Fjallkonan - 18.05.1898, Blaðsíða 1
Kemr dt um miöja viku.
Árg. S kr. (erlendis 4 kr.)
Auglýsingar ódýrar.
FJALLKONAN.
Gjalddagi 15. júli. Upp-
sögu skrifleg fýrir 1. okt.
Afgr.: Þingholtsstrœti 18
XV, 20. Reykjavlk, 18. maí. 1898.
r
Otímabær Þingvallarfundr.
Hr. Benedikt Sveinsson, sem mun telja sig sjálf-
kjörinn foringja allrar þjóðarinnar i stjórnarskipun-
armálinu, hefir gengizt fyrir því, að fjórir þingmenn
hafa ritað undir Þingvallarfundarboð með honum, og
hefir fundarboð þetta verið sent út um landið. Það
hljóðar svo:
Með pví að svo má, gjöra ráð fyrir, aðjá|næstkomandi sumri,
eigi síðar enn 20. dag ágústmánaðar, verði búið að byggjahús
það á Þingvelli, er styrkr er veittr til í núgildandi fjárlögum,
fyrir þjóðlegar samkomur og erlenda ferðamenn, þá viljum vér
undirritaðir leyfa oss að skora á hin einstöku'kjördæmi landsins,
að kjósa og senda þangað fulltrúa, einn eðr tvo, eins og ákveð-
ið er um þjóðkjörna alþingismenn.
Tilgang fundarins höfum vér hugsað oss þann, að ræða
mest um-varðandi almenn þjóðmálefni, sér í lagi stjórnarskipun-
armálið, enn tengja þar við jafnframt þjóðminningarsamkomu
fyrir land alt með svipuðu fyrirkomulagi og gert var í Reykjavik
eíðastliðið sumar.
Vér fulltreystum því, íslendingar, að þér munuð gefa þess-
ari áskorun því rækilegri gaum, sem þér munuð finna til þess,
eins og vér, að aldrei hefir verið brýnni ástæða til þess enn nú,
að sameina beztu krafta fóstrjarðarinnar, henni sjálfri til vegs
■og frama.
Fundrinn verðr settr fyrnefndan dag, 20. ágúst, á hádegi.
Ritað í aprílmánuði 1898.
Benedikt Sveinsson. Sigurðr Gunnarsson.
Klemens Jónsson. Jón Jónsson þm. Eyfirðinga.
Pétr Jónsson þm. Suðr-Þingeyiuga.
Fjallk. hefir reyndar lagt það til, að haldinn
yrði fulltrúafundr fyrir alt landið á undan næsta
þingi, 1899, og að hann yrði haldinn í Reykjavík,
til þeas að undirbúa stjórnarskrármálið. Enn Fjallk.
getr samt ekki mælt með þessu fundarboði af ýma-
um ástæðum, og eru þessar helztar:
1. Fundrinn er langt of seint boðaðr til þess að
nægilegr undirbúningr geti orðið á undan honum.
2. Fundartíminn er illa valinn á miðjum engja-
slætti, þegar bændr mega sízt vera að heiman, og
verðr fundrinn fyrir þá sök miklu dýrari enn ella.
3. Engin vissa er fyrir, að hús þ-v á Þingvelli,
eem talað er um í fundarboðinu, verði komið upp
fyrir 20. ágúst. Miklu líkara að það verði ekki, af
því að skortr mun verða á húsasmiðum hér um
slóðir í sumar. Yerðr því að flytja þangað tjöld, eina
ng vant er.
4. Mest furðar oss á, að hinir heiðruðu boðendr
ekulu jafnframt vilja stofna til þjóðminningarsam-
komu (þjóðhátíðar) fyrir alt landið á Þingvelli, án
þess nokkur undirbúningr til þess hafi átt sér stað
enn þá. Tll þess að slík þjóðhátíð fyrir alt land
yrði haldin svo í lagi færi, veitti ekki af einum
vetri til undirbúnings.
5. Loks er enn engin von til, að Þingvallarfundr, sem
haldinn yrði nú i sumar, yrði til þess að sameina
skoðanir manna í stjórnarskrármálinu. Miklu fremr
mundi hann verða til sundrungar, meðan almenningr
hefir ekki skapað sér fastari stefnu í málinu enn nú
er, og meðan enginn veit, hvernig stjórnin tekr í
máiið.
Að öllu þessu athuguðu virðist því þessi fund-
arboðun vera ótímabær.
Hluttaka íslands
í Parísar-sýning 1900.
Fyrir milligöngu premier-lautenants Daniel Bruuns
fornfræðings var hér sett nefnd manna til að gang-
ast fyrir því, að ísland tæki þátt í sýningu þeirri,
er á að verða í París árið 1900.
Þessi nefnd, sem í eru amtmaðrinn og biskup-
inn, sem yfirstjórnendr Forngripasafnsins, Eiríkr
Briem, formaðr Fornleifafélagsins, Jón Jakobsson
umsjónarmaðr Forngripasafnsins og Pálmi Pálsson
fyrv. umsjónarmaðr þess, hefir nú sent út áskorun til
landsmanna, að senda nefndinni gripi, sem senda
mætti á þessa Parísar-sýningu.
Svo er til ætlazt, að sýning þessi sýni hina
eldri menning íslendinga, og gæti hún auðvitað orðið
fullsæmileg, ef til hennar væri vandað eftir beztu
föngum, enn áhætta mun þykja, að senda góðgripi
vora til Parísar.
Hin nýja menning íelands getr þar á móti ekki
orðið sýnd á þessari sýningu, nema oss til vansa,
nema því meiri undirbúningr og tilkostnaðr væri
hafðr.
Hér fer á eftir skrá yfir þá hluti, sem nefndin
vill láta senda sér.
Yfirlit
yfir áhöld, gripi, myndir og annað frá Islandi, er til
er ætlazt að synt verði á Farísarsýningunni 1900.
I. Jarðyrkjuáhöld:
Spaðar, pálar, rekur, mykjukvíslar, klárur, móskerar, torf-
ljáir (í orfum), orf og Ijáir, hrífur, heynálar, hrip (heyhrip, mó-
hrip), laupar (meisar), kláfar, reipi.
II. Vefnaðr og saumaskapr:
Gamli vefstóllinn með uppfestum vef, sýnishorn af nnnum
vefnaði (vaðmáli, dúkum, ábreiðum o. fl.), flosBtóll með uppfest-
um vef, rokkar'(skotrokkar), snældur, kambar (togkambar),
þráðarleggir, lárar, körfur, nálhús, prjónastokkar, kniplingaskrin.
III. Búningar og gripir:
Karlbúningr, kvenbúningr. Skrautgripir (belti, hnappar,
sylgjur o. fl.). Hárgreiður, kambar.
IV. Reiðskapr:
Hnakkar, söðlar, beizli, svipur, klyfberar og reiðingar og