Heimskringla - 06.10.1887, Qupperneq 1
1. ar
Winnipeg, Man. O. Oktoberj 1887.
Nr. 4 1
ALMENNAR FRJETTIR,
Frá l^tlöndnin.
ÍRLAND. Málinu gegn O’Brien,
út af æsandi ræðum, er lokið. Sakir
voru bornar á hann í 2 deildum og
var hann, sem auðvitað var, fundinn
sekur í hvortveggja greininni, og
dæmdur 1 3 mánaða einfalt fangelsi
fyrir hvort brot, 6 mán. fangelsi
alls.—Að dómi föllnum auglýsti
hann nndireins að hann vísaði málinu
til hærri rjettar, og keypti sig laus-
ann að pví búnu.—Síðan hefur hann
komið pvi í knng, að fundir verða
haldnir svo víða sem mögulegt er
um 'írland á hverjum sunnudegi.
sjálfur ætlaði hann að hafa heilmikin
og fjölmennan fund á sunnudaginn
var.
FRAKKI.AND. Einlægt kemur
eitthvað fyrir til að sundra öllu pol
anlegu samkomulagi milli Frakka
og Þjóðverja. Það var allt í bezta
gæti um daginn, að svo miklu leyti
sem ]>að getur verið, pegar Schnae-
beles yngri tókzt í fang að reyta
Þjóðverjann til reiði, og sem hon-
um líka tókzt, pó hann með pvl
týndi frelsinu um leið. Frökkum
náttúrlega mislíkaði að strákhnokk-
inn skyldi vera keyrður 1 fangelsi,
pó hann i vitleysu festi upp nokkra
miða fram með pjóðveginum norð
an við landamærin. En pó var nú
ekkert gert i pessu máli og var pað
um pað hjaðnað niður, pegar nýr
atburður varð á landamærunum, er
dreif blóðið dil höfuðsins á hverjum
um einasta föðurlandsvin á öllu
Frakklandi. Þessi atburður var sá,
að franskur undirherforingi var
skotinn á landamærunum og maður
sem með honum var, var skotinn til
dauðs, af pýzkum manni, eða mönn
um, er voru bak við skógarrunna,
um 40 faðma frá landamærunum.
Sem nærri má geta orsakaði petta
stórmiklar æsingar, og er ekki að
vita hvern enda pað hefði haft, ef
frönsku blöðin—sem undrum pótti
gegna—hefðu ekki gert sitt til að
stilla til friðar, gera ráð fyrir að
skotin hefðu verið óviljaverk o. s.
frv. Sá, sem skaut, hjet Kaufman,
og var lögreglupjónn við landa-
mærin, til að varna mönnum frá að
skjóta dýr og fugla á privat-land-
eign, og par sem hinir frönsku
menn báru byssur og skotfæri, voru
komnir yfir landamærin inn á Þýzka
land, en voru ekki 1 einkennisbún-
ingi, pá hjelt lSgreglupjónninn að
peir væru veiðipjófar.—Þetta mál
•r nú um pað bil dottið niður apt-
ur, sem bæði er blöðunum og stjórn
unum að pakka, er virðast brúka
alla tilhliðrunarsemi. Stjórn Þjóð-
verja kunngerði Frakklandsstjórn
undir eins að hún ætlaði að gjalda
fullar mannbætur og pað áður en
málið yrði rannsakað.
BÚLGARÍA. ]>ar er nú verið
að stofna til nýrra kosninga. t>ykir
ekki annað ráðlegt en nýtt kjör-
ping komi saman og kjósi stjórnara.
I’erdinand prinz kvað vera hálf-
hr«ddur um að Rússar verði yfir-
8t®rkari í perri orustu, og álítur pess
Vegna ekki vanpörf á að minna al-
menning á orðin: uVerið föður-
fö^urlandsvinir, og elskið mig”, sem
liann sagQ; lýðinn um daginn
pegar hann var kallaður út á lopt-
svalirnar fyrir hallargluggunum til
að flytja ræðu. Rússakeisari hefur
að sögn stungig upp á Valdimar
prinz úr I )anmörku I annað skipti
sem stjórnara í BúlgarSu. Má vera
að erindi hans um daginn til Khafn-
ar hafi með fram verið til að telja
um fyrir Kristjáni konungi og fá
sampykki hans. Kr mælt að Vil-
hjálmur Þýzkalandskeisari hafi feng-
ið boð frá Rússakeisara 1 pá átt, að
ef hann vildi mæla með Valdimar,
pá skyldi ekki lengi dragast að fund
um peirra bæri saman.
