Fjallkonan - 11.04.1894, Side 1
Kemr út & miSvikudögum.
Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.).
Auglýsingar mjög ödýrar.
Gjalddagi 15. júli. Upp-
sðgn skrifleg fyrir l.okt.
Afgr.: Þingholtsstr. 18.
FJALLKONAN.
XI, 18. Reykjavík, 11. apríl. 1894.
ísfirzku málaferlin. Sýslumaðr Berðstrendiiiga,
Páll Einarsson, var kominn til ísafjarðar snemma
í marzmánuði, sem setudómari í máli því, er Björn
sýslumaðr Bjarnarson hefir höfðað gegn Lárusí
sýslumanni Bjarnarsyni o. fl. út af drykkjuskapar-
orði, sem honum Var borið meðan hann var vestra
í vetr sem setudómari. Björn sýslumaðr er nú
einnig farinn þangað vestr. Sagt er að Páll sýslu-
maðr muni einnig eiga að vera setudómari í mál-
um, sem búizt er við að þeir Skúli Thoroddsen og
Lárus Bjarnason muni höfða hvor gegn öðrum. —
Fyrir utan öll ísfirzku málin, sem beinast meira
og minna að Skúla Thoroddsen, hefir ritstjóri ísa-
foldar, hr. Björn Jónsson, höfðað fjögur meiðyrða-
mál gegn Skúla, og verðr því með sanni sagt, að
hann eigi í vök að verjast.
Kaupfðr eru nú óðum að koma til Reykjavíkr.
— Hafa flestir kaupmenn hér í bænum lækkað verð
á útlendri matvöru nú um síðnstu mánaðamót,
þannig, að reikningsverð er nú hjá þeim á rúg
100 pd. 61/, kr., rúgmjöli 73/a kr., bankabyggi 11—
12 kr., kaífi 1 kr. 10 au., kandís 82 au.
Influenza-sóttin var komin í Þingeyjarsýslu og
Eyjafjarðarsýslu, er síðustu fréttir komu, og einnig
að byrja í Húnavatns og Strandasýslum (komin að
sunnan). Yestra var hún komin í Stykkishólm og
ólafsvík og lítið eitt i Dalina. Á Mýrum hafði
hún orðið ailskæð sumstaðar. í Borgarnesi kvað
svo ramt að henni, að gufubátrinn „Elín“ varð að
hverfa þar frá með vörur 4. apríl, af því að þeim
varð ekki skipað upp vegna mannleysis.
Húsbruni. Aðfaranótt 30. marz brann gamalt
verzlunarhús á Búðum, eign Eyjólfs kaupmanns
Þorkelssonar í B-eykjavík, með einhverjum vörum, er
þar vóru geymd&r. Bæði hús og vörur var vátrygt
fyrir samtals 9000 kr., og er því vonandi, að skað-
inn sé ekki tilfinnanlegr. Enginn bjó í húsinu, og
er ókunnugt um, hvernig bruninn hefir atvikazt.
Aflabrögð. Eiskigengd mun nú vera allgóð í
Eaxaflóa, og er hér kominn dágóðr afli síðustu daga.
Þilskipin hafa, enn sem komið er fengið mjög
lítinn afla, vegna þess að síðan þau lögðu út hafa
verið mjög miklar ógæftir, enn þau gátu ekki lagt
út fyr enn um og eftir páskana.
Mannalát. Úr influenza-sóttinni hefir fatt manna
dáið hér í bænum, nema helzt gamalmenni, og sama
er að segja um allar nærsveitir. Af bændum, sem
dáíð hafa úr sótt þessari, má nefna Ögmund Sig-
urðsson í Tjarnarkoti í Nj&rðvíkum, einn af efni-
legustu bændum þar syðra.
Hér í bænum er nýdáinn Nikulás Sigvaldason,
faðir séra Ingvars í Gaulverjabæ og húsfrú Gudný
Möller.
19. marz lézt húsffú Guðný Jónsdöttir á Ytra-
Hólmi, kona bændaöldungsins Pétrs Ottesens dbrm.
7. apríl lézt húsfrú Kristin Eggertsdóttir (Waage),
kona Helga kaupm. Jónssonar í Borgarnesi.
Druknun. Stykkishólmspóstrinn, Árni Jónsson,
druknaði í Norðrá 28. marz.
Palladómar
um
þingmenn.
29. Séra Sigurðr Gunnarsson
er maðr hár og grannr, rösklegr og einarðlegr á
svip. Hann er allvel máli farinn, enn talar fremr
sjaldan. Hann lætr allmikið til sín taka í hinni
hærri pólitík, stjórnarskrárn»áli og kirkjustjórnar-
málum, og var einn af formælöndum háskólamáls-
ins. Sagði hann í einni ræðu sinni í því máli, að
það mál hefði verið að undanförnu „brennandi
spursmál" þjóðarinnar, og er það furðu djarflega að
orði kveðið, þar sem þetta mál er svo nýtt, að allr
þorri þjóðarinnar mun ekki hafa skapað sér
minstu hugmynd um það. Séra Sigurðr er með-
mæltr aðskilnaði ríkis og kirkju, enn virðist þó vera
íhaldssamr í kirkjumálum; þannig var hann á móti
því að borgaralegt hjónaband skyldi leyft þjóðkirkju-
mönnum.
80. Séra Sigurðr Jensson
er lágr maðr vexti enn mjög þrekinn, stillilegr og
alvarlegr á svip.
Hann talar sjaldan og ekki heldr lengi í senn.
Hann er sannfæringarfastr maðr og lætr varla leið-
ast af öðrum, gætinn og samvizkusamr. Með því
að hann mun ekki vera mikill áhugamaðr í þing-
málum og lætr heldr lítið til sín taka á þingi,
væri æskilegra að sæti hans væri skipað skörulegra
þingmanni, enn að öðru leyti má telja hann með
hinum betri þingmönnum.
31. Séra Sigurðr Stefánsson
er meðalmaðr á hæð og allr jafndigr, svartr
á hár og skegg og nokkuð dökkr ílits yfirleitt.
Hann er ekki ósvipaðr kolsvörtum byssuhólki, sem
stendr upp á endann (sem Björnstjerne Björnson
hefir heppilega líkt hinum pólitísku prestum við),
enn með hverju hólkrinn er hlaðinn, er vant að
segja, enn ekki mun púðrið skorta. J Séra Sigurðr
Stefánsson er einhver mestr stórpólitíkus á þingi,
og fylgir fram flestum skoðunum Benedikts Sveins-
sonar með miklu kappi. Hann er einhver helzti
formælandi stjórnarskrérmálsins, háskólamálsins,
hæstaréttarmálsins, búsetu fastra kaupmanna o. s frv.
Það er einkam Ben. Sv. og séra S. St., sem hafa
barizt fyrir þessu síðastnefnda máli, þótt það hafi
fengið lítinn byr. — í kirkjumálum er séra Sigurðr
aftrhaldsmaðr, og langt frá því að vera frjálslyndr,
og þótt hann hafi gerzt mikill stjórnmálagarpr á