Fjallkonan


Fjallkonan - 08.05.1895, Blaðsíða 1

Fjallkonan - 08.05.1895, Blaðsíða 1
Kemr (it um miöja viku. irg. 8 kr. (erlendisíkr.). Auglýsingar mjög ödýrar FJALLKONAN. ÖJalddagi 15 J411 l rp- sðgn skrifleg (yrii l.okt. Afgr.: >ingholtsstr. U. Reykjavík, 8. maí. 1898. XII, 19. Útlendar fréttir. Noregr. KonstHamálinu þokar ekkert áfram. Óskar konungr er gallbarðr, og vill í engu slaka til. 30. janóar kom hann til Kristjaníu. Þingið átti þá að taka fil starfa, og eru vinstrimenn þar í meira hluta þótt eigi sé mikill munr. Stangsráðaneytið sagði af sér völdum seinasta janúar. Konungr kvaðst mundu hugsa málið. Kvaddi hann nú ýmsa menn á fund sinn af öllum þrem flokkunum, enn eigi fór hann þess á leit við neinn að takast forustu stjórnarinnar á hendr. Konungr fekk þeim Sivert Nielsen og Stein skriflega skilmála í hendr, sem vinstrimenn skyldi skuldbinda sig að halda, ef hann ætti að trúa þeim fyrir stjórn landsins. Skilmálar þess- ir lutu að því, að konsúlamálið yrði rætt í ríkisráði beggja landa og heimtaði konungr, að allar ákvarðanir, Bem vinstrimenn hing- að til hefði gert á þingi og málinu væri til fyrirstöðu, skyldu marklausar. Vinstrimönnum þótti bréf þetta bera vott um svo mikinn ójöfnuð, að fram úr keyrði. Stein sýndi fram á, að kost- ir þessir væri algerlega óaðgengilegir fyrir meiri hluta þings- ins. Þetta væru alsænskan skoðanir, sem kæmu i bága við rétt sem Norðmenn hefðu sem sérstakt ríki til að ráða sínum málum. Hægrimönnum þótti nðg um aðfarir konungsins, og sögðu að skilmálar hans hefðu gert allar sáttatilraunir erflðari. Því næst sneri konungr sér seinast í febrúar til Stangs, og bað hann, að halda áfram stjórnarstörfum. Enn Stang synjaði og lét bóka þá synjun. Þá snerí konungr sér til Jakobs Sverdrúps, foringja miðlunarmanna, enn það fór á sömu leið, og segjast miðlunarmenn algerlega ófÚBÍr á að styðja minnihlutastjórn að nýju úr því kosningarnar feilu þannig. — 28. febr. hélt svo konungr heimleiðis, enn Stangs-ráðaneytið varð að sitja að svo komnu máli. 27. marz kom konungr aftr ásamt ríkiserfingjanum. Grústaf krónprinz fylgir föður sínum ætíð á Noregsferðnm hans, og ætla menn að hann bæti eigi skap föður síns. — Konungr fól nú Michelet auðmanni á hendr að reyna til að mynda samsett ráða- neyti úr öllum stjórnmálaflokkunum, eða með öðrum orðum nokkurs- konar bráðabirgða-ráðaneyti. Enn það var ekki skilmálalaust. Meðan ráðaneyti þetta sæti að völdum, skyldi eigi hreyfa við konsúlamálinu eða sendiherramálinu. Norska þingið skyldi veita fé til konsúla og sendiherra eins og fyrir 1892. Norðmenn hafa um langan tíma barizt fyrir að fá sérstakan fána, enn það hefir konungr og hægrimenn eigi viljað leyfa. Pánamálinu mátti heldr eigi hreyfa. Þegar nú kom til kastanna, kváðust hægri- menn fúsir að styðja þannig lagað ráðaneyti; miðlunarmenn vóru og þvi meðmæltir, ef allir flokkarnir væru á þvi, enn vinstri- menn kváðust eigi geta gengið að þessum kjörum. Þeir hafa áðr frestað þessum málum og nú vilja þeir láta skríða til skarar. Tveim dögum síðar, 3. apr., hélt konungr heim. Áðr enn hann fór skrifaði hann Stang og sagðist eigi að svo komnu máli geta veitt honum lausn. Hann hefði gert alt það sem i sínu valdi stæði til þess að fá nýtt ráðaneyti, enn alt árangrslaust. Þannig stendr nú málið sem stendr. Vinstrimenn segja, að konungr hafi ekki farið fram á það við nokkurn vinstrimann að mynda nýtt ráðaneyti. Þar á móti hafl þeir heyrt ýmsar kröt'ur frá konungs hálfu. Ástandið er ekki glæsilegt. Stangs- ráðaneytið vill fá lausn, og segist ekki taka á sig neina ábyrgð af gerðum konungs, enn hann á að vera friðhelgr samkvæmt grundvallarlögunum. Vinstriblöðin eru hörð í horn að taka og segja að konungr hafi sjálfr fyrirgert friðhelgi sinni, er hann breytir á móti vilja stjórnarinnar. Eitt meðal annars hefir eigi alllítið minkað vinsældir og virðingu konungs hjá vinstrimönn- um: Á milli ferða sinna til Noregs lét konungr sænsku þing- deildirnar, velja menn í leyninefnd til þess að ræða með sér mikilsvarðandi málefni. Nefndarmenn urðu að