ÍTALÍA. Til minningar um
50 ára prestsskap sinn Ijet páfinn
fyrir skömmu slá minnispening og
stóð á peim annars vegar: Papa
Leon XIII., Pontifix et Iiex'\
t>etta poldi stjórn ítala ekki, vildi
ekki heyra að hann væri konungur
nje leyfði sjer að halda peim titli
enn, og ljet pví lögreglunaf Róma-
borg taka lögtaki allt upplagið af
minnispeningunum. Þykir petta til
tæki lítilfjörlegt af voldugri stjórn.
INDLAND. Indverzkur prinz
I einu af norðvesturhjeruðum Ind-
lands hefur sent stjórn Englands
brjef, ]>ar sem hann býður að gefa
£400,000 til tryggingar víggirðing-
um á norður landamærunum. Hann
óttast áhlaup frá Rússum.
f f
F r a A «n e r 1 k u.
Itan<li-/ikiii.
Bandaríkjastjórn sá sjer ekki
annað fært en verða við áskorun
New York-búa um daginn um aðaf-
stýragjaldprotum fyrir peningaleysi.
Hún brást við og hefur síðan inn-
leyst 10 milj. doll. virði af skulda-
brjefum.-—Uin lok síðastl. mán. voru
nærri 600 milj. dollars geymdar í
fjárhirzlunni I Washington, svo ekki
er að kynja pó vart verði við pen-
inga eklu út um ríkið.
Stjórnin hefur um pað bil lokið
nýjum samningum um póstflutning
við Westlndia eyjamar, viðMexico
og Mið-Amerfku ríkin. Þyngsti
böggull , sem fluttur verður með
pósti milli pessara ríkja, er 11 pund
og ekki má hann vera meira en 2
feta langur.
Forsetinn hefur boðið Wm. L.
Putnam frá Maine, og James B.
Angell frá Michigan, að vera með-
ráðendur Bayards utanrfkisstjóra
við að ræða og útkljá fiskiveiðamálið
með nefnd keirri er Bretar setja f
pað embætti. Báðir pessir menn
hafa pegið boðið. Þannig er pá
fengin vissa um að stjórnin ætlar að
pýðast boð Breta um nýja samninga.
Indíána agentinn f Colorado
hefur kunngert stjórninni að f sum-
ar hafi hermannaflokkur í Colorado
rofið samninga við Indíána, er hann
(agentinn) hafði gert degi áður, og
segir að mál verði lagt fyrir ping í
vetur pegar hann leggi fram sfnar
venjulegu skýrslur.—Málinu er pann-
ig varið að Indíánaflokkur f Colorado
yfirgaf heimkynni sín par, og ætlaði
til Utah. Agentinn fann flokkinn á
ferðinni, Og fjekk fullvissu um aí
stjórnin mætti gera hvað hún vildi
við iand peirra í Colorado, peir
flyttu ekki pangað aptur. Þegar
agentinn fjekk pessa fullvissu gerði
hann sainninga við flokksforingjann
samkvæmt pessu loforði. En morg-
uninn eptir áður en Indfánar voru
klæddir rjeðist á pá flokkur af her-
mönnum, er drápu einn mann, 2
stúlkur og eitt barn, og hafði ábrott
með sjer allan kvikfjenati og allt
góz Indíána.
Whitney sjóflotastjóri var um
daginn viðstaddur pegar reynd var
ein dynamite skotvjelin, sem hann
hefur til pessa ekki trúað að gæti
orðið til gagns. Byssan var á landi
og var miðað á tóman skipskrokk, er
lá við stjóra æðilangt undan landi.
