Fjallkonan - 29.09.1900, Page 3
FJALLKONAN.
3
Ekki dettur mér í kug að neita því, að* ís-
núin hraun og jökulurðir geti verið hvert upp-
yfir öðru í eldfjalli, sem jökull liggnr á, ogþyk-
ir mér fróðiegt að sjá að Dr Th. hefir atkug-
að slíkar myndanir. Ea jöklamóbergið er svo víða,
og á slíkum stöðum, að ómögulegt er að kom-
ast hjá þeirri ályktun, að land alt hafi verið
jökli hulið, þegar það myndaðist. Og eins og
hagar til í Þjórsárdal t. a. m., þá duga engin
„ísþakin eldfjöll" til að skýra, hvernig skiftast
þar á jokuIurðir,j malsrlcg (conglomerat) og
blágrýtÍBÍög, og hin ísnúnu dóleríthraun sýna
alveg ómótmælanlega, að afarlaugt tím&bil hefir
liðið milii þessarar ísaldar, er íór fyrir, og þeirr-
ar er á eftir kom. Ég er alveg sammála Dr.
Th. í því, að öll dóleríthraun séu ekki jafn-
gömul, og það er mér ráðgáta, á hverju hann
byggir þessi orð sín (s. 163): „H. P. virðist
ætla, að ég haldi öli dóleríthraun jafngömul“.
Að endingu get ég ekki stilt mig um að
óska þess, að Dr. Thoroddseu, er hefir þessa
mörgu góðu kosti sem rithöfundur, gerði sér
dálítið meira far um að vanda tilvitnanir sín-
ar. Hann hefir t. d. hvergi rétt eftir, þar sem
hann vitnar í „Eimr.“ ritgeið mína. Eða hvar
hef ég t. a. m. sagt, að „mestalt móberg á öllu
íslandi sé jökulurðir111? eða hvar kveðst ég
„hafa fundið lykilinn að jarðfræði íslands“?
Þegar Dr. Thoroddsen þykir svo við horfa, seg-
ir hann þó að móbergið sé „aðeins einn lítill
liður í jarðfræði ís!ands“ (s. 167).
Reykjavík i Beptemberm.
Helgi Pétursson.
Sérstaki ráðgjaflnn.
í 36. blaði „Fjalikonunnar“, 11. dag þ. m.,
er sagt, að eg sé fyrsti faðir va!týskunnar“,
þar sem ég á alþingi 1885 hafi látið mér nægja,
að fá sérstak&n ráðgjafa, sem mætti á alþingi.
Það er satt, að ég var einn í nefnd þeirri,
sem neðri deild alþingis þá kaus til að íhuga
stjórnarbótarmálið, og var þar einn á bandi að
vilja eigi hreifa þá við stjórnarskránni, því að
ég þóttist sjá með vissu fram á, að það mnndi
verða árangurslaust; en þar sem ég þá stakk
upp á, að þingið skyidi beíðast, að skipaður
væri sérstakur ráðgjafi fyrir ísland, sem mætti
á íslandi, þá verður að skilja þau orð mín í
sambandi við það, sem ég hafði áður sagt um
það, hvað ég teldi „sérstakur ráðgjafi“, það er
að segja: þann ráðherra, sem eigi hefðu önnur
störf á hendi, en hin sérstöku mál íslands, og
ætti eigi sæti í ríkisráðÍDU, og þyrfti því eigi
að bera hin sérstöku mál íslands undir ríkis-
ráðið, og annað hefi ég aldrei skilið við „sér-
stakur ráðgjafi“. Þetta vona ég að ég hafi full-
skýrt látið í ljósi á alþingi 1875 (sjá Alþingis-
tíðindin 1875, II, bls. 367—370).
Reykjavík, 22. dag sept. 1900.
H. Kr. Friðriksson.
* *
*
Ath.s. ritstj. Höf. þessarar greinar hefir ef
til vill viljað haida því fram með Ben. Sveins-
syni 1875, að ráðgjafinn ætti ekki að sitja í
ríkisráðinu, þó þingtíðindin beri það ekki Ijóa-
lega með sér, en 1885 sést hvergi, að hann
hafi haldið því fram. Hann segir þá (Alþ.tíð.
1885 II 387): „Aðalatriðið er það, að koma
því frelsi, sem vér höfum, svo fyrir, að það verði
að sem haganlegustum og beztum notum, oq það
fæst með því, að sérstakur ráðgjafi sé skipaður
fyrir Island, hdzt Islendingur, er komi á þing
og haldi svörum uppi fyrir gerðir sínaríl. Ríkis-
ráðsseta ráðgjafans var þá ekki nafnd á nafn.
íthafsrannsókiiir
í nánd við ísland.
