Fjallkonan - 25.01.1901, Síða 2
2
F J ALLKCTNAN.
milli Ásmundarstaða safnaðar og séra Halldórs
og
að samkotsulagið hafi farið hatnandi í
Presthólasókn.
Þessa yfirlýsing bera að kaila allir heimilis-
feður i söfnuðinum.
En prófastur, stiftsyfirvöld, landshöfðingi og
ráðgjafi segja einum rómi:
„Samkomulsgið fer versnandi“.
* *
*
Eftir síðustu fregnum, sem eru frá áreiðan-
legum mönnum, verða það að líkindum að eins
ein tvó heimili í Presthólasókn, sem ekki mundu
taka Haildór prófast í fulla sátt við sig, ef
hann væri aftur tekinn við embættum sínum.
Þetta er hið óþolandi samkomulag, sem ó-
mögulegt gerir „ávaxtasamt kristiiegt líf“ milii
prófastsins og safnaðanna.
Kirkjustjórnin á að láta Halldór prófast taka
aftur við báðum embættum sínum. Hún ætti
ekki að stuðla til þess með aðgerðum sínum, að
vekja sundrung í söfnuðunum og neyða menn
til þess að stofna frikirkjueöfnuði.
Verði ekki Halldór prófastur Bjarnarson
S8ttur aftur inn í bæði embætti sín á næsta
vori, má búast við, að alþingi að sumri taki
mál þetta til meðferðar, og að niðurstaðan verði
kirkjustjórninni til óvirðingar, er það verður
ljóst, að sú ásökun er á engum sannindum bygð,
sem höfð var til að víkja Halldóri prófasti úr
embætti.
Auðvitað hefir kirkjnstjórnin það sér til af-
sökuuar, að hún hefir farið eftir óáreiðaulegum
skýrsium, sem hún hafði ástæðu til að treysta.
— Vér munum síðar í ritgerð þessari segja í
fám orðum sögu óeiíðanna í Presthólasóku^sem
nú eru hjaðnaðar niður sem betur fer.
NAUTGRIPARÆKT.
I.
Fyrir nokkru las eg grein í „Þjóðv.“
(tölubl. 32—83 f. á.) með yfirskriftinni „Meiri
hagfræði" eftir Guðm. Bergsson. Minnist
höf. þar á ritgerð mína „Um nautpenings-
ræktina í Danmörku“, sem prentuð er í
„Búnaðarritinu“ síðastliðið ár, og í sambandi
við það farast honum þannig orð, að betur
hefði verið gert af mér, „að gefa yfirlit yfir
nautpeningsræktina hjá oss íslendingum11 o.
s. frv. Því skal eigi neitað, að stór nauð-
syn væri að fá slíkt „yfirlit“, en það er hægra
ort en gert. Meðan ekkert er rannsakað, að
því er nautpeninginn snertir, hvorki kyn-
ferði eða eiginleikar hans, þá er allerfitt að
gefa nokkurt fullnægjandi yfirlit í því efni.
Hið eina er opinberar skýrslur bera með sér
viðvíkjandi nautgriparæktinni hér, er tala
nautpenings, og er naumast þó, að sú tala verði
álitin óyggjandi. Auk þess, og þó mjög af'
skornum skamti, eru til nokkurar töflur yfir
nythæð eða ársmjólk úr fáeinum kúm, sem
prentaðar eru í eidri árgöngum „Búuaðar-
ritsins“ og á við og dreif annarsstaðar. Enn
fremur veit eg til, að ýmsir menn hafa haft
það fyrir reglu, að rita töflur yfir arð og til-
kostnað við nautpeninginn, sem ekki hafa
verið prentaðar, en þeir eru því miður til-
tölulega fáir. Ea þetta er alt enn þá svo
ófullkomið og í svo smáum stíl, að varlega
verður að byggja á því, þegar um nautpen-
ingsræktina í heild sinni er að ræða. Um
kyn nautpeningsins, eða einstaka stofna innan
þess, verður fátt sagt; það er alt órannsakað.
Og á meðan þannig er ástatt, verður það
ljóst, að mér var eigi auðið að gefa neitt yfir-
lit yfir ástandið hér á landi, hvað þessa grein
búskaparins snertir. Það verður að sjálfsögðu
að bíða fyrst um sinn, eða þar til einhver
frekari gangskör er gerð að því, að rannsaka
nautpeninginn, kyuferði hans, kosti og eigin-
leika. En annað mál er það, hvort ekki er
kominn timi til að þetta sé gert. Mér þykír
því vænt um, að höf. áðurnefndrar greinar
í „Þjóðv.“ minnir óbeinlínis á þetta, og gefur
mér þannig ástæðu til að hreyfa þessu máli
hér.