Skotið reið af, skipið hófst hátt f
lopt upp og pegar pað kom niður
aptur var ekki heill partur í pví, og
ekki sjáanlegt hvar pað hafði legið
áður. Hann kvaðst ekki framar efa,
að petta sje einar hinar beztu byssur
til landvarnar, er enn hafa verið
fundnar upp.
Stjórnin hefur fengið tilkynn-
ing um að eitt af herskipum hennar
við Alaska hafi nj'lega komið til
Sitka, höfuðstaðarins, með heilmik-
inn hóp af Canadiskum og enskum
sela og hvalaveiðaskipum, er tekin
voru föst f Behringssundi.
Allsherjar demókrata stefna var
haldin í Saratoga, New York í sfð-
astl. viku til að raða niður verkum
o. s. frv. fyrir kosningarnar til rfkis-
stjórnar, sem fara fram f New York
ríki hinn 8. nóvember næstkomandi.
I>ann dag fara og fram kosningar til
ríkíspinga í pessum 5 ríkjum:
Maryland, Massachusetts, Ohio, Penn-
sylvania og Iowa.
Þessi skemmtiferð Clevelands
forseta sem nú steudur yfir, kostar
hann í pað minnsta 10,000 dollars
eða einn fimmta af árslaununum.
Áður en hann lagði af stað var getið
til að hann mundi brjóta flutninga-
lögin með pvf að fara ókeypis eptir
brautunum fram og aptur, en pað
varð ekki tilfellið. Hann leigði sjer
albúna járnbrautarlest, er sainan
stendur af gufuvagni, bögglavagni
vistavagni og tveimur skrautvögn-
um til íbúðar, og borgar svo fullt
gjald fyrir leyfið til að renna lest-
inni yfir brautirnar. Með pessari
lest fer hann alls um 4,500 mflur
eptir járnbrautum.
Astu-Jcólera l AmerUcu. Loks-
íns er pessi vogestur komiun til
landsins og er ómögulegt að segja
hvert stemmdur verður stigur fyrir
honum, en sem nærri má geta
verður pað reynt. Sóttin kom
með gufuskipinu Alesia, er kom
upprunalega frá Naples á Ítalíu, pó
pað kæmi við á leiðinni bæði á
Portugal og á Frakklandi. Þaðlagíi
af stað frá Naples 3. sept., pegar
sóttin geysaði par allskæð, og kom
svo við f Palermo á Sikiley, par sem
veikin var pó enn skæðari, og kom
til New York 24. s. m. Með pvf
komu um 570 farpegjar, er fengu
auðvitað ekki landgöngu, heldur
voru teknir ásamt skipverjum, 45
talsins, til sjúkrahúsi á Hoffmans-
eyju utarlega á höfninni. Á sjó-
ferðinni höfðu 8 manns dáið úr veik-
inni og pegar skipið kom á höfnina
f New York voru 8 veikir, er allir
voru fluttir á sóttvarnar-sjúkrahúsið á
Swinburnseyju við höfnina utanverða
og hafa tveir peirra dáið sfðan.
Skipið sjálft, sem er fermt almenn-
um varningi, var sett fast og fæst
ekkert af varninginum út fyrri
en búið er að láta hann gegn
um ganga brennisteins svælu.
Læknar eru ekki svo hræddir um
að sóttin út breiðist f haust eða vet-
ur vegna hinnar köldu tíðar, en peir
óttast að næstkoinandi vor gjósi hún
upp, ekki kannske nauðsynlega pó
hún bærist til laiulsins með pessu
skipi, af pvf hvað eina sem á land
fer af pví verður svo vandlega reykt,
heldur óttast peir að ferðamenn frá
Amerfku, sem aldrei hafa verið fleiri
f Norðurálfu en í sumar, flytji hana
með sjer f niðurpökkuðum klæðum,
er vanalega eru ekki tekin upp fyrri
en vorið er komið. Og fjöldi af
pessum ferðamönnum koma beint
frá Ítalíu, með ógrynni af silki og
klæðnaði er peir kaupa par.
