Fjallkonan - 11.04.1908, Page 2
54
FJALLKONAN
i
*
i
«
*
f
I
9
*
f
I
FJALLKONAN
kemur út hrern föstudag, og auka-
blöð við og við. Alls 60 blöð um
árið Verð árgangsins 4 kr. (erlðnd-
is 5 kr. eða li/s dollar), borgist fyrir
1. júli (erlendis fyrirfram). Uppsögn
bundin við áramót, ógild nema
komin séj>til^útgðfandft.,fyrir 1. okt-
óber, enda sé kaupandi þá skuld-
laus við blaðíð.
I*
!
Útlendingar og áfengið.
(Niðurl.)
(í siðasta blaði var prentvilla í fyrra
katla þessarar greinar, á bls. 50, 1.
dálki, 29, línu a. n. : „Það er víst
furða“ i st. f.: það er sizt fuiða).
En þó að svo væri — s#m ekki
er — að þjóðin græddi beinlínis á
vínkaupum útlendinga, — þó að hag-
urinn af þeirri verzlun væri meiri en
tjónið, sem áíengið bakar landsmönn-
um, þá eru samt sem áður þeir
agnúar á henni, að enginn heiðvirður
maður getur mælt með henni, ef
hann hugsar sig vel um og vill gæta
sóma síns og þjóðarinnar.
fað lýsir fyrst og fremst feikna-
mikiili litilmensku, að vilja velta
byrðum þeim, sem að sjálfsögðu og
að landslögum réttum eiga að hvíla
á landsmönnum, yfir á bak útlend-
inga, án þess að þar komi í móti
nein réttindi þeim til handa, önnur
en þau, að mega drekka vín í land-
inu, sér til tjóns og minkunnar oft
og tiðum.
En auk þess felst á bak við þessa
steínu sú ógeðslega skoðun, að á
sama standi, hvernig fer uin útlend-
inga og þeirra hag. Þeir séu ekki
of góðir til að iáta eignir sínar allar
af hendi, ef svo ber undir, og jafnvel
lífið og æruna í tilbót, ef landssjóður
og innlendir eða útlendir vín-
salar hafa af því nokkurra króna
hag.
f>eir vita það bezt, sem kunnugir
eru á þeim stöðum, sem mest eru
heimsóttir af útlendingum, hvað þeir
gjalda þar fyrir vínið. Og meir en
litið geggjaðar mannúðartilfinningar
hljóta þeir að haía, sem ekki finna
til neins annars en óblandinnar gleði
yfir þvi að kynnast því.
j?að má s e g j a það, að hver sé
sjálfráður um það, hvort hann neytir
vins sér i skaða eða ekki. Allir vita
það nú raunar, þótt þeir vilji máske
ekki játa það, að drykkjumaðurinn
er e k k i sjálfráður ; hann er alveg
á valdi drykkjufýsnarinnar. Þess
vegna er það illmannlegt að freista
hags til víndrykkju, og það er ekki
hóti betra íyrir því, þótt hann séútlend-
ingur. Það geta ekki vandaðir menn
gert heldur, að halda fram því tvennu
í senn : a ð vínnautnin sé skaðræði
fyrir drykkjumanninn, og þvi eigi að
harnla honum írá henni, og a ð ekki
megi hefta inuflutníng áfengis vegna
þess, að landið megi ekki inissa af
tollinum, sem útlendir drykkjumenn
gjalda.
Satt er það að vísu, að fleiri út-
lendingar drekka hér vín en þeir,
sem heitið geta yfirkomnir drykkju-
menn. En ekki bætir það úr skák.
Pað er vitanlegt — og það hafa
margir séð sér til mikillar skapraunar
— að ungir, eínilegir og siðprúðir
menn, sem korna hér við land með
eldri félögum sínum, leiðast út i
drykkjuskaparóreglu með þeim eða
— þótt skömm sé frá að segja —
fyrir freistingar íslenzkra vinsala og
óreglumanna, eyða mestu eða öllu
fé sinu, glata mannorði sinu og láta
stundum'iífið i ölæði. '
Það þarf kalt hjarta og tilfinninga-
lítið til þess að geta sagt um þessa
menn : Þeim var nær að gæta sin;
þeir áttu ekki bétra skilið. Og þó
er ekki fátítt að heyra slík tilsvör.
Það eru þakkirnar fyrir tollinn, sem
þeir guldu með vínkaupunum.
En ekki þarf nema meðalskynsemi
og ofurlítið mannúðarþel, til þess að
geta sett sig í spor þessara manna,
sem oft og riðum koma í fyrsta skifti
úr foreidrahúsum á ókunna staði,
eiga hvergi höfði sínu að að halla
annarsstaðar en í vínkránni, og enga
félaga aðra en þá, sem þangað korna.
