Fjallkonan


Fjallkonan - 04.11.1897, Page 3

Fjallkonan - 04.11.1897, Page 3
4. nóvember 1897. FJALLKONAN. 175.J ketilinn, og varð því skipið að fá aðgerð í Skotlandi Það var þó að eins 31/* dag frá Khöfn til Skotlands, og 8 daga frá Skotlandi hingað. Hrepti versta veðr á leiðinni. Seinkun skipsins stafar af viðgerðinni í Skotlandi og því, að skipið lagði 3 dögum síðar af stað frá Khöfn enn áætlað var. Koatnaðrinn við að- gerðina og dvöiina í Skotlandi á sjálfsagt eigandi skipsins Thor. E. Tulinius að borga. Skipið er, eftir skjölum þess að dæma, gott sjó- skip og hæíilegt til ferða, þótt þetta slys vildi til, enda er það nýtt að kalla, bygt 1890. Farþegar vóru með „Hjálmari": íslenzk hjón frá Ameríku með börnum sínum, fröken Iugibjörg Bjarnasou og fáir aðrir. — Kona Jóns Ólafssonar ritstj. varð eftir í Skotlandi á heimieið hingað og bíðr „Lauru“. ÍSLENZKR SÖGUBÁLKR. Sturla verkstjóri á Munka-Þverá. (Handrit aéra Benedikts Þórðarsonar). (Frh.). Eitt sumar átti lögmaðr uxa einn sjö vetra gaml- an. Var hann hið rnesta metfé á vöxt. Uxinn gekk með öðr- nm geldneytum á Munka-Þverárdal. Oft ræddi vinnufólk á Munka-Þverá um sumarið við Sturlu um, að mikil væri eftirsjá í uxanum og ekki fengi það að éta hann, því það vksi, að lög- maðr mundi selja hann Dönum á Akreyri er áliði sumarið. Sturla kvaðst ráðs síns mundu leita, að ekki yrði af uxasölunni í kaup- staðinn, ef það vildi gefa sér kaup til, og var honum kaupi heitið. Litlu síðar ríðr Sturla á dalinn og læzt vilja gæta hrossa er þar vóru.' Var lögmaðr vitandi ferðar Sturlu, enn er Sturla kom af dalnum og hittir lögmann, kveðst hann hafa ill tíðindi að segja, og er lögmaðr innir til um þau, segir Sturla, að uxi hans hinn gamli sé orðinn svo tryltr, að ekki megi hann lengr lífi halda; sé trylling hans með slíkum ódæmum, að hann fylgi ekki nautaflokknum, enn haldi sig því fastara að stóðköplum; hann sé líka orðinn svo mannýgr, að einskis manns lífi sé óhætt, er um dalinn fari. Enn við slíkar viðræður Sturlu verðr það, að lögmaðr biðr hann tafarlaust drepa uxann og gera af átunni hvað hann vilji, enn skila sér húðinni. Hafði Sturla rætt það fyrir lögmanni að uxinn mundi óætr, sökum samfara hans við hryssurnar. Fór nú Sturla og tók með sér alla vinnumenn lög- mannsins og ýms áhöld, Ijái og lagvopn, einB og til bardaga, á dalinn. Fólk var við sel á dalnum frá Munka-Þverá. Þangað heim hafði Sturla og félagar hans uxann, og slátruðu. Var það alt í makindum, því uxinn var sauðgæfr. Var uxaslátrið hirt og soðið í selinu handa öllum, er þess vildu neyta. Þegar heim kom, sagði Sturla og félagar hans þ&ð er þeim líkaði af fram- göngu sinni við uxadrápið. Færðu þeir húsbónda sínum húðina, og vóru göt á henni eftir lagvopnin, þar sem þeim hafði orðið við komið. Þrátt fyrir allar slíkar skráveifur Sturlu, var hann kær og þarfr húsbændum sínum. Sjálfr var hann ötull til alls verknað- ar og mjög fyrir allri verkaBkipun á heimilinu; hann var einn- ig til aðdráttanna framsýnn og fengsamr, og fór oft skyeiðar- ferðir til Qrímseyjar, og er það mælt, að eitt Binn í andviðri reri hann alt Grímseyjar sund svo, að ekki liti hann um stafn fram; enn sundið er fullar sex vikur, og þykir það mörgnm leið- indasprettr. Það er og sagt, að þá hafi Sturla einskis drykkjar neytt, enn étið í drykkjar stað fjórðung af súru smjöri. Skaftafellssýslu, 8. okt.: „Sláttrinn í snmar var mjög erfiðr, einiægir óþurkar gengu fram til höfuðdags; þá stytti til um tíma og gerði þurk, enn fljótt sótti aftr i sama vætuhorfið og hefir bú veörreynd haldizt siðan. Almenningr illa heyjaðr, svo alment mun þurfa að fækka fénaði í haust, og ættu menn nú að muna eftir síðastliðnu vori, þegar þeir setja á heyin sin og ætla ekki vetrinum