Fjallkonan


Fjallkonan - 29.07.1901, Blaðsíða 2

Fjallkonan - 29.07.1901, Blaðsíða 2
FJALLKONAN. gegn meirl hlut’.num í göffilum þingtíðiud- um. Pétur frá Gautlöndum kom fram sem loit- andi samkomuiaga milli flokkanna. Hann kvað hvorn flokkinn hafa gengið avo langt í þessu máli sera hægt væri til samkomulaga. Flokkur Valtýs hefði gengið avo langt I kröfum sínum, sem hann gæti með þá von fyrlr augum að stjómin gengi inn á frumvarpið. Longra treysti hann sér ekki, og það væri heldur okki von, því ekki væri líklegt að stjórnin samþykti frek- ari kröfur. Það sem aðskildi flokkana væri að eins það, að æðsta stjórn sérmálanna væri hér búsett; því hefði mótflokknrinn ekki séð sér fært að sleppa, en slakað á öllum kröfum öðrum. „Eigum við að koma til ykkar eða eigið þið að koma til okkar?" Gnðlaugur Guðmundsson sýndi fram á, að aðalatriðið i frumvarpi minna hlutans, búseta ráðgjafans og tvískifting ráðgjafans, væri óhugs- anlegt nema ríkiseiningunni væri raskað og gæti því ekki komlð til nokkurra mála að svo stöddu. Hann kvað heldur enga vissu fyrir, að nein breyting yrði á stjórnarfarinu í Dan- mörku fyrst um sinn um nokkur ár. Menn gætu ekki bygt á Iausum ummælum manna i Danmörku, sem óvíst væri að hefðu næga þekkingu á þessu raáli, og bæru heldur enga ábyrgð á þeim orðum sinum, þar sem þeir væru valdalausir. Dr. Valtýr Guðmundsson benti á, að ekki dygði að vitna til Norðmanna um búsetu ráð- gjafans, og sýndi fram á að þar hagaði ait öðru vísi til (personalunion o. s. frv.); það yrði Hafnar ráðgjafinn, sem samkvæmt grundvallar- lögunum yrði að bera ábyrgðina eftir frumv. minna hlutans ef hann skrifaði undir með konungi. Hann viidi hafa ráðgjafa búsettan hér á landi, en svona löguð búseta væri að bjóða mönnum steina fyrir brauð. Landsh, skýrði frá, að hann teldi ekki iík- legt, að frv. meira hlutans næði staðfesting, og því síður frumv. mlnna hlutans, sem kæmi meiraíbága við samningagrundvöllinn. Kvaðst þar fara eftir konungsboðskapnum og því sem íslands ráðgjafinn hefði sagt sér. Stjórnin sam- þykti að eins þá „breyttu skipun“, sem hennl þætti aðgengileg, en það væri að eins frv. dr. Valtýs frá 1897. Samkv. ráðgj. bréfi 26. mai 1899 væri og tvö atriði til fyrirstöðu: að orðunum „fyrir sitt leyti“ væri slept úr 3. gr. stjórnarskr. og að 61. gr. væri haldið óbreyttri. Enn fremur væri ákvæðin um að ráðgjaflnn megi ekki hafa annað embætti á hendi og eigi að skiija og taia íslenzka tungu óhentug, því það gæti komið fyrir, að ráðgjaflnn yrði um stundarsakir settur til að gegna öðru ráðgjafa- embæt(i, og þar sem ætlast væri til að hann væri íslendingnr, væri ákvæðið um íslenzkuna óþarft, og að eins til þess að þingið geti farið að fetta flngur út i islenzku kunnáttu hans. Fjölgun þingm. efri deiidar kvað hann stjórn- ina mundu samþykkja, ef þingmennirnir væru kosnir af þjóðinni, en ekki af sameinuðu þingi. Hann kvað ráðgjafann vilja, að frv. væri samþykt með miklum meiri hluta, ef það ætti að ná staðfesting. Dr. Valtýr benti á, að landshöfðingiun hefði áður haft þá skoðun, að meira væri i boði en tilboðið 1897. Nú væri hann búinn að fá annan skilning. Hann áleit enga hættu að samþykkja frv. meiri hlutans, og taldi víst, að ekki gæti hjá þvf farið að það öðlaðist stað- festingu. Kæmist vinstri menn að og vildn vera rífari