Fjallkonan


Fjallkonan - 11.12.1895, Síða 1

Fjallkonan - 11.12.1895, Síða 1
Kemr út nm miöja viku. Árg. 8 kr. (erlendis 4 kr.). Anglýeingar mjögódýrar. FJALLKONAN. OJalddagi 15. Jdll, TJpp- sögn skrifleg fyrir 1. okt. Afgr.: Þingholtestrœti 18. XII, 80. Reykjavík, 11. desember. 1898. í dönskum blöðum hefir cand. polit. F. J. West ritað allmiklar greinir um JDanmark og Island’, og er hann íslendingum velviljaðr. Hann getr þess að Danir sé furðulega ókunnir landi voru og þjóð, og af þeirri vanþekkingu stafi það, að stjórnin hafi svo lítið sint kröfum íslendinga né reynt að bæta at- vinnuvegu og stjórn landsins. — Hann rekr sögu stjórnarskrármálsins frá upphafi, minnist á þær fram- farir, sem hér hafi orðið í einstökum greinum á síð- ari árum, og tekr það sérstaklega fram, að landinu ríði einna mest á, að samgöngurnar séu bættar til þess að afurðir Iands og sjávar geti komið að fullum notum. Getr hann um hið nýja landsskip, og minn- ist á Færeyja-ferðir ísl. póstskipanna, sem meðal ann- ars geri ferðina milli Khafnar og íslands 9—18 kr. dýrari enn hún annars væri fyrir hvern farþega. Hann ræðr að lokum Dönum til að sinna íslandi betr enn að undanförnu og láta ekki Englendinga eina um landið. Um háskólamálið segir þessi sami hr. West, að það sé staðleysa (utopi), sem fáeinir skammsýnir menn hafi farið fram á, enn telr þó þörf á, að hér væri stofnaðr lagaskóli. Kostnaðrinn við háskóla hér á landi segir hann mundu verða meiri enn landið gæti tiltölulega borið, og mundi þó háskóli þessi ekki geta fylgt tím- anum. — Það virðist nú sem háskólamálið sé alveg fallið í dá; því var ekki hreyft á síðasta alþingi, enn þar á móti samþ. frumv. um lagaskóla. — Tillagan um að afnema styrk þann er ísl. stúdentar njóta við há- skólann í Khöfn mun að vísu vera runnin undan rif- jum háskóla-krefjendanna, enn árangrinn afslíkritil- lögu getr naumast orðið annar enn sá, að styrkrinn verði afnuminn, án þess nokkuð komi í staðinn, og væri þá vel að verið. Ekki mun háskólamálið verða notað sem brýn- ingarfæri i viðreign þjóðar og stjórnar, því þjóðin vill ekki fylgja því fram, nema ef til vill fáeinir menn. Annars virðist svo sem þjóðin sé nú orðin leiðá þeirri pólitik, sem fylgt hefir verið fram á alþingi í stórm álum, og kjósi heldr að fara hægra og halda meira í praktiska átt. — Stjórnmálamennirnir hafa sífelt verið að tala um (söguleg landsréttindi’, og þó styðzt stjórnarskrárfrumvarpið alls ekki við þessi (sögu- legu landsréttindi’, enda geta (söguleg réttindi’ ein- mitt verið hinn mesti ójöfnuðr. Þeir hafa aftr á móti naumast tekið nægilegt tillit til eðlilegra réttinda, andlegs þroska og efnahags þjóðarinnar. Pasteur. Louis Pasteur, hinn frægi franski efnafræðingr, dó, sem kunnugt er orðið, 28. sept. í haust. Hann var langfrægstr vísindamaðr, ekki einungis á Frakk- landi, heldr í öllum heimi. Margar þúsundir manna eiga honum lífið að þakka, og enn fleiri mega þakka uppfundningum hans, að atvinnuvegir þeirra hafa stórum blómgazt. Frá efnafræðisstofu hans í París skein ljós yfir allan heim, sem leysti menn frá ótal vandkvæð- um, sjúkdómum og dauða, enda streymdu til hans lærisveinar úr öllum löndum. Hann er fæddr 27. des. 1822 í Dðle á Frakk- landi, og varð háskólakennari í efnafræði 32 ára, síðast við Sorbonne-háskólann í París, enn lagði niðr embætti 1875 til þess að geta eingöngu gefið sig við vísindalegum störfum, enda vóru honum í því skyni veitt rífleg eftirlaun. Hann var þá orðinn heimsfrægr fyrir fundn- ingar sínar á bakteríunum, sem hafa gert algerða byltingu í læknifræðinni og fleiri vísindum. Þær rann- sóknir leiddu tilþess,aðhann fór að rann- saka silkiorma sýki og vín- berjasýki, sem áðr höfðu gert bændum þar í landi ógurlegt tjón. Tókst honum svo að ráða bót á mis- brestum þess- um, að talið er aðmeð því einu hafi hann fyr- ir löngu unnið Frakklandiinn þá 5 miljarða, erþeir urðu að borga Þjóðverjum. Enn frægari hefir hann þó orðið af uppfundningum sínum er snerta bólusetningu gegn sjúkdómum (mílt- isbrandi, hundaæði o. fl.). — Það eru hans uppfund- ningar, sem leitt hafa til þess, að lærisveinar hans hafa nú fundið nær óyggjandi meðal við barnaveik- inni (difteritis). Hann var mjög heilsutæpr á efri árum, og staf- aði heilsubrestr hans af því, að hann hafði lagt langt- um of mikið á sig við rannsóknir sínar, sem hann var vakinn og sofinn í. Pasteur mun ávalt verða talinn meðal hinna mestu velgerðamanna mannkynsins, og hann var einn af þeim fáu mikilmennum, sem enginn bar annað enn gott. Raflýsing Reykjavíkr. Hr. Frímaim B. Anderson flytr nú májið um raflýsingu Reykjavíkr, og hefir bæjarstjórnin samþykt

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.