Þess hefir áður verið getið í þessu blaði, að
Norðmenn gerðu út skip í sumar til að rann-
1) Auðkent af Dr. Th.
saka úthafið milli ísl&nds og Noregs og norður
alt til Jan Mayn cg svo fram með ströndum
íslands. Á skipi þessu var Fridtjof Nansen og
fleiri norskir vísindamenn og áttu þeir einkum
að grenslast eftir háttum fiskanna á þessu svæði.
Þeir höfðu öi! hin nýjustu og beztu áhöld og
veiðarfæri. Skipið kom aftur heim seint í ágúst, og
'var gert ráð fyrir, að haldinn yrði síðan alþjóða-
fundur í haust um úthafsrannsóknir; verður þar
bygt á þeim rannsóknum, er Norðmenn hafa
nú gert.
Skipið heitir „Michael Sars" og hefir það far-
ið til ísiauds og Jan Msyn eius og ráð var fyr-
ir gert. Árangur ferðariunar er talinn mjög
mikill.
Það er sannað með þessum rannsóknum, að
smáseiðið leitar til hafs. Þeir fundu það 60
mílur undan ströndum Noregs.
Prófessor Ossian Sars hafði áður getið til, að
smáseiðið mundi fylgja marglyttunum á ákveðnu
þroskastigi og leita bæði verndar og fæðu uud-
ir þeirn. Á skipinu fundu menn á þessu svæði
vestur af Noregi smáseiði í hvert skifti sem
háfnum var rent, meira eða miuna, ýmist und-
ir marglyttum eða skýlislaust í hafinu. Þeir
fengu yfir 180 í eitt skifti; það var smáseiði
af hinum venjulegu fisktegundum, ýsu, ufsa,
þorski, kola og öðrum flatflski.
Niðurstaðan verður, að atkvæmi fisksins
rekur til hafs og berst fyrir straumi. í álands-
vindi rekur það aftur undir land, en verið get-
ur, að sumt verði eftir og verði úthafsfiskur.
Þelr fundu líka stóran fisk út á hafinu, svo
sem þorsk, ufsa, ýsu, karfa og síld.
Síld fengu þeir með reknetum úti fyrir Fær-
eyjum. Þorsk fengu þcir á 20 föðmum á 1000
faðma dýpi 30—40 mílur undan landi og karfa
á 100 föðmum og á 1600 faðma dýpi. Hug-
myndnm manna um botnfiskinn er þar með al-
gerlega hrundið.
í íshafssjónum er ekkert af hinum venjulegu
fisktegundum, svo sem þorskur, ufsi eða ýsa,
heldur einungis í golfstraumssjó. Svo reyndist
það líka fyrir vestan ísland 20 mílur undan
landi.
íshafssjórinn og golfstraumssjórinn var greini-
lega aðskilinn, og svo var um golfstrauminn
vestan við ísland og íshafsstrauminn sem þar
er líka. Á 5 mínútum gátu þeir farið úr hrein-
um íshafssjó í golfstrauminn, og jafnframt sýndu
athuganir þeirra einkennileg umskifti á seltu
og hita. Hitinn gat alt í einu aukist eða
minkað alt að 4 stigum. Þessi piismunur var
ekki einungis í haffletinum, heldur og niður í
sjónum í hinum ýmsu lögum sjávarins og á
sama tírna.
Það er einkum H. G-ran, docent, sem rann-
sakaði alt sjávarlífið á þessari ferð.
Nú er eftir að gera rannsóknir um útbreiðslu
smáseiðanna í hafinu. Dr. Hjört hefir fyrstur
bent á, að smáseiði fiskanna mundu þroskast
þannig sem hér hefir reynst, o^, eftir tillögum
hans er nú í ráði, að rannsaka hafið fram með
ströndum Noregs og Norðursjóinn. Jafnframt
er ætlast til, að hafið verði rannsakað á sama
hátt á ýmsum stöðum af ýmsum þjóðum.
Af þessum rannsóknum er það þegar Ijóst,
að fiskurinn er ekki bundinn við strendurnar,
og að fiskauður hafsins er meiri en menn hafa
ætlað. Menn þurfa því ekki fremur að leita að
fiskinum við land en á hafi úti, ef menn hafa
áhöld tii þess, og því sizt að leita undirstrend-
ur hjá öðrum þjóðum. Af þessum rannsóknum
er það líka Ijóst. að það muni vera iítils eða
einskis vert, að klekja út hafsfiski.
Það hefir sannast, að golfstraumurinn breyt-
ir sér. f sumar var hanu talsvert minni og
kaldari en venja er til (alt að 2°), Hraðinn
varminni, og því kólnaði hann fljótara. Honum
hefir því dvalist meira suður í hafinu. Af því
kemur hiti suður í Iöndum og kalt samar hér
á Norðurlöndum.
