Fjallkonan - 09.02.1901, Síða 4
4
FJAI/LKONAIN.
dottinn fyrir þetta. Hann sagði, að fundar-
mönnum bæri að gæta þess, að þetta yrði í
síðasta sinni, sem að sér bryti frá félaginu,
og annað það, að þó bann fengi þetta skitna
hálft annað þúsund krónur, þá kæmi þó 1000
krónur til skifta handa félagsmönnum. Enda
mundu dómstólarnir verða sín megin í því
máli. Hann Skúli þarf ekki að verða sköll-
óttur fyrir það, sem ísfirðingar hafa staðið
uppi i hárinu á honum um dagana, og svo
fór nú, að alla setti hljóða og mæltu ekki
orð, enda var víst flestum farið að þykja
fullheitt inni. En þá skrifaði Skúli tekju-
megin hjá sér þessar 1500 kr. án þess gengið
væri til atkvæða um þær. Afdrif þeirra 1000
kr., sem fyrverandi félagsmenn báru úr být-
um, urðu þau, að fundarmenn stofnuðu sjóð,
sem styrkja skyldi formenn, sem reynst
hefðu sjógarpar, hepnir, handlægnir og ötulir.
Svo fór það. *— En af hjartans einlægni
talað, þá ann ég þér samt, Skúli minn, allrar
þeirrar virðingar, sem þér ber að lögum fyrir
afskifti þín af „Kaupfélagi ísfirðinga11 frá því
er það stóð í blóma sínum og þar til í fyrra
að höfuð þess vissi að jörðu, en fætur til
himins, í þínum eigin húsum.--------------
Isfirðingur.
Ofsaveður vestra. Morgun 6. jaD. (þrett-
ánda) gerði svo mikið ofsaveður á Yesturlandi,
að elztu menn þykjast ekki muna þvílíkt. Ranf
þar víða hús og hey, skip brotnuðn og fleiri
skemdir urðu. Mest varð skipatjónið í Hnífsdal,
og fóru þar alls 12 skip, sum í spón og sum
alveg. í Bolungarvík urðu og miklar skemd-
ir á húsum og heyjum; samkunduhúsTemplara
jafnaðist við jörðu. — Skaðinn í báðum þessum
veiðistöðum skiftir þúsundum. — Víða urðu
skaðar, svo sem að bryggjur brotnuðu i öllum
hvalveiðistöðunum vestaníands, og fleira tjón
varð þar, sem skiftir mörgum þúsundum króna.
— Á Kleifum í Seyðisfirði brotnuðu tvö fjögra
manna för og !á við að bæjarhúsin fykju. Hlaða
og hjallur fauk í Hjarðardal í Dýrafirði hjá
Benedikt bónda Oddssyni, og skemdust þar flest
hús. — Á Bíldudal fauk hús, sem var í smíð-
um, og fleiri hús skemdust þar. Efra loftið á
verkafólkshúsi á Bíldudal sviftist burt og sóp-
uðust burt rúm fólksins og alt sem þar var
inni. Þar fór líka skúr, sem Jón Sigurðsson
verkstjóri notaði fyrir skrifstofu, og er sagt
að hann hafi mist þar minst 300 kr. í bókum
og öðru. ___________
Aflabrögð. Fyrir skömmu varð fiskvart á
Stokkseyri og Eyrarbakka, en mjög lítið. —
Fyrir sunnan Skaga hefir verið nokkur afli,
þegar reynt hefir verið. Aflalaust að mestu í
Faxaflóa, og aflalítið vestanlands síðan á þrett-
ánda.
Skarlatssótt, væg þó, er nú komin upp á
Þingeyri við Dýrafjörð. Engar ráðstafanir hafa
verið gerðar til að hefta útbreiðslu hennar.
Barn brann nýlega til bana á Folafæti í
ísafjarðareýslu. Datt í sjóðandi pott, sem lát-
inn hafði verið á gólfið, eins og því miður er
algengur siður.
Dáinn hér í bænum 3. febr. Guðmundur
Otteeen, kaupmaður af Akranesi, úr sullaveiki,
eftir stutta Iegu á spítalanum.
Póstskipið „Laura“ kom í fyrra kveld af
Vestfjörðum.
Geirfuglinn. í þýzka blaðinu „Illustrirte
Zeitung“ f. á. er grein um geirfuglinn, sem
kaliaður er a utlendum malum alca impennis,
og risaálka og gleraugnaálka, og er undan-
ari þeiirar áJku, sem nú lifir. Geirfuglinn
var á stærð við gæs, hvítur á bringu og kvið,
en bakið og höfuöið svart. Hann hafði tvo
hvíta bletti milli augnanna, og því var hann
kallaður gleraugnaá'ka. Eu einkennilegastur
var hann fyrir þá sök, að hann gat ekki
flogið; vængirnir voru ofstuttir til þess. Þeg-
ar hann kom á land, mátti kenna í brjósti
um þennan fallegu, meinlausa fugl, sem var
ekki fær um að forða sér undan árásum
manna og dýra. Ásjónum var aðalheimkynni
hans. En hann var líkur öðrum frændum
sínum í því, að hann var hneigður til félags-
lífs og það var ógæfa hans.
Það tókst þó ekki fyrri en undir miðja
öldina sem leið að uppræta svo geirfuglinn,
að hann var aldauða, og finst nú ekki lengur
í víðri veröld. Seinustu fuglana, sem veiddir
voru, drápu Hafnamenn, Ketill í Kotvogi o.
fl., 3. júní 1844.