of vel. — Kartöjtugarðar hafa viða mis- heppnast til muna, og kenna menn um vætu, enn ekki mun siðr mega um kenna umhugsun og útbúnaði garðanna, sem viða er síðri enn skyldi. Garðarækt fer hér þó stöðugt vaxandi, og hepnast oftari heldr vel. — Um pólitík er hér lítið talað, enn einstöku menn láta sér fátt um finnast, hve umhleypingasamt var í stjórnarskrármálinu á þinginu í aumar. — Lítið er að segja af nýjum framförum; hver hefir nóg að hugsa um sig og félags and'nn daufr. Þó eru hér í Mýrdainum 2 búnaðarfélög, sitt i hvorum hreppi, og er unnið talsvert i þeim árlega, enn mest er vinnan hjá einstökum mönnum, sem sjálfir hafa krafta og framkvæmd til þess að vinna, og má helzt nefna til þá Víkr- bræðr, Halldór og Þorstein, sem skara fram úr i jarðabótum, þó einkanlega Halldór, sem á fáum árnm hefir umgirt og stækk- að tún Bitt um 8000 Q faðma, og slétt alt þetta svæði úr þýfð- um móa. Áveitingar eru menn líka farnir að nota, eftir tilsögn búfræðinga, og skarar Þorsteinn hreppstj. áDyrhólum bezt fram úr í þeirri grein. Málaferli eru nú yfirstandandi hér; fjögur mál eru þegar lögð fyrir sýslumann á þessu ári, og er Vigfús boi.di Þórarins- son annar málspartrinn í þeim öllum, helir hann oft áðr staðið í málaferlum og heppnast misjafnlega. — Samgóngubœtr eru mönnum hér áhugamál, einkanlega að hentugar sjóferðir komist j á milli Eeykjavíkr og Víkr að sumriuu til; þær gætu bætt j hér mikið fyrir allri verzlun. — Nú er i ráði að fá verkfræðing hingað austr í vetr til þess að gera áætlun um kostuað við vegalagning yfir Víkrnrð, og verði lagðr vegr yfir hana, þarf sjaldnaBt að kvíða þvi, að ekki megi ferma skip og afferma hér að sumrinu til. Jarðskjálftabætrnar. Prestrinn að Mosfelli mælist til þess i grein sinni í „Fjallkonunni1* nr. 38, að ég svari spurn- ingum hans, hvað mér hafi gengið til að vera íús til sátta við hann um tillögur jarðareiganda fyrir skemdir á leiguhúsunum. — Prestrinn segir, að ég álíti matið ekki of hátt, enn færi litl- ar sannanir fyrir því. Ég ætla ekki að þræta við hann nm þetta, þar eð allir geta séð, að sannanir mínar eru gildar og góðar. Að eins gleymdist mér að koma með þá óræku sönnun, að sjálfr prestrinn samþykti óviljandi matið, þar sem hann ekki vildi taka að sér að bæta skemdir á haðstofunni fyrir 120 kr., sem ég þó bauð honum, og skildist mér þó á konum, að hún þyrfti ekkí að vera betr bygð enn hún var. Enn 15 kr. á hin leigu- húsin ætla ég að enginn geti sagt að sé of mikið, þar sem þau féllu alveg til grunna. Það Bem mér gekk til að sættast við prestinn var, að ég vildi ekki eiga i málaferlum við landsdrott- inn. — Prestrinn taldi landsdrottinn ekki vel efnum búinu, svo líklegt væri að hann fengi þó nokkrar gjafir; enn eftir samn- ingi okkar átti ég að fá helming af því, auk þeirra 60 kr., sem preatrinn minnist á. Við yfirmat var ég alis ekki hræddr, því til þess hefði sjálfsagt verið valdir samvizkusamir menn. — Fréttabréfið úr Hreppum hefði prestrinn ekki átt að minnast á, því annaðhvort skilr hann það ekki, eða ætlar að láta menn trúa því í blindni, að þar væri eitthvað fundið að matinu, líklega að það væri of hátt, — enn það er siðr enn svo að það sé; þvert á móti segir greinarhöf., að samskotin, þó mikil séu, nái hvergi nærri til að bæta skaðann. Enn þó hann segi, að efnamennirnir fá meira eftir virðingu enn fátæklingar, kemr mér ekki við að svara því. Hlið, 18. október 1897. Lýðr Guðmundsson. Aths. ritstj. Meira verðr ekki tekið í Fjallkonuna um þetta mál. (xufuskipafélagið seudir ekkert skip á undan „Lauru“ næst, eius og fleygt hefir verið. Uxn stjórnaruiál vort eru tvær langar ritgerð- ir í danska blaðiuu „Politikenu. Önnur þeirra er

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.