Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1952, Page 8

Norðurljósið - 01.01.1952, Page 8
8 NORÐURL JOSIÐ Um „Siðareglurnar“ enn. Mjer þykir leitt að eyða tíma mínum, rúmi blaðsins og þolinmæði lesenda til að ræða meira um Siðareglurnar við ritstj. „Dagrenningar.“ Verð jeg þó að svara fyrir- spurn hans. Samt leyfi jeg mjer fyrst að taka upp úr Dagr. 34. tbl. f. á., bls. 39, þessi orð: „Ritstjóri Dagrenningar hefir hins vegar haldið því fram, að Siðareglumar séu samsærisáætlun alheims- félagsskapar, sem vinni að því að siðspilla mannkyninu og stofna þrælaríki á jörðinni, og að hið eina, sem virðist rangt, sé að kenna ritið við Gyðinga.11 Hr. J. G. hefir ekki sjeð það, er hann las greinir mínar báðar, að jeg kalla Siðareglurnar falsrit á þeim grund- velli einum, að þær eru ranglegar eignaðar Gyðingum. Þó að jeg dragi í efa tilveru þessa alheims-samsæris, neita jeg því ekki, að það geti verið til. Hinu hefi jeg neit- að og neita enn, að ritið sje gerðabók frá leynifundum öldunga Gyðinga í Basel árið 1897, eins og Nilus prófessor hjelt fram, er hann gaf það út. Ritið er falsrit, af því að það er ekki eftir Gyðinga nje ætlað þeim. J. G. segir hið sama sjálfur í 1. tbl. Dagr. 1951, bls. 29: „Siðareglur Zíonsöldunga eru því áreiðanlega ekki skrifaðar af Gyð- ingum nje þeim ætlaðar, þótt nafni þeirra sje stolið og það notað sem skjöldur fyrir þau samsærissamtök, sem þar er lýst.“ Manni er ranglega eignað brjef, þá er það falsbrjef. Maður falsar víxil, þá er það víxilfölsun, víxillinn falsvíx- ill. Maður eða menn falsa bók, þá er það ritfölsun og ritið falsrit. Nafni Gyðinga er stolið og þeim eignaðar Siðaregl- urnar, segir J. G. Þess vegna eru þær falsrit. Þetta hlýtur J. G. að skilja, eins gáfaður maður og hann er sagður. J. G. segir: „Þegar ég tala um Gyðinga, á ég ekki við þessa Austurlanda Gyðinga, heldur eingöngu við þá Gyð- inga, sem eru af Júdaættkvísl — eru ísraelsmenn, því að það eru þeir Gyðingar og þeir einir, sem Biblían nefnir því nafni.“ Hvað J. G. á við með nafninu Gyðingar, hygg jeg, að heimurinn láti sig litlu skipta. Mönnum, sem um allan heim, ganga undir nafninu Gyðingar, hefir verið eignað þetta rit. Fyrir það hafa þeir verið ofsóttir og líflátnir, í Rússlandi fyrst og síðan í Þýskalandi. Nú kemur að spumingu J. G. Hún er þessi: „Mundi S. G. J. kalla Biblíuna falsrit, ef einhver gæfi hana út og nefndi hana t. d. íslendingabók, en breytti henni ekki að öðru leyti?“ Ef Jónas Guðmundsson skipti um nafn án þess að til- kynna það og ljeti alla halda, að hann væri annar maður en hann er, þá mundu menn segja, að hann gengi undir fölsku nafni. Biblían sjálf hjeti fölsku nafni, væri hún kölluð íslendingabók. Og mundi ekki J. G. sjálfur kalla hana falsrit, ef öllu því, sem hún segir um fsraelsmenn, væri snúið við og það heimfært til Islendinga? Þannig er ástatt með Siðareglumar. Þær ganga fyrst og fremst und- ir flösku nafni frá Nilusar hendi, og auk þess er innihald- ið falsað, þar sem samsærissamtökin segja, að þeirra eigið samsæri sje Gyðinga verk. Ef J. G. sjer ekki, að slíkt er fals, þá neyðist jeg til að spyrja: „Hvar er dómgreind mannsins og siðferðisvitund?