Fjallkonan

Issue

Fjallkonan - 20.07.1906, Page 3

Fjallkonan - 20.07.1906, Page 3
FJALLKONAN. 135 Koma keuuaranna. Kennara-hópurinn, sem væntanleg- ur var, kom hingað aðfaranótt þ. 15. þ. mán. Ekki er hann jafn-fjölmennur eins og við var búist, ekki nema 26 manns alls. Þar af eru 12 danskir og 1 sænsk kona. Hitt Norðmenn. Meiri hlutinn, undir 20, er konur, 1 hópnum er frk. Halldóra Bjarna- dóttir, sem fyrir nokkurum árum var kennari við barnaskólann hér, en hefir haft kennarastöðu í Noregi síð- an hún fluttist héðan. Foringi farar- innar heitir Rustöen, frá Heggedal nálægt Ivristjaníu. Hann er banka- gjaldkeri jafnframt því, sem hann er kennari. Einn prestur er í förinni Anders Hovden frá Krydsherred í Noregi, rithöfundur og skáld, ritar á nýnorsku, og einn ritstjóri, Trond- kvale, frá Elverum í Austurdölum. Holmesen heitir einn, og er yfirkenn- ari við barnaskóla í Kristjaníu, og enn einn Rolleif Lien, sveitakennari frá Lundi á Þelamörk. Hópnum heíir öllum verið komið fyrir til gistingar hér í bænum, þá daga, sem hann stendur við. Glímu- félagið hefir glímt fyrir gestina og söngmenn sungið fyrir þá, og þótti þeim að hvorutveggju bezta skemtun. Þ. 18. þ. m. lagði hópurinn á stað með Keykjavíkinni upp í Borganes. Þaðan var ráðgert að fara á mótor- bát upp Hvítá að Hvítarvöllum. En hestar voru sendir héðan á þriðjudag- inn, og frá Hvítarvöllum ætluðu þeir upp að Reykholti, Gilsbakka, Surts helli, Kalmannstungu, og þaðan Kalda- dal á Þingvöll. Helzt var ráðgert að fara þaðan austur að Geysi og Gull- fossi. Yerði úr þeirri ferð, koma þeir ekki hingað aftur fyr en um miðja næstu viku. Samsæti mun vera í ráði, að þeim verði haldið, áður en þeir leggja á stað héðan, með Tryggva kongi, ann- an sunnudag. Líflátslieguingin. . Kmh. 9. júlí ’06. Duman rússneska hefir samþykt afnám líflátshegningar. Helzti jafnaðarmaður á Frakk- landi, Jaures, bar um daginn upp frumvarp um sama efni á alþingi Frakka. Er taiið, að það hafi tals- vert fylgi. Hér í Danmörku hefir sá, sem um langan aldur hefir gegnt .böðulsem- bættinu, verið „settur af“ með eftir- launum. Alberti vill hafa nýja og yngri krafta. Embættinu hefir ver- ið slegið upp'og eru þegar komnar yfir 60 umsóknir um það. Búist er við, að ef til vill verði böðuls þörf þegar dómar falla í nauðgunarmál- unum. Auk þess á böðullinn að verða flengingarmeistari eftir fleng- ingarlögunum alræmdu. Hér verður í þessu efni lítið vart hinnar nýrri menningar. Með Tryggra kongi komu á sunnudagsnóttina 68 far- þegar, þar á meðal, auk bæjarfógeta og Norðurlanda-kennaranna, cand. jur. Einar Arnórsson og Magnús Sig- urðsson, frökenarnar Sigríður Björns- dóttir og Helga Thorsteinsson, úr- smiður Guðjón Sigurðsson, gullsmiður Páll Þorkelsson, 17 verkamenn til ritsímans og 12 útlendir ferðamenn, þýzkir og enskir. Sigfús Einarsson tónskáld og kona hans (áður fröken Hellemann) eru nýkomin hingað til bæj- arins. Leiðrétting. Einar Gunnarsson cand, phil. segir í Handbók fyrir hyern mann, sem hann nú heflr gefið út í þremur útgáfum, að pásk- ar verði 23. apríl 1913. En það er ekki svo. Það ár er sunnudagsbókstafur E. og gyllinital 14. Páskar verða því 23. marz það ár (góupáskar), eins og sjá má í grein, sem eg skrifaði í Fjallkonuna 1904 bls. 148. Tvær prentvillur hafa slæðst i þá grein Fjallkon. Pálkadagur 24. marz 1904, en á að vera 23. marz, og orðin „Til þess að sumarpáskar verði útheimtist því, að tungl sé fult 20. marz eða næsta dag þar á undan“, á að vera næstu daga þar á undan, og leiðréttist það því hér. Gaulverjahæ 4. júlí 1906. Jón Pálsson. Á síðastliðnum vetri vildi okkur það óhapp til, að svo að segja allar okkar eigur, ætar og óætar, með húsum (auk lifandi fénaðar) brunnu til ösku á einni nóttu, svo að við stóðum þar húsvilt og hálfnakin uppi með 16 manns; þar á meðal 4 ungbörn og 3 gamalmenni. Hefð- um við þá verið illa komin, hefðu ekki okkar góðu sveitungar, jafnt konur sem karlar, sýnt þá framúrskarandi hjálpsemi að gefa okkur gjafir í fatnaði, peningum og fleira, og þess utan buðust til að taka börnin, enda þó við gætum ekki notað þau góðu tilboð, því börnin fengust ekki til að skilja við okkur. Af því leiddi, að flest af fólkinu, 12 að tölu, varð að hrúgast á einn bæ, Bakka, og naut þar fæðis og allra þægmda í hálfan mánuð, og sumt lengur, hjá því góða fólki, sem þar býr.’ Einnig hafa fornvinir okkar og ættmenn lengra hurtu tekið stórkostlegan þátt í óhöppum vorum með því að skjóta saman og senda okkur drjúga peninga- upphæð. Ollum þessum velgjörðavinum vorum vottum við okkar, innilegasta þakk- læti í nafni okkar foreldra okkar og og systkina, og biðjum þann, er ekki lætur einn vatnsdrykk ólaunaðan, af kær- leika útilátinn, að borga þessu góða fólki fyrir okkur, þegar því mest á liggur. Feigsdal í júní, 1906. Jón Jónsson. Valdís Jónsdóttir. LaulLiir teKex margar tegundir, dÖÖllir, gr^filijur, ost- ar, r>3TÍs-ULr og margt fleira er uýkomið í verslun Tapast hefir brúnn hestur, vakur frá Götum í Mýrdal, mark: heilrifað hægra, aljárnaður. Hver, sem kynni að verða var við hejitinn, er beðinn að koma hon- um til Jóhanns 1 Ossabæ i Landeyjum eða Heiðmundar Hjaltasonar á Götum. ekta Kina-Lifs-Elixír sem hefir einkennismiða þann, sém hér er fyrir ofan og innsiglið vrP í grænu lakki á flöskustútnum. Fæst hvarvetna á 2 kr. flaskan. Biðjið um sýnishorn af okkar prýðisfögru nýjungum, stórmikið úr að velja- Sérstakt fyrirtak: Silki-áamast fyrir ísl. húning, svart, hvítt og með fleiri lit- um frá 2,15 fyrir meterinn. Vér seljum að eins sterkar silkitegundir, sem vér ábyrgjumst heint til ein- stakra manna, og sendum vörurnar tollfrítt og ílutningsgjaidslaust til heimilanna. Vörur vorar eru til sýnir hverjum sem viU hjájfrú Ingibjörgu Johnsen, Lækj-| argötu 4 í Beykjavík. Sehweizer & Co. Luzern Y 4 (Sehweiz). Silkivarnjngs-útflytjendur. Kgl. hirðsalar. er bezt aö ls.au.pa lija líili JéBiSJlÍ Hiaug’aveg’ 24. sem verið er að taka upp hjá Jónatan í>orsteinssyni. SAMKOMUHÍSIÐ BETEL við Ingólfsstræti og Spítalastig. Samkomur verða haldnar framvegis eins og hér segir: Sunnudaga: Kl. 2 e. h. Sunnudagaskóli. Kl. 6‘/2 e.: h. Fyrirlestur. Miðvikudaga Kl. 8 e. h. Biblíusamtal. Laugardaya: KI. 11 f. h. Bænasamkoma og bibliu- iestur. Kirkjusálmasöngsbókin verður viðhöfð. Allir velkomnir á samkomurnar. Vinsamlegast D. Östlund. Chocolade lang ódýrast í verzlun M. Matthíassoiiar. lorseii loiðurlanda-sambands 1.1. Idvontisia, P A. Hansen frá Dannmörku gistir Reykjavík nokkra daga eftir þann 20. júlí. Hann mun tala á samkomnm í „Betel" á laugardaginn kemur kl. 11. f. h. og á sunnudag- inn kl. ö^/a e, h. Allir eru vel- komnir. Aðgangur ókeypis. 33. Ostlund.- Ritstjóri Einae Hjöeleii’sson. Fólagsprentsmið.jan — 1906. 185 skeggið, og á forkinn vantaði tvær greinarnar. Dálítið fjær var Júppíter; hann var búinn að missa höfuðið. Regnvatn hafði sezt í holu á strjúpannm á honum, og spörfuglarnir höfðu kunnað sig svo illa að nota holuna fyrir baðker. Innan um nokkura runna var ofurlítill grískur smalaguð; haun var hnakkakertur og hafði um laugan aldur haldið hjóðpípu upp að munninum á sér. Nú var ekkert orðið eftir af hljóðpípunni né höndunum. Og samt var enn nokkuð eftir af einkennum þessa garðs, svo úr sér genginn og loðinn sem hann var orðinn. Menn fnndu, að um þessi göng höfðu framiiðnar kynslóðir farið, kynslóðir, sem þrammað höfðu þar metnaðarríkar á jarðarblettum, sem þær áttu sjálfar, og vitað vel af því, að mikið væri í sig varið. Um þetta var Líónel að hugsa, og jafnframt leit hann kring um sig í þeirri von að fá að sjá frk. Saligneux bregða fyrir. Hann leitaði hennar með ákefð, en gat ekki komið auga á hana. Hann grunaði það ekki, að hún hafði falið sig inn í einum laufskálanum og horfði á hann þaðan. Hver hugsunin rak aðra hjá henni, hugs- anir, sem voru hver annari gagustæðar; annað veifið stokkroðnaði hún, hina stundina brann eldur úr augum hennar. Stundum lang- aði hana til að fara hlægja, og stundum lá henni við að gráta af reiði. Gremjan fekk vald yfir öllum öðrum tilfinningum hennar. Hún var stórreið við forlögin; henni fanst eins og þau hefðu sig að leiksoppi, og vörpuðu henni hvað eftir annað út í ógöngur, sem hún varð sjálf að komast úr. Við og við sleit hún af trjánnm blöð og greinar, vatt þetta og sneri milli handa sér, þangað til það var orðið að smáögnum. Reiðin sefaðist ofurlítið við þetta;

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.