Fjallkonan - 10.11.1900, Page 4
4
FJALLKONAN.
ar í Sandgerði, en mun þó ekki vera mikið
skemt. Þ4 rak einnig upp og brotnaði upp-
skipunarbátur Jóns kaupmanns Þórðarsonar.
Strand ? Eimbátuiinn „Odduru af Eyrar-
bakka rakst á sker fyrir nokkru á Skerjafirði
og hefir verið lagt upp í Seiluna hjá Bessastöð-
um, en óvíst hvort hann verður gerður að
strandi.
Fiskiþilskipakaup. Hr. Björn Kristjánsaon
keypti í f. mán. 4 nýja fiskiknerri á
Englandi, handa ýmsum mönnum hér: 1 handa
Th. Thorsteinsson konsúl, 1 handa Þ. J. Thor-
oddsen lækni i Keflavik og 7 mönnum öðrum
þar í félagi, 1 handa Nicolai faktor Bjarnasen
og bróður hans Carl Bjarnasen, Kristni Magn-
ússyni skipstjóra og Þórði Péturssyni, og loks
hinn 4. handa þeim Birni Guðmundssyni timb-
ursala, Þorsteini verzlm. bróður hans Guðmunds-
syni og Jes Zimsen verzlm.
Landsyíirdómurinn hefir kveðið upp dóm í
sakamálinu gegn Einari FinDssyni vegfræðingi.
Héraðsdómurinn er staðfestur, að viðbættum
málskostnaði við yfirdóm. Hegningin 14 daga
einfalt fangelsi auk málskostnaðar.
Yfirdómurinn tók það fram, að málið þætti
eigi nógu rækilega upplýst, en áleit þó að það
mundi árangurslaust að vísa því heim attur.
Frá Búuni.
Kristján Wet hershöfðingi Búa hefir nú lengi
hafst við i Óraniuríkinu og segja ensk blöð að
þar og undir forustu hans munu vera 7—12000
Búar, sem halda áfram að gera áhlaup á Eng-
lendinga. Wet heíir mist alla sonu sínaístríð-
inu, og hefir svarið þess dýran eið, að hann
skuli hefna þeirra grimmlega á Englendingum.
— Hvorki Steijn Óraníu forseti né Burgher
Transwaals forseti, eftirmaður Kiugers gamla,
hafa enn gefist upp.
Hollenzka stjórnin bauð Kriiger gamla að
flytja hann til Evrópu á hollenzka herskipinu
„Gelderland", en ekki var það ákveðið, hvar
skipið mundi taka höfn i Evrópu. Enskustjórn-
inni líkaði þetta stórilla og setti ofan í við
hollenzku stjórnina og hafði jafnvei i hótunum,
segja blöðin. En Hoilendingar hafa engan gaum
gefið því og kvíðst Yilhelmíaa drotning ekki
taka neitt tillit til auglýsingar Roberts um að
Transwaal væri ensk nýlenda, og mundi hún
taka á móti Ktiiger eins og honum sómdi sem
þjóðhöfðingja.
Allur lýður í Hollandi fylgir þar stjórninni
að máli, enda er sagt svo, að hollenzka stjórn-
in hafi spurt sig fyrir hjá einhvetjum af stór-
veldunum um það, hvort ekki væii óhætt að
taka á móti Kriiger gamla, og hafi þau stntt
það mál.
Þjófnaður í páfahöllinni. Nú fyrir skömmu
hefir stóiþjófnaður verið framinn í páfahöllinni.
Var brotinn upp peningaskápur páfans sjálfs
og stolið úr honum 357000 lira (líri = franki)
í verðbréfum og 3000 líra í peníngum. Svo
virðist sem þjófarnir hafi verið kunnugir, og er
getið til að það séu heimilisþjófar. Lögregl-
unni hefii ekki tekist að ná þjófuaum, en hefir
gert öllum bönkum í Rómaborg og þar í grend
aðvart um verðbréfin, svo líklegt er, að þjófn-
aðurinn komist upp er þan verða seld.
íslendinga sögur.
