Fjallkonan


Fjallkonan - 25.03.1897, Blaðsíða 4

Fjallkonan - 25.03.1897, Blaðsíða 4
48 FJALLKONAN XIV 12. Mýrddl, 19. febrúar: „Dorrinn er nft að líða og fær hann alment lofsorð fyrir, að hafa verið gððr. Það var að vísu nokk- uð gjaffeld tíð fram eftir honum, enn snjðkomur litlar og frost vægt (hæst frost 8 gr. R.); i þriðju vikunni gerði þíðveðr, sem hefir haldizt síðan, svo nft sést ekki snjðr, nema í fjöllum uppi. Fénaðarhöld munu vera gðð hér og beyjaforði víðast hvar nægi- legr; enda hefir verið hagfeld tíð yfirhöfuð í vetr.' Þrisvar var rðið hér í fyrstu viku þorra, og tískaðist lítið eitt fyrsta dag- inn, enn varð ekki lífsvart hina dagana og kendu menn um það jökulgormi úr Skeiðará, að hann hafi fælt burtu fiskinn. — Pöntunarfélag Skaftfellinga hélt aðalfund sinn í vetr, rétt fyrir jðlin, og var séra Magnús á Prestbakka kosinn formaðr þess í stað Halldórs umboðsmanns í Vík, sem ekki vildi lengr gegna þeim starfa. Enda bera menn alment gott traust til núverandi form. þess og líkaði mjög vel framkoma hans á aðallundinum. Sú breyting kom líka á félagið, að ekkert vín fæst pantað í því; vínmönnum þykir það að vísu skaði, en hera sig þð furðan- lega. Aftr munu aðrir vera komnir á þá skoðun, að helzt ekkert vín ætti að flytjast hingað í kanpstaðinn; það dregr furðanlega til sín peninga almennings, þð enginn sé ðreglumaðrinn! Vísir til bindindisfélags hefir myndazt í Hvammshreppi í vetr fyrir framtakssemi nokkura duglegra manna, enn lítt mun almenn- ingr trúaðr á slíkt fyrirtæki. — Blaðakaup vaxa hér stöðugt, eftir því sem hlöðin fjölga; þó munu fáir segja sig úr gömlu blöðunum fyrir þau nýju, enn hvort það er af trygð við gömlu blöðin eða trúleysi á nýju blöðunum, læt ég ðsagt; hitt er víst, að hér þrífst ekki til lengdar allr þessi blaðasægr. — Mentnnar- og lestrarfýsn almennings virðist mikið fara vaxandi hér. — Tveir nmgangskennarar hafa verið hér í Mýrdalnum í vetr og njóta kenslunnar um 60 börn“. Mýrasýslu, 26. febrúar: „Allir horfa með kvíða fram á verzlunaróöldina, sem í hönd fer. Matvara í Borgarnesi nú hækkuð við báðar vérzlanirnar; var hækkuð strax í haustkaup- tíð við aðra þeirra. Kornvöruverð er nú: Rúg 7 a. pd., rúg- mjöl 8 a. pd., bankabygg 12 a., Vs grjón 12 a., s/4 grjón 12V2 eyri, baunir 12 a. Kaffi er 1,10 pd., enn hingað er sagt, að það hafi lækkað til muna í Rvík. Hér er deyfð yfir öllu félagslífi; opinber mál heyrast varla nefnd. Varla sést bér nokkur ný bók, þó einlægt sé verið að prenta í Rvík. „Bóksalafélagið“ er einkennilega lagið á að gera mönnum örðugt fyrir með bókakaup; það tímir víst ekki að sjá af bókum sinum upp um sveitimar. Sennilega ætti það þó að vera hagsvon fyrir félagið að hafa duglegan útsölumann i Borgarnesi eða þar nærlendis. Nú er mönnum tíðræddast hér um baðanir; — það er ljóta stautið með það málefni. Bændr fá hvert kaldabaðið á fætr öðru af yfirvalda skipunum yfir sig, sem