Fjallkonan - 05.04.1898, Page 3
5. apr. 1898.
FJALLKONAN.
55
Bygg, hveiti, rúgr, mais,
bankabygg, ertur, kar-
töflur, mél ogrísgrjón í
tunnum og sekkjum — — — 0,50.
Saltitunnumogsekkjum— — —0,40.
Vínföng og öl í tunnum, 2 kr. fyrir
tunnu og lkr. 7atunnan. Sement, kalk,
tjara 1 kr. tunnan. Steinolía 3 kr. tn.
Hestar og nautfé ... 10 kr. skepnan.
Kindr ................... 2 —----------
Hundar .................. 1 —----------
Harðfiskr, þurt skinn, þorskböfuð og
annað þvi líkt........1,00 f. 100 pd.
Tólg.....................0,50----------
Fiðr, dún, hvalskíði, sund-
magar.................2,00--------—.
Ull og ullarvarningr . . 1,50 — — —.
Saltfiskr i umbúðum . . 1,25---------—.
Laus saltfiskr verðr að eins tekinn, ef
sérstaklega er um samið.
Lýsi.....................2,00 steinolíutn.
120 pd. tunnur.......1,50 tunnan.
Kjöt, lax, hrogn, síld. . 1,25------
Hangikjöt, rjúpur o. fl. 1.00 f. 100 pd.
Minsta farmgjald fyrir alla viðkomu-
staði 0,50.
Farmgjaldið er að eins talið helmingr
til þeirra þriggja viðkomustaða, sem
næst eru staðnum, sem sendingin fer
frá (viðkomustaðir, sem eigi er komið við
á, eru þá með taldir). Að öðru leyti er
reiknað fullt farmgjald. Hilli Víkr og
Hornafjarðar eru taldir 4 viðkomustaðir,
svo að milli Hornafjarðar og Vestmanna-
eyja og Vikr og Djúpavogs er reiknað
fult farmgjald. Farmgjaldið er reiknað
af allri þyngdinni og hverjum 10 pd.
(51 pd. = 60 pd. o. s. frv.). Afhending
og viðtaka á vörum er meðfram skips-
hliðinni á kostnað og ábyrgð sendanda.
Skipið ber enga ábyrgð á vörum, sem
ekki eru sóttar þegar eftir að skipið er
komið. Farmgjald verðr að greiða þeg-
ar vörurnar eru afhentar.
U ppfundningar.
Sólvélin algerð. Bins og kunnugt
er fann hugvitsmeistarinn sænski, Jón
Ericsson, sólvél, og var hún sýnd á heims-
sýningunni í París 1869. Hugmynd
hans var sú, að höndla sólargeislana
með speglum og gera þá að hreyfingar-
afli. Enn þetta fundningar verkefni
varð þá ekki til hlítar leyst. Nú er
mælt, að hinn heimsfrægi meistari Niku-
lás Tesla hafi leyst það og fullyrði, að
hin nýja sólvél muni bola burt steinolí-
unni, eins og steinkolin mónum og brenni-
viðnum. Ætlar hann að reisa heiit verk-
smiðuhverfi á Langey (Long Island) við
New-York. í miðjunni verðr gímald
með glerþaki yfir, og í þvi reistr upp
rÍBavaxinn sívalningr úr þykku gleri,
sem hvílir á asbesti (loðsteini). Hring-
inn í kring verðr skipað speglum, er
einnig hvíla á loðsteini og leiða: sólar-
geislana niðr í sívalninginn, sem fyltr
er vökva, er greiðlega sýgr í sig hitann
og ryðr úr sér feiknagufu, sem leidd er
í ketil og knýrj rafmagnsvél (dynamo).
Nikulás Tesla er maðr á bezta aldri,
fæddr i Austrriki 1857, og er nú engu
miðr frægr enn Edison. Ef það rætist,
sem hér er sagt um sólvél hans, þá er
stigið eitt jötunskref í mannkynsframför-
unum.
Sýslunefndarfundr Skaglirðinga var
haldinn 28. febr.—3. marz. Sýslunefnd-
in samþykti í 3. Binn hestaræktar-reglu-
gerð. Áleit heppilegast,aðsameinakvenna-
skólana á Norðrlandi og að þar yrði
meðfram bústjórnarskóli. EyjarBkólan-
um vóru lagðar 80 kr. af sýslusjóði.
