Fjallkonan - 09.05.1898, Page 1
Gjalddagi 15. jfilf. Upp
sögn skrifleg fyrir 1. okt,
Afgr.: Þingholtsstræti 18
Kemr fit um miðja viku.
Árg, 3 kr. (erlendis 4 kr.)
Auglýsingar ódýrar.
FJALLKONAN.
XV, 19.
Reykjavtk, 9. maí.
1898.
Útlendar fréttír.
Khöfn, 26. apríl.
Viðreign Bandamanna og Spánverja. Eftir langa
og harða deilu á þingi Bandamanna urðu báðar þing-
deildir loka sammála um, að skora á Spánverja að
kalla saman herlið sitt frá Kúbu, eða þola ófrið að
öðrum kosti. Mac Kinley sendi svo spönsku stjórn-
inni hinztu sáttaboð (ultimatum), og skyldu Spán-
verjar innan tveggja sólarhringa kalla burt herlið
sitt frá Kúbu; að öðrum kosti myndi beitt valdi.
Þessum skeytum svöruðu Spánverjar eigi, enn kölluðu
sendiherra sinn heim frá Washington, og gáfu sendi-
herra Bandamanna í Madríd það í skyn, að hann
hefði þar ekkert framar að gera, og að allar sátta-
umleitanir væru hér eftir árangrslausar, þar sem
Bandamenn settu slíka afarkosti. Öllum samninga-
viðskiftum milli Spánar og Bandamannna er því
lokið, enn það er vant að vera tákn
þess, að ófriðr sé fyrir hendi. Enn
til þess að taka af öll tvímæli, hefir
nú þing Bandamanna, samkvæmt
síðustu hraðskeytum, samþykt að
segja Spánverjum skírt og skorin-
ort strið á hendr. — Spánverjar hafa
sent flota sinn til Vestrheimseyjanna,
enn enn þá hefir eigi fnndum
flokkanna borið saman. Banda-
menn hafa hertekið allmörg kaupför
at Spánverjum. Enn fremr hafa Banda-
menn þvergirt fyrir Havanna
höfn, svo að ekkert skip kemst
þar út né inn, enn vígi hafa
Spánverjar ágætt í Havanna, svo að borgin er talin
torsótt. — Þá fregn hafa Spánverjar breitt út, að
eyjarskeggjar á Kúbu myndu fylgja þeim að málum
gegn Bandamönnum og að uppreistarmenn væru fúsir
til sátta. Enn slíkt hefir reynzt uppspuni. Ófriðrinn
geisar enn á eynni, og uppreistarmenn vilja engum
sáttum taka af Spánverjum. Ennfremr eru óeirðir
á Filippín-eyjunum; eru eyjaskeggjar óánægðir með
yfirráð Spánverja, og þykir nú tækifærið bjóðast til
að losna undan oki þeirra. Á eynni Portorico eru
Iíka óspektir, svo að Spánverjar hafa í mörg horn
að líta um þessar mundir.
Danmörk. Danir sendu herskip vestr ura haf
til Ameríku til að gæta eyja sinna. Hafa þeir lýst
yfir eindregnu hlutleysi (neutralitet) í viðreign
Spánverja og Bandamanna.
í dag sitja þau Kristján prins og Alexandrína
prinsessa að brúðkaupi í Cannes. Krónprinsinn er
þar með fjölakyldu sína. Enn fremr verðr Vilheímína
Hollandsdrotning í brúðkaupsveizlunni, og eru blöðin
því að eigna henni prins Harald, son krónprinsins.
Hollendingar vilja endilega að drotning þeirra gift-
ist sem skjótast sökum ríkiserfðanna.
Hér hefir um tíma vofað yfir alment verkfall í
öllum iðnaðargreínum. Verkamenn krefjast hærri
launa og minni vinnutíma. í gær hefir þó tekizt að
koma á samkomulagi milli verkmanna og vinnuveit-
anda, enn sáttaskilmálarnir eru enn ókunnir; þómunu
vinnuveitendr hafa orðið að slaka drjúgum til.
Landi vor, prófessor, dr. phil. Finnr Jónsson,
var h. 16. þ. m. kjörinn meðlimr hins konunglega
danska,visindafélags. Af íslendingum eru eigi aðrir
auk hans meðlimir þess félags enn fyrv. skólastjóri
dr. phil. Jón Þorkelsson.
Józki prestrinn, séra Gade, sem ákærðr var í
haust fyrir ýms brot á þeim greinum hegningarlag-
anna, er um skírlífi hljóða, er nú dæmdr af hæsta-
rétti frá embætti, kjóli og kalli og i 2 ára betrunar-
hússvinnu. Séra Gade var maðr kvæntr, og á
fjölda barna; trúmaðr var hann tal-
inn hinn mesti, og eins hinn ákaf-
asti íylgismaðr „innri missións“-
manna. Hann er hinn fríðasti sýn-
um, enda hefir hann gengið í augu
kvenþjóðinni, því að skrafað er,
að færri munu þær kvensniftir á
prestsetrinu verið hafa, er hann hafði
eigi átt viugott við.
Öfriðrinn
milli Spánar og Bandarfkjana
er byrjaðr, eins og sjá má af því
sem hér segir á undan. Síðustu blöð
(ensk), sem ná til 30. apríl, geta urn fyrstu viðreign-
irnar, enn frásagnirnar eru mjög óljósar og sinn
segir hvað. Svo mikið mun vera víst, að Bandamenn
hafa skotið á Matanzas, hafnarvígi í Kúbu, og segja
sumar fregnir, að við það hafi orðið mikið mannfall
af Spánverjum. — Spánski| herflotinn lagði af stað
29. apríl vestr um haf, og var sagt, að nokkurhluti
hans ætti að leggja inu í Massaschusetts-flóann og
skjóta á Boston og aðra hafobæi þar. Enn engin
vissa er fyrir því. Aðal-vopnaviðskiftin er líklegt
að verði við Kúbu. — Bæði Bandamenn og Spán-
verjar eru mjög illa undir ófriðinn búnir, enn sá er
munrinn, að Bandamenn hafa fullar hendr fjár, enn
Spánverjar eru nær gjaldþroti.
Sagt er að Bandaríkjamenn hafi sent herskip til
að slita fréttaþráðinn sem liggr til Kúbu. — Þess
er getið, að Bandamenn hafi tekið kaupför fyrir
Spánverjum áðr enn þeir sögðu þeim stríð á hendr;
Spánverjum var hægt að gera hið sama, enn gerðu
það ekki, og þykjast vera betri menn enn svo, að
þeir litilsvirði svo þjóðaréttinn.
Forseti Bandamanna Mac Kinley (mak kinli)