Fjallkonan


Fjallkonan - 12.07.1892, Page 1

Fjallkonan - 12.07.1892, Page 1
IX. ár. Xr. 28. FJALLKONAN. Arg. 3 kr. (4 kr. erlendis). Gjalddagi 15. júlí. FeykjaVÍk, 12. jÚlí 1892. Skrifst. og afgrejðslusl.: fitgbollsMra-ti 48. Til kaupenda Fjallkonunnar. Margir kauperidr FjaHlí. hafa látið í ljós við út- gefandann, að þeir söknuðn aukablaðsins, sem fyigdi henni 1890, og flutti ýmsan fróðleik og skemtun, enn var slengt saman við aðalblaðið[1891. Eeynd- ar mætti standa á sama, þótt slikt aukablað væri ekki, ef blaðið flytti jafnmikið af fræðandi og skemtandi efni fyrir það. Enn margir kaupendr segja, að þeir vilji heldr, og þætti það tilbreyting til bóta, að við og við kæmu út einstök tölublöð af blaðinu, sem eingöngu flyttu þess konar efni í líking við útlend blöð, sem einungis eiga að fræða og skemta, enn fara ekki með pólitik, ritdeilur eða almennar fréttir. Við þessari ósk vill útgefandi Ejallk. inú verða, og hefir því í hyggju, að láta framvegis koma út eitt slikt blað í mánuði hverjum. Er ætlast til að efnið verði sem fjölbreyttast, um félagslegar, verk- legar og bókmentalegar framfarir annara þjóða nú á tímum, sögur, bæði innlendar og útlendar, o. s. frv. Mynd á að verða í hverju slíku blaði. tTtgefandinn treystir því, að kaupendr blaðsins fjölgi heldr enn fækki við þessa tilbreytingu, svo að hann fái þann kostnað endrgoldinn, sem af henni leiðir, þar sem það er æði dýrt að kaupa myndir og prenta þær hér, enn blaðið hœkkar ekki í verði. Nýir kaupendr Fjallk., sem gefa sig fram á síð- ari hlut þessa árs, geta fengið síðari hlut árgangs- ins 1892 fyrir 1 kr. 50 au. og fyrri hlutann ásamt fylgiritinu Gefjuni ókeypis, um leið og þeir borga, meðan upplagið hrekkr, enn það er nú bráðum þrotið. Ekkert blað hýðr jafngóða kosti. Forngripasafniö hefir mist mikils við fráfall Sigurðar fornfræðings Vigfússonar. Sæti hans sem umsjónarmanns forn- gripasafnsins verðr eigi fylt að svo stöddu. Hér á landi er svo lítill kostr á mönnum, sem gefa sig við einstakri vísindagrein, eða einstakri list. Lífshættirnir eru hér þannig, að menn verða að leggja stund á sem flest, og af því leiðir, að vér höfum tóma miðlungsmenn, enn varla afbragðs- menn í neinni grein. Vér eigum sem stendr engan fornmenjafræðing, sem sé fær um að taka við starfa Sig. Vigfússonar, enn hver sem eftirmaðr hans verðr við forngripasafnið, er vonandi, að sá hinn sami leggi stund á forn- menjafræðina, og hafi áhuga á að auka safnið og kynna sér það. Fé það, sem að undanförnu hefir verið lagt safn- inu úr landsjóði, hefir að eins verið veitt til þess að kaupa forngripi. Enn nú verðr óhjákvæmilegt að veita talsvert fé á næsta þingi til þess að koma safninu í röð og reglu. — Eins og mí stendr, eru ekki hálf not af safninu vegna þess, að engin niðr- skipun og engin röð er á gripunum. Sigurðr mál- ari Guðmundsson, sem fyrstr var umsjónarmaðr safnsins, raðaði gripunum í framhaldandi röð og samdi nákvæma skrá og lýsingu yfir þá meðan hans naut við; merkti hann hlutina ímeð tölum (númerum) eins og í skránni, enn nú eru þessar tölur máðar af mörgum hlutum, og getr orðið vandi að þekkja suma þeirra. Meiri vandi verðr þó að átta sig á þeim hlutum, sem safninu bættust með- an Jón Arnason var umsjónarmaðr, því lýsingar hans á gripunum eru mjög stuttar og engin röð á þeim. Sigurðr Vigfússon hefir heldr ekki sett tölu- röð á gripina, enn lýsingar hans eru svo nákvæm- ar, að vist má þekkja hvern hlut af lýsingunni. Það verðr afarmikið verk að koma safninu í lag, þannig, að hlutirnir fari ekki framvegis í rugling, enn það má ekki dragast lengr. Hefði Sig. Vigfús- sonar notið iengr, hef'ði verkið|verið auðunnara, því hann þekti hvern hlut í safninu. Slik niðrröðun safnsins getr þó ekki orðið nema til bráðabirgða, eða þangað til safnið fær nægilegt húsrúm, svo að hægt verði að raða því niðr á vísindalegan hátt. Engum mun blandast hugr um það, að forngripa- safnið sé þess vert að nokkru fé sé kostað til að halda því í röð og reglu, og að það sé að minsta kosti svo vel geymt, að hlutirnir ekki skemmist eða týnist. Enn eins og nú stendr, er það hvorki örugt fyrir skemdum né týnslu; meðan engin nú- mer eru á hlutunum, er jafnvel ekki óhugsandi, að útlendingar, sem sólgnir eru í forngripi, gætu hripsað hluti án þess nokkur vissi. Forngripasafnið er nálega hið eina af mannaverk- um hér á laiidi, sem útlendingum þykir nokkuð í varið. Vonandi er, að það eigi enn góða framtíð fyrir höndum, auðgist að mörgum góðum gripum, og að fræðimönnum lærist að nota betr enn gert hefir verið þenna ótæmanda menningar-sögulega fjársjóð. Kristniboösmáliö. Heiðingja kristniboðið islenska virðist vera úr sögunni. Forstöðumaðr prestaskólans var eindreg- inn á móti því á synodus og fáir munu vera því fylgjandi. I stað þess vildi forstöðumaðr presta- skóians skjóta saman fé handa kirkjufélaginu íslenska i Vestrheimi og biskup sömuleiðis. Skoraði bisk- upinn sérstaklega á alla viðstadda presta að leita lítilla samskota hjá söfnuðunum handa Hunólfi Hun- ólfssyni prédikara Islendinga í Utah (Mormónaland- inu) í Bandaríkjunum. Af því fáir munu þekkja prédikara-starfsemi og verðleika þessa guðsmanns, sem alþýða hér á landi á nú að biskups boði að fara að styrkja með fjár- tillögum, setjum vér hér dálítinn kafla úr bréfi frá kunnugum manni: „Ég sé í Kbl. 1. júlí, að biskap hefir skorað á presta að safna samskotum í sóknnm sínum handa Runólfi Runólfesyni prédikara

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.