Fjallkonan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fjallkonan - 07.09.1906, Qupperneq 3

Fjallkonan - 07.09.1906, Qupperneq 3
FJALLKONAN. 163 Loftskeyta-fréttir. Landskjálftar. 4. sept. Ofurlítill landskjálfti í Abyssiníu. Hiklir landakjálftar á miðvikudags- kvöldið var í Tacua og Arica íKílí. Felmtur meiri en orðum verði að kom- ið. Lýðurinn lagðist til svefns úti undir beru lofti. Landskjálfta heíir orðið vart í Noregi norðanverðum. Frá Bússum. 4. sept Jarðarför hins myrta landstjóra í Varsjá fór fram í gær. Búðum var lokað og tekið fyrir umferð á atræt- um. Hersveitir skipuðu sér í raðir á strætunum og lögreglulið og Kó- sakkar gengu á uadan líkfylgdinni með fingurna á byssugikkjunum. Um kvöldið rannsökuðu hersveitir og lög- reglulið alla borgina, leituðu meðal annars í sporvögnum og öðrum vögn- um. Menn, sem fóru um strætin, voru teknir fastir hundruðum saman. Af loftskeytum, aem komu hingað fyrir síðustu helgi má ráða, að til- raun hafi verið gerð af byltingamönn- til þess[að myrða Stolypin, forsætis- ráðherra Kússa, en það mistekist, og að dóttir hans hafi orðið fyrir voðalegum áverka, svo að hún muni missa báða fæturna. Nú segja loft- skeyti, að keisari ætti að láta hann hafast við í höll sinni í vetur. Kirkj ufélag' Testur-íslending'a. Það hélt. 22. ársþing sitt að Mountain í Norður-Dakota 21.—26. júní. Þá voru í félaginu 38 söfuuðir og 10 prestar. Bignir safnaðanna voru sam- tals virtar á 102,950 dollara, en skuld- ir alls um 19,290 dollara. Svo skuld- lausar eignir voru um 83,660 doll- ara, sem er 21,583 dollurum meira en fyrir einu ári. Alls voru taldir í söfnuðum félags • ins á Kirkjuþinginu 6,970 manns. Ótalin var þó einn söfnuður, sem ekki hafði sent neina skýrslu þetta ár. Sá söfnuður er fráleitt stór, svo segja má, að í söfnuðum kirkjufélagsins sé um 7000 manns. Sjálfsagt er lítið í lagt að gera ráð fyrir, að í Vesturheimi (Canada og Bandaríkjum) séu 30 þús. íslending- ar. Samkvæmt því verður þá ekki 4. hver íslendingur vestra í kirkju- félaginu. Að tiltölu við fjölda Vest- ur-íslendinga er kirkjufélagið óneitan- lega fáliðað. Því eftirtektaverðara er það, hve miklar eru eignir safnaðanna, meira en 11 dollarar á hvern safnaðarmann, gamlan og ungan. Samt hafa ýmsir söfnuðir enn ekki komið sér upp kirkj- um. Það leynir sér ekki, að þeir til- tölulega fáu tíslendingar vestra, sem sinna vilja lúterskum félagskrist- indómi, sýna fyrirtaksmikla atorku í þessum félagsskap sínum. Það sjá menn eigi að eins á eignunum, heldur og ýmis konar framkvæmdarsemi ann- ari. En ekki hefir þeim enn tekist að fá fleiri með sér en þetta. Það virð- ist stafa af því öðruhvoru, að meiri hluti Vestur-íslendinga sé allfráhverf- ur lúterskunni, eða að kirkjufélagið sé ekki fulltrúi lúterskrar kristni á þann hátt, sem þorra manna geðjast að. Stafsetning'arorðbók. Hin ágæta Stafsetningarorðbók Bjarnar ritstjóra Jónssonar er nú kom- in út í annari útgáfu. Fyrri útgáfan var prentuð árið 1900, og þá gerði einn af helztu mentamönnum þjóðar vorrar ofsafengna tilraun til þess að spilla fyrir bókinni. Auðsætt er, að þær trlraunir hafa ekki borið neinn verulegan árangur. Fyrir mörgum missirum var 1. útgáfa sama sem uppseld. Þjóðin hefir verið fljót að að átta sig á því, að Stafsetningar- orðbókin sé fyrirtaks-hentugt kver. Og það er hún líka, ómissandi flest- um íslendingum, sem nokkuð skrifa, og vilja vanda fráganginn á ritmáli sínu. í þessari nýju útgáfu hefir verið bætt við nokkrum hundruðum orða, en nokkur úr feld í þeirra stað, þau er síður virtist þörf að halda. Nýj- an formála hefir og höf. samið, og ættu menn að kynna sér hann vandlega. í formálanum er meðal annars fjöldi af orðum, sem mjög algengt er að rita rangt. Þeir, sem segja til ung- lingum, ættu fyrir