Fjallkonan - 06.08.1900, Side 1
Kernur út einu sinni
í viku. Verð árg. 4 kr.
(erlendis 5 kr. eða l'/a
doll.) borgist fyrir 1.
júlí (erlendÍB fyrir-
fram).
Uppsögn (skrifleg)bund-
in við áramót, ógild
nema komin sé til út-
gefanda fyrir 1. októ-
ber, enda haíi hann þá
borgað blaðið.
Afgreiðsla: Þing-
holtsstrœti 18.
XVII. árg.
Reykjavík, 6. ágúst 1900.
Xr. 30.
Landsbankinn er opinn hvern virkan dag kl. 11—2.Banka-
stjórnin við kl. 12—1.
Landsbókasafnið er opið hvern virkan dag kl. 12—2 og
einni stundu lengur til kl. 3 md., mvd. og ld. til útlána.
Forngripaaafnið er i Landsbankahúsnu, opið á mánud.,
miðvikudögum og laugardögum kl. 11—12 f. m.
Náttúrugripasafnið er í Doktorshúsinu, opið á sunnu-
dögum kl. 2—3 e. m.
Ókeypis lækning á spítalanum á þriðjudögum og föstu
dögum kl. 11—1.
Ókeypis tannlœkning í Hafnarstræti 16, 1. og 3. mánu-
dag hvers mán., kl. 11—1.
Undirbúningur alþingiskosninga.
ísafold og Þjóðólfur hafa flutt í síðustu blöð-
um fregnir um undirbúniug alþingiskosninganna,
og jafnframt tillögur síuar.
Fjallk. hefir hinsvegar fyrir sitt leyti leitað
sér frétta um hið sama efni víðsvegar á land-
inu, og fer þar alls ekki eftir fréttaburði hinna
blaðanna.
Austurskaftfellingar kjósa að líkindum séra
Jön Jónsson aftur. Hann gefur eflaust kost á
sér, og þótt honum sé annað betur gefið en að
vefjast í þingmálum, er engin frágangssök að
kjósa hann. Hann hefir komið heldur vel fram
á þingi í flestum málum. — Austurskaftfelling-
ar hafa hvort sem er ekki öðrum á þing að
skipa að sögn, úr því Þorleifur Jónsson hrepp-
stjóri í Hólura gefur ekki kost á sér, sem ef-
laust er lang-álitlegasta þingsmannsefnið af
bændum þar um slóðir.
Vesturshaftfellingar kjósa eflaust aftur sýslu-
mann sinn, Quðlaug Quðmundsson, sem óneitan-
lega er duglegur þingmaður og góður í mörg-
um greinum, þótt mönnum líki ekki ýmsir
kækir hans.
Rangœingar munu eflaust kjósa Þórð Quð-
mundsson í Hala, en um hinn þingmanninn er
óvíst. Séra Eggert á Breiðabólstað mun bjóða
sig fram, en heíir að sögn ekki mikið fylgi.
Líkiegra þykir að Magnús sýslumaður Torfa-
son næði kosningu, ef hann byði sig fram, sem
búist er við.
Árnesingar hafa líklega ekki um marga að
velja, því núer það borið aftur, að Hannes rit-
stjóri Þjóðólfs gefi þar kost á sér, og óvíst um
Tryggva Gunnarsson, sem nokkurn veginn má
telja víst, að hafi þar nægilegt fylgi. Þá eru
eftirafþeim frambjóðendum, sem þar hefir ver-
ið um getið, þeir Sigurður Siqurðsson búfræð-
ingur frá Langholti og séra Magnús Helgason
á Torfastöðum. Hinn fyrnefndi er alkunnur,
og munu bændur að sjálfsögðu kjósa hann, því
hann mun manna mest vinna að gagni land-
búnaðarins á þingi, og séra Magnús er í góð-
um metum hjá Árnesingum eins og flestir prest-
ar þeirra, og mun því hafa mikið fylgi.
