Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1917, Blaðsíða 2

Norðurljósið - 01.01.1917, Blaðsíða 2
2 Norburljósið löndum síðan stríðið byrjaði og hefi tekið eftir ýmsu, sem öðrum gæti fundist fróðlegt að heyra um, hefi jeg orðið við ósk nokkurra kaupenda blaðsins og ætla að láta það flytja ferðasögu mína. Jeg fór frá Akureyri seint í októbérmánuði 1914 á litlu skipi, sem ætlaði beint til Skollands, til að taka kol, svo að það gæti haldið áfram ferð sinni til Spánar með fisk. Reglulegar skipaferðir voru komnar í rugling vegna stríðsins, og jeg sætti glaður þessari ferð. Jeg hafði aldrei fyr far- ið á milli landa á svo litlu skipi, og mjer leið ver, þá viku sem jeg var á því, en nokkurn tíma áður á æfi minni. Jeg var útbúinn með skjöl til að sanna, að jeg væri í friðsamlegum erindagerð- um, ef skipið yrði rannsakað af herskipum Breta, en við sáum ekkert herskip alla leið, nema eitt, sem fór fram hjá með miklum hraða síðustu nóttina, án þess að sýna nein Ijós. Jeg hlakkaði mjög til að komast í land, þegar komið var til Troon snemma morguns, einkum vegna þess, að jeg hafði ekki borðað neitt sem teljandi væri í heila viku. Jeg stökk af skipinu á bryggjuna, og ætlaði að halda inn í bæinn, til að sjá mig um, og spyrja eftir járnbrautarferð- um til Edinborgar. En jeg hafði ekki gengið nema fáein skref, er hermaður með byssusting stendur fyrir framan mig, og spyr hvert jeg ætli. (Framhald.) Ný sól fundin. Einu sinni hugsuðu mennirnir, að jarðhnöttur vor væri helsti hluti alheimsins. Þeir hjeldu, að hann stæði kyrr og að sólin og tunglið snerust í ’kring um hann, og kaþólska kirkjan Ijet brenna nokkra vísindamenn, sem mótmæltu þessu. En Kópernikus og aðrir stjörnu- fræðingar staðfestu það samt, að jörðin snerist í kring um sólina, sem var miklu stærri en jörðin. Þegar menn höfðu búið til stærri og fuilkomnari sjónpípur, uppgötvuðu þeir, að sólin sjálf var ekki kyr, heldur snerist hún, og alt sólkerfið með henni, Tkring um aðra og stærri sól. Þangað til nýlega hafa stjörnufræðingar haldið, að miðdepill alheimsins væri stjarna, sem Alcyoné heitir. Bn nú er það sannað, að svo sje ekki, heldur er tröll- aukin sól, sem heitir Canopus, miðdepill allra skap- aðra hluta, svo framarlega sem stjörnufræðingar vita, enn sem komið er. Canopus er 31,000,000 sinnum lengra í burtu frá jörðunni heldur en sólin er, og þó er fjarlægð sólar- innar frá jörðunni ekkert smáræði,—svo sem 93,000,000 enskra mílna! Canopus gefur af sjer að minsta kosti 49,000 sinnum meira Ijós heldur en sólin, og ekki er nema eðlilegt að birta háns sje stórfeldari, þar sem hann er svo sem 2,400,000 sinnum stærri en sólin! »Þá er jeg þorfi á himininn, verk handa þinna, tungl- ið og stjörnurnar, er þú hefir skapað, — hvað er þá maðurinn þess að þú minnist hans og mannsins barn að þú vitjir þess?« (Sálm. 8. 4.-5.) í næsta blaði ætlum vjer að reyna að gera þessar háu tölur skiljanlegri. (Framhald.) i\thugasemdir ritstjórans Mjer er skylt að þakka Qtiði fyrir þær óskiljanlega hlýju viðtökur, sem margir lesendur blaðsins hafa veitt mjer, síðan jeg kom hingað aftur til landsins. Einnig þakka jeg hverjum einum, sem hefir skrifað mjer, fyrir vingjarnleg orð og loforð um hjálp við útbreiðslu blaðsins. Það lítur út fyrir, að blaðið nái töluvert meiri útbreiðslu þetta ár, heldur en áður. Sumir hafa greitt áskrifendagjald sitt fleiri mánuðum fyrirfram, og sum- ir jafnvel borgað fyrir fleiri ókomin ár! Þeir, sem ekki hafa þegar sent áskrifendagjald sitt, eru beðnir að hugsa til þess með nœsta pósti, því að blaði i á að borgast fyrirfram. Nú á þessum ófriðar- tímum er blaðaútgáfa svo mörgum erfiðleikum bundin, og kostnaður allur svo miklu meiri, að það er nauð- synlegt að lesendur sjeu skilvísir, helst undantekning- arlaust. Um leið og menn senda sína 60 au., er þeim ráðlagt að bæta 20 au. við til þess að kaupa nýút- komið rit, sem heitir »Jónas í kviði stórfiskjarins«, (Rannsóknarrít nr. 3, 10 au.), eftir ritstjórann, og nýtt veggspjald með mynd af Galíleu-vatninu (10 au.), sem verður sent með pósti strax við móttöku pöntunarinnar. Vinagjafir til „Norðurljóssins“: 10 kr. frá K. J., Hafnarfirði. 3 kr. 50 au. frá K. J., Skagafirði. 5 kr. frá G. A., A.-Skaftafellssýslu. Blaðið tjáir þessum vinum sitt besta þakklæti.

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.