Fjallkonan


Fjallkonan - 22.02.1898, Blaðsíða 4

Fjallkonan - 22.02.1898, Blaðsíða 4
32 FJALLKONAN. XV 8. hve sbrautlegt sé í höll Kússakeisara í Pétrsborg. Hann segir, að varla sé hægt að hugsa sér þvílíka dýrð. Þar eru stólar úr gagnþéttu silfri, hásæti úr fila- beini, alsett skygðum gimsteinum og safír- um, heilir veggir úr raíi og gólf úr perlu- móður. Keisarinn á tólf hallir, og eru þær allar feikna skrautlegar. — í hinum öðrum höllum eru dýrindis góbelíns-tjöld, ljómandi postulín frá Japan og Prakk- landi, fegrstn gimsteinar frá Asíu, ómet- anleg gömul handrit og bækr settar gimsteinum. — Þetta er þó ekki nema smámunir í samanburði við allan þann auð, sem saman er kominn í höllum keisarans. í dómkirkjunni í Moskófu eru geytnd- ar kórónur og veldissprotar, sem alt er gim8teinum sett, og aktýgi og reiðtýgi, sem þar eru geymd, eru lika alsett gim- steinum. Þar eru og geymd sverð, rýt- ingar og önnur vopn, svo hundruðum skiftir, og er það alt sett perlum, rúbín- nm og öðrum dýrum steinum. Gull heíir fuudizt í Norrlandi í Sví- þjóð (í Torneádaínum), og líkur til að það muni vera talsvert. Enn ekki verðr byr- jað á gullnámi þar fyrr enn vorar. Kaffi er nú, sem kunnugt er, í afar- lágu verði, milli 80 og 40 au. pundið. Talið víst, að þetta verð haldist eða lækki, því griðarmikið liggr óselt og horfur á beztu uppskeru. Kafflforðinn um heim alian var talinn í nóv. í vetr 361,220 tons, enn 1896 um sama leyti 218,890 tons. Alaska. Ameríkumenn hafa óefað gert góð kanp, þegar þeir keyptu Alaska af Rússum 1867 fyrir 7,200,000 dollara. Útflutningsvörur námu þar 1895 84,560,- C00 dollurum (þar af skinnavara 53 milj., niðrsoðinn lax 10 milj., hvalskíði 10 miij. gull og silfr 6 milj., hvallýsi 3 milj., harðfiskr 1 milj., saltaðr Iax 800 þús. o. s. frv. Selveiði er þar mikil samhliða laxveiðinni, og ekki er þess getið, að þar sé verið að hugsa um að eyða seln- um, enn selveiði á Pribiloffeyjum er stöð- ugt þrætuefni miili Ameríku og Englands. Landið er stærra enn alt þýzka ríkið (nær 25 þús. fermílur), og ákaflega ríkt af málmum og steinkolum ; guliið er nú sem stendr auðvitað fremst í röðinni. Telja menn vÍBt, að þegar Alaska byggist með tímanum og verðr menningarland, þá muni það verða eitt af auðugustu lönd- um heimsins, svo er það gæðaríkt, þótt ekki geti það orðið akryrkjuland, svo að neinu nemi. Ræningjafélag á Sikiley. Þar hefir lengi verið stórt ræningjafélag, sem nefnt er „maffían“, enn í vetr hefir tekizt að handsama 64 ódáðamenn úr þessu félagi. — í félaginu eru menn af öllum stéttum, sem hafa samtök sín á milli um morð, um að kúga menn til fjárútláta, að falsa skjöl og bera fals- vitni fyrir rétti, að koma embættismönn- um úr embættum og koma aftr félögum sinum í embættin o. s. frv. Upphaflega er félagið stofnað til að rétta hlut alþýðunnar mðt ranglátum yfirvöldum. Enn það breyttist brátt, og nú eru í því bæði útilegu-ræningjar og menn í hærri og lægri stéttum, jafnvel af tígnasta fólkinu; prestar, dómarar og alls háttar embættismenn. Pyrir