hvern mun að láta þá kynna sér þau. Stafsetningarorðbókin stuðlar vafa- laust mjög mikið að því, að menn farið að rita móðurmál vort réttar en algengt hefir verið. Sú vanræksla, sem komið hefir fram í því efni, er miklu meiri en gerist með nokkurri annari mentaþjóð. Sennilega á staf- setningar-glundroðinn nókkurn þátt í því, hve mikið kemur fyrir af staf- setningarvillum hjá mönnum, sem annars eru vel ritfærir, En meira veldur samt íhugunarleysi, þegar t.d. skólagengnir og gáfaðír menn rita aðra eins vitleysu eins og kostning- ar, sem er altítt, og annað af svip- uðu tægi. Stafsetningarorðbókin er alls og alls ekki nema 80 bls. En svo hag- anlega er hún samin og svo vel er með rúmið farið, að enginn íslend- ingur, sem hagnýtir sér bókina vand- lega.ætti að þurfa komast í nein vand- ræði, þó að stafsetningar-þekkingu hans sé nokkuð ábótavant. Þetta litla kver verndar væntanlega tungu vora frá mörgum og meinlegum lýt- um. Tvisvar í viku kemur Fjallkonan út héðan af til nýárs — að þrem vikum undanskild- um. í næstu viku tvisvar. Teitt prestakall. Möðruv allap restalcall í Eyjafjarðarpró- fastsdœmi var 18. ágúst veitt af ráðherran- um séra Jóni Þorsteinssyni á Skeggja- stöðum. Jarðarfarir Frá þjóðkirkjunni Ágúst 10. Ólöf Þorkelsd., kona, Skólavörðustíg. 13. Sigríður Sigvaldadóttir, stúlka, Holdsveikraspítala. 14. Sigurveig Magnúsdóttir, ekkja, Grjótagötu 5. 18. Guðm, Sigurðsson, Holds- veikraspítala. Frá fríkirkjunni 10. Anna Jóhanna Bogad., barn, Bergstaðastræti 45. 15. Björgvin Bergsson, barn, Hafnarfirði. 17. Þórður Ólafsson, bóndi Njáls* götu 41. 21. Július Arason, stýrimaður, Lindargötu 6. Reykjavlk selur allskonar Yefnaðarvöru ♦ mjög góða og ódýra: Barnahúfur, Dagtreyjutau, Enskt vaðmál, BTonell, Flauel, Kvennslifs, Kjólatau, Klæði, Léreft, Lifstykki, Millipils, Peysur stórar og smáar, Nærfatnað, Rekkjnvoðir, Silki í svuntur, Sirz, Sængurdúk, Sjöl stór og smá, Svuntutau, Tvinna. Karlmannaföt, Karlmannafatatau, Alt efni til fata. Greiður, Höfuðkamba, Harmonikur, Skóflur o. m. fl. Ennfremur skinn og leður handa skósmiðum og söðlasmiðum, og alt sem að þeim iðnum lýtur. — Allir kaupa! Smjör ágætt 98 aura — gott 89 — Margarine gott 34 — — fínt 45 — Hrein svínafeiti 40 — Hvergi jafn-ódýrt og hvergi jafn-gott eins og í Smjörhúsinu Grettisgötu 1, við Laugaveg. Rauða húsið. Sparnaðarmiðar með öllum vörum. Húsnæði Consum-chocolade til leigu í „Vinaminni11 frá 1. okt. og brent og malað kaffi Menn snúi sér til bezt í verzlun Haralds Nielssonar, Lindargötu 32. H. P. Duus. Lampar Rokkar og Ullarkambar. mikið úrval í verzlun TTÍstgarn hvítt og misl. H. P. Duus. í verzlun U. P. DllUS. 197 miljónum sem hann er að goita af. Farið þér heim og segið hon- um að þessa höll eigi hann, en að eg sé ekki til sölu og mig skulið þér aldrei eignast.“ Lionel var öldungis utan við sig. Jafnskjótt sem hann gat komið nokkru orði upp æpti hann: „Eg vinn þess dýran eið, fröken, að eg hafði ekki minstu hugmynd . . .“ Meira gat hann ekki sagt; blygðun, ofstopi og örvænting tóku fyrir kverkarnar á honum. Nokkur augnablik stóð hann grafkyr og virti ungfrúna fyrir sér, eins og hann ætlaði að fara með hana alla í augum sér, þar sem honum var þess synjað að sjá hana nokkuru sinni framar. Þá sneri hann sér skyndilega við og hélt af stað. Og allir gömlu guðirnir í garðinum litu undrandi á þennan unga mann, sem lagði á flótta, eins og hann væri þjófur, sem menn hefðu staðið að stuldinum. xm. _ . Þegar Lionel lagði af stað frá höllinni, lá svo illa á honum og var hann svo ringlaður, að hann viltist, og vissi alls ekkert um það, hvert fæturnir vor-u að fara með hann. Þegar hann raknaði við sér aftur, var hann kominn langt inn í skóg. Þar gekk hann fram

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.