Það er öllum ljóst, að alt til þessa hefir
ekki næsta mikið verið gert til þess að bæta
nautgriparæktina hér á landi. Eigi skal því
þó neitað, að meðferð á kúm og fóðrun þeirra
hefir þó farið batnandi í seinni tið. Það er
tíðast reynt, sem verður, að koma í veg fyrir
að þær líði fyrir fóðurskort. Þetta mun þó
eins mikið að kenna eða þakka eigingirni
manna, eins og hinu, að það sé af tómri vel-
vild við kýrnar. En hvað sem um það er, þá
er hitt víst, að flestir reyna til að’haldakún-
um óskemdum, og það er aðalatriðið. Geri
skepnan gott gagn, fer eigandanum að þykja
vænt um hana, og sameinast þá þetta tvent,
hugsunin um að láta hana gera sem mest
gagn og velvild til henuar. Þegar þessu er
slept, betri meðferð á kúnum, þá er einnig
upp talið það, er gert er til umbóta naut-
peningsræktinni.
Eitt hið fyrsta er gera þarf, ef ekki á undan
öðru, þá samt jafnhliða því, svo sem betri
meðferð, það er rannsókn á kynferði og
eiginleikum nautpeningsins. Þessa rannsókn
verður að hefja sem fyrst, og jafnhliða henni
er gott að gefa almenningi bendingar um,
hvers er að gæta og hvað er að varast í þessu
efni. Slík rannsókn verður að gerast eftir
föstum reglum, og hlýtur hið opinbera að
annast hana og kosta. Þegar þessi rannsókn
er hafin, og henni komið svo, að eitthvað er
til, sem bygt verður á, að því er snertir kyn
og eiginleika nautpeningsins, þá verðurundir
eins að byrja á alvarlegum kynbótum, stofna
kynbótafélög o. s. frv. Eins og nú er, mun
fátt gert í þessu efni. Mér vitanlega erekki
til hér á landi eitt einasta kynbótafélag fyrir
nautgripi. Kynbætur nautgripa hér á landi,
ef kynbætur geta heitið, hafa verið og eru
aðallega í því fólgnar, að velja kvígukálfa til
ásetnings eða til lífs undan betri mjólkur-
kúnum. En þó þetta sé gott, og ekki í sjálfu
sér lastandi, þá er hitt auðsætt, að ekki riður
minna á vali nautsins. En það er einmitt
þetta, sem hefir gleymst og enginn gaumur
verið gefinn, og því er það, að þessar kvígu-
kálfa-kynbætur hafa eigi orðið nema að hálf-
um notum. Þótt mjög ríði á að vanda til
mæðra kvígukálfa, er ætlaðir eru til lífs, þá
er enn meira áríðandi að velja þarfanautið,
að það sé undan góðri kú af góðu kyni.
Erlendis er lögð mikil stund á að bæta
kyn nautpeningsins, og miklu fé til þess
kostað. í Noregi t. d. voru við árslok 1898
um 600 kynbótafélög fyrir nautgripi, ernutu
styrks af opinberu fé. Það ár veitti lands-
sjóður Norðmanna 80,000 kr. til þessara fé-
laga. Danir verja einnig árlega stórfé til
endurbóta og viðhalds nautpeningsræktinni o.
s. frv., og vil eg í þvi efni vísa til áður-
nefndrar ritgerðar í „Búnaðarritinu“ og til
hinnar ágætu ritgerðar amtmanns Páls Briems
í „ísafold“ síðastliðið ár með yfirskriftinni
„Nokkur orð um landbúnað“.
II.
Eg sagði fyrir stuttu, að það væri brýn
nauðsyn, að nautpeningurinn hér á landi væri
rannsakaður, kyn hans, kostir og gallar. Það
þarf að rannsaka, hvar beztar býr eru á land-
inu, vöxt þeirra og þrek, lit og önnur ein-
kenni. En hvernig verður því komið við ?
Hvernig verður það gert ? Um þ a ð geta
eðlilega orðið deildar meiningar. En þá er
því næst að grenslast eftir þvi, hvernig t. d.
nágrannaþjóðirnar hafa farið að, þegar líkt
stóð á fyrir þeim. Eftir þvi sem mér er
kunnugt, þá hafa þær rannsakað nautpening-
inn, eiginleiba hans og kyn, með því að
halda sýningar á nautgripum og framkvæma
skoðanir.