í boðam, gætu þeir lagt annað frv. fyrir þingið. Landsh. kvaðst hafa getað fengið réttari skilning á ráðgjafabréflnu síðan á síðasta þingi. Hann hefði talað við ráðgjaíann. Núverandi ráðgjafa værl ekki ant um breytingar á stjórn- arskránni, en hann teldi sér skylt að standa við tilboð fyrirrennara sinna. Við 3. umræðn töluðu engir aðrir en séra Einar Jönsson. Hann kvaðst ekki hafa greitt atkv. með frv. 1897 og 1899, af þvi þá hefði verið horfið frá grundvellinum um innlenda æðstu stjórn í land- inu, sem áður hefði veríð bygt á, en afráðið, að halda því atriði ekki beint fram heldur halda í áttina til að bæta stjórnarfyrirkomu- Iagið smátt og smátt. Þá var eðlilegt, að þing- menn yfirleitt hugsuðu sig vandlega nm, áður en þeir breyttu frá hinni fyrrí sfcefnu. í frv. þvi sem nú liggur fyrir, kvað hann við- unanlega bætt úr mestu vandkvæðunum. Með því yrði: 1, öll samvinna milli þings og stjórn- ar eðlilegri og greiðari; 2, þiugið yrði fremur en áður knúð til þess að gæta sjálfstæðis síns gagnvart stjórninni og ráðgjafanum, og 3. þjóð- in knúð til þess að vanda kosningar til þings betur en áður. Fyrirkomulagið, í einu orði, styddi heldur að því að pólitísknr þroski yxi með þjóðinni. Réttast virtist að leggja málið nú uudir úr- skurð þjóðarinnar. Stjórnarski'árfrainvarpið saniþykt í neðri deild. Þegar stjórnarskrárfrumvarpið var samþ. í ceðri deild 25. þ. m. með 12 atkv. á móti 10, féllu atkvæði þannig og sýna þau glögglega flokkaskiftinguna. Já sögðu: Björn Kilstjánsson. Einar Jónsson. Guðl. Guðmundsson. Jóhannes Jóhannesson. Maguús Torfason. Ólafur Briem. Sigurður Sigurðsson. Skúli Thoroddsen. Stefán Stefánsson þm. Skagf. Valtýr Guðmundsson. Þórður Guðmundsson. Þórður J. Thoroddsen. Nei sögðu: Björn Bjarnarson þm. Borgf. Björn Bjarnarson þm. Dal. Hannes Hafstein. Hannos Þorsteinsson. Hermann Jónasson. Jósafat Jónatansson. Lárus H. Bjarnason. Pétur JónsBon. Stefán Síefánsson þm. Eyf. Tryggi Gunnarsson. Kaþólska trúboðið í ileykjavík. A sunnud. 21. júlí fermdi hinn kaþólski biskup Norður- landa, Johannes von Euch, 7 íslenzk börn i kaþólsku kirkjunni hér í bænum. Hann gat þess við þetta hátíðlega tækifæri, að það væri i fyrsta skifti, sem kaþólskur biskup væri á íslandi síðan Jón Ar&son dó, og iét mikið yfir viðgangi kaþólskunnar hér á landi. Um tölu kaþólska fólksins hér í bænum eru ekki nákvæmar skýrslur, en víst er því stöð- ugt að fjölga. Það hefir og sjálfsagt ekki spilt íyrir trú- boðinu, að einn kandídatinn frá prestaskóian- um hefir gerst kennari við kaþólska skólann í Landakoti. Nú hafa nunnnrnar í Landakoti (Jósefs syst- ur) boðist til að byggja spítala, er komi í stað iandsspítalans og er gert ráð fyrlr að kosti um 100,000 kr. ef þær fái að hafa á hendi stjórn spitalans og alt líknarstarfið, og þeim sé veitt til þess 70,000 kr. lán úr landssjóði (gegn veði í húsinu), sem endurborgist með 6°/0 vöxtum á 28 árum. Spítalinn á að taka 30—40 sjúklinga. — Hvort aem alþingi sinn- ir þessu tilboði eða ekki, munu hinir kaþólsku menn halda áfram spitalastoínun sinni. Lagarfljótsbrúin og svifferjan. Norski veg- fræðingurinn Barth. sem sagt hefir fyrir um byggingu Lagarfljótsbrúarinnar hefir farið það svo vel úr hendi, að hætta verður við brúar- gcrðina í sumar. Brúarstaurarnir allir Iangt- um of stuttir. Verkamennirnir