Flestar af þeim íslendingasögum, sem taldar
eru sögalega sannar, eru nú komnar út ákostn-
að Sigurðar bóksaln Kristjánssouar. Síðast eru
út komnar Grettis saga og Þórðar saga hræðu
(hreðu). — Af hinum sannsögulegu sögum er
þá eftir Bandamanna saga og ýmsir þættir.
Þá er eftir að gefa út aðrar sögur, sem ekki
eru kallaðar sannar, og loks er eftir að gefa út
Sturlungu.
Ekki er svo að sjá, sem þessar sögur séu
mikils metnar í heimkynni þeirra, þótt aðrar
þjóðir dáist nú meir og meir að þeim og fleiri
og fleiri fræðimenn útlendir leggi stund á þær.
— íslenzkar útgáfur og þýðingar af sögunum
eru stöðugt að fjölga; þó eru það e'nkum Þjóð-
verjar sem skara fram úr í þessu, en eins og
skýrt hefir verið frá í þessu blaði eru nú Dan-
ir eiunig byrjaðir á að gefa út nýjar þýðingar
af sögum vorum, og er ekki ólíklegt, að stú-
dentaleiðangurinn danski í sumar hafi ýtt undir
þá.
Norðmenn eða Svíar eru heldur ekki athuga-
lausir um þetta mál. Norska stórþingið veittí
norskum bóksala síðast 20,000 kr. til útgátu
Heimskringlu, sem Norðmenn eigna sér og segja
að Noiðmaðurinn Snorri Sturluson hafi samið.
Ferðameiin. Hér kom með Hólurn Þorsteinn
iitstj. Erlingsson frá Seyðisfirði og dvelur hér
um tírna. Eunfremur hafa komið með strand-
skipunum meðal annara R. Riis kaupm. áBorð-
eyri, Kr. Gíslason kaupm. á Sauðárkrók, Lárus
sýslum. Bjarnason í Stykkishólmi — kvað ætla
til Kaupmannahafnar. Þá kom og heim hing-
að með Hólum af Austfjörðum Magnús dýral.
Einarsson. Af kaupafólki flutti sá bátur suður
hingað i þessari ferð á 4. hundrað manna. Margt
manna kom og með Skálholti og nokkuð með
Yestu.
Strandferðasklpin öll 3: Vesta Hólar og
Skálholt, komu á sama sólarhringnum 4,-—5.
þ. m., orðin nokkuð á eftir áætlun, Hólar rétta
viku; höfðu (Hólar) farið vestur á Blönduós að
sækja kjöt. Hólar og Skálholt fóru 7. þ. m.
héðan til Noregs. En Vesta liggur hér veður-
föst.
FJALLKONAN 1901,
Nýir kaupendur að Fjallkonunni 1901 fá í kaupbæti:
Þrjú sérprentuð siigusöfn blaðsins í allstóru broti
yfir 200 bls., meðan þau hrökkva, með mjög mörg-
um skemtisögum.
Enn fremur einhvern eldri árgaug blaðsius eftir
samkomulagi.
Ekkert ísleuzkt blaö býður þvílíka kosti.
Framhald verður á innlendum sögum, sem ekkert
annað blað getur boðið, með því að þær eru hvergi
til nema hjá útgefanda blaðsins.
Lýsing Reykjavíkur um aldamótin getur ekki kom-
ið fyrr en eftir nýár, vegna þess að enn vanta mynd-
ir, sem þeirri ritgerð eiga að fylgja.
Útlendar sögur verða og stöðugt í blaðinu.
1. Paul Liebes Sagradavm og
Maltextrakt með kínín og járni
heíi eg nti haft tækifæri til að reyna með
ágætum árangri. Lyf þessi eru engin leynd-
arlyf (arcana), þurfi þau því ekki að brúk-
ast í blindni, þar sem samsetning þessara
lyfja er ákveðin og vitanleg. Sagradavínið
hefir reynst mér ágætlega við ýmsum maga-
sjúkdðmum og taugaveiklun, og er það hið
eina hægðalyf, sem eg þekki, er verkar án
allra ðþæginda, og er lika eitthvað hið ð-
skaðlegásta lyf.
