Norðurljósið


Norðurljósið - 01.08.1912, Blaðsíða 8

Norðurljósið - 01.08.1912, Blaðsíða 8
64 Norðurljósið Eyrun- Næst augunutn virðast eyrun vera hin furðulegasta sköpun hins alvitra Ouðs. Hljóðhimnan, hamarinn og steðjinn — að jeg nefni ekki meira — bera öll svo glöggan vott um fyrirhyggju skaparans, að það er hjer um bil ómögulegt að skilja, hvernig andlegur sljóleiki getur náð svo háu stigi hjá mönnum, að nokkur, sem þekkir þessi dásemdarverk, skuli geta efast um það að persónulegur skapari hafi búið þau til. Ætlunarverk mitt er samt ekki að lýsa heyrnarfær- unum, heldur að benda á það, sem getur komið fyrir þau, og sem mönnum er gefið að lækna, ef þeir vita hvað helzt á að gera til þess. Jeg fylgi sömu aðferð og þegar jeg var að tala um heimilislækningar við augun, nefnilega: (1) að gera við slysum, sem kunna að koma fyrir eyrun, (2) að nefna ráð til þess að lina eða bæta eyrnasjúkdóma og (3) að ræða um heyrnina alment og um heyrnarleysi. Slys. I þeim löndum, sem opt er leikinn fótknattleikur*, og í Ameríku, þar sem mjög harður knattleikur, sem »base-ball« heitir, er tíður, kemur það ekki ósjaldan fyrir, að eyrað (eyrablaðið) er rifið nærri því' laust frá hötðinu, enda nota hinir gætnari þátttakendur litla húfu, sem verndar eyrun fyrir slíku óhappi. Slíkt slys kem- ur auðvitað sjaldan fyrir hjer á landi, en þó er rjettast að nefna það. Það sætir furðu, hvað eyrað grær fljótt og vei, og stundum jafnvel er vonlaust virðist vera að haldamegi eyranu lifandi. Þessvegna eiga menn að hreinsa sárið vel með volgu vatni, og binda um eyrað svo vel sem hægt er, þangað til læknirinn kemur. Það kemur ekki oft fyrir, að hljóðhimnan rifni. Högg á eyrað sprengir hana mjög sjaldan, og sama er að segja um háa hvelli. Ef menn heyra illa á eftir höggi * Hjer er ekki átt við þann knattleik, sem þekkist hjer á landi, sem er nefndur á erlendu máli „Association football", heldur við harðari leikinn, þar sem menn leggja hendur hver á annan, til þess að ná knettinum, og heitir „Rugby footbalK eða hvelli, er það optast fyrir áreynsluna á heyrnar- færin yfirleitt, en bendir sjaldan til þess, að hljóð- himnan sje rifin. Hún rifnar þó stundum, þegar menn stinga oddmjóu verkfæri inn í hlustina. Það á aldrei að stinga neinu í eyrað, hvorki til að hreinsa það nje heldur til að ná úr því neinu, sem farið hefir inn í hlustina; verður seinna bent á ráð til þess að ná úr eyranu því, sem inn í það kann að komast. Þegar hljóð- himnan rifnar, finnur maður mikið til fyrst, það blæð- ir úr hlustinni og ntaður heyrir ekki með því eyra. En það batnar vanalega fljótt, og hljóðhimnan grær aftur, enda þurfa læknar stundum beinlínis að skera gat á hana t sumum eyrnasjúkdómum. Sjúklingurinn þarf samt að halda algerlega kyrru fyrir í nokkra daga. Þeir sem hafa börn undir hendi, eiga að muna vel eftir því, að það er mjög skaðlegt að berja börnin á eyrun. Það kemur oft fyrir, að börn láta eitthvað inn í hlust- ina, og getur það oft verið mjög skaðlegt, ef því er ekki náð strax út. Það veitir ekki af að endurtaka með áherslu að það má ekki notá oddmjótt verkfœri, eða neitt stint, til að ná nokkru úr eyranu. Þegar hægt er að sjá hlutinn, er mikil freisting að gera þetta, en það er nærri því óhjákvæmilegt að barnið hreyfi höfuðið á meðan, og þá ýtist hluturinn lengra inn í hlustina. Bezta og tryggasta ráðið er að sprauta aðeins volgu vatni í eyrað, og ef ekki er hægt að ná því með þessu móti, verður það að bíða þangað til læknishjálp fæst. Ef lítil fluga eða eitthvert annað skorkvikindi kemst inn í hlustina, skríður það oftast nær út aftur sjálfkrafa, ef menn hella fáeinum dropum af bómolíu inn í hlust- ina. Ef flugan kemur ekki út, þá er það líklega af því, að hún befir kafnað af olíunni; á þá að sprauta volgu vatni inn í hlustina, til þess að skola henni út. (Framh. ^loRÐURLJÓSIÐ kemur út einusinni á mánuði, og verð- ur 96 blaðsíður á ári. Árgaugurinn kostar 50 aura og borgist fyrir fram. Menn mega senda útgefandanum verðið í óbrúkuðum frímerkjum. Ritstjóri og útgefandi: Arfhur Gook, Akureyri. (Afgreiðslumaður blaðsins á Isafirði er hr. James L. Nisbet.) Prentsmiðja Odds BJörnssonar.

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.