Fjallkonan


Fjallkonan - 06.09.1892, Page 3

Fjallkonan - 06.09.1892, Page 3
6. Bept. 1892. FJALLKONAN. 148 þangað stöðugt, því styttri vegr er tíl Botðeyrar viðast úr Suðrdölum og framarlega fir Laxárdal. E>á er talið að skipa- lægi muni vera við Búðardal skamt fyrir norðan Laxárós, og máske einnig við Ljárvík nokkru norðar; kalla það sumir Nausta- bót, enn útgrynni mun vera á báðum þessum stöðum um fjöru, enn gott blé mun þar vera í norðan og austanátt, sem oft er hörð og þrálát við Hvammsfjörð. Báðir þessir staðir liggja vel við aðsókn til verslunar, einkum hinn síðarnefndi, því hann er rétt við sýsluveginn. Þeir menn sem búa hér í kring um Hvammsfjörð, fá sjálfsagt vel kunnugan mann, til að lýsa nákvæmlega stórskipaleiðinni af St.hólmshöfn inn á Hvammsfjörð, þvi á honum þarf ekki að lýsa leiðinni lengra enn inn hjá Lambey, Það liggr opið fyrir augum, að djúpmæling inn á Hvammsfjörð fæst aldrei hjá stjórn- inni á meðan hún álítr leiðina svo hættulega, eins og forstjóri sjókortasafnsins hetir nú lýst henni; enn sama álit verðr altaf á henni í Danmörku nema röksámleg andmæli komi fram á móti. Það hlýtr að verða hlutverk þingmanns Dalamanna á næsta alþingi, að hafa enn fram þingsályktun um mælingu á uppsigling á Hvammsfjörð, og verðr þá að búa hann út með nægar skýrslur, sem sýna að mælingin er möguleg, án þess að hafa mikið af þeim áhöldum, sem er óvanalegt að brúka við djúp- mælingar annarstaðar við ísland. Hvammsfirðingr. nokkru af kúm og öðrum fénaði á heimaeyjunni, sem þarf að vera kominn upp á hús og hey. Kálgarðar lita hér fremr illa I út. — Lunda- og svartfuglaveiði var hér nokkru minni enn næstliðið ár. Fýlaferðir, og undir eins glæfraferðir í fjölium, eru þegar á enda án allra slysa. Fýlungatekja með lakasta móti í flestum úteyjum. Þar á móti hefir fiskast hér allvel sið- an i lok maímán. og til þessa dags; tvö til fjögr hundruð af þorski; þar að auki taisvert af öðrum fiski. Enn því miðr hafa allt of fáir getað stundað róðra þenna tima. — Verslanin hefir verið hér með versta móti í sumar, og yfir henni alment hin megnasta óánægja. Verð á inniendum vörum afar lágt, t. d. saltfiskr nr. 1 afbragðs vel verkaðr, 32 kr. skpd,, hvít uil 55 a., fiðr 55 a.; aftr á móti flest útlend vara í háu verði, t. d. salt J 6 kr. 50 a. — 5 kr. 60 a. tunnan; ofnkol 5 kr. skpd. Er nú helst útlit fyrir, að hér verði innan skamms ein með verstu ein- | okunarholum landsins, þó verslanirnar séu fyrir augunum þrjár ] og eigendrnir að nafninu þrir. Er -ástandið skiljanlegt, þegar | faðir og sonr eru nefndir eigendr að tveimr og sonrinn er svo umsjónarmaðr hinnar þriðju verslunar. — Kjörfundr verðr hald- inn hér 13. sept.; hafa tveir boðið sig fram til þingmensku, ; Sigurðr SigrfinnsBon og Sigfús Árnason. — Heilsa manna hefir j verið hér með besta móti í sumar. — Ameríkuhugr og óeirð | fer heldr vaxandi; á verslunin góðan þátt í þvi að fæla menn héðan. Pðlitískr fundr var haldinn 3. sept. hér í bænum, sem boðað hafði verið til í blöðunum. Af því það vóru fylgjeúdr H. Kr. Frið- rikssonar, sem boðuðu fundinn, var hann miðr sóttr af öðrum flokkum, og af þingmannaefnum mættu að eins tveir, H. Kr. Friðriksson og Björn Kristjánsson. Fundarstjóri var Halldór Jónsson bankagjaldkeri og Ásmundr Sveinsson skrifari. H. Kr. Friðriksson lýsti i allöngu máli stefnu sinni, enn fór þó lítið út í einstök mál, eða einstök atriði. Kvaðst enn sem fyr vilja fylgja fram bæði frelsi einstaklinganna og almennu stjórnfrelsi; vildi að stjórnin yrði svo innlend sem auðið væri, enn kvaðst ekki vilja fylgja fram stjómarskrármálinu i því formi, sem það hefði haft á siðustu þingum; væri i því máli á sömu skoðun sem 1885. Um samgöngumál kvað hann þurfa að gæta þess að sniða sér stakk eftir vexti. Bjóm Kristjánsson beindi þeirri spurningu að þingmannsefninu, hvort hann mundi verða með af- námi amtmannaemb. og