Fjallkonan


Fjallkonan - 19.08.1899, Side 3

Fjallkonan - 19.08.1899, Side 3
19. ágúst 1899. FJALLKONAN. 143 Þá er að athuga, hvernig íslendingar gæti varið efnum sinum betur, enn að fleygja út miljónum til fréttaþráðar, sem þeir eiga ekki. Hvað er það, sem ísland gæti gert þarfara með fé sitt enn að styrkja ritsimalagninguna? Það er margt. Það er ekki eitt, enn margt, sem ísland þarfnast fremur enn ritsíma. Eg held að ísland gæti, með því fé, sem það heflr undir höndnm, búið svo búi sínu, að það yrði á 30 árrnn efnalega frjálst. ísland þarf jarðyrkjuvélar til að rækta holtin, fiskiflota til að keppa við útlendinga, ýmsar vinnu- vélar, kaupskip, strandvarnarbát og fjölfræðaskóla, betri vegi, innanlands málþráði, iðnaðarstofnanir, landvörn. Fyrst er fæði og klæði, og síðan mentun; fyrst þarf maðurinn að geta lifað svo, að hann eigi fyrir sál að sjá. Það heimtar nytsama vinnu. Það er því fyrst, að útvega vinnuhjálp og verkvélar. Hvernig geta ísleudingar það? Þjóðin á nú eitthvað nálægt 1 milj. í sjóði og tekjur og gjöld standast hér um bil á. Um % m^Í- króna gengur til kennimanna og annara embættis- manna og skóla. Laun þeirra sýnast ekki of há, enn þau eru full-þungbær, og ekki ætti að þurfa að fjölga þeim embættum, er hafa sálna-umsjón og skatt- heimtur á hendi, né heldur minka laun embættis- manna. Enn þar á mót gæti landsmenn aukið tekj- ur landsins árlega, svo hundruðum þúsunda króna næmi, með því að spara sér ýmsan óþarfa, svo sem vínföng og tóbak, sem næmi 200 þús. kr. á ári. Ef j&fnmiklu fé væri varið Iandinu til gagns, þá mætti t. d. nota að eins helming þess á ári, enn Ieggja hitt á vöxtu. Fyrir þenna helming (100,000) getur ísland keypt fyrstu tíu árin: Tíu fiskiskip hvert á 25,000 kr.........kr. 260,000 Gufuskip á stærð við „Vesta“ ...... — 200,000 Jarðyrkjuáhöld, gufuplðga og steinbrjðta . . . 100,000 ítafmagnaáhöld handa Reykjavík og Akureyri . . 100,000 Fjölfræðaskóla með 5 kennurum og verkstofum . 225,000 Málþræði yfir land og vita..............— 100,000 kr. 975,000 Þetta er hægt að gera með einni miljón og það getur ísland lagt fram. Og á næstu tíu árum gæti ísland varið til jarð- yrkju og sjávarútvegs x/e miIj-> til málmvinnusmiðja og verkvéla til samgangna og málþráða l/6, til fjölfræða skóla og mentunar railj., til landvarnar við helztu hafnir */« milj- Á þriðja áratuginum mætti enn verja % milj. til búnaðar og iðnaðar og hinu til samgangna, skóla o. s. frv. Þannig gæti ísland á 30 árum lagt grundvöllinn til sjálfstjórnar og velgengni með að eins 100,000 kr. framlagi á ári. Hinar 100 þús., sem á vöxtum lægi, væri þá orðnar 58/4—63/5 milj. (með 5—6°/0 vöxtum). Með þeim tekjum, sem ísland hefir nú, ætti það að geta haft í sjóði að 30 árum liðnum um 10 milj. króna. Þá mætti taka svo sem hálfa eða heila miljón til að stofna íslenzkt-færeyskt-orkneyskt félag, er legði og œtti ritsíma milli þessara eyja, ef stór- þjóðirnar væri þá ekki búnar að leggja hann, né þráðlaus fjarritun komin svo langt, að henni yrði komið við jafnvel milli þessara Ianda. Þá fyrst gæti ísland reist sjálfseignarbú, er það hefði svo mikið fé í höndum, búið sér sjálft í hendur það sem þarf til að sækja sjóinn, rækta jörðina, koma upp iðnaðinum, notað sjálft alla auðlegð sínal<1) Einn liður fjárlaganna. Flestum er kunnugt, að á hverju þingári koma bænarskrár og fjárbeiðslur úr öllum áttum til þings- in8 til allra skapaðra hluta. Lesendur Fjállkonunn- ar gátu í sumar séð lítið sýnishorn af þessum bænum. Það er auðvitað ekki vandalaust fyrir þingið, að vinsa úr þær bænir og þá menn eða stofnanir, sem þörf er á að styrkja, eða líkindi eru til að hafi veru- legt gagn af styrknum bæði fyrir sjálfa sig og þó einkum fyrir þjóðfélagið í heild sinni, en þó má ætl- ast til, að þingið ætti að geta farið nokkuð nær um það enn aðrir, þar sem þar eru menn saman komnir úr öllum héruðum landsins, menn, sem bæði ættu að vera og sjálfsagt oftast era einhverir færustu og beztu mennirnir í hverju héraði, og því ættu menn að geta treyst því, að þeir væru bæði kunnugri mönnum, staðháttum og ástandi landsmanna yfir höfuð enn aðrir, og við þær styrkveitingar væri aðeins litið á hagsmuni almennings, enn ekki á álit annara eða undirróður með eða móti einstökum mönnum eða stofnunum. Enn þegar aðgætt er nefndarálit fjárlaganefndar- innar í sumar, þá mun mörgum finnast kynlegt, að styrkurinn til hússtjórnarskólans er alveg feldur burtu. Hér var þó ekki um stórfé að ræða, þar sem voru að eins 1000 kr. á ári Auk þess var líka talsverður munur á að veita engan styrk, eða veita alveg eins og um var beðið. Þessi tvö ár, sem skól- inn hefir staðið, hafa þó sannað það, að engin vand- ræði hafa orðið með að éta matinn, sem búinn hefir verið til á skólanum, eins og þingmenn kviðu mest fyrir. Og skólinn hefir verið vel sóttur oftast nær, af stúlkum víðsvegar af landinu, og þær hafa þrátt fyrir langtum of stutta veru á skólanum viðurkent, að þær hafi haft mjög mikið gagn af skólaverunni. Eftir þvi sem heyra má í ritum og ræðum, eru margir orðnir leiðir á bóknáms og hannyrða káki kvenna og vildu heldur að mentun þeirra væri praktiskari og verklegri, eða lægi nær því, sem verð- ur oftast aðalhlutverk þeirra seinna á æfinni. Menn eru farnir að finna til þess, að mentunin verður að gera bæði karla og konur færari í þá stöðu, sem mest líkindi eru til að þeir verði í; annars er hún óþörf og verri enn ekkert, eyðir bara tíma og pen- ingum. Því hefir verið mótmælt ýmsum bóklegum námsgreinum í kvennaskólanum sem óþörfum, t, d. landafræði og dönsku, og sömuleiðis fínni hannyrð- unum. Ekki af því, að ekki væri í sjálfu sér bæði gagn og gaman að slíku námi, heldur vegna þess, að ef fátæk stúlka gæti að eins fengið örstuttan námstíma, þá hlyti það alira nauðsynlegasta að sitja Bréfið er frá hr. Pr. B. Anderson, 50 rue M&zarine, Paris.

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.