Alþýðlegt fréttablað - 29.07.1886, Side 4

Alþýðlegt fréttablað - 29.07.1886, Side 4
4 þarf að breyta ntg. blaðanna þannig, að stækka ritgjörða blöðin og fækka þeim, en koma npp fréttablöðum. Nóg væri að hafa eitt þjóðblað í Keykjavík (t. d. tvöfalt að stærð við Þjóð. eða ísaf., er kæmi út 2 í viku) er gæti tekið eins mikið af ritgjörðum og hin bl. öll nú flytja. Væri því vel stjórnað, gæti það orðið betra en öll þessi smáu til samans, og þó hálfu ódýrara, ef það væri viðlíka út- breitt (varla yfir 10 kr. árg.). En svo ætti eitt lítið alþl. frbl. að koma út í hverjum fjórðungi landsins. G-ætu þau tekið fréttir hvert úr sínu nágrenni, hvert eptir öðru, eptir þjóðblaðinu í Rvík og útl. blöðum, og j af þeim gæti nálega hver maður keypt eitt ; eintak, en stærri kaupendurnir mundu kaupa j þjóðbl. að auki. En hvort þessí breyting kemst á i fljótu bragði, það er annað mál. j Þjóðin verður sjálf að hjálpa til þess með j tímanum. — Ef eg ætti að skipa fyrir um slíkt, mundi það verða á þessa leið: Eg á- lít ritstj. í Kvík alla fremur liðlega og vil að þeir geti notið sín. Vil þá láta B. J. ! gefa út þjóðblaðið, og hafa Gf. P. fyrir að- stoðarmann. Þ. J. vil eg senda vestur á ísafjörð. — Þeir þurfa góðan vekjara Vest- firðingarnir. — V. Á. ætti að afleysa ritstj. „Austra“. Á Akureyri vil eg láta gróðursetja einhvern „kynja-kvist“ úr Þingeyjarsýslu, er breiði greinar sínar út yfir norðurland. Þó ritstj. „Alþl. frbl.“ tilvonandi sé ólærður maður, ætti hann að geta gefið út slíkt bl. í Rvík, því fremur sem þar kæmi einnig út annað fullkomnara blað. Sú viðbára mun hafa mætt boðsbrjefinu að „Alþl. frbl.“ almennt hér um nágrennið, að menn geta eigi keypt það í þessu ári fyrir fátækt og eymdarskap, annað væri nauðsyn- legra að kaupa, o. s. frv. Það er svo langt i frá, að það megi álíta ráðlegt, að hver fá- tæklingurinn kaupi mörg blöð; og þeim sem ekkert kaupa óþarfara, yrði jafnvel ekki láð, þótt þeir ekkert blað keyptu — og er það þó nálega hið sama sem að vera fyrir utan heiminn —; en því miður munu fátæklingarnir ekki vera búnir að venja sig alveg af að eyða efnum sínum í sumt það, sem óþarfara er og skaðlegra en blöðin, en vaninn gjörir það að verkum, að menn finna ekki til þess. Dæmi: Að brúka neftóbak er álitið ó- siðlegt, óþarft og skaðlegt, en af vana finnst mönn- um það nauðsyn og eyða því margir miklu fé til þess. Laglega rituð blöð eru álitin lífsnauðsynleg og ómiss- andi hjá öllum siðuðum þjóðum, og fárra ára vani gjörir blaðakaup að meiri nauðsyn en munaðarvöru- kaup. Tóbaksmenn, sem farið hafa til Ameriku, hafa eptir 5—6 vikur verið búnir að venja sig af að „taka í nefið“, en siðaður maður, sem orðinn er vanur að lesa fréttablöð, getur ekki vanið sig af listlnni til að vita hvað við ber í heiminum kringum hann. Ætli það væri ekki eins hollt að kaupa dálítið fréttablað fyrir 2 eða 3 krónur eins og 2 pund af tóbaki eða 2 flöskur af vínföngum? Á.: Jú, það held eg nú reyndar. En nú höfum við flestir blöð, lesum hver hjá öðrum, og alla vega, svo þetta er að „bera í bakkafullan lækinn“. B.: En margír kaupa þó ekki bl., og sumir tefja sig töluvert á þvi að ganga til nábúa sinna og snikja frjettir úr blöðunum. Tilgangurinu með „Alþl. frbl.“ er því sá, að gefa slikum mönnum — og þeim sem ekki kæra sig um að kaupa langar ritgjörðir ogblaða- þras með fréttunum — kost á að vita hið helzta sem við ber, einkum innanlands, án þess að sækja það til nábúa síns, eða verða jafnframt að kaupa ýmislegt annað dót, sem þeim er minna um gefið. Kosin nefnd í stj.sk.málið (30./,.): Sig. Jónss. 22, B. Sv. 21, Sig. Stef. 19, Þorv. Ker. 18, Lárus H. 17, Þór. Böðv. 17, Einar Th. 16. atkv. ísai'old frá 21. þ. m. hefir inni að halda ritgjörð frá Eiríki Magnússyni um bókhleðufyrirmynd, hans. Hann stingur upp á að reist yrði eitt aðal-safnhús með því formi fyrir öll listaleg og vísindaleg söfn landsins. Betur að því yrði komiðí verk, og það sem fyrst. AUGLÝSINGAR. Þórunn A. Bj arnardóttir, yfirsetukona, býður sæng- nrkonum í Bvík og þar i nánd aðstod sína. Hún heflr verið skipuð í emb. á 4. ár og unnið hylli allr kvenna sem hún hefir aðstoðað. Hún býr í Þingholtsstræti 15. Eptir sláttinn í sumar og í haust, gef eg mönnum hér nærlendis kost á, að veita forstöðu jarðabótastörf- um, svo sem sléttum, ræslu, girðingum o. fl., ef ein- hver kynni að vilja nota það. Einnig veiti eg leiðbeining. ar í jarðrækt ef þess er óskað. Björn Bjarnarson. Útgefandi: Björn Bjarnarson. Pi’entað hjá Sigm. Guðmundssyni.

x

Alþýðlegt fréttablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðlegt fréttablað
https://timarit.is/publication/127

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.