biskupsemb., hvort hann vildi afnema eftirlaun og hvaða skoðun hann hefði á frv. því um tekjur presta, sem stjórnin lagði fyrir alþingi 1889 (sem gerir ráð fyrir mik- illi hækkun á launum presta). H. Kr. Friðriksson svaraði því þannig, að hann taldi vankvæði á afnámi amtmannaembættanna (biskupsembættið nefndi hann ekki), áfnámi eftirlauna var hann mótfallinn, enn um tekjur presta lét hann ekkert í ljós. — Móti eftirlaunaafnáminu var það sagt á fundinum, að það væri lítt sæmandi að embættismenn yrðu þurfamenn í elli sinni; það þóttj ekki nægja, að börn þeirra gætu annast þá; þeir gætu verið barnlausir. Enn þar sem embættismenn hafa yfirhöfuð viðun- anleg laun og eru ýmist skyldir að tryggja sér ellistyrk, eða gera það hins vegar, ætti það ekki að koma fyrir að þeir færi á vonarvöl í ellinni, síst ef þeir eru barnlausir, enda eru nálega engin dæmi til þess. Af hinum háu eftirlaunum er nú farið að leiða, að þiggjendr fara úr landi með þau og eyða þeim þar í „vellystingum praktuglega". Þetta mál mun innan skamms verða rætt í þessu blaði. — Annað, sem rætt var á fundi þessum, þykir ekki frásagnavert. Bankasijóra sýslunin er veitt í gær Tryggva kaupstj. Gunnarssyni frá 1. maí n. á. Veitt brauð. Höfðaprestakall (Grrenivíkrsókn) í Suðr-Þingeyjarprófastsdæmi jer veitt af landshöfð- ingja séra Arna Jóhannessyni á Þönglabakka sam- kvæmt yfirlýsingu safnaðarins. Aðrir sóttu ekki. Óveitt prestakall. Þönglabakki, metinn 1071 kr. 92 au. Vestmannaeyjum, 16. ág. Veðrátt hefir verið hér allhagstæð sið- an kom fram á sláttinn, enn grasvöxtr varð með minsta móti, sökum kuldans fyrst og svo framúrskarandi þurka í alt vor. — Hey- skapr er litill hjá aliflestum, og liggr opið fyrir, að lóga hér Alveg eins og hjd [oss. Eftir seinustu blöðum útlendum er svo að sjá, sem peningar séu al- staðar í lágu verði og bankarnir vilja helst ekki taka á móti innlögum. I London var afsláttr (dis- conto) af þriggja mánaða víxlum að eins x/2—1 °/0 og líkt er ástandið í Frakkiandi og Þýskalandi. í Danmörku oífyllast bankar af peningum og slíkt hið sama í Noregi. I Noregsbanka er gullforðinn ^/2 milj. kr. meiri enn í fyrra um sama leyti, og vex meir og meir, svo að vextir hljóta að lækka talsvert. Útlit er fyrir allgóða uppskeru. Á Englandi er hveitiuppskeran byrjuð og litr vel út. Sömuleiðis lítr vel út með uppskeru í Frakklandi. Uppskeran í Eússlandi verðr hér um bil í meðallagi, að minsta kosti rúgr. Á Þýskalandi verðr góð uppskera á rúgi og byggi. I öðrum löndum Evrópu vænta menn og góðrar uppskeru. Vonandi er þvi, að kornvara fremr lækki enn hækki í verði, þó ekki verði enn sagt um það með neinni vissu. HEILSA OG LÆKNINGAR. Eáð við bráðasótt í sauðfé. Norskr dýralæknir þykist hafa fundið ugglaust ráð við bráðapest í sauðfé, hinni sömu sem hér er algeng á íslandi. Eins og kunnugt er, eru það „bakteríur11, sem veikinni valda. Hinn norski læknir tekr nýra úr kind, sem dáið hefir úr bráðapest, sker þau í þunnar flísar og þnrkar; geta þá „bakteríurnar“ geymst óskemdar yfir vetrinn. Þessar flísar steytir hann sundr og hrærir í hreinu vatni og spýtir þessum vökva inn í blóð unglamba. Lömb, sem þannig eru „bólusett", fá ekki bráðapestina, og er tveggja ára_,reynsla fyrir því, enn hvort þetta ráð er óbrigðult, verðr enn ekki fullyrt. Miðdegissvefn. Sumir hafa þann sið, að fá sér blund um miðdegisbilið, einkanlega eftir borðun. Enn læknar segja að það sé venjulega ekki holt. Menn eiga ekki að sofa é daginn. Það gerir reyndar litið til heilsunni, þótt sofið sé frameftir á morgn- ana. Eftir miðdegisverð skyldu menn pó livíla sig, þvi hreyfing eða vinna er óholl rétt á eftir iráitið. — Enn svefn á eftir miðdegisverði fyllir höfuðið af blóði og getr valdið höfuðþyngsl- um, auk þess sem melLngin verðr ekki eins kröftug, þegar sofið er, eins cg ef menn hvíla sig vakandi.

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.