dö :sku farnir heim. — Eins hefir farið með svifferjuna. Þar vantaði allan undirbúning þegar tii átti að taka. Hver fær svo skellinn ? Landssjóður auðvitað. Ráð gegn Ameríkuferðum. Bending' til alþingis. Bftir S. B. Jómson. Menn hafa í aeinni tíð stungið upp áýmsu til að stöðva eða takmarka fólksflutninga héð- an af landi til Ameríku. Og mun búist við, að alþingi lögleiði nú einhver dugandi meðul til að afstýra Ameríkuferðum, og vegna þess er það, að óg tek til máls nú. Það er öldungis eðlilegt, að öllum hugs- andi þjóðræknum mönnum standi ótti af Ame- ríkuferðunum, og þeim óhug og vonleysi, sem hór virðist eiga sér stað talsvert alment, og ekkert spursmál er um það, að það er hei- lög skylda þingsins, að gera það sem i þess valdi getur staðið, til að ráða bót á þeirri al- þjóðlegu meinsemd. Um það munu flestir vera sammála. En um hitt geta menn ef til vill fremur deilt, liver sóu hin heppilegustu ráð hér að lútandi. Eg hefi orðið var við þá skoðun, að róttast væri að iögleiða útflutningstoll, eða „nefskatt“, af útflytjendum, ef ekki að lögleiða algert út- flutningsbann, o. s. frv. Fyrir mitt leyti verð eg að játa, að eg er mótfallinn öllu þess konar, öllum kúgunarráð- um, enda mun „viljugan hvern bezt að kaupa“ til að vera hór, ef til gagns á að verða. Og svo er eg líka hræddur um að slík lagaákvæði mundu reynast í framkvæmdinni beinlínis gagnstæð tilganginum, og þess vegna verri en árangurslaus. Þau mundu líklegast verða til að giæða eldinn, til að stæla mót- stöðuna. Hvernig fara Ameríkumenn að því að sætta menn við landið og lífið þar, og til að fá fólk til að flytja inn í landið? Þeir gera það á þann hátt sem dugar, það er öllum ljóst, en þeir gera það ekki með op- inberum þvingunarlögum. Þeir gera það með stórkostlegum fjárveit- ingum af almenningsfé: til innflutninga fólks inn í landið, þar með talin lækkun fargjalda, sem er sama sem ferðastyrkur, eða verðlaun til hvers sjáifbjarga manns og konu sem koma vill. Auk þess kosta stjórnirn&r einstaka menn (og það ekki svo fáa né kauplága) og einstök biöð, til þess að fegra og fræða um kosti landsins, innan sem utanlands, og þeim fögru myndum er svo haidið stöðugt á lofti fyrir augum fólksins, með öllum nauðsynleg- um skýringum og útíistunum; jafnframt óm- ar stöðugt í eyrum fólksins fjölbreytilegt og unaðlegt bergmál um frélsi og auð og fram- farir frá hafi tii hafs í þessu mikla, frjóa og fagra landi. Þetta er gert á sannfærandi hátt alt sam- an, með meiri eða minni rökum — og svo sannfærist fólkið, og trúir því að þetta séu sannar myndir, og því eykst Ufskraftur, lífs- von og starfsfjör við þessa trú, og eínmitt í þessari trú ieggja svo allir sitt fram til þess að geta með tímanum orðið frjálsir, auðugir og farsælir menn í þessu elskulega undra-landi, og tekst mörgum að ná því takmarki, og mörg- um, sem með íslenzku trúleysi^ hefðu orðið ó- farsælir fátæklingar jafnvel í Ameríku alia sína æfi. En þótt slík trú dugi ekki til, einu sinni að nálgast takmarkið (og þau tilfellin eru líka mörg) þá samt hefir hún aukið mikið á far- sæld lífsins, eða dregið úr ófarsæld þess. Hér á landi skortir oss slíka trú. Þingið œtti að veita fé, til að láta hoða og innræta fölki hér slíka trú. Og þegar menn alment

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.