Qullbringu■ og Kjósarsýsla er sízt í vandræð-
um stödd að því leyti, að nóg bjóðast þar þing-
manna-efni: hinir gömlu þingmenn, Þórður Thor-
oddsen og Jón Þórarinsson, og auk þeirra Björn
Kiistjánsson kaupmaður, og bændurnir Guðmund-
ur Magnússon í Elliðakoti og Þórður Guðmunds-
sou á Hálsi. — Ennfremur Gísli Þorbjarnarson
búfr. Kunnugir menn segja, að Þórður Thor-
oddsen muni að líkindum ná kosningu, en að
vafasamt sé, að Jón Þórarinsson verði kosinn.
Þar á móti hafi Björn Kristjánsson allmikið
fylgi suður með sjónum, og að þeir Guðmundur
og Þórður hafi eflaust einnig flokk hvor úr
sinni sveit.
Reykvíkingar. Þar hefir enginn boðið sig
fram svo kunnugt sé, en hinn fyrv. þingmaður
mun eflaust gefa kost á sér. — Hins vegar er
sagt, að margir bæjarmenn hafi þegar ritað
undir áskorun til bankastjóra Tryggva Gunn-
arssonar um, að haun gefi kost á sér fyrir
Reykjavík, og virðist það óþarft, með því að
hann mun hafa nóg fylgi í Árnessýslu, en að
öðru leyti mun hann engu síður hæfur til að
sitja á þingi nú en áður, þó hann hafi mörg-
um öðrum störfum að gegna. Hefir verið bent
á það áður í þessu blaði, að hann hefði meiri
praktiska þekkingu og reynslu en flestir aðrir
þingmenn, en skoðanir hans á stórpólitík þarf
alls ekki að taka til greina.
Borgfirðingar. Þeir eiga kost á Birni
Bjarnarsyni í Gröf og prestaskólastjóra Þór-
halli Bjarnarsyni. Enn er óvíst hvor meira fylgi
hefir, en sagt að fleiri muni fylla flokk Bjarnar.
í Mýrasýslu bjóða sig fram þeir prófastarnir
séra Magnús Andrésson á Gilsbakka og séra
Einar Friðgeirsson á Borg. Alveg óvíst, hvor
þar muni bera sigurinn úr býtum.
Snœféllingar eru eð sögn einráðnir í að kjósa
sýslumann sinn, Lárus Bjarnason.
Dalamenn eiga völ á þeim tveimur, sínum
fyrv. þingmanni, séra Jens Pálssyni, og Birni
sýslumanni Bjarnarsyni, en óvíst um horfurnar.
Barðstrendingar endurkjósa eflaust hinn fyrra
þingmann sinn, séra Sigurð Jensson.
Isfirðingar munu að líkindum kjósa hina
sömu þingmenn og áður. Þó er sagt að sýslu-
maður þeirra, Hannes Hafstein, muni bjóða
sig frara, og gæti þá svo farið, að annarhvor
hinna næði ekki kosningu.
Strandamenn kjósa eflaust fyrveranda þing-
mann sinn, Quðjön Quðlaugsson.
Hjá Húnvetningum eru að sögn í boði Björn
Sigfússon, fyrv. þinginaður þeirra, Haldór Briem
skólakennari, Júlíus læknir Halldórsson, Jósef
Jónsson bóndi á Melum og jafnvel séra Bjarni
Pálsson í Steinnesi. Eru tveir hinir fyrstnefndu
líklegir til að ná kosningu.
Skagfirðingar eiga völ á mörgum. Auk ólafs
Briems bjóðast þar.að sögn: Stefán skólakenn-
ari Stefánsson á Möðruvöllum, séra Zofonías
Halldórsson í Viðvík, Rögnvaldur Björnsson
bóndi í Réttarholti og Jón Jónsson hreppstjóri
á Hafsteinsstöðum. Líklega verður Ólafur
Briem enn kosinn, enn óvíst, hver hinna verður
hlutskarpastur.
