Fjallkonan - 02.12.1902, Síða 1
Remurjút einu sinDÍ
í viku. Verð árg. 4kr.
(erlendis 5 kr. eða l'/a
doll.) borgist fyrir 1.
júlí (erlendis fyrir-
fram).
tJppsögn (skrifleg)bund-
in við áramót, ógild
nema komin sé til út-
gefanda fyrir 1. októ-
ber, enda hafi kaup-
andi þá horgað blaðið.
Afgreiðsla: Þing-
holtsstræti 18.
Reykjavik 2. des. 1902
Nr. 47
Biðjið ætíð um
OTTO M0NSTEDS
danska smjörlíki,
som or alvog oins notaérjúgt og Bragö-
gott og smjör.
Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Dan
mörku, og býr til óefað bina beztu vöru og ódýr
ustu i samanburði við gæðin.
Fæst hjá kaupmönnum
XIX. árg.
Augnlœkning ókeypis 1. gg 3. þrd. i
hverjum mán. kl. 11—1 í spitalanum.
Forngripasafn op'ð mvd. og ld. il—12.
Landsbankinn opinn bvern virkan dag
ki 11—2. Bankast.jórn við kl. 12 - i.
Landsbókasafn opið hrern virkan dag
kl. 12—2 og einni stundu iengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. tii útiána.
Ndttúrugripasafn, i Doktorshúsi, opið
á ^d. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypis i Póstliússtræti 14 b
I. og 3. mánnd. hvers mán. kl. 11 — 1.
Útlendar fréttir.
Kaupmhöfn, 15. nóv.. 1902.
Landsþingið danska feldi 22.
okt. sölu hinna dönsku vestur-
heirnseyja með 32 atkvæðunl móti
32. Einn þingmaður greiddi ekki
atkvæði. Þannig tókst ha*gri
mönnum, sem flestir voru sölunni
meðmæitir, meðan þeir sátu að
völdum, að hindra eyjasöluna.
lirósa þeir nú sigri og þykjast
hafa unnið ríkínu hið raesta gagn.
En það er öllum lýðum ljóst, að
aðai ástæðan til þess að þeir voru
nú sölunni mótmæltir, var sú, að
reyna að velta vinstrimanna ráða-
neytinu frá völdum.,
Að iokinni atkvæðagreiðslunni
var baldinn ráðaneytisfundur, og
voru allir ráðherrarnir sammála
um það, að engin ástæða væri til
þess fyrir ráðaneytið að segja af
sér sakir þessarar atkvæðagreiðslu
og er það líka i fullu samræmi
við stefnu vinstri manna, því að
þeir hafa næstum alt fólksþingið
á sínu bandi og geta heidur ekki
kallast að vera í minnihluta i
landsþinginu, þai sem atkvæðin
voru jöfn.
Þar sem nú er loku fyrir skotið
að eyjarnar verði seldar í bráð,
er ekki annað fyrir hendi en
reyna að bæta úr þeim eymdar-
hag, sem eyjarskeggjar hafa í
langan aldur átt við að búa. I
þeim tilgangi hefir verið stofnað
blutafélag, sem kallar sig »Det
Vestindiske Kompagni« og eru í
því margir af' mestu auðmönnum
Dana. Ætlar það að korna á gang
gufuskipaferðum milli Danmerkur
og eyjanna og reyna að bæta at-
vinnuvegi og verzlun eyjarskeggja.
Herforingjar Búa eru nú hættir
ferðum sfnum um Evrópu og kotnn
ir.til Englands. Hafa þeir safnað
fé eigi all iitlu, en þó enganveg-
inn nógu til hjálpar Búum. Vil-
hjálmur Þýzkalandskeisari vildi
ekki veita þeim þá náð að sjá
sína dýrð, en annars var þeim
mjög vel tekið af Þjóðverjum.
Enska þingið heflr samþykt að
veita' 8 miljónir pund steriing til
hjálpar Búum og Oraníumönnum,
og ennfremur er það ákveðið, að
sjálfui utanríkisráðherrann, Cham-
berlain, fari suður til Suðurafríku
síðast í þessum mánuði, til þess
að kynna sér ástandið þar. Virð
ist vera vaknaður mikill áhugi
meðal Etiglendinga á því að bæta
úr ailti þeirri eymd og fátækt,
sem þeir hafa til leiðar komið þar
syðra.
Englendingar hafa um tima átt
í ófriði við höfðingjann Mullab í
Sómalíhtndinu í Austur-Afríku.
Het foringi Englendinga þar eystra,
Swayne að nafni, beið mikinri ósig
ur 6. okt. í viðureign sinrti við
Mullah, enda var hann liðfár og
ekki sem bezt útbúinn, en Mullah
miklu liðfleiri og betur við ófriði
búinn en hann hugði.
Eftir sögn Swayne’s, hefir Mullah
í þjónustu sinni evrópumann nokk-
urn, Karl Inger að nafni, ættaðan
frá Austurríki. Leggur hann á
ráðin, hvernig ófriðrtum skuli haga
og kenmr hersveitum hans her-
siðu Evrópumanna.
Mullah er trúmaður mikill á
sína v.sti og svarinn fjandmaður
Evróp manna og trúarbragða
þeirra. Eru líkur til, að Englend-
ingum muni ekki veita eins létt
að yfirbuga hanu og þeir hugðu.
Hafa þeir nú sent lið eigi all-lítið
á móti honum og hyggja á hefndir.