skömmu fekk ítalskr barón hótunarbréf; hann ieitaði til kunn- ingja síns, sem bann hélt að væri kunn- ugt um „félagið“. Hann gaf honum meðmæli til dómara í fjallþorpi, og dóm- arinn gaf honum meðmæli til prestsins. Prestr fór síðan með hann til þriggja illræmdra óbðtamanna, og þeir tóku ba- róninn í vernd sina og var honum óhætt úr því. Sex ræningjar töku annan barón, Arrigo að nafni, fluttu hann upp í fjöll og létu hann greiða 120 þús. franka í lausnargjald. Þessir ræningjar náðust síðar, ogkom það þá upp, að þeir höfðu ekki sjálfir fengið nema 20 þús. af þessu fé. Hitt höfðu ýmsir heldri menn fengið. Fyrir skömmu var formaðr Sikileyjar- banka drepinn í járnbrautarvagni og var vagnmönnum um kent; þeir vóru teknir fastir, enn slept aftr, því þeir sönnuðu sakleysi sitt. Síðar komst það upp, að þeir höfðu notað falsvitni og lognar hrað- fréttir frá bófafélaginu. 5. sept. í haust hvarf frá Palermo veitingamaðr einn að nafni Dalba. 18. okt. hvarf bakari og 24. hurfu 2 öku- menn. Einhverntíma í nóvember varð nætrvörður var við mikinn ðdaun, sem lagði frá helli í grendinni við Palermo. í hellinum var tjörn, og þar fann nætr- vörðriun lík þessara manna sem hurfu. Þeir höfðu allir verið drepnir í eyðihfisi skamt þaðan. Þar hengu á veggjunum hlæjandi myndir af Maríu mey og helg- um mönnum í gyltum umgerðum, allar blóði stokknar. — Þessir 4 menn voru úr „félaginu“, enn þeir voru drepnir fyrir þá sök, að óttazt var fyrir, að þeir mundu koma því upp, að félagið hafði látið búa til 4000 þús. falsaða banka- seðla; þeir vissu um það, enn höfðu fengið oflítið fyrir að þegja. Þó þessir 64 félagsmenn sé teknir fastir, er búizt við að félagið Iifi góðu lífi eftir sem áðr. Ríkr obrkarl. Samúel Lewis heit- ir veðlánamangari í Lundúnum, sem er með ríkustu raönnum í heimi. Margir stóreignamenn, sem hafa komizt í skuld- ir, hafa lent í klónum á honum og eiga þeir naumast uppreistar von úr því. Hann á hallir og stóreignir eftir hertoga, greifa og Iávarða og ógrynni af gimsteinum og öðrum dýrgripum. Sagt er, að stjórn Portúgals hafi fengið stórt lán hjá hon- um og að hann eigi í rauninni Portúgals ríki. Hann hikar sér ekki víð að taka 1000% í vexti, eða 10 kr. af 1 krónu. Grott norðleuzkt smér fæst til kaups þessa dagana á 65 aura pundið hjá kand. mag. Bjarna Jbnssyni í Þingholtsstræti 16. Þeir sem vilja sæta kaupunum verða að hraða sér. Ágætt ullarhand úr þeli, þrinnað, sauðsrart og ljósgrátt er til sölu í Þing- holtsstræti 18. Yandað yaðmál. Þeir sem kynnu að vilja kaupa mjög vandað peisufatavaðmál eða innlenda dúka eru beðnir að láta mig vita það. Bríet Bjarnhéðinsdöttir. I verzlun Magnúsar Einars- sonar á Seyðisfirði fást ágæt vasaúr og margskonar smékklegar, fáséðar og vandaðar vörur með mjög sanngjörnu verði. I=»oir, sem hafa fengið eitthvað ofsent af „Kvennablað- inu“, einkum af síðasta árgangi, sérstaklega nr. 4 og 5, eru beðnir að senda það útgefanda. Útgefandi: Yald. Ásmundarsou. Félagsprentsmiðjau.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.