Fjallkonan


Fjallkonan - 27.09.1904, Side 3

Fjallkonan - 27.09.1904, Side 3
FJALLRONAN. 151 X. Siðspekin nýja. 1. Guyan. 2. Nietzsche. 4. Tolstoy. Sakir rúmleysis þætti honum vænt urn, að þeir, er helzt hefðu hugsað sér að hlusta á fyrirlestra þessa, gefi sig fram við hann fyrirfram, bréflega eða munnlega, en um stað og stundu auglýsist síðar. Skagafirði, 9. sept. 1904. .... Þetta sumar heflr verið eitt hið bezta hvað tíð og heyskap áhrærir. Orasvöxtur í betra lagi, nýting aligóð; oft hafa verið litlir þurkar, en úrfelli iítið, þar til síðastliðna viku rigndi mikið, en nú kominn þurkur. Harðlendi alt í bezta lagi sprottið. Garðávextir allir góðir, Fiskafli mjög rýr í sumar inn fjarðar, en góður á Skaga og við Drang- ey; nú er nóg síld á Höfðaströnd. Utlit er fyrir, að fó verði vænt í haust, en ekki er sagt, að kaupmenn muni gefa betur fyrir það en í fyrra (18 aura hæðsta verð á pundi), en gærur er sagt, að hækki í verði. í vikunni sem leið fórst bátur með 8 mönnum á frá Grafar- ósi; formaður var Þórður Baldvins- son. Sigidi það sig um norður hjá Málmey; 3 mönnum varð bjargað, en 5 druknuðu, þar af 3 unglings- mgnn, mjög mannvæniegir. Snemma í ágúst varð hér vart við jarðskjálfta og fanst mönnum hreyf- ingin koma frá austri. Seint í vor varð sá atburður, að Höfðavatn sprengdi sundur möl þá innan við Þórðarhöfða, er Bæjarmöl er kölluð og aðgreinir vatnið frá sjón- um. Það hafði verið farið að byrja á að gera lítinn farveg í malarkamb- inn til þess að grynna vatnið, því það var mjög mikið hærra en sjór- inn og flæddi yfir engin á Höfða og Bæ; en úr þessum litla farvegi, sem að grafinn var, er nú orðinn 60 faðma breiður ós; er hann vel skip- gengur með flóði. Mun Höfðavatn sjálfsögð vetrarhöfn fyrir fiskiskip, þegar þau komast upp hér á Skaga- firði. Yatnið hefir grynst um fullar 3 álnir og aukist stóikostlega land við Höfðaengið, sem sjálfsagt verður grasgefið engi með tímanum; en hjá Bæ hefir komið upp stór hólmi, sem að líkindum verður varphólmi, þegar árin líða. Orustur og mannföll fyr og nú. Eins og kunnugt er, eiga Japanar og Rússar nú í miklum og mann- skæðum ófriði; orustan við L’aoyang er talin ein af mannskæðustu orust- um á síðari tímum. Yæri þá eigi ófróðlegt, að kynna sór orustur og mannföll fyrri tíma. í Napoleons-styrjöldunum eru or- usturnar við Moskva og Leipzig nafnkendastar. 1 orustunni við Moskva (7. sept. 1812), þá er Frakkar og Rússar börðust, höfðu hvorir um sig 130,000 manns á að skipa. Af Frökk- um féllu og særðust um 30,000, en af Rússum um 50,000. í fólkorust- unni við Leipzig, er stóð dagana 16. til 19. október 1813, hafði Napoleon á að skipa um 190,000 manna, en bandamenn höfðu 300,000 manna. í ítalska ófriðnum 1859, þá er Frakkar og ítalir áttu í ófriði við Austurríkismenn, stóð aðalorustan við Solferino (24. júní). Hvorir um sig höfðu á að skipa um 140,000 manns. Af Austurríkismönnum féllu og særðust um 13,000, en 9000 voru teknir til fanga; af Frökkum féllu og særðust um 12,000, en 600 voru teknir til fanga. ítalir mistu 5,300 manns, en 1200 voiu teknir til fanga. í styrjöldinni 1866, þá er Prússar og Austurríkismenn áttu í ófriði, var aðalorustan við Sadowa (Königgratz) hinn 3. júií. Prússar höfðu um 220,000 manns, en Austurríkismenn 200,000. Af Prússum féllu og særð- ust 9000. Austurríkismenn mistu 42,000; af þeim féllu og særðust 18,000. Þá er Frakkar og Þjóðverjar áttu í ófriði 1870 — 71, voru aðalorust- urnar kring um Metz (einkum við Pange, Vionville og Gravelotte) dag- ana 14., 16. og 18. ágúst. Af Þjóð- verjum féllu og særðust í þessum þrem orustum um 40,000 manna (í orustunni við Gmvelotte mistu þeir 21,000 manns). Líkt fór hjáFrökk- um. í orustunni við Sedan höfðu Frakkar 110,000 manns, en Þjóð- verjar 200,000. Af Þjóðverjum féilu og særðust um 8000, en manntjón Frakka í þessari orustu er eigi fuil- kunnugt. En þá er Parísarborg gafst upp 2. september, féllu 14,000 sjúk- ir og særðir Frakkar í hendur Þjóð- verja. Auk þess tóku þeir (Þjóðv.) 83,000 manDS til fanga. í stríðinu milii Rússa og Tyrkja 1877—78 var aðalorustan í héraðinu kring um Plevna; hafði Osmar Pashja náð þar öruggu víði. Gerðu Rússar þar tíðum snarpa aðsókn, en urðu frá að hverfa; snarpasta aðsóknin var ll. sept. 1877. Af Rússum féllu þá og særðust um 13,000 manns. Ritsíminn íyrirhugaði á að leggjast á land á Austfjörðum, þaðan iandveg norðan- lands hingað til Reykjavíkur. Verkfræðingur frá ritsímafélaginu norræna er kominn 'hingað til lands; á hann að gera hér einhverjar und- irbúningsrannsóknir. Óráðið er, hvar á land á Aust- fjörðum skuli leggja símann; til tals hafði komið að leggja hann á land í Reyðarfirði. Ekki iízt verkfræðingn- um það, því miklir straumar eru í fjarðarmynninu; sjávarbotn er þar og mjög óslóttur. Að líkindum verður ritsíminn lagður á land í Seyðisfirði, enda eru þar engir slíkir gallar. — Eítir því er nú sýnist, verður rit- síminn kominn hingað til lands og um land alt fyrir haustið 1906. Um Keflavíkur-læknisliérað sækja: Halldór Gunnlaugsson cand. med. og læknarnir Guðm. Guðmunds- son, Ingólfur Gíslason, Ólafu Finsen, Sigurjón Jónsson, Skúli Árnason, Þorbjörn Þórðarson og Þorgr. Þórð- arson. sem allra jyrst anglýs- ingarnar á Cangavegi 19; það margborgar sig, þö gatan sé blaut. Rjúpan. Eftir J e 1 j a g r í m. (smá-saga). Það var grimdar-gaddur og þykt snjólag lá yfir jörðunni. Egvareinn á ferð og átti yfir heiði að sækja. Færðin varslæm, því að fyrirfarandi daga hafði kingt niður mikluaflaus- um snjó. Eg lagði snemma upp á heiðina, en var skamt kominn, þegar tók að hvessa. Stormurinn jókst meir og meir og snjórinn þyrlaðist hátt í loft. Eg átti ílt með að draga andann og augnanna gat eg lítið notið. Skömmu áður en hríðin datt á, sá eg ekki all-langt fram undan mér stór- an stein. Mér reið nú lífið á, að ná þangað, því þar vissi eg að vera mundi dálítið skjól; óg tók því stefn- una þangað svo rétt sem eg gat og varð svo heppinn að hitta steininn. Mór var ómögulegt að haida lengra áfiam. Eg reif snjóinn frá steininum eins vel og mér var auðið og settist svo á tösku mína í skjóli við hann; eg hallaði höfði mínu upp að stein- inum og var í þungum hugsunum um hagi mína. — Brátt skefldi yfir mig, en fremur þótti mér dauft og einmanalegt í þessu hýbýli mínu, en þó leið ég þar enga neyð af kulda og matarforða hafði eg nægan í mal mínum. Það var liðið á dag, þegar eg heyrði, að veðrið mundi vera farið að batna; eg bjó þá til gat upp með klettin- um með staf mínum til þess eg gæti sóð út,. Lágur snjórenningur var yfir alt, og bakkinn í landnorðrinu var mikið farinn að eyðast. 