Fjallkonan - 19.09.1889, Side 4
112
FJALLKONAN
VI, 28.
Öll hirðin er hálfþýsk, enda fylgir drotning í ýmsu þýskum
venjum. Hún beitir t. d. ekki hnífi og gaffli eins og Englend-
ingar gera, heldr eins og Þjóðverjar, þ. e. leggr frá sér hnífinn,
jnfnóðum og skorið er, og tekr gaffalinn í hægri höndina. Verst
af öllu þykir, að láta hnifinn upp í sig, enn það þykir líka dóna-
legt, að þerra diskinn með brauðbita, eða dýfa brauðinu í við-
metið. Fursti einn frá Rúmeníu gerði eitthvert mesta hneyksli
við borð drotningar. Ekki 'nóg með það, að hann styngi hnífn-
um upp í sig, heldr tók hann kartöflurnar af diskinum með
fingrunum. Honum var ekki boðið þangað oftar.
Vietoría drotning drekkr að kalla ekki annað enn kampavín,
og er þvi helt á stóran bikar handa henni, og verðr að tvífylla
hann.
Öllum ber saman um það, að vistin sé ekki góð í Windsor-
höllinni; þar fái menn lítið að éta og þetta litla sé að sínu leyti
ekki betra enn andlega fæðan, sem þar er höfð á boðstólum —
og þó vilja allir vera í heimboði hjá drotningunni.
Nýjungar frá ýmsum löndum.
Sósíalistafundirnir í París. Eins og áðr er getið í þessu
blaði, skiftast sósíalistar í tvo flokka; í öðrum þeirra eru Possi-
bilistar1 sem kallaðir eru, og eru þeir liðflestir í sjálfri París;
hinir Marxistar. eða þeir, sem fylgja kenningu þeirri er Karl
Marx flutti, og urðu því fundirnir tveir í sumar á sama tíma.
Á fundi Marxista vóru 370 fulltrúar frá ýmsum löndum, meðal
þeirra hinir frægu þýsku sósíalistar, Bebel og Liebkneeht, sem
var kjörinn forseti. Hann komst meðal annars svo að orði:
„Það er ekki furða, þótt stéttir þær, er völdin hafa, geri alt
til að hindra samtök verkmanna. Þær vita, að þegar öreiga-
lýðrinn um allan hinn mentaða heim hefir skipast í fastskorðað
félag, verðr hann svo öflugr, að þeim er nauðugr einn kostr að
taka tillit til hans bæði i atvinnulegum og pólitiskum
efnum. Barátta aftrhaldsflokkanna mót öreigalýðnum mun
verða árangrslaus, og það er siðasta örvæntingar-barátta hins
forna mannfélags. Verkmennirnir, sósíaldemokratarnir eiga á
sínum tima sigrinn visan og framtíðina í höndum11. Meðal
annara á fundi þessúm helt hinn alkunni merkismaðr Morris frá
Xondon snjalla tölu og skýrði frá hreyfingum sósíalista á Eng-
landi; hann er nú einna atkvæðamestr af foringjum þeirra þar í
landi. Mörg atriði vóru samþykt á fundunum, er sósialistar
hétu að berjast fyrir, t. d., að vinnutíminn yrði ekki yfir 8
stundir, afnám fasta-hers og margt fleira. Heyrðust nú engar
hótanir né ráðagerðir um byltingar eða blóðugar róstur, heldr
fóru umræðurnar fram með mestu stillingu, og er það mikil fram-
för frá þvi sem verið hefir og góðs viti um viðgang sósía-
lista.
Beykjarlaust og hvell-laust púðr. Við hertamningar Erakka
í haust skyldi reyna hið reyklausa og hvell-lausa púðr sem er
alveg nýfundið, og verðr það einnig reynt víðar. Hm þetta
púðr er svo sagt í einu útlendu blaði: „Þegar farið verðr að
nota þetta púðr i staðinn fyrir þetta hvellmikla og reykmikla
púðr sem áðr hefir tíðkast, verðr allr annar bragr á orrustum
enn verið hefir. Á vigvellinum verðr nær þvi hljóðlaus kyrð,
köll foringjanna, herblástrar og trumbur munu heyrast glögt,
og gnýr verðr varla af öðru enn hófadyn hestanna og skrölti
vagnanna. Hermönnunum deytast ekki hlustir af þrumugangi
stórskotanna, og púðrsvælan hylr ekki hryllingssjón bardag-
ans fyrir augum þeirra. Gamalvainr liðsmenn munu hafa mikla
yfirburði yfir littreyndum nýliðum. B,iddaraliðs mnn miklu síðr
neytt enn áðr, þvi nú getr það ekki lengr skákað í skjóli við
púðrreykinn til að ráðast i opna skjöldu eða til skyndiárása á
fótgönguliðið eða í skotvígin, er áðr var varla auðið að varast.
Aðalstyrkr hersins mun eftirleiðis verða í fótgönguliðinu og
ekki annars kostr enn að berjast í strjálingsröðum, eins og
veiðilió".