Viðsjár miklar eru með Tyrkjum
og Itölum út af tyrkneskum sjó-
ræuingjum 1 Rauðahafinu. Hafa
þeir ráðist á lönd Itala þar, og
gert mikið spell. Heimta ítalir
að Tyrkír láti slíkt ekki lengur
viðgangast og útrými sjóræning-
junum með öllu, en Tyrkir telja
það rnjög rniklum örðugleikum
bundið og fara undan í flæmingi,
eins og þeirra er siður. Þó er
enginn efi á, að þeir verða að
uppfylla kröfur Itala um það
lýkur.
Vilhjálmur Þjóðverjakeisari hefir
áformað að t.ikast ferð á hendur
til Englands. Nýjustu fréttir segja,
að harm haíi komið þangað í dag
þ. 15. Er þ;.ð látið í veðri vaka,
að það sé aðeins skemtiferð, en
þó eru flest meiri háttar blöð 1
Evrópu á þeirri skoöun, að meira
muni undir búa og að erindið
muni einkum vera það, að korna
á samningmn við Englendinga,
viðvíkjandi iöndum í Austur-Asíu.
Lögregluliðið á Spáni hefir upp-
götvað nýtt samsæri meðal hiima
svokölluðu Karlista, Margir af
belztu mönnum þeirra hafa verið
teknir fastir.
Sagt er, að fundnar séu nýjar
gullnámur í Austur-Afríku, í lönd-
um þeim, er Þjóðverjar eiga þar
og fer mikið orð af, hver ógrinni
auðæfa séu þar saman komin. En
ganga má að því vísu, að það sé
nokkuð orðum aukið.
Samningurinn milli BandarJkj-
anna og Columbiu um Panama-
skurðinn er nú fullger að mestu.
Eru likur til að innan skamms
verði á ný byrjað á að grafa skurð
inn og eigi verði hætt við það,
fyr en því er lokið.
Herskipið Carlo Alberto frá Ita-
liu fór nýlega frá Englandi til
Sidney á Astraliu.. A allri ferð
sinni fékk það við og við loft-
skeyti frá stöðinni Poldhu á Ir-
landi. Er nú talið sannað, að
hægt sé að senda þess konar
skeyti að minsta kosti 3000 mílur.
Frá Belgíu hafa þær fréttir bor-
ist, að ríkiserfinginn þar, greifinn
af Flandern hafl í hyggju að af-
sala sér ríkiserfðum í hendur syni
sínum, prins Albert.
Eldfjallið Sauta María í Mið-
Ameríku, hefir verið að gjósa und-
anfarna daga.
Þrír smábæir, Palma, San Fe-
lipe og Columbia hafa lagst í
eyði. Fjöldi manna heflr farist.
Ennfremur hefir hið nafnkunna
eldfjall, Stromboli á Ítalíu, gosið
með mesta móti undanfarna daga
og eyðilagt nokkur hús i nánd
við sig.
Þrátt fyrir allar þær slysfarir,
sem tilraunir með loftsiglingar
hafa haft í för með sér á síðustu
árum, eru menn þó ekki af baki
dottnir með þess konar tilraunir
ennþá. Tveir franskir bræður,
Lebaudy að nafni, hafa um tíma
verið að útbúa loftbát og búa
sig undir nýja loftferð, Gerðu
þeir sina fyrstu tilraun 13. þ. m.
og hepnaðist hún vel. Gátu þeir
stýrt bátnum efcir vild og siglt
honum í allar áttir, jafnvel móti
vindi. Hraðinn var hér um bil
5 danskar mílur á klukkutíman-
um.
Stórslys vildi til við flugelda-
hátíð, sem haldin var í New-York,
vegna kosningasigurs sérveidis-
manna (Demokrata) í því fylki.
Margir menn létu lífið og særðust
banvænum sárum.
Mestur hluti bæjarins East-Lon-
don í Suður-Afríku hefir brunnið
til kaldra kola. Skaðinn er met-
inn 4 miljónir króna.
Marokkobúar láta ófriðlega um
þessar tnundir og eru þeir
Evrópumenn, sem þar búa, i mik-
illi hættu staddir.
íbúarFrakklandshafafjölgað um
72,400 á síðasta ári, en undanfar-
in ár hefir þeim alt af fækkað
jafnt og þétt.
Skattheimtumenn í Kristianíu
eru orðnir uppvisir að stórkost-
legum svikum, sem þeir hafa haft
í frammi í fleiri ár. Gert er ráð
fyrir að það fé, sem þeir hafa
stungið í sinn vasa, nemi að minsta
kosti 40,000 kr.
Hryllilegt morð.
Sonur sker móður sína á háls.
Óvanalega hryllilegur glæpur var
framinn hér í Kaupmannahöfn
fyrir skömmu.
Hinn 8. þ. m. fanst lík af gam-
alli konu hér í höfninni; var það
vafið innan í teppi og þegar bet-
ur var aðgætt, kom það í ljós, að
konan hafði verið skorin á háls.
Skömmu seinna þektist líkið.
Það var saumakona, sem bjó á
Vesturbrúargötu 24 og hét hún
Ágústa Jörgensen. Bráðlega féll
grunur á son hennar, Arthur að
nafni, og var hann tekinn fastur
og hefir hann síðan meðgengið
morðið. Hinn ungi morðingi er
að eins 20 Ara gamall, en honum
hefir oft áður verið refsað fyrir
þjófnað og aðra óknytti. Hefir
hann lifað i slæmum félagsskap
og ekkert nent að vinna en látið
móður sina alla önn fyrir sér.
Aðalástæðan til þess að hann
framdi þenna hrylliiega glæp er
eftir sjálfs hans sögn sú, að hanq