Fjallkonan


Fjallkonan - 06.12.1907, Blaðsíða 1

Fjallkonan - 06.12.1907, Blaðsíða 1
XXIV. árg. Hafnarflrði. 6. deseinber 1907 Nr. 49 c?. c?. cTRorshinsson & @o. nen Með „CERES" er koinið iil Terzlunarinnar: Cpli (amerísk.), *ffín6er, dlppdsínur o. fl. „Með JESTU' konia: cJóíatré og *3ólafrés$firaut, €Jclafierfi og allar aðrar i JÓLAVÖRUR. Virðingarfjlst. S. cSorgmannr\ TTMiil iiinrmmnir— i ■■ . dluglýsincjum í Fjallkonuna er veitt viðtaka í pventsmiðjnnni. Handrit sendist í síðasta lagi á mið- vikudagskvöldum íyrir kl. 7. Ungmennafélögin. m. (Niðurlag). Lögbundinn félagsskapur með æsku- ]ýð þjóðarinnar hefir til skaroms tíma verið lítt tíðkaður hér á landi, þegar bindindisfélagsskapurinn er undanskil- inn. Þar er uin að kenna skorti á góðum forgöngumönnum frekar en hinu, að ungmenni landsins ha.fi verið tregari tii fylgis, en vænta mætti, þegar um slíkt er að ræða. Langt er þó síðan, að vottað hefir fyrir til- raunum í líka átt í ýmsum sveit.um; en skammlífar hafa þær hreyfingar víst orðið víðast hvar, enda enginn alúð lögð við, að stefna þeim að einu marki um land alt. En það er skil- yrði þess, að nokkur veigur verði í félagsstarfinu til frambúðar. Víðtækur ungmennafélagsskapur með ákveðnu markmiði og lögbundnu fyrirkomulagi hefir komið í ]jós hér á seinustu árum í tveimur myndum: kristileg unglingafélög og Ungmenna- félögin, sem svo eru nefnd. Hvortveggja hreyfmgin er aðflutt hingað eða sniðin eftir útlendi’i fyrir- mynd, og er ekkert út á það að setja Pann veg á að vera háttað viðkynn- ingu vorri við aðrar þjóðir, að vér nemum af þeim alt það, er betur má fara og oss getur að gagni komið á •ættjörðinni; en ekki að vér leggjumst flatir fyrir áleitni þeirra eða hermum það eftir, sem til ógagns er eða van- *æmdar. Nú mætti svo virðast, er fljótt er á iitið, að það mundi valda tvískift- ingi og verða til tjóns, að bæði þessi félög rísa upp um sama leyti. Og ýmsir spyrja á þá leið, hvort ekki væri betra að snúa sér einhuga að öðru þeirra, en láta hitt eiga sig. En af skammsýní er slikt sprottið og lítilli þekkingu. fað mundi verða vísasti vegurinn til þess að vekja sundrung og flokka- drátt með æskulýðnum, ef farið væri að metast um það, hvort félegið ætti að lúta í lægra haldi. Og það væri óþarfasta verkið, sem vinna mætti þessu þjóðfélagi, að eggja æskulýðinn til kappsfullrar baráttu innbyrðis um annað eins og þetta. Nóg er um flokkadrættina samt, þótt því sé slept, og unglingunum ekki sigað upp að þarflausu. fví að þarflaust er það. Og skaðlegt er það. Vegna þess að þessi félög hafa hvort sitt hlutverk að vinna, er þörf fyrir þau bæði, alveg eins og þörf er fyrir þjóðfélag og kirkjufélag til dæmis. Kristilegt félag ungra manna (K. F. U. M.) keppir að því marki, að gera áhangendur sína áhugasama kristna menn, svo sem nafníð bendir á. En því fer þó fjarri, að þar með sé útilokuð afskifti þess fé- lagsskapar af öðrum efnum; því að hver trúaður maður, sem skilur rétt anda kristindómsins, telur það skyldu sína, að styðja hvert gott mál til sigurs. En það er undir forgöngumönnun- um komið, hvoit það verður gert. Pað eru til þröngsýnir kristindóms- vinir, sem amast við öilu öðru en því, sem þeir telja trúarbrögðunum einum koma við. Væri félagsskap- urinn undir stjórn slíkra manna verður staitsvið hans þiöngt og til minni nota en æskilegt væri. En enginn getur um það sagt, hvort svo fer hér eða ekki. Ungmennafélögin eiga fyrst og fremst að vera þjóðlegur félags- skapur, Peim er ekkert óviðkom- andi, sem íslenzku þjóðinni má verða til nytsemdar, þess vegna telja þau sér skylt að styðja líka kristin- dóminn, af því að hann er lífsafl, sem glæðir alt það, sem bezt er í mannseðlinu, þegar hann er rétt skilinn og rétt boðaður. Eitt atriðið í stefnuskrá ungmenna- félaganna er það, að þau byggi starf sitt á kiistilegum grundvelli. Pað leiðir af því, að þau geta ekki amast við kristilegu unglingafélögunum. En hitt er annað mál, að ekki er því að treysta, að ungmennafélögin