Þeir eru þreyttir og leiðir af sjóvolki
og erfiði og fýsir að létta sér upp og
fá sér hressingu ; en eina hressingin,
sem er á boðstólum, er vínið, og því
er haldið að þeirn bæði af eldri fó-
lögum og veitingamönnunum. —
Þess vegna verða endalokin oft svo
ömurleg.
Munu íslenzkir feður allir vilja
segja um sonu sína, ef svona stæði
á fyrir þeim í ókunnu landi: feir
geta séð um sig sjálfir, og þeim er
það mátulegt, ef þeir komast undir
manna hendur eða láta lífið af völd-
um áfengisins?
Hrafnshjarta þarf til þess, enda
rnundu fáir mæla á þenna veg.
Eða mundi þeim vera það nokkur
huggun, þótt þeif vissu, að sjmir
þeirra hefðu goldið svikalaust vín-
fangatollinn erlendis ?
Yér hugsum með hryllingi og við-
bjóð til þeirra þjóðflokka, sem enn
eru svo viltir, að þeir ráða af dögum
alla útlenda gesti, sem að garði ber
hjá þeim, og eta þá með góðri lyst
meira að segja oft ög tíðum; og þær
þjóðirnar, sem telja sig mentaðar (þó
ekki íslendingar) leggja áriega af
mörkum stórfé til þess að kenna þess-
um vesalingum betri siði. Það þætti
að vonum frekt að orði kveðið að
jafna vorri þjóð við þessar villiþjóðir,
enda dettur engum það í hug. En
er það ofmælt, að enn séu hér á landi
til leyfar af þeim villimannahugsunar-
hætti, sem oss hryllir svo mjög við
að heyra um hjá svörtum mönnum
í suðurálfu heims? Á ekki sú hugsun
að vér v e r ð u m að hafa á boðstól-
um brennivín til þess að græða með
því fé á fáráðum ög umkomulausum
útlendingum, sem oft láta líf eða
mannorð fyrir það — á hún ekki
einmitt eitthvað skylt við hugarfar
villimannsins, sem rífur í sig útlend-
inginn, sem heimsækir hann? Hvort-
tveggja virðist vera sprottið af sömu
rót: þeirri skoðun, að engu skifti
hvernig fer um aðra.
Yonandi er nú lítið orðið urn þann
hugsunarhátt hjá íslendingum. Pað,
hve oft er hampað framangreindri
mótbárugegn aðflutningsbanni áfengis,
stafar vonandi öllu fremur af því, að
hver tekur hana eítir öðrurn hugsunar-
lítið, til þess að hafa þó eitthvað að
segja vínverzluninni til afsökunar. En
hún verður ekki göfugmannlegri fyrir
því. Hún sannar að eins, hve mikill
skortur er á sæmilegum rökum til
þess að mótmæla algerðu aðflutnings-
banni.
Bæjarstjórnarkosning í Hafnarfirði.
F>á er nú loks fengin vitneskja um
bæjarstjórnarkosninguna fyrii-huguðu
hér i Hafnarfirði, hvenær hún á að
fara fram o. s. frv. Pað er nú eftir
að vita, hvort bæjarbúar gleðjast yfir
fregnunum að sarna skapi, sem þeir
hafa. beðið þeirra með roikilli eftirvænt-
ingu. Pað má mikið heita, ef svo
verður, og að minsta kosti er ekki
hægt að byggja góðar vonir um það
á ummælum þeirra, sem á það hafa
minst til þessa, síðan fregnirnar
komu.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu hefir fengið og sent
hreppsnefnd Garðahrepps eftirrit af
bréfi frá stjórnarráði íslands dagsettu
28. f. m., sem mælir svo fyrir:
1. Hreppsnefndin skai sernja fyrir
miðjan mai næstk. kjörskrá yfir alla
þá kjósendur, sem kosningarrétt hafa
til bæjarstjórnar samkvæmt bæjar-
stjórnarlögunum frá 22. nóv. f. á., og
kjósa úr sínum flokki tvo menn i
kjörstjórn til að stýra kosningu tii
bæjarstjórnar með sýslumanninum í
Gullbringu- og Kjósarsýslu sem odd-
vita; kjörskráin skal liggja tii sýnis
háifan rnánuð á undan kjördegi á
hentugum stað.
2. Oddvita kjörstjórnarinnar ber að
boða til kjörfundar fyrsta virkan dag
i júnimánuði næstk. með nægum fyr-
irvara, og skal þá kjósa 7 bæjarfull-
trúa fyrir Hafnarfjarðárkaupstað, sam-
kvæmt fyrgreindum lögum.
3. Bæjarfógeti i Hafnarfjarðarkaup-
stað skal kalla hina kosnu bæjarfull-
trúa á fund innan 5 júní riæstk. til
þess að kjósa bæjarstjóra, og skal
hann stjórna þeim fundi og gegna að
öðru leyti bæjarstjórastarfinu þangað
til bæjarstjóri getur tekið við því.
