Norðurljósið - 01.05.1912, Síða 3
Norsurljósib
35
landskjálftanum; og eftir landskjálftann kom etdur, en
Drottinn var ekki i eldinum; ]en eftir 'eldinn kom
bliður vindblær . . . Þá barst rödd\að eyrum honum
(Elia)". (I. Konungabók 19. 11.-12.)
Við alla, sem vilja heyra, talar Drottinn með hinni
blíðu rödd kærleika síns. »Komið til mín, allir þjer,
sem erfiðið og eruð hlaðnir þunga og jeg mun veita
yður hvíld«. — »Ouð auðsýnir kærleika sinn til vor,
þar sem Kristur er fyrir oss dáinn meðan vjer enn
vorum í syndum vorum.« >Því svo elskaði Guð heim-
inn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver
sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.«
Leitum hans þá allir í náð, en bíðum ekki dómsins.
Leyndardómur pýramídanna.
Pýramídi er ferstrendur skeintoppur, og nafnið á
vanalega við þau miklu mannvirki, sem finnast í sum-
um fornum menningarlöndum, og sem voru gerð fyr-
ir mörgum öldum af fornþjóðunum. Einkum eru það
pýramídarnir í Egyftalandi, sem menn eiga við, er
nafnið er nefnt, og vjer ætlum að lýsa stuttlega þess-
um feiknastóru minnisvörðum, sem standa á bökkum
Nílfljótsins, og sem eru svö gamlir, að enginn veit
með neinni vissu, hversu margar aldir eru liðnar síðan
þeir voru bygðir.
F*að má telja alls sextíu pýramída við Nílfljótið, en
flestir eru þeir smáir í samanburði við þá stærstu og
hafa ekki vakið mikla eftirtekt. Aðallega eru það þrír
þeirra við Ohizeh, sein menn kalla >pýramídana« án
þess að taka tillit til þess, að aðrir sjeu tii.
Það eru skiftar skoðanir um aldur þessara pýramída,
en lítill vafi leikur á því, að þeir sjeu elstu bygging-
arnar sem til eru í víðri veröld.
Mörgum ber sarnan um, að þeir muni vera um
4000 ára ganilir, og er margt sem virðist staðfesta það.
Nokkrir segja að þeir sjeu 5000 ára eða meira, enda
reynist það æfinlega svo, er menn geta sjer til um
aldur fornra bygginga og minnisvarða, að þeir reikna
alt of hátt, og nákvæmari rannsókn sýnir það og sann-
ar nærri því í hverju einasta dæmi.
Pýramídarnir eru allir tilbúnir með mestu nákvæmni,
samkvæmt stærðfræðislegum og stjörnufræðislegum regl-
•um. Undirstaða þeirra er nákvæmlega ferhyrnd, og hin-
ar fjórar hliðar snúa nákvæmlega á móti norðri, suðri,
austri og vestri. Sumir álíta að þeir hafi vérið notaðir
meðal annars sem nokkurskonar stjörnuturnar, enda er
í stærsta pýramídanum ákaflega löng pípa (171 álnir
á lengd), sem miðar á þann blett stjörnuhiminsins, þar
sem pólstjarnan var fyrir 4000 árum, þá er ætlað að
pýramídinn hafi verið bygður.
Stærsti pýramídinn er 220 álnir á hæð, en hliðarnar
eru 284 álnir. Annar er nærri því eins hár, en hinn
þriðji er meira en helmingi minni. Það hefir verið
reiknað út, að það hefir þurft meira en 6,840,000 smá-
lestir af steini til að koma stærsta pýramídanum upp!
Samkvæmt frásögn Heródóts, hins mikla sagnfræðings
liðinna alda, unnu 100,000 manns í 10 ár til þess að
búa til veg, 1500 álna langan, svo að hægt yrði að
flytja steinana frá grjótnámunum. Svo vann þessi mikli
fjöldi enn í 20 ár til að byggja pýramídann.
Heródót segir svo frá, að hann hafi fundið á pýra-
mídanum steintöflu, sem ritað var á fjárhæðin, sem
borguð var fyrir radísur, lauka og geirlauka handa
verkamönnunum. Nam hún 5,580,000 króna ; og þó hafa
þeir líklega borðað eitthvað meira en radísur, lauka og
geirlauka!
Ekki geta menn verið alveg vissir uin, í hvaða til-
gangi þetta alt hafi verið gert, en að líkindum hafa
pýramídarnir verið notaðir af konungunutn sem leyni-
legir stjörnuturnar á meðan þeir lifðu og sem graf-
hvelfingar, er þeir voru dánir.
Oömul munnmæli sögðu svo frá, að Egyftar hafi stund-
að stjörnufræði í leyni mörg hundruð árum áður en
aðrar þjóðir þektu hana. Það er því líklegt, að hinir
egypsku konungar hafi fyrir alla muni viljað ganga svo
frá pýramídanum, að enginn gæti brotist inn. A hinn
bóginn er það alveg víst, að þeir voru notaðir til að
geyma lík konunga Egyptalands; likkistur úr granít-
steini hafa fundist í þeim, og auk þess er margt, sem
ritað er með myndaletri, sem ber vott um það sama.
Inngangurinn í stærsta pýramídann er um 24 álnir
frá jörðu á norðurhlið hans og það er álitið, að hann
hafi verið þannig úr garði gerður, að það hafi ekki
verið hægt að sjá hann eða finna, nema af þeim ein-
um, sem þektu leyndardóminn. Þegar komið er inn,
er langur gangur á ská, djúpt niður í jörðina, eða um
45 álnir undir grunni pýramídans: þar er hvelfing 23
álna löng og 13 lh alin á breidd. En þegar menn koma
30 álnir niður frá innganginum er annar gangur út úr
honum sem liggur skáhalt upp á við, þangað til kom-
ið er að nokkurskonar höll, 14 álna hárri. Þessi höll
er líka á ská, og upp af henni er »herbergi konungs-
ins«, sem kallað er. En undir eins og menn koma í
höllina, sjest annar langur gangur (54 lh alin á lengd)
sem liggur lárjettur til herbergis í miðjum pýramídan-
um, sem heitir herbergi drotningarinnar«. Herbergi