Eyfirðingar kjósa eflaust aftur KlemensJóns-
son sýslumann, og s> er að Jön A. Hjaltalín
skólastjóri á Möðruvöllum hafi þar mest fylgi
næst honum. Annars eru þar í boði: Friðrik
kaupmaður Kristjánssou og bændurnir Stefáu
Bergsson á Þverá, Stefán Stefánsson í Fagra-
skógi og Sigurður Jónasson á Hrauui.
Suðurþingeyingar kjósa eflaust hinn fyrrv.
þingmannn Pétur Jónsson.
Norðurþingeyingjar er sagt að muni kjósa séra
Arnljót ólafsson, sem nú gefur kost á sér.
Hefir „Þjóðólfur“ nýlega mælt með houum og
„ísafold" líka, því hún telur hann meðal þeirra
presta, sem þjóðin hafl betur gert að senda á
þing en bændur (npp og niður).
Norðmýlingar. Þar býður sig fram séra Ein-
ar Þórðarson í Hofteigi og verður að líkindum
kosinn, og líklega séra Einar á Kirkjubæ aft-
ur, ef hann býður sig fram. Annars óvíst um
þingmannsefni í stað hans.
Sunnmýlingar kjósa líklega síua fyrrverandi
þingmenn.
Þessar kosniugahorfur verða betur athugað-
ar í næsta blaði.
Prestalaunamálið.
Mjög er sú breyting á launum presta í-
hugunarverð, sem lagafrumvarp það fer fram
á, er sent hefir verið út um alt land í vetri
var til prestanna frá kirkjustjórninni islenzku
til þess að láta söfnuðina láta í ljós álit sitt
um það.
Prestarnir í mínu héraði hafa sannarlega
ekki talið eftir sér sporin, að fá söfuuði sina
til að segja já og amen við frumvarpinu.
Þeir hafa sumir riðið á þvert eina|ta heimili
í sóknum sínum til að fá undirskriftir undir
yfirlýsing þá sem presturinn hefir sjálfur
samið um þetta. Hafi það ekki gengið með
góðu að fá almenning til að aðhyllast þetta
frumvarp, — hvort sem prestarnir hafa fengið
menn til þess með undirskriftum eða með
opinberum fundahöldum — þá hefir það undir
eins komið fram, að prestunum hefir mislíkað,
og hafi einhver verið svo djarfur, að láta i
ljós einhver mótmæli gegn frumvarpinu, hefir
allvíða orðið vart við ónot og þykkju af
hálfu prestsins, svo að söfnuðirnir hafa frið-
arins vegna látið undan síga fyrir hinu kenni-
mannlega ofurefli og „dæmt svo alt sem
beiddu þeir“. Þótt kallað sé að söfnuðirnir
lýsi yfir þvi, að þeir séu samþykkir frum-
varpinu, þá eru það einkanlega prestarnir
sem gera það, því söfnuðunum, eða mörgum
í þeim, er alveg óljóst hverjar afleiðingar
þessi breyting kann að hafa í för með sér.
Prestar segja ekki annað en það, að með
þessari breytingu losni bændur við öll gjöld
til presta, því að þau verði tekin úr lands-
sjóði, og á þetta agn ganga margir. Prestar
hafa ekki fyrir því að lýsa yfir því fyrir
mönnum, að landssjóður muni einhversstaðar
verða að fá tekjur í staðinn.
Eg vil nú í fám orðum taka fram þær af-
leiðingar, sem óhjákvæmilega verða af því,
ef prestar verða settir að öllu leyti á föst
laun úr landssjóði:
1. Öll hin tekjuminni prestaköll verða hælikuð.
— Prestar í hinum rýru prestaköllum munu
kveina við þingið þangað til að það hrærist