Konur anarchistanna í Chicago
kváðu hafa heitstrengt að fyrirfara
börnum sínum og sjer sjálfum sama
klukkutfmann og menn peirra verða
teknir af, ef af pvf verður. Nokkrir
trúa, að pær standi við orð sín, pó
fleiri ætli að pær geri petta til að
ógna stjórninni, í peirri von að
mönnunum verði gefið líf.
Skipverjar á landvarnarskipum
Bandarfkja, sem f sumar hafa verið
norður við Alaskastrendur, hafa ný-
lega bjargað manni frá Indíánum,
norðaustarlega f Alaska, er par hef-
ur setið rúm 2 ár. Var hann sá
eini af skipverjum á hval-
fangara skipinu Napoleon, er fórst
par nyrðra snemma um sumarið
1885. Hafði hann verið nærri
dauður pegar Indíánar fundu hann
á ströndinni.
Það er sagt að Northern Pac-
ific og Wisconsin Central brautirnar
sje um pað bil sameinaðar undir
eina stjórn, að pvf er áhrærir flutn-
ing frá hafi til hafs að minnsta kosti.
Með pví fær Northern Pacificfjel.
tækifæri til að keppa við önnur
vestur brautarfjel. frá Chicago.—
Jafnsnemtna kemur og sú fregn að
St. Paul Minneapolis & Manitoba f jel.
sje um pað bil að sameina sig
Burlington & Northernbrautinni,
einnig f pví augnamiði að ná til
Chicago og geta keppt við vestur
brautirnar paðan.
Auðmaður, J. D. Spreckles
að nafni, í California er að brjótast
í að koma upp gufuskipafjelagi milli
San Diego f California og Sidney f
Ástralíu, er fari hverja leiðina á
24—25 sólarhringum. Jafnframt er
hann og að semja við Topeka & Santa
Fe-járnbrautina um flutning á pósti
og farpegjum, f sambandi við lín-
una, frá San Diego til New York á
4 sólarhringum.
Eitt stórfjelagið enn er að
myndast f Bandaríkjum, I>etta síð-
asta er saltverzlunarfjelag og verða
aðal stöðvar pess í Pittsburgh, Penn-
sylvania. í petta fjelag eru nú
gengin 63 smærri f jelög. Tilgangur
pessa eins og annara sameinaðra fje-
laga er, aS viðhalda jöfnum prfs hjá
öllum verzlunarinönnunum.
Á Montana pinginu var f vor
er leið sampykkt að leggja 5 cents
til höfuðs hverjum fkorna, og 10
cts. til höfuðs hverjum sljettu hundi
(Prairie Dog), er banað yrði. Um
ágústmánaðarlokin var stjórnin búin
að gjalda fyrir 698,971 íkorna og
153,769 sljettu hunda, er til samans
nam $ 50,000. Þá var fjárhirslan
tóm, pingið var kallað saman og
eptir að hafa rifist um petta vand-
ræðamál í 3 vikur var sampykkt að
nema úr gildi pessi lög frá f vor er
leið. Var pá pingi slitið.
í Tennessee-ríkinu stendur nú
yfir atkvæðagreiðsla um pað hvort
afnumin skuli vínsala eða ekki.
Eptir öllum horfum verða bindindis-
menn undir.
Eins og spáð var fyrir nokkru
komst Henry Villard fljótt í stjórn
Northern Pacificfjelagsins. Hann
var kosinn einn af stjórnendum pess,
núna uin daginn.
Canada.
Hingað til hafa búendur hinna
ýmsu sveita eða bæja í Canada get
aö beðið um og fengið numin úr
gildi Scott-vínsölulögin, á hvaða
tíma sem peim hefur póknast, í
sumum tilfellum máske að eins 1
til 2 mánuðum eptir að lögin öðl-
uðust gildi í pvf og pví byggðar-
lagi. En framvegis fæst petta ekki
í síðustu útgáfu stjórnartíðindanna
var auglýst, að samkvæmt lögunum
áhrærandi Scottlögin yrðu pq.u ekki
—par sem einu sinni viðtekin—num
in úr gildi aptur fyr en í fyrsta
lagi 15 dögum áður en 3 ár eru
liðin frá pví pau öðluðust gíldi.