4. Bæjarstjórnin ska.1 fyrir 15. júlí
semja áætlun um tekjur og gjöid
kanpstaðarins frá 1. júní þ. á. til árs-
loka, ræða hana á 2 fundum og leggja
síðan fram til sýnis 14 daga þar á
eftir.
5. Kjósa skal 5 menn í niðuijöfn-
unarnefnd til bráðabyrgða þegar bæjar-
stjórnin ei tekin til starfa, og skal
sú nefnd sitja að vöidum þangað til
ný kosning fer fram í septembermán-
uði. Hún á að jafna niður hinum á-
æt.luðu gjöidum fyrir tímabilið fiá 1.
júni til ársloka.
Loks er iagt fyrir sýsiumanninn að
taka til starfa sem bæjarfógeti iHafnar-
fjarðarkaupstað frá 1. júní næstkom-
andi.
Svona var þvi þá hagað.
Það fekst ekki, þegar um var beðið
í vetur, að kosið yrði í febrúarmán-
uði, vegna þess að þá voru bæjar-
stjórnarlögin ekki komin í gildi; það
mátti ekki kjósa fyr en að áliðtmm
marzmánuði.
Pá var bent á það rejög rækilega,
að því lengur sem kosningin yrði
dregin, þess fleiri yrðu útiiokaðir frá
að nota kosningarrétt sinn.
Er það þess vegna að kosningin er
nú diegin til 1. júní ?
Eða hver getur ástæðan verið
önnur ?
Er ekki eins og verið sé að bíða
eftir þvi, a ð fiskiskipin leggi út til
sumarveiðanna með alla þá menn,
sem á þeim ætla sér að verða um
þann tíma, a ð strandferðaskipin séu
íarin austur og vestur með alt það
fólk, sem leitar sér atvinnu í fjariæg-
um héruðum, og a ð vegagerðamenn
og ritsimastarfsmenn (ef nokkrir eru)
séu teknir tii starfa fjarri heimiium sín-
um, svo að alt þetta fólk sé útilok-
að frá hluttöku í kosningunni? —
Reykvíkingum eru ætlaðir 3 — 4
rnánuðir tii þess að ráða tii sín borg-
arstjórann, en Hafnfirðingum 3
þrír — dagar! Líkiega verða það
nú ekki nema hálfur þriðji dagur;
kosningu verður að iíkindum ekki lok-
ið fyr en að kveldi 1. júní, og fyrir
5. júní á bæjarstjórnin að vera búin
að kjósa bæjarstjórann, og verður því
að halda fund tii þess 4. júni, í síð-
asta iagi. Á þessum tíma á hún
sjálfsagt að vera búin að ákveða laun
bæjarstjórans og leita fyrir sér við þá
rnenn, sem henni lízt bezt á, um það
hvort þeir séu fáanlegir til starfsins o.
s. frv.
Ekki á nú að liggja á liði sínul
M ANNSKAÐAR.
Mikið afhroð hefir sjómannastéttin
goldið enn i viðureign sinni við Ægi,
og á margur um sárt að binda
sem fyr eftir vetrarvertíðina, sem
yfir stendur, þó að rninni séu enn,
svo menn viti, slysfarirnar á fiskiveiða-
flotanum heldur en tvo undanfarna
vetur.
Siðustu daga marzmánaðar og
fratnan af þessum mánuði voru um-
hleypingar með aftaka stormhrynum
við og við. í þeim veðrum hafa
orðið skipskaðar á ýmsum stöðum
hér sunnanlands og farist samtals um
20 manns.
Austanfjalls barst 2 skipum á 2.
þ. m. í lendingu úr fiskiróðri: á
Stokkseyri og Loftsstöðum. Á Stokks-
eyri voru 9 eða 10 skip á ejó þenna
dag, og náði ekkert þeirra lendingu
heima hjá sér, — hleyptu öll út í
í’orlákshöfn, nema þetta eina, sem
fórst á sundinu, er það lagði til lands.
Á því voru 9 menn og varð að eins
einum bjargað (Brynjólfi Magnússyni
írá Bár). Formaður á skipinu hét
Ingvar Karelsson, kvæntur
maður frá Hvíld í Stokkseyrarhverfi,
um fertugt. Hinir mennirnir, er
drukknuðu, voru þessir:
Gísli Karelsson frá Sjávar-
götu á Eyrarbakka, bróðir formanns-
ins, kvæntur.
Guðjón Jónsson frá Gneista-
stöðum í Villingaholtshreppi.
Gunnai' Gunnarsson frá
Gíslakoti í Ásahreppi.
Helgi Jónsson frá Súluholts-
hjáleigu.
JónGamalíolsson frá Vot-
múla í Sandvíkurhreppi.
Jón Tómasson frá Gegnis-
hólum í Gaulvei jabæjarhreppi.
T r y g g v i E i r í k s s o n frá
Stokkseyri.
Flestir höfðu mennirnir verið á
bezta aldri og hinir röskvustu.