í öllum nærliggjandi löndum, svosemDan-
mörku, Noregi, S'. í’pjóð og Englandi, hafa
verið um langí éraskeið og eru enn haldnar
sýningar, stærri og minni, á nautgripum og
öðrum skepnum. Þessar sýiiingar hafa lagt
undirstöðuna undir þekkingu manna á naut-
peningnum og nautpeningsræktinni í þessum
löndum. Þessar sýningar eru ýmist haldnar
fyrir land alt, eða þá, sem oftar er, að eins
fyrir vissa hluta þess, í hvert sinn. Þarsem
strjálbygt er og erfitt um samgöngur, einsog
á sér stað sumstaðar í Noregi, eru þessar
sýningar oft haldnar fyrir lítilsvæði, Þessar
minni sýningar á lifandi fénaði, héraða- og
sveita-sýningar, nefna Norðmenn „Dyreskue“.
— Sýningarnar, bæði hinar stærri og minni,
hafa haft og hafa ósegjanlega mikla þýðingu
fyrir þessi lönd, er eg nefndi. Þær auka
þekkingu manna á búnaðinum og hinura ein-
stöku greinum hans, og sýna áþreifanlega,
einkum hinar minni, hvernig ástandið er.
En þær gera meira; þær auka samkepni, eðli-
lega og frjálsa samkepni, og efla félagsskap
og samtöb.
Á sýningum gefst mönnum kostur á aðsjá
gripi frá ýmsum stöðum, ólika að lit og ein-
kennum. Þegar það eru nú sömu mennirnir,
sem skoða gripina á mörgum sýningum, þá
fæst með því eins konar yfirlit yfir það,
hvernig ástandið er. Á þennan hátt læra
menn að þekkja nautpening3ræktina, kyn
nautpeningsins, ko3ti hans og galla. Þegar
þetta er fengið, er hægra að taka beinar og
ákveðnar stefnur, þegar um umbætur er að
ræða, einkum hvað kynbæturnar snertir.
Þar sem ekki er verið að gera tilraunir til
bynbóta með útlendum gripum eða innleiða
útlent kyn, þar leitast menn við að velja það
bezta úr heimaalda kyninu og nota þá gripi
til kynbóta. Auk sýninganna, bæði hinna
stærri og minni, hafa verið framkvæmdar í
Noregi svo nefndar „fjósskoðanir“. Menn
þeir, sem valdir eru til að gera þessar skoð-
anir — en það eru oftast amtsbúfræðingarn-
ir — fara um að vetrinum og skoða í hvert
fjós. Þessar s' oðanir hafa tvennan tilgang.
Þær eru bæði gerðj,r til þess að líta eftir
meðferð og hirðingn á skepnunum og gefa
bendingar þar að iútandi, og um leið til þess
að athuga kyniö, kosti þess og galla.
Að þessu athuguðu, sem hér er tekið fram,
vil ég nú leyfa mér að spyrja, hvort hugs-
anlegt sé, að hér á landi verði haldnar sýningar
á nautpeningi, svo í lagi fari. Margir munu
þeir, er litla trú hafa á sýningum í stórum
stíl, enda er margt, sem mælir á móti þeim,
eins og nú er ástatt hér á landi. En þótt
svo sé, þá er eigi þar með sagt, að allarsýn-
ingar séu ómögulegar. Eg hygg, að smáar
sýningar geti átt hér við, þrifist og gert
gagn. Til að byrja með, er þvi rétt að hafa
sýningarsvæðin eigi stór. Sýningarnar geta
því að eins verið fyrir einn hrepp á þessum
stað, fyrir tvo eða þrjá á öðrum stað o. s. frv.
Sýningarnar færu fram vor og haust og á
ýmsum stöðum. Eitt árið væru þær haldnar
sunnanlands, annað árið norðanlands o. s. frv.
Stundum mætti einnig halda héraða- eða sýslu-
sýningar, t. d. fimta hvert ár eða tíunda hvert
ár í hverri sýslu. Amts- eða fjórðungasýn-
ingar væru svo haldnar stöku sinnum, og
sýning fyrir land alt á lifandi peningi gæti
verið einu sinni á margra ára fresti. En
fyrst er að byrja á hinum minni sýningum,
og það þarf að gerast svo brátt sem auðið er,
og ætti næsta alþingi að veita fé til þeirra.
Þessar sýningar, sem hér hefir verið minst
á, geta verið jafnhliða fyrir nautgripi, fé,
hesta, hunda og alifugla. Yitaskuld hefi eg
í þessari grein einkum miðað við nautgripi,
en það sem sagt er um sýningar yfir höfuð,
getur átt jafnt við allan búpening. En jafn-
framt sýningunum er mjög gott að fram-
kvæma vetrarskoðanir, bæði til þess að kynn-
ast meðferðinni og gefa bendingar henni við-