. ág. 1853 er lögð á sóknarbændr í Asmundarstaðakirkjusókn, til prestsins þar, enn að landssjóðr endrborgi núverandi presti þessa 15 rdl. með 30 kr. á ári (Jón Jónsson, þm. N.-Þing.); um breyting á 4. gr. í bankalögunum (Gr. Thomsen o. fl.); um breyting á lögum um gjald á brennivíni og öðrum áfengum drykkjum; um afnám fastra eftirlauna (Jón Jónsson N.-Þ. o. fl.); um eignarrétt á sömdu máli (J. 01.); um amtsráð í austramt- inu (J. Ól.); um breyting á útflutningslögunum (J. Ól.) ; um búsetu fastakaupmanna (Sig. Stefáns- son); um stækkun verslunarstaðar i Rvik (J. Jón- sen). Víilfangatollsfruniv. fer fram á, að hækka öltoll- inn úr 5 au. upp i 10 aur.; tollr á brennivíni, vín- anda og messuvíni á að vera óbreyttr, enn á öll- um öðrum vínum skal lækka tollinn úr 45 a. upp í 60 a. af potti, ef þau eru flutt í stærri enn 2 marka ílátum, eða af 3 pelum, ef þau eru flutt í minni ílátum. Réttindi kaupiuauna búsettra á íslandi. Frv. um það mál var breytt þannig i neðri deild, að þeir kaupmenn, sem ekki eru búsettir hér, mega eigi selja minna af hverri vörutegund i hvert skifti, enn fyrir 100 kr. Þetta átti þó eigi að ná til þeirra kaupmanna, sem nú reka verslun á Islandi. Frv. felt við 2. umr. í e. d. Ullarverksmiðja. Frv. fer fram á, að veita úr lands- sjóði 12000 kr. á ári í 10 ár til þess að koma á fót ullarverksmiðju á Húsavik. Nefnd kosin 20. þ. m.: Jón Jónsson þm. N.-Þ., Þorv. Kjerulf, Gluunar Halldórsson, Ól. Briem og Jón Þórarinsson. Vextir. Frumv. um þá ákveðr, að þegar samið er um vexti á peningaláni, enn ekki tiltekin upp- hæð þeirra, þá skuli þeir vera 4°/0 á ári, enn frjálst skal vera að taka alt að 6 af hundraði, sem vexti af peningaláni gegn veði i fasteign. --- Frv. er komið gegn um neðri deild. Varnarþiiig í skuldamáiuin ín. íi. Frv. um það mælir svo fyrir, að varnarþing skuldunauts skuli vera á varnarþingstað lánardrottins, ef skuldin er stofnuð, þar sem heimilisfang hérlends lánardrott- ins er. Sé skuldin stofnuð við fasta verslun, ræðr varnarþing þess, sem henni stýrir; enn því að eins gilda þessi ákvæði, að mál út af skuldinni sé tekið fyrir í sumar- eða haustkauptíð. Með þvílík skulda- mál skal fara sem gestaréttarmál. — Nefnd kosin 22. þ. m. í e. d.: Jón Ól.. E. Th. Jónassen og L. E. Sveinbjörnsson. Myndugleiki. í frumvarpinu er ákveðið, að fram- vegis skuli menn eigi verða hálfmyndugir, enn hver karlmaðr og ógiftr kvennmaðr skuli verða fullmyndugr 21 árs. — Frumv. er komið gegn um neðri deild. Fallin frnmv. auk þeirra er áör er getið: um að meta til dýrleika nokkra jarðir i Y.-Skaftafellss. felt i e. d.; um smjör- tollinn fellt í e. d.; um fátækra málefni felt í n. d.; um greiðslu og gjaldheimtu til sýslusjóðs og sýsluvega felt i n. d.; um að raeta Qarða við Rvík felt í n. d.; um endrreisn Kjalarnespresta- kalls i n. d.; um réttindi búsettra kaupmanna felt i e. d. Úílendar fréttir eftir blöðum (til 23. júlí). FRAKKLAND. Kæruskjalið gegn Boulanger, sem einnig er stílað gegn Dillon greifa og Rocliefort rit- stjóra, hefir inni að lialda auk beinna landráðasaka,

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.