Maltextraktin með kínín og járni er hin
bezta styrkingarlyf, eins og efnin benda á,
hið bezta lyf gegn hvers konar veiklun, sem
er, sérstaklega taugaveiklun, þreytu og lúa,
afieiðingum af taugaveiki, þróttleysi magans
ö. s. frv. — Lyf þéssi hefi eg ráðlagt mörg-
um með bezta árangri og sjálfur hefi eg brúk-
að Sagradavínið til heilsubóta, og er mér
það ómissandi lyf.
Reykjavík 28. nóv. 1899. L. Pálsson.
Einkasölu á I. Paul Liebes Sag-
radavíni og Maltextrakt með kínín
og járni fyrir ísland hefir undir
Framhald verður af Alþingisrímuiium eða kveð-
skap í svipuðum anda.
Fyrir 1 kr.
skrifaður. Útsöiumenn eru vinsam-
lega beðnir að gefa sig fram.
Reykjavík í nóvember 1899.
Bjðrn Kristjánsson.
geta kaupendur nú fengið blaðið um hvern ársfjórð-
ung, með ýmsum hlunnindum, eftir samkomulagi.
Gamlar bækur.
Ég kaupi:
Allar gamlar bækur, bæði inn-
lendar og útlendar, sem eru prent-
aðar fyrir 1601 (að undanskildri Guð-
brands biblíu) fyrir afarhátt verð.
Allar íslenzkar bækur frá tíma-
bilinu 1601—1700 fyrir hátt verð.
Allflestar bækur frá tímabilinu
1700—1800. Þó kaupi ég ekki sum-
ar „guðsorðabækur" írá Hólum frá
síðari hlut 18. aldar.
Allflestar bækur frá Hrappsey.
Nálega allar prentaðar rímur (og
rímur frá Hrappsey fyrir hátt verð).
Allflestar bækur veraldlegs efnis
sem prentaðar eru í Reykjavík fram
að 1874.
Allflestar bækur sem Páll Sveins
son gaf út í Kapmannahöfn.
Flestar bækur veraldiegs efnis sem
prentaðar eru á Akureyri fram að
1862.
Valdimar Ásmundsson.
Ullarband,
ágætt í nærföt, mógrátt, tvinnað og
þriuuað er til söiu í Þiagholtsstræti
18a.
Blómsturlauka
(hyacinthus) á 40 aura stk., selur
Einar Helgason
Laufásveg 6.
1 Vottorð.
Mörgum árum saman hefi égt
þjáðst af taugaveiklun og melt4
ingarvandkvæðum og hefi ég reyntc
ýms ráð við því sem ekki hafaftj
dugað. En síðan ég fyrir ári fóií|
ið reyna hinn veraldfræga Kína H
iífs-elixír, sem hr. Waldemar Pet-f*|
ersen í Frederikshavn býr til, getr.í
iég borið það með ánægju, að Kína-a
Siífs-elixír er hið bezta og örugg-ra
aasta !yf við alls konar taugaveikl-w
aun og veikri meltingu, og mun égra
ihéðan af taka þennan ágæta bitteift]
|fram yíir alia bittera aðra.
Reykjum. K
’♦] liósa Stefánsdóttir. [|
;♦] Kína lífs-elixírinn fæst hjá|j
jíjflestum kanpmönnum á íslandi.
| Til þess að vera vi38 um, aðS
|fá hinn ekta Kína-Iífs-elixír, eru
akaupendur beðnir að líta vel eftir|
|því, að vfp‘ standi á flöskunum ij
'jjgrænu lakki, og eins eftir hinuH
|jkrásetta vörumerki á fiöskuinið-S
' inum: Kínverji með glas-í hendiö
og firmanafnið Waidemar Pet-H
ersen, Nyvej 16, Kjöbenhavn. H
® o<> ® *<x>o
Meö ,Vesta‘ komu
fallegu stólarnir
með rósinni
Ben. S. Þórarinsson.
Útgefaudi: Yald. Ásmundarson.
Félagsprentsmiðjan.