Veittar vóru 200 kr. til skemtisamkomu,
sem fyrirhuguð er á næsta sumri á hin-
um forna þingstað Skagfirðinga, hjá Garði
í Hegranesi. Dó mælist sú styrkveiting
misjafnt fyrir. Ákveðið, að borga kostn-
að af sýslusjóði, sem leiddi af fjárböðun
í haust (kaup tilsjónarmanna). — Veitt
leyfi tveimr npprekstrarfélögum að kaupa
afréttarlönd.
Árnessýslu (ofanveðri) 25. marz.
Siðan um þrettánda vóru allar skepnur
á afdráttarlausri gjöf þar til batinn kom
núna; hvorki hross né sauðir hafa haft
neina beit síðan og er það óvanalegt í
uppsveitum Árnessýslu. Þess má geta
sem nýungar, að Ölmóðsey í Þjórsá brást
nú algerlega með beit; slíkt hefir ekki
komið fyrir síðau farið var að nota eyna
til beitar, sem mun vera yfir 70 ár.
— Bráðapest var hér með meira móti,
og var hún verst að því leyti að hún
fór svo seint til. Flest drap hún hjá
einum bónda yfir 40, enn hjá mörgum
20—30. Hargir vona nú góðs til dýra-
læknisins að hann kveði niðr þenna
draug. — Heilsufar fólks hefir verið
með lakara móti, vont kvef og ýmsir
kviliar því samfara. — Bindindisfélag
var stofnað í vetr i Skeiðahreppi, af
Sigurði organista Eiríkssyni af Eyrar-
bakka; mun vera í því um 30 manns.
Yeðrátta. Batinn sem kom um 20.
marz varð ekki langr. Síðan 29. f. m.
hefir verið frost og norðanstormr. — Út-
litið mun því hvergi nærri gott, enn
heybirgðir víða tæpar og vorið getr enn
sorfið fast að.
Hafís var skamt undan landi við Horn,
er síðast fréttist, og höfðu einnig há-
karlaskip orðið vörvið nokkurn ís í hafi.
Strandferðaskipið „Vesta“ fór héðan
3. apríl að kveldi, með marga farþega,
vestr og norðr.
Húsbrunar. 8. marz brann íbfiðar-
hús á Skutiisfjarðareyri (ísafirði), sem
átti Jensen, færeyskr maðr. Litlu biarg-
að.
10. marz brann til kaldra kola stórt
íbúðarhús úr timbri í Eyhildarholti í
Skagafirði. Karlmenn vóru engir heima
við, er eldsins varð vart. Dar er fjór-
býli, og höfðu tveir bændanna vátrygt
eignir sinar, enn tveir eigi, og mistu
þeir mestan hlut dauðra muna, scm þeir
áttu og þar með fatnað. Húsið var vá-
trygt.
Hús fauk 4. jan. í Bakkakoti í Vestr-
dal í Skagafirði að Jóns bónda Jónasson-
ar, komst niðr fyrir tún og brotnaði í
spón. Skemdust eða týndust þeir munir
sem inni vóru. Skaðinn metinn 2000 kr.
Slys. 17. marz vildi það slys til I
Bolungarvík, að maðr varð undir freð-
inni salthellu, og beið bana af. „Þeir
vóru að pæla saltið og grófu innundir,
þar til alt í einu, að alt féll niðr og
þessi maðr varð undir, enn tveir aðrir
lömuðust, sem eru á batavegi. Hann
náðist samstundis, enn var þegarörendr.
Hann hét Pétr Brynjólfsson, úr Dýra-
firði, vandaðr piltr og að góðu kunnr“.
Skortr á nauðsynjavörum. Sagt
er að nú sé skortr á flestum nauðsynja-
vörum hjá kaupmönnam í sjálfum höfuð-
staðuum, enn búðirnar fullar, eins og
vant er, af glysvarningi og munaðar-
vörum. Dannig er nú að kalla alveg
kornvörulaust hér í bænum, hvorki fæst
rúgr né einn mélhnefi, þó gull sé í boði.
— Sömuleiðis er algerlega kolalaust hjá
kaupmönnum, nema eitthvað lítið til
hjá Bryde, og olíulaust hefir verið um
langan tíma í vetr.
Mannalát. Dáinn á Sauðárkrók 18.
jan. í vetr húsfrú Valgerðr Þorleifs-
dóttir, 79 ára, kona Einars Jónssonar,
er áðr bjó lengi að Sauðá (rangnefnd
hér í blaðinu áðr).