Fjallkonan - 28.06.1904, Side 4
104
FJALLKONAN.
Inn verðlaunaði frægi utanliússpappi
„Y í k i n g“
vinnur sér æ meira lof og verður æ meir og meir notaður hjá öllum, sem
vilja vanda hús sin.
Pað er eðlilegt,
því hann er búinn til úr þeirn efnum, sem taka öllum öðrum pappaefn-
um fram, og enn fremur er hann svo vel íborinn, að mikil trygging er
fyrir því, að hann muni þoia von úr viti, enda hefir hann hlotið veiðlaun
fyrir það.
Ijann tr sérlega óðýr
hiutfallslega við gæðin, þar sem hann selst ekki dýrara en mjög lélegar
pappategundu eru og hafa verið seldar. Að öllu þessu samanlögðu er það
eðlilegt að salan fari stórvaxandi.
Salan síðastl. ár 2,000 rúllur.
í ár talsvert meira — Þjóðin kann að meta gæði „VíkingV'; en ein-
mitt vegna þess að þessi pappi er svo góður, ódýr og þektur, og af þvi svo
mikið selst af honum, er það freisting fyrir ýmsa að reyna að stæla hann
og tæla menn til að kaupa lakari tegundir, sem þá eru sagðar eins góðar
vörur. Menn ættu að vara sig á slíkum eftirlíkingum, og gæta þess, að að
eins sá pappi er iim ekta
sem ber verzlunarnafnið „Godthaab“ M, Th. Jensen, á hverri rúllu.
Kaupið þann pappa utan á hús yðar, þá verðið þið ekki sviknir.
Virðingarfylst
THOR JENSSEN.
Á franska spítaianum við Frakkastíg verður sjúklingum veitt
viðtaka, — að svo stöddu þó ekki nema karlmönnum.
Borgun um sólarhringinn. að meðölum meðtöldum, er fyrst um sinn:
Fyrir Frakka............1 kr. 50 a.
— aðra útlendinga . . 2 — 00 •
— íslendinga . . . . 0 — 75 •
* en jækni borgar sjúklingurinn sjálfur.
Þeir, sem vilja nota spítalann, snúi sér til undirritaðs, sem gefur
frekari upplýsingar.
Þess skal getið, að nú sem stendur stunda eingöngu karlmenn
sjúkiingana.
Frakkar hafa ætíð forgangsrétt að spítalanum.
Reykjavík, 20. Júní 1904.
C. Zimsen
frakltneskur konsúlaragent.
Orgel Harmonium
smíðuð í verksmiðju vorri — verðlaunapeningur úr silfri í Málmey 1896,
Stokkhólmi 1897 og Paris 1900— frá 108 kr. með 1 röddog frá 198 kr. með
2 röddum (122 tónum). Amerísk Harmonium, frá Estey, Mason & Ham-
lin, Packard, Carpenter, Vocalio, Needham, Chicago Cottage Organ Co.
o. fl. með lægsta verði og af beztu gerð. Einkum mælum vér með Chicago
Harmonium „Style 1“ með standhillu (Opsats), 2 röddum, 7 tónkerfum á
244 kr. með umbúðum. Þetta harmonium er óviðjafnanlegt að hljóm-
fegurð og vönduðum frágangi. Þessir hafa meðal annara fengið það hjá
oss: Prestaskólinn í Reykjavík, Hoidsveikraspítalinn, alþm. Björn Krist-
já.nsson, organleikari Brynj. Þorláksson Rvík, séra Bjarni Þorsteinsson
Sigluf., og Kj. Þorkelsson, Búðum. Hann skrifar oss m. a.:
„Eg keypti fyrir 4 árum Chicago Cottage Harmonium hjá Petersen
& Steenstrup, og hefir ekkert orðið að því á þessu tímabili. Margir hafa
dást að, hversu fagra og góða rödd það hefði. Eg hefl leikið á Harmoni-
um í 15 ár, og hlýt að játa, að eg hefl ekki séð betra orgel með þessu
verði". ^ Búðum 19. febr. 1904. Kjartan Þorkelsson.
Jónas sál. Helgason organisti komst svo að orði um Harmonium nr.
5 frá verksmiðju vorri (verð 125 kr.).
„Þessi litlu harmonium eru einkar-haganleg fyrir oss íslendinga; þau
eru mátuleg til æfinga, tiltölulega ódýr og létt í vöfum. Allir, sem nokkuð
eru kunnugir Harmonium, vita að yðar Harmonium eru góð og varanleg".
Jónas Helgason.
Vér veitum skriflega 5 ára ábyrgð á öllum vorum Harmonium. Verð-
listar með myndum og skýringum sendast ókeypis þeim, er þess óska.
Petersen & Steenstrup, Kaupmannahöfn.
Ég hefl í mörg ár þjáðst af tanga-
veiklun, svefnleysi og lystarleysi og
hefi nú á síðkastið leitað margra
lækna, en árangursiaust. Ég reyndi
þá KÍNA-LÍFS-ELIXÍR Waldemar
Petersens og varð þegar vör við tals-
verðan bata, er ég hafði neytt 2
flaskna, og vona að mér albatni er
ég held áfram með elixírið.
Reykjavík, Smiðjustíg 7, 9. Júní 1903.