—í sambandslögunum áhrærandi
Scottlögin er sem sje tiltekið, að
par sem pau eru viðtekin skuli pau
vera í gildi um 3 ár, pó pvf hafi
aldrei verið framfylgt til pessa. Lög-
in verða ekki numin úr gildi nema
með pví að atkvæðagreiðsla í sveit-
um fari fram‘ en um leyfi til pess
f pessu efni verður að sækja til
sambandsstjórnar.
Verzlun Canadamanna við út-
lönd í síðastl. ágústmán. nam alls
$19,781,680; er pað nálægt 1 milj.
meira en í fyrra. Af pessu nam
útfluttur varningur $10,012,107 og
innfluttur $9,769,583. Af pessum
varningi var borgað f toll $1,988
709, er að meðaltali gerir nálægt
10 af hundraði.
Stjórnin hefur ákvarðað að
framvegis skuli herliðið ekki brúka
önnur skotfæri en pau, sem tilbú-
in eru f Canada. Til pessa hafa
kúlna og hagla smiðjurnar ekki
haft undan að búa til skotfæri, en
nú er svo komið að meir er búið
til en parf að brúka innanríkis.
Loksins er fastákveðinn fund-
ardagur fyrir æðstu ráðherra hinna
ýmsu fylkja. Þeir Mercier og Mo-
wat komu sjer saman um pað í vik
unni sem leið, að fundurinn skyldi
settur í Quebec á fimtudaginn 20.
p. m. Á pennan fund hefur verið
boðið öllum æðstu ráðherrum f fylk-
ísstjórnunum, pó f fyrstu væri ætl-
ast til að ekki væri par nema ráð-
herrar peirra fylkja, er fyrst gengu
f sambandið. Sambandsstjórninni
hefur og verið boðið að senda pang
að fulltrúa, til að halda f.-ain hlið
sambandsstjórnarinnar á málinu.
Kosningar til sambandspings
fóru fram f Charlewoix-hjeraði í Que-
bec í vikunni sem leið og unnu
Conservatives.
í Quebec stóðu til fjölda mörg
mútu mál gegn pingmönnum, sem
kosnir voru í vetur er leið bæði á
sambands og fylkisping. En nú um
daginn pegar leið að pví að málin
yrðu hafin komu málspartar í flestum
ef ekki öllum tilfellunum, sjer sam-
um um að sleppa allri málsóknum.
I>ar hefur eitthvað pótt gruggugt.
í sumar er leið hefur 90 milj.
ungra fiska, frá fiskiklaksstöðum
sambandsstjórnarinnar, verið sleppt
í stórvötnin ein, í Ontario.
Stórkostlegir skógareldrr eru
aptur farnir að geysa um Ontario
fylkið austanvert. Er eldurinn einna
grófastur, sem stendur, um hverfis
Ottawa og paðan suðaustur til King-
ston. Fjöldi bænda hefur mist al-
eigu sína.
Nálejra 100 familfur urðu hús-
viltar um daginn f Graver.hurst og
hafa nú ekkert nema gjafa fje á að
lifa. Eignatjónið við brunann varð
um £ miljón dollars.
Tek j ur Kyrrahafsbrautarfjelags-
ins fyrir 8 mánuðina, sem af voru
pessu ári við lok síðastl. ágústmán-
aðar voru $6,842,262, par af gengu
í kostnað $5,122,326,. svo hreinn á-
góði varð $1,718,936. Fyrir ágúst-
mánuð, sjerstakan, voru tekjurnar
$1,055,170 og útgjöldin $668,758.—
Grunnmúrinn fyrir hið mikla og
skrautlega vagnstöðvahús pess í
Montreal er nú fullgerður og vegg-
hleðslan um pað byrjuð. Grunn-
kaupunum fyrir brautina gegn um
bæinn að hinu nýja vagnstöðvahúsi
er nú líka lokið, en undan mátti fjel.
láta og gjalda feiknn verð fyrir
landið.
(Framhald á fjórtfu síðu).