Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1940, Qupperneq 6

Norðurljósið - 01.01.1940, Qupperneq 6
6 NORÐURLJÓSIÐ Molar frá borði Meistarans. (Greinir fyrir trúaða.) SAMBÆN. Sem betur fer eru bænasamkomur tíðari hjer á landi heldur en einu sinni var, þegar varla þótti sæma að flytja bæn opinberlega, nema það væri hempuklæddur maður, sem læsi bænina úr bók. „Sjá, hann hiðst fyrir,“ sagði Drottinn um Sál frá Tarsus, er hann tilkynti Ananíasi afturhvarf ofsóknarans. Og ætíð, þegar sál öðlast lífið í Guði, lærir hún að biðja. Á sömu leið fer, þegar andlega deyfðin fer að minka hjá trúuðum mönnum, — þeir fara að biðja saman, hafa samhæn. Um opinbert starf kristinna manna ritaði Páll postuli: „En alt fari fram sómasamlega og með reglu“ (I. Kor. 14. 40.), og þetta á við ekki síst um bænasamkomur. Þess vegna vil jeg víkja nokkrum orðum í Drottins nafni að þessu efni: sambæn. Fyrst og fremst verðum vjer að gera greinar- mun á einkahæn einstaklingsins, sem fer fram at eðlilegum ástæðum í einrúmi, og samhæn, sem er sameiginleg iðja lærisveina Krists í fjelagi. Per- sónuleg bæn 1 einrúmi er ómissandi hverri trúaðri sál; og sameiginleg bæn er líka ómissandi hverjum hóp lærisveina Krists, í hvaða augnamiði sem þeir hafa sameinað krafta sína. En mismunurinn á persónulegri bæn og sameiginlegri bæn er og hlýtur að vera mikill. Bæn einstaklingsins í ein- rúmi er auðvitað mjög persónuleg, hann talar við Drottin um öll einkamál sín. En þegar menn koma saman til þess að biðja sameiginlega, er nauðsynlegt, að hver, sem tekur þátt í heyranda hljóði, líti á bænarefnin, ekki frá sínu eigin per- sónulega sjónarmiði, heldur frá sameiginlegu sjón- armiði allra, til þess að um verulega sambæn geti verið að ræða. Á slíkum bænafundum eiga alis ekki að heyrast orðin „jeg“, „mig“, „mínir“ o. s. frv. Þau eiga vel við heima, en eiga ekkert erindi inn á sameiginlega bænasamkomu. „Vjer“ eða „við“ o. s. frv. eiga betur við, þar sem reynt er að koma fram fyrir Guð í samfjelagi (samanber bænina „Faðir vor“ og bæn frumsafnaðarins í Post. 4. 24,—30.). Sumir virðast eiga erfitt með að skilja þetta, og flytja bænir á opinberum bænafundum, sem mundu eiga vel við heima, þegar aðrir eru ekki viðstaddir, en lýsa mjög takmörkuðum skilningi á tilgangi sambænar. Maður getur varla varist þeirri tilhugsun, að slíkir menn hafi líklega van- rækt að biðja heima hjá sjer og sjeu nú að bæta úr því. Á bænasamkomum þurfa menn að læra að hugsa minna um sjálfa sig og sín eigin mál, og meira um sameiginleg mál meðbræðra sinna, sem þar eru samankomnir. Hjer er auðvitað ekki átt við sálgæslustarf, er syndum- eða sorgumhlaðin sál leitar hjálpar hjá einhverjum eldri og reyndari bróður eða systur í trúnni. Þá verða bænirnar auðvitað persónulegar. En á bænafundum eða við önnur opinber tæki- færi, þegar menn hafa sambæn, á ekkert að koma fram, nema bæn um sameiginleg mál, sem allir viðstaddir trúaðir menn geta sagt „Amen“ við og tekið hjartanlega undir. Fátt getur dregið úr áhrifum bænasamkomu eins og það, að nota bænina til þess, að segja við- stöddum það óbeinlínis, sem maður hefir ekki einurð til að segja þeim blátt áfram. Mun það' ekki vera Drotni viðurstygð, að menn noti bæn til hans sem nokkurs konar yfirhylmingu? Jeg hefi heyrt um eitt dæmi, þegar maður var beðinn, af sjerstökum ástæðum, að auglýsa ekki óviðkom- andi samkomu á fundinum; en hann átti að flytja bæn. í bæn sinni bað hann blessunar Drottins yf- ir samkomuna, sem hann tilgreindi, og „sem verö- ur haldin kl. 12 á hádegi á morgun“!! Vjer verð- um að hafa það hugfast, að það er hinn heilagi Drottinn og Guð vor, sem vjer ávörpum, sá, sem alt þekkir, og að við eigum að gera það í fullu samfjelagi og samúð við öll börn hans, sem þar eru samankomin. Ef menn flytja bæn í sameiningu, eiga allir aö geta heyrt hana, annars getur ekki verið um neina samhæn að ræða. Bænasamkoma kemur ekki í staðinn fyrir einkabæn, og ef maður eða kona getur ekki flutt bæn, svo að viðstaddir heyri, þá er sjálfsagt að þegja. Eins og postulinn segir: „Hvernig á sá, er skipar sess hins fáfróða, að segja amen við þakkargerð þinni, þar sem hann veit ekki, hvað þú ert að segja?“ (I. Kor. 14. 16.) Ef menn skilja ekki orðin, geta þeir ekki gert bænina að sinni bæn, og verður þá ekkert úr sam- bæninni í það skifti. Á bænasamkomu ættu allir að reyna að fylgjast vel með öllu, sem beðið er. Ef þeir geta ekki, í allri einlægni, samþykt það, sem flutt er í bæn,. þá leggja þeir það til hliðar í huga sínum. En ef þeir geta í einlægni samþykt það, eiga þeir að biðja hins sama í hjarta sínu og segja amen við' því. Þannig gerum vjer bænir annarra að vorum bænum, sem er tilgangur bænafundarins. Vjer eigum að hafa hugföst orð Drottins Jesú um bænina: „Er þjer biðjist fyrir, þá viðhafið ekki ónytjumælgi, eins og heiðingjarnir, því að þeir hyggja, að þeir munu verða bænheyrðir fyrir mælgi sína. Líkist því ekki þeim.“ (Matt. 6. 7.—8.)1 I 6. versi ávarpar Drottinn einstaklinginn, („Þeg- ar þú biðst fyrir, þá gakk inn í herbergi þitt“,) i eintölu. En í 7. og 8. versi á hann vafalaust sjer- staklega við hópbæn, því að hann notar þar fleir- töluna, — „Er þjer biðjist fyrir“. Bæði í persónu- legum bænum og í sambæn er það á móti vilja Drottins, að vjer notum sömu setningarnar aftur og aftur. Ef vjer gerum það, sýnir það, að hugur fylgir ekki máli, að vjer látum tunguna hlaupa á undan hugsuninni. Ekkert spillir eins mikið' fyrir bænasamkomum eins og þessi óvani. Tökum til alvarlegrar íhugunar orð Prjedikarans: „Vertu ekki of munnhvatur, og hjarta þitt hraði sjer ekki að mæla orð frammi fyrir Guði, því að Guð er á himnum, en þú á jörðu; ver því eigi margorður.“ (Prjed. 5. 1.). Það er því langt um betra, bæði fyrir Guði og,

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.