Því hefir verið haldið fram, að köld sumur
stöfuðu af því, að ís ræki langt suður í hafið,
en það er ekki því að kenna, heldur stafar
sumarkuldinn beinlínis af því, að golfstraumur-
inn er þá ekki öflugur.
Úthafsrannsóknirnar muuu áður langt líður
gera grein fyrir háttum golfstraumsins og þar
með fiskgöngunum o. fl.
Alþiiigiskosniiigar.
Vestmannaeyjasýsla. Þar var kosinn 15. þ.
m. dr. Valtýr Gruðmundsson með 41 atkv.
Snæfellsnessýsla. Þar var kosinn Lárus sýslu-
maður Bjarnason með 116 atkvæðuro. Einar
ritstj. Hjörleifsson fekk 26 atkv. og séra Sig-
urður Gunnarsson 9 atkv.
Skaftafellssýsla. Þar er kosinn 22. þ. m. séra
Ólafur Ólafsson í Arnarbæli með 49 atkv.
Jón próf. Jónsson fekk 29 atkv.
Þá er ófrétt úr Barðastrandarsýslu og Þingey-
jarsýslu.
Um atkvæða tölu kjörinna þingmanna er þess
vangelið, að í Norður-Múlasýslu fekk Einar
próf. í Kirkjubæ 129 atkv. og Jóhanues sýslu-
maður 115, en auk þeirra voru í boði séra
Einar í Hoftegi (fekk 109 atkv.) og Jón lækn-
ir Jónssou (97 atkv.), en í Suður-Múlae. Tuli-
nius sýslumaður 97 atkv. og Guttormur Vig-
fússon 88, en auk þess voru i boði séra Magnús
í Vallanesi og Ari bóndi Brynjólfsson á Þver-
hamri, er fengu hvor 73 atkv. Sveinn borgari
Ólafsson fekk ennfremur 7 atkv. í Húnavatnss.
fekk Hermann 135 atkv.; en Jósafat hrepp-
stjóri 119, en af binum sem í boði voru Björn
Sigfússon 51, séra Stefán á Auðkúlu 38 og
Júlíus læknir 17. Hermann gaf kost á sér
hálfum mánuði fyrir kjörfund, og hefir því haft
örugt fylgi. — Þegar getið var um kosningu í
Gullbringusýslu hefir enn fremur gleymst að
geta þess, að Þórður hreppstjóri á Hálsi fekk
49 atkv. og Guðmundur bóndi i Elliðakoti 41,
en þeir drógu sig í hlé við síðari kosninguna.
Tjón af ofsaveðri. Veðrið 20.—21. þ. mán.
hefir gert víða mikið tjón. Bátur fórst af Siglu-
firði með 10 mönnum. Á Akureyri gerði veðr-
ið mikið tjón á skipum og húsum. Eitt hús
fauk um koll og rotuðust þar 2 börn til bana
og konan handleggsbrotnaði. Tvö skip strönd-
uðu á Seyðisfirði og kirkja fauk í Borgarf. eystra.
Nánari fréttir í næsta blaði.
„Ilólar“ (kapt. Öst-Jakobsen)kom í morgun
með fjölda farþega.
Heiðursgjöf úr styrktarsjóði Kristjáns kon-
ungs IX liafa þessir bændur fengið nú: Guð-
mundurKlemensson í Bólstaðarhlíð í Húnavatns-
sýslu og Þorsteiun Jóusson í Vík í Mýrdal,
140 kr. hvor, fyrir framúrskarandi dugnað og
framkvæmdir í jarðabótum.
Botnverpingar. 21. þ. mán. kom varðskip-
ið „Heimdal“ hingað með 2 botnvörpuskip:
„Doris“ H. nr. 364 frá Hull, skipstj. J. C.
Turner og „E"arward“ H. nr. 407 frá Hull. —
Hinn fyrr nefndi var sektaður um 75 pd.sterl.
og 12 kr. mál8kostnað. — Veiðarfærin gerð
upptæk. Hinn síðarnefndi var sektaður um
1620 kr. og 45 kr. í málskostnað. — Veiðar-
færi og afli gert upptækt.
Um kosningabardagana
víðsvegar um landið ætlar Fjall-
konan að flytja kviðlinga nokk-
ura, og eru því allir þeir, er bezt
þekkja sögu kosninganna í haust,
beðnir að senda blaðinu upplýs-
ingar hver úr sinu kjördæmi.
Skemtileg ferðasaga úr Eaýzka-
landi eftir Helga Pétursson
hefst bráðum í þessu blaði.