60 „Nei, mikil ósköp, hei", svaraði hr. Saiígneux. Svo laut hahtl að eyranu á honum og bætti þessu við: „Eg spyr að því svona rétt okkar á milli, hr. Teteról — hefir ráðsmaðurinn orðið yður mjög kostnaðarsamur ?“ Hr. Teteról hrökk við. „Það er ekkert fallegt, sem þór ætlið mér“, svaraði hann með þykkjusvip, eins og gengið væri nærri sæmd hans. „Grunið þór mig um að hafa mútað hr. Grépin. Nei, þór verðið að afsaka, eg hefi aldrei mútað neinum. „Eitt þykist eg viss um, að yður hefir enginn nokkru sinni getað mútað. En við skulum ekki iáta þetta verða okkur að á- greiningsefni; má eg taka í höndina á yður — eg aísegi yður ekki að iátayður fá malargryfjuna, en þér verðið að lofa mór að hugsa mig um. Eg skal gera yður aðvart bráðuin; og verið þér nú sælir, nágranni minn góður“. Enn gerði hr. Teteról sér í hugarlund að hann mætti eiga víst að fá sínu framgengt og ná í malargryfjuDa. En því miður leið hálft ár fyrir honum milli vonar og ótta. Alt sumarið og alt haustið hafði hr. Saligneux fyrirtaks gaman af að kvelja hann. Teteról skrifaði honum bréf í hverri viku, og stundum gáfu svör- in, sem hann fékk, dágóðar vonir, stundum mjög litlar. Einu sinni var málið sama sem útkljáð; ekkert var eftir nema undirskrift- irnar. En daginn eftir voru komin veðrabrigði, baróninn taldi þá á því öll tormerki og gat ekki fengið af sér að selja malar- gryfjuna forfeðra sinna. Alt þetta fékk beinlínis mikið á hr. Tet- eróij |>essi malargryfja varð að rótgrónu áhyggjuefni fyrir honum. s? „l'arhá er hjákátiegt, höfra baróh I Ég leit áðan af hend- ingu á mölina ur gryfjunni. Hún er moldarblandin og verður ekki almennilega notuð, sízt í kalk“. „Satt mun það vera. En eg nota hana í göturnar í garðin- um mhium; til þess er hún ágæt“. „Jú — jú! En hún er litarljót, ólukkans mölin", mælti Tet- eról. „Eg hefi betri vöru á boðstólum og hún verður ekki dýr, því verðinu rnegið þér ráða sjálfur". „Mikill dæmalaus gæðamaður eruð þér, herra Teteról!“, mælti baróninn. Það er því líkast sem þór hugsið ekki um annað en að taka af mér skellina og hlífa mór við útgjöldum þeim, sem brú- arsmíðinu fylgja. En eg get valla lagt það á samvizkuna, að selja yður malargryfjuna, sem ekki fæst almennileg moldarlaus mölúr“. „Jú! Eg er ekkeit að hugsa um mölina úr gryfjunni. Ef gryfjan væri hii*u megin við ána, þá væri þetta annað mál. En nú er hún mín megin og . . . .“ „Nú, já — já. Nú fer eg að skilja, hvar fiskur liggur undir steini“. „Mér kom þetta nú ekki sjálfum fyrst í hug“, mælti Tete- ról og hneigðí sig. „Það var einhvern tíma hérna á dögunUm, að eg átti tal við blessaðan karlinn, hann Crópin, ráðsmanninn yðar; þá stakk hann upp á við mig og meira að segja lofaðimér hátíðlega, að . . . .“ „Eg ætla að biðja yður, að minnast þess“, greip baróninn fram í, „að þessi „blessaði maður“, hann Crépin, er farinn úr Vistinni hjá mér, að hann talar eins og hver vill heyra og að hann

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.