Sagt hefir verið að 20 árum síðar, eða um
1864, hafi átt að sjást einn geirfugl í Eldey,
en það er óvíst.
Af því mjög fátt er til af geirfuglahömum,
geirfuglaeggjum og geirfuglabeinum er það
alt í afarháu verði, og þó ekki sé nema ein-
stök bein. Fyrir nokkurum árum var eitt
geirfuglsegg (skurnin) selt fyrir um 6000 kr.
Framhald af íitgj. „Liðskönnun“ og
„Presthólamálin“ hefir orðið að bíða næsta
blaðs.
wæ Skófatnaðarverzlun
Rafns Sigurðssonar
fékk nú með „Laura“ miklar birgðir af útlendum skófatnaði; einnig
er til nóg af innlendum skófatnaði af ýmsum tegundum, er selst
með niðursettu verði nú fyrst um sinn, gegn peningaborgun út í
hönd. Á vinnustofunni verður tekið á móti vinnu með mjög vægum
kjörum. Menn snúi sér í þessu efni til hr. Stefáns Gunnarssonar.
-----------------------------------
í sambandi við þessa auglýsingu vil eg mælast til þess að
heiðraðir bæjarbúar sýni mér sömu velvild og tiltrú, sem þeir sýndu
manninum mínum.
Guðleií' Stefánsdóttir.
Verzlun J. P. T. BRYDESI Reykjavík.
Nýkomið með „Laura“ :
Stór vetrarsjöl, Lífstykki, Rúmteppi, Hv. léreft, Pique, Flonel.
Stálbik, Hrátjara, Skeifnajárn, Bátasaumur, Olíufatnaður, Tré-
skóstigvél, Klossar.
Alls konar matvara, Kaffi og sykur, Kartöflur.
J. P. T. Brydes verzlun
í Reykjavík
hefir skemdar ERTUR, ágætt skepnufóður, á 7 aura pundið gegn pen-
ingaborgun.
fyrstu árgangana af Kvenna-
blaði og einstök blöð úr þeim
kaupi eg fyrir upphaflegt verð,
ef þeir eru í góðu útliti.
Bríet Bjarnhéðinsdóttlr.
Ný sniö
af allskonar kvenfatnaði og
barnafatnaði eftir allra nýj-
ustu tízku fást nú hjá mér,
eins og stöðugt að undan-
fórnu, og kosta frá 40—80
aura.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
EsrsisrsisjsisisrsrsjsJsiH
Vottorð.
Eg hefi lengst æfi minnar ver-
ið rnjög veikur af sjósótt, en
hefi oft orðið að vera á sjó í
misjöfnu sjóveðri; kom mér því
til hugar, að brúka Kína-lífs-
elixír herra Vaídemars Petersens
í Friðrikshöfn, sem hafði þau
áhrif, að ég gat varla sagt. að
eg fyndi til sjósóttar, þegar eg
brúkaði þennan heilsusaœlega
bitter. Vil eg því ráðleggja
öllum, sem eru þjáðir af veiki
þossari, að brúka Kína-lífs-elixír
þennan, því hann er að minni
reynslu áreiðanlegt sjósóttar-
meðal.
Sóleyjarbakka.
Brynjolfur Einarsson.
Kína-iífs.elixírinn íæst bjá
flestum kaupmönnum á íslandi,
án nokkurrar tollhækknnar, svo
að verðið er ekki nema eins og
áður, 1 kr. 50 au. flaskan.
Til þess að vera viss um, að
fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru
kaupendur beðnir að líta vel eftir
þvi, &ð Týf' standi á tíöskuaum
í grænu lakki, og eins eftir hinu
skrásetta vörumerki á flöskn-
miðanum: Kínverji með glas í
hendi, og firmanafnið Waldemar
Petersen, Nyvej 16, Kjöbenhavn.
Til auglýsenda. Þeir sem aug-
lýsa í „Fjallk.“ verða að tiltaka það
um leið og þeir auglýsa, hve of
auglýsingin á að standa í blaðinu.
tíeri þeir það ekki, verður hún látin
standg. á þeirra kostnað þar til þeir
segja til.
Tilbúnir líkkranzar
40—80 tegundir.
Verð frá 50 aurum upp í 10 kr.
stykkið, eianig aliskonar Blóm og
Lukkuóskakort.
Wfgr Kranzarnir eru óvenju-
lega fallegir. Fæst á
Skólavörðustíg 11.
Tízka sumarið 1901.
Nú hef ég fengið sýnishorn af
allskonar fataefnum fyrir vorið 1901,
sömuleiðis af allskonar efnum í
SportSÍÖt og Regnkáp-
urðiiu vatns3ield.u
1-4:00 tegundir úr að velja.
Munið eftir að athuga þetta, áður
en „Laura fer, svo það geti komið
sem fyrst.
Virðingarfyllst
Guöm. Sigurðson
klæðskeri.
Verzlun
Yilhjálms Þorvaldssonar
á Akranesi
kaupir rjúpur hæsta verði.
F jármark Sigurjöns Árnasonar í Mið
mörk undir Eyjafjöllum er: sneitt framan
hægra; sneitt apt. vinstra og biti framan.
Verzlun
Vilhjálms Þorvaldssonar
á Akranesi
Smjör og aðrar innlendar vörur
borgaðar hæsta verði.
Birgðir af ýmsum nauðsynjavörum.
Útgefandi: Vald. Ásmundsson.
Félagsprentsmiðjan.