sumar hverjar eru ó- framkvæmanlegar á þessum tíma. Baðmeðul engin til nær enn ef vera skyldi í Rvik, enn örðugt að ná þeim þaðan, — og hver gerir það? Kaupmenn vænti ég! — Enn hver borgar baðmeðul handa þeim, sem ekkert lánstraust hafa; og hver borgar öll þau fóstr, sem drepin verða i lambfullum ára, með því að byrgja þæT inni í karbólsýru lofti, eða sleppa þeim nýboðuðum út í vetrargadd? — Og hver gefr heimild til að stofna bústofni bænda i voða, með þeim fyrirskipunum sem vel geta orðið til ómetanlegs tjóns, meðan reynslu vantar, sem sýnir hið gagn- stæða? Lögin vænti ég! Nei og aftr nei. Annars þyrftu lög- gjafar vorir sjálfir að fá þrifabað sem fyrst og bústaðr þeirra að vera sótthreinsaðr. — Rétt í þessari svipan fréttist hingað að 10 kindur, sem áðr vóru heilbrigðar, hafi drepizt af böðun í Höfn í Leirársveit, og viðar farið kind og kind. Hvað segir dýralæknirinn"? Strandferðaskipið „Tliyraa koxn hingað í gær og með því allmargir farþegar, þar á meðal frú María Finsðn. Lík póstmeistara 0. Finsens kom með skipinu. Aflabrögð. Það hefir aflazt allálitlega í net í Garðsjó í fyrstu iagningum, og líklegt að það haldi áfram, því fiskigengd er sögð austan með landi. — Skyldi menn nú geta sannfærzt um, hvaða ógagn getr stafað af takmörkunum samþyktanna? Skip fórst af Eyrarbakka fyrir helgina með 9 mönnum. Formaðrinn hét Torfi Nikulásson frá Sönd- um í Stokkseyrarhverfi. r Islenzk iimboðsyerzlun. Undirskrifaðr selr íslenzka verzlunarvöru á mörk- uðum erlendis og kaupir allskonar útlendar vörur fyrir kaupmenn og sendir á þá staði sem gufuskipin koma. Söluumboð fyrir ensk, þýsk, sænsk og dönsk verzlunarhús og verksmiðjur. Glöggir reikningar, lítil ómakslaun. Jakob Gnnniögsson. Cort Adelersgade 4, Kjöbenhavn K. scr1=1=1=1=1=15 Él Samúel Óiafsson Vestrgötu 88, Reykjavík, pantar n a f n s t i m p 1 a af hvaða gerð sem þið óskið. Skrifið mér og' sendið 1 kr. með hverri stimpilspöutun. Nafnstimplar eru nettustu sumargjaflr. Bezta og ódýrasta þakjárn. Það tilkynnist heiðruðum almenningi heimaáFróni, að á komandi sumri mun ég hafa miklar birgðir af mínn vandaða þakjárni, af ýmsum lengdum. Þið. sem byggið, varist, varist að brúka þunt og slæmt járn, því það svíkr ykkr áðr en varir. pt. Khöfn Hótel „Dania“ 1. marz 1897. W ó Breifífjörð. Prír duglegir menn geta fengið atvinnu við landvinnu frá 14 maí n. k. ti! næstu rjetta. Gott kaup og áreiðanleg borgun Semja má við Rafn Sigurðsson í Reykjavik. verzlun Magnúsar Einarssonar á Seyðls- flrði fást áfjæt vasaúr og margskonar smekkleg- i ar, fásénar og vandaðar vörur með mjög sanngjörnu verði. Stam. Þeir, sem stama, geta fengið leiðbeining til þess að losast við þann kvilla, ef þeir vilja koma hingað tií Reykjavíkur 20. dag maímánaðar næstkomandi og dvelja hér 3—4 vikur. Morten Hansen. Útgefandi: Vald. Ásmundarson. Fólagsprentsmiöj an.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.