skuldbinda Big með eiði að halda umræðum leyndum. Það var ljóst, að hér var um norska málið að ræða. Varð þetta athæfi konungs mjög óvinsælt, því slíkar leyninefndir hafa landsdrotnar eigi kallað saman nema á Krímstríðs tímunum og Slesvíkrstríðsins. — Vinstrim. furðuðu sig á þessu óvanalega athæfi. Menn spurðu hver ann- an hvað þetta ætti að þýða. Hvort konungr mundi hafa í hyggju að senda her manns inn í landið, eða, hvort hann að eins leitaði friðsamlegra ráða hjá ríkisþingi Svía. Norðmönnum þótti það eðlilegast, að Norðmannakonungrinn fyrst og fremst leitaði ráða Norðmanna, ef alt ætti að fara fram á friðsamleg- an hátt. Þýzkaland. 1. apríl varð Bismarck áttræðr. Mönnum lék forvitni á að heyra, hvernig ríkisdagrinn þýzki mundi haga sér. Það þótti eigi óliklegt, að þingið mundi telja það skyldu sína, að flytja stofnara þýzka keisaradæmisins hamingjuóskir og þakk- læti fyrir stórvirki hans. Menn vissu að keisaranum lá það á hjarta að sem flestir sýndu „einbúanum í Priðriksruhe“ lotningu. Á hinn bóginn var það fullljóst, að á ríkisþinginu var stór flokkr manna sem þóttist eiga járnkanzlaranum’ alt annað enn gott upp að inna. Þar vóru jafnaðarmennirnir, sem Bismarck hafði ofsótt á allar lundir. Pramsóknarmennina hafði hann einatt kallað föðurlandBSVikara, þrællyndaða Prakkavini og valið þeim önnur ill nöfn. Miðflokknum, eða páfatrúarmönnum, hafði hann gert margt til miska, meðal annars með því, að koma á Jesú- ítalögunum. Allir þessir flokkar eru mannmargir á þinginu, og mátti því telja það víst, að erfitt yrði að fá samþykki rikisdags- ins, til þess að senda honum kveðju. Margir vóru jafnvel á því, að bezt færi, að því máli væri ekki hreyft. Þó fór svo, að forseti þingsins bað um leyfi til þess að flytja Bismarck hamingjuóskir þess, enn það var felt með nokkurum atkvæðamnn. Mót.stöðumenn Bismarcks héldu því fram, að hann hefði gert þýzku þjóðinni svo mikinn skaða með harðstjórn sinni og kúg- unarvaldi, að hann ætti alt annað enn þakkir skilið. Richter sagði, að hin innlenda stjórnaraðferð Bismarcks hefði haft spill- andi áhrif á þjóðina, og enn þá reyndi hann með tillögum sín- um að koma i veg fyrir að innlenda stjórnarfarið kæmist í af- farasælla horf. Á líkan hátt talaði Virchow í fulltrúaþingi Prússa. Afleiðingin af þessari atkvæðagreiðslu var sú, að for- seti ríkisdagsins lagði niðr völdin, og keisari sendi þegar Bis- marck hraðskeyti. Kvaðst hann „lýsa djúpri gremjn yfir álykt- un þingsins11, og taldi hana vera „þvert á móti vilja allra þýzkra þjóðhöfðingja og þjóðarinnar". Þannig fór þetta, en Bismarcks fór þð eigi varhluta af gjöf- um og hamingjuðskum, sem streymdu til hans úr öllum áttum. Keisari sendi honum gjafir og fór sjálfr á fund hans til þess að færa honum óskir sinar. Hægrimenn og þjóðfrelsismenn (na- tionalliberalir) á ríkisþinginu tóku sér ferð á hendr til Friðriks- ruhe. Stúdentar og háskólakennarar frá öllum háskólum Þýzka- lands sendu fulltrúa til hans í lotningarskyni. Þar var margt sagt og mikið ort. Bismarck var hinn hressasti og þakkaði fyrir með löngum ræðum. Langa lengi gerði hvorki að ganga né reka með hið alræmda lagafrumvarp stjórnarinnar gegn byltingaflokkunum. Nefndin sem átti að fjalla um frumvarpið varð eigi ásátt. Einn af mið- flokksmönnum kom með viðaukatillögu við það, og áttu þeir, sem töluðu eða rituðu illa um trú og kirkju, að sæta frá 600 kr. sektum, og jafnvel fangelsi. Menn hugðu, að miðflokksmenn hefðu bætt þessu við til þess að gera út af við frumvarpið. Tillagan var feld, og þá greiddu miðfiokksmenn atkvæði á móti frumvarpinu. Síðan hefir þeim snúizt hugr. Samkvæmt nýjustu fréttum hafa þeir greitt atkvæði saman með íhaldsmönnum í nefndinni, og er því líklegt, að frumvarpið komizt úr nefndinni að mestu leyti óbreytt. Hitt vita menn ekki, hvort mótstöðu- menn frumvarpsins í ríkisdeginum hafa bolmagn til þess að kveða það niðr. Austrálfnstríðinu er nú lokið. Hefir það þá staðið í tæpa 10 mánuði. Eins og áðr hefir verið sagt, höfðu Japanar tekið Port

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.