“ „Siðareglumar“ urðu ekki falsrit við það, að J. G. gaf ritið út og breytti nafni þess, heldur hefir það siglt undir fölsku flaggi, síðan Nilus gaf það út undir fölsku nafni og kendi það ranglega Gyðingum. Það getur verið sannorð lýsing á fyrirætlunum sam- særissamtaka, eins og J. G. heldur fram. Jeg fullyrði ekkert um það. Hitt fullyrði jeg, eins og J. G. sjálfur, að Siðareglumar sjeu „áreiðanlega ekki skrifaðar af Gyð- ingum nje þeim ætlaðar, þótt nafni Gyðinga sje stolið.“ Sæmundur G. Jóhannesson. TIL LESENDA BLAÐSINS. Heimkoma ritstjórans hefir nokkuð dregist, og hefir hann dvalið lengur í Bretlandi en vonir okkar hjer heima stóðu til. Hann hefir á undanförnum áratugum skrifað bækur á ensku, sem náð hafa mikilli útbreiðslu og dreifst um allan heim. Nú var enn þörf á nýrri útgáfu þeirra, og hefir hann dvalið ytra og unnið að henni. Hann er nú, ef Guð lofar, væntanlegur heim til íslands með „Gullfossi11 í byrjun marsmánaðar. Heilsa þeirra hjóna beggja var góð, þegar síðast frjettist af þeim. VERÐHÆKKUN BLAÐSINS. Það var tilkynt í síðasta blaði, að ritstj. neyddist til að hækka verð blaðsins í 10 kr. vegna stóraukins útgáfu- kostnaðar. í því sambandi vill hann gera fátækum kaup- endum nokkra ívilnun. Þeir, sem efnahags síns vegna sjá sjer ekki fært að greiða 10 kr., mega í stað þess borga blaðið með 7 kr. FERÐASAGA RITSTJÓRANS. Gert var ráð fyrir því í síðasta blaði, að ferðasaga ritstj. mundi byrja í þessum árgangi. En ekki gat hún byrjað í þessu blaði. Lesendur eru beðnir að afsaka þessi von- brigði. Sumir hafa spurt, hvort ritstj. mundi ekki skrifa ferða- bók, sem yrði gefin út með myndum. Þetta mun verða at- hugað. Enginn vafi leikur á því, að slíka bók mundu fjöl- margir vilja kaupa, ef verðið væri viðráðanlegt. Því mið- ur gerast bækur nú dýrar mjög. Gaman væri samt að heyra, hvað lesendur „Nlj.“ segja um þessa hugmynd. Hjer má geta þess, að ritstj. hefir viðað að sjer margvís- legu efni í blaðið, sem vafalaust veitir lesendum bæði gagn og ánægju. S. G. J. VINAGJAFIR TIL BLAÐSINS. Enn sem fyrri vilja margir styrkja útgáfu „Nlj.“ Meðal þeirra eru: Akranes: Á. Þ. 20.00; G. J. 20.00. Akureyri: í. O. 20.00; S. J. 35.00; S. M. 30.00. A.-Barð.: H. G. 20.00 (áheit). Eyjafj.: F. S. 10.00; M. J. 12.00; Þ. H. 7.00. S.-MúL: E. G. 20.00; G. A. 42.00; S. S. 50.00 (Áheit.) Rang.: A. J. 30.25; S. G. 100.00. Reykjavík: Á. J. 50.00; E. Á. 100.00; H. C. 15.00; Ó. K. 90.00; Ónefnd 100.00; Ónefndur 50.00; S. J. 20.00; S. S. 15.00. A.-Skaft.: B. B. 55.00. Vestm.eyjar: E. G. 10.00. Fyrir ritstjórans hönd færi jeg innilegustu þakkir öll- um þessum vinum og öðrum velunnurum blaðsis, er sent hafa smærri gjafir. Guð blessi ykkur samkvæmt fyrirheiti sínu í Fil. 4. 19. Einnig þakka jeg útsölumönnum óeigin- gjarnt samstarf og skilvísum kaupendum skilsemi þeirra. ________________________________________S. G. J. NORÐURLJÓSIÐ kemur út annan hvorn mánuð, 48 blaðsíður á ári. Árgangurinn kostar 10 kr. og greiðist fyr- irfram. Verð í Vesturheimi: 50 cents. Ritstjóri og útgefandi: Arthur Gook, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f. — Akureyri

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.