þriðja sinn bónorðsbréf á 5 dollara seðil og þóttist nú vera viss
um að stúlkan mundi ekki lengr neita slíkum höfðingsmanni.
Litlu síðar fékk hann bréf fráhenni áþessa leið: „Herra minn,
Ég þakka yðr fyrir bréf yðar. Enn rétt í þessu hefi eg fengið
bréf frá öðrum manni skrifað á 10 dollara seðil. Það getr þvi
ekki verið að tala um neitt samkomnlag okkar á millum, nema
þvi að eins að þér skrifið mér aftr á 20 dollara seðil“.
— í Cincinnati í Bandaríkjunum var snemma í sumar tals-
verð kirkjuleg hreyfing, og vóru þar þrir kirkjuflokkar sem
vildu láta loka kirkjunum mánuðina júlí, ágúst og september.
Prestarnir vildu létta sér upp nm sumartímann, og kennimaðr
sá sem einkum gekst fyrir þessu, komst svo að orði í umburðar-
bréfi sinu: „Fari svo, að myrkrahöfðinginn, hinn svo nefndi
Belsebub, kræki i nokkrar sálir frá oss i júlí, ágúst og septem-
ber, þá munum vér veita honum því harðari árásir í október,
svo hann haldist ekki við og steypist eny'andi beint niðr til hel-
vitis“.
Tímakensla. Eins og næstliðinn vetr tekst ég undirskrif-
aðr á hendr tímakenslu hér í bænum, bæði barnakenslu og
kenslu pilta undir skóla. Þar að auki veiti ég öðrum, er þess
óska, tilsögn í ensku, þýsku og frakknesku, og öðrum náms-
greinum, sem kendar eru við æðri skóla. Þeir sem þessu vildu
sæta ættu helst að semja við mig sem fyrst, svo að ég geti
hagað kenslunni sem kostnaðarminst fýrir nemendr.
Hannes Þorstéinsson (Laugaveg 2-i).
Bókbandsverkstofa
er á Laugaveg 2.
(Arinbjb'rn Sveinbjarnarson).
Skósmíðaverkstædi
og
leðrverslun
BJÖRNS KRISTJÁNSSONAR
er í Vestrgötu nr. 4.
Thorvardsson & Jensen:
Bókbandsverkstofa.
Bankastræti 12. (hús Joiis alþm. Oiafssonar).
For Lungelidende!
Den af mig siden 10 Aar fabrikerede American Con-
sumption Cure er verdensberömt. Hoste og Udspytning
ophöre ved sammes Brug allerede efter nogle faa Dages
Forlöb. Midlet har allerede ydet Tusinde en sikkerHjælp.
Katarrh, Hæshed, Slimopfyldning og Kradsen i Halsen af-
hjælpes strax. Þris pr. 3 Flasker M. 3, — mod Postfor-
skud eller Belöbets Indsendelse. Ubemidlede erholde Ex-
traeten gratis mod Indsendelse af et af Sognepræsten
udstedt Yidnesbyrd.
E. Zenkner, American Druggist,
BERLIN S. O., Wiener Str. 21.
100 Kroner
tilsikkres enhver Lungelidende, som efter Benyttelsen af det
verdensberömte Maltose-Præparat ikke finder sikker Hjælp. Hoste,
Hæshed, Asthma, Lunge- og Luftrör-Katarrh, Spytning o. s. v.
ophörer allerede efter nogle Dages Forlöb. Hundrede og atter
Hundrede have benyttet Præparatet med gunstig Besultat. Hal-
tose er ikke et Middel, hvis Bestanddele holdes hemmeligt; det
erholdes formedelst Indvirkning af Malt paa Mais. Attester
fra de höieste Autoriteter staa til Tjeneste. Pris 3 Flasker
méd Kasse Kr. 5. 6 Flasker Kr. 9. 12 Flasker Kr. 15.
Albert Zenkner, Opfinderen af Haltose Præparatet, Berlin
(26), Oranienstr. 181.
TITTI/ 1 miT (kaffiblendingr), sem eingöngumá nota í stað
U 11 If A L L I kaffibauna, fæst eins og vant er fyrir 56 au. pd
U U J\.íil 1 1 í verslun H. Th. A. Thomsens í Reykjavík.
Smávegis.
V átry ggingarfélagið
Commercial TJnion tekr í ábyrgð hús, innanhússmuni allskonar,
— Maðr nokkurí New-York, er tvívegis hafði fengið hrygg-
brot hjá sömu stúlkunni, tók það ráð, að hann skrifaði henni í
1) Af possible, mögulegr, eða því, að ekki skuli fara fram á
annað enn það sem mögulegt sé, því öll framför bæði í náttúr-
unni og mannlífinu gerist ekki alt í einu, heldr smátt og
smátt.
vörubirgðir o. fl. o. fl. fyrir lægsta brunabótagjald.
Umboðsmaðr á íslandi er
Sighvatr Bjarnason
bankabókhaldari.
21. blað Fjallk. kaupir utgef. háu verði.
Prentsmiðja Sigf. Eymundssonar.