vinni stárf þeirra. svo vel sem þörf væri á eða æskilegt þætti. Þess vegna fer bezt á því að félögin starfl bæði. Það þarf engum klofningi að valda. Þeir ungmennafélagsmenn, sem áhuga hafa á kristindómsmálum, en þykir þeim of lítið sint í því félagi, geta stofnað með sór kristilegan félagsskap og verið þó jafngóðir liðsmenn i ungmennafélaginu eftir sem áður. Það, sem mest er um vert í þessu máli er það, að trúlega só unnið, og ekki vikið frá merki félaganna. Sma- vægilegur skoðanamunur um einstök atriði má aldrei glepja félagsmönnum sýn. Æskulýður landsins þarf þess með, að mentast og æfast í því, að nota kraíta sína, andlega og líkam- lega, í þarflr sjálfra sín og fóstur- jarðarinnar; og þjóðfélagið þarf þess með. Til þess er lögbundinn félags- skapur með göfugu takmarki vel fall- inn, sé haldið í réttu horfl. Þess hafa gerst dæmi, að góður félagsskapur heflr vilst á villigótur í starfi sínu, og snúist til vanblessunar fyrir þá, sem hlut áttu að máli. Skemtanafýsn og alvöruskortur unga fólksins hefir tiðum unnið mikið tjón góðu máli. fað skyldu aflir vinir ungmennafélagsskaparins reyna að hefta, án þess þó að gjöra nokkra tilraun til að kæfa niður sjálfsagða og heilbrigða lífsgleði æskulýðsins. Það er önnur villigatan og engu betri. Mannalát. Frú Maren Lárusdóitir, sem and- aðist 14. f. m. í Reykjavík var fædd að Hofsósll. des. 1828 og var einka- dóttir L.Thórarenssensýslum. og konu hans, Eiinar Jakobsdóttur (Hafsteins). Hún fluttist ung með foreldrum sínurn að Enni og var þar hjá þeim unz hún giftist, 14 júlí 1854, Jóhannesi sýslumanni Guðmundssyni, sem um það leyti varð sýslumaður í Stranda- sýslu. Þar dvöldust þau 6 ár. fá varð hann sýslumaður í Mýra- og Hnappadalssýslu, og bjuggu þau þá í HjarðarhoJti í Stafholtstungum. Jó- hannes sýslumaður varð úti 11. marz 1869, og flutti þá frú Maren sál, sig á föðurleifð sína, Enni, og bjó þar 10 ár en flutti sig þá til Reykjavíkur og var þar, það sem eftir var æflnnar. Með manni sínum eignaðist hún 10 börn og koinust 6 af þeim til full- orðinsára: Anna, gift dr. Valtý Guð- mundssyni (d. 1903); Katrín, ógift heima hjá móður sinni; Lárus, að- stoðarprestur í Sauðanesi (d. 1888); Sigríður, gift séra Kjart.ani Helgasyni í Hruna; Jóhannes sý»lumaður og bæjarfógeti á Seyðisfirði, og Ellert tó- viiinuvélastjóri í Ólafsdal. Frú Maren var mikilhæf kona og mjög vinsæl meðal allra, sem kyntust henni, trygg í lund og staðföst, þrek- mikilogeinbeitt,brjóstgöð og nærgætín. Hún bar öll einkenni íslenzkrar ágæt- iskonu. Jarðarför hennar fór fram 29. f. m. að viðstöddu miklu fjölmenni. Árni Thorsteinssoii landfógeti, er andaðist 29. f. m. (sbr. síðasta bl.), var fæddur að Arnarstapa á Snæ- fellsnesi 6. apríl ]828, og skorti því freka fjóra mánuði á át'trætt. For- eldrar hans voru Bjarni amtmaður Thorsteinsson og kona hans, Fórunn Hannesdóttir biskups Finnssonar. — Hann tók stúdentspróf við Reykja- víkur ]ærða skóla 1847 með II. eink.; sigldi síðan tíl Kaupmannahafnar og nam lög við háskólann þar. Tók embættispróf 1854 sömuleiðis með annari einkunn. Tveimur árum síðar (1856) varð hann sýslumaður í Snæ- fellsnessýslu, en 1861 landfógeti og bæjarfógeti í Reykjavík. Eftir að þau embætti voru aðskil- in gegndi hann landfógetaembættinu einu, unz það var afnumið 1904. Meir en fjórðung aldar var hann kon- ungkjörinn alþingismaður og um langan tima forseti efri deildar. Hann var frábærlega skyldurækinn og reglusamur embættismaður, yflr- lætislaus og vildi alt rétt gera. Hann hafði mikinn áhuga á atvinnumálum landsins, og ritaði ýmsar greinar um landbúnað og flskiveiðar. Árni var kvæntur frændsystur sinui Sophiu Hannesdóttur kanþm. Johnsen, og liflr hún hann; börn þeirra eru: Árni Ijósmyndari og söngskáld, Bjarni, Hannes cand. jur. og bankastarfsmaður og Þórunn kona Fr anz Siemsens f. sýslumánns. Ömiur dóttir þeiira var frú Sigríður kona Páls sýslumanns Einarssonar í Hafn- arfirði, dáin 1905.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.