Gnðný Aradóttir.
Eg sem þekki konu þessa persónu
lega, get vottað, að sögusögn hennar
er sönn. Hún er nú á góðum bata-
vegi í samanburði við heilsu hennar
áður en hún fór að brúka Kína-lífs-
elixír.
Reykjavík, 15. Júní 1903.
L. Pálsson, homöop. læknir.
eins eftir inu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Fredrikshavn. Skrifstofa og
birgðahús Nyvej 16, Köbenhavn.
Til neytanda Kínalífselixírsins
Af því að forði sá aí hinum al-
kunna og alstaðar mikilsmetna el-
ixíri mínum, er kominn var til íslands
áður en tollhækkunin gékk í garð, er
nú útseldur, þá hefir nýr forði verið
tilbúinn og verður flaskan af honum
seld á 2 kr. vegna tollhækkunarinn-
ar. Elixírið verður nú sterkara og
áhrifa meiri en það hefir verið, af
því að það inni heldur sterkara seyði
af læknandi jurtum. Þegar þessa er
gætt, er elixírið því í rauninni ekki
dýrara fyrir neytendurna en áður var.
Kína-lífs-elixírlð fæst hjá flest-
um kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera vissir um, að fá ið
ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur
beðnir að líta vel eftir þvi, að
standi á flöskunni í grænu lakki, og
Dánarbú
Daniels Símonarsonar
sölasmiðs í Þingholtsstræti 9 selur
hnakka, söðla og ólar með góðu
verði.
#
18
upp á hann liðna árið, fyrír sitt leyti eins og þegar hann þitldí
upp fyrir honum meðalareikninginn eftir ieguna forðum.
„Hún er ekki amaleg æfin þín, drengur minn 1“ sagði Te-
teról oft við son sinn. „Allir skapaðir hlutir eru lagðir upp í
hendurnar á þér. Hvað ætli hefði orðið úr þér, ef eg hefði ekki
unnið fyrir þér?“ Hann tók stundum litlu og hvítu hendina á
drengnum og lagði hana við hliðina á ioðnu og kræklóttu lopp-
unni á sjálfum sér og sagði um leið:
„Hérna er nú höndin, sem leikur sér, og þarna er höndin,
sem vinnur. — Hérna er höndin, sem þiggur, og þarna er höndin,
sem miðlar. — Mundu eftir, að heimta ekki ofmikið, lagsmaður
góður! Eg ætla ekki að gera mig félausan þín vegna, þó mér
þyki vænt um þig“.
Stundum horfði hann langa hrið á drenginn, ánægður og
ástfangínn á svipinn og mælti loks:
„Er það nú áreiðanlega víst, að eg eigi hann með öilum
rétti, strákinn þann arna! “
Einu sinni skrifaði Lionel föður sínum úr skólanum og mæl-
ist til að mega læra að ríða.
Karlinn varð Önugur við og svaraði: „Neit Kunningi! —
Berðu þig að labba það“. En skömmu seinna sá hann sig um
hönd og veitti drengnum bæn sina. Það mátti segja, að Líonel
væri eina munaðarvaran, sem Teteról hafði með höndum. Hann
sparaði ekkert við drenginn og lét alt eftir honum. Þó að hann
að hugsunarhætti væri jafnan líkur ráðnum og rosknum bónda,
var honum það samt hið mesta ánægjuefni, að eiga þenna
19
nettd og prúðmanniega dreng, setti í hans augum stóð ekki að
baki konungbornum mönnUm.
Teteról gaf því syni sínum viðurnefni og tignarnafn og kail
aði hann „prinsinn frá Wales“.
Prinsinum frá Wales svipaði allmikið til föður sins í mörg*
um greinum; hann var greindur, kjarkmikill og metnaðargjarn.
Aftur á móti hafði hann tekið að erfðum frá móður sinni göfug-
lyndi og drengskap. Þjónar Teteróls sáu ekki fyrirhonum sóljna,
svo vænt þótti þeim um hann. Ef þeir þurftu að biðja karlinn
bónar, þá var svo sem sjálfsagt, að láta Líonel fara á fjörurnar.
Það kom reyndar fyrir, að kariinn rauk upp eins og eysa’og
sagði: „Já — já! Þú ert þá skýjaglópur, drengur minn, eins og hún
móðir þín". — En venjulega kom drengurinn sínu máli fram.
Skýjaglópa kallaði Teteról alla þá menn, sem ekki voru hverja
stund bundnir við urahugsun eigin hagsmuna. Og hann las út af
þessu marga þunga hirtingarræðu yfir höfðinu á Líonel. En alt
sat við sama steininn. Prinsinn frá Wales hélt áfram að vera
skýjaglópur eftir sem áður.
Teteról hafði jafnan litið svo á, að Parísarborg væri einungis
áfangastaður á æflleið hans, markaður, sem hann ætti að staldra
lítið eítt við á, rétt á meðan hann væri að verða loðinn um
lófana.
Þrautin sú var nú unnin, og þá vildi hann líka fara að hugsa
um að leggja upp aftur. Freistingarnar, glaumurinn og sollurinn
í höfuðborginni höfðu engan bilbug unnið á honum; hann fór heill
á húfi úr þeim hreinsunarelfii, Götur borgarinnar voru i augun*