Heimskringla - 21.04.1894, Side 1
VIII. AR.
NR. 16.
WINNIPEG, MAN., 21. APRÍL 1894.
LÍFSÁB YRG ÐABFÉLAG.
Aðalból - - Winnipeg - - Manitoba.
J. H. BROCK FORSTÖBUMAÐUR.
Uppborgaður höfuðstóll.....$ 100.000
Varasjóður................. S 54.200
Lífsábyrgð í gildi við lok
fyrsta ársins.......... $2.208.000
Lífsábyrgð veitt með hvaða helzt
nýmóðins fyrirkomulagi sem vill.
Kaupið ábyrgð í The Great West
og tryggið yður á þann veg þann
hagnað, er háir vextir af peningum fé-
lagsins veita.
Þetta, fjelay dregur ekki Jje burt úr
fylkiuu.
verja í Afríku. * Segir svo, að þýsku
hermennirnir og yfirmennirnir skalperi
svertingjana og jafnvel flái þá lifandi.
Meðferð kvenna er þar óhæf til frá-
sagna.
Innbyrðis stríð steudur yfir á
Samoa-eyjunum.
2000 fulltrúar bænda koma saman
á fundi í Rómaborg til að ræða um
þarfir bænda, er akuryrkju stunda.
Er tilgangurinn að sögn að biðja stjórn-
ina að hækka tollinn á aðfluttum
korntegundum.
Sagt er að nokkrir efrideildar-
þingmenn f Washington séu með þvi
að göngumönnum Coxey’s sé veitt á-
heyrn og máli þeirra gefinn gaumur.
Háskólakennari, Jesse Macy, í
Grinnell, Iowa, situr við að semja
stjórnarskrá fyrir væntanlega lýðveld-
ið Hawaii. Bráðabyrgðarstjórnin á
evjunum bað hann þess.
K. S. Thördarson - - agent.
457 Main Str., Winnipeg.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
LAUGARDAG 14. APR.
Samkvæmt skipun formanna fé-
lagsins eiga allir námamenn i Banda-
ríkjunum að leggja niður verk í kveld
(21. Apr.) og taka ekki til vinnu aft-
ur fyr en kaupið verður hækkað, sam-
kvæmt væntanlegum kröfum.
28 ný herskip hefir stjórn Breta
trygt sér með því, að borga eigend-
unum umsamda upphæð á ári hverju,
til þess skipin sé tilbúin fyrir vopna-
búning hvenær sem á þarf að halda.
Skip C. P. R. félagsins á Kyrrahafi eru
í þessum hóp.
Páfinn vill sameina kaþólsku deild-
irnar báðar, Grísk- og Rómversk-ka-
þólsku. Hefir nú í undirbúningi ávarp
mikið til sinna trúföstu meðhjálpara,
þar sem liann biður þá að vinna að
þessu velferðarmáh af öllum kröftum.
Commercial Cable-félagið er bjTjað
að leggja nýan þráð (þann þriðja sem
það það á) yfir Attlantshaf.
Frumvarp til nýrra kosningarlaga
á Englandi var lagt fyrirBreska þing-
ið í gær. Samkvæmt því fjölga kjós-
endur svo nemur 700.000. í því er og
ákveðið að allar almennar kosningar
fari fram á einum degi.
David Dudley Field, nafntogaður
lögfræðingur í New York, lézt úr
lungnabólgu í gær, 89 ára gamall. Hann
var eldri bróðir Cyrus Fields, er fyrstur
fann upp á að leggja málþráð yfir
Atlantshaf.
Framvegis eiga allir þingforsetar
hvort heldur á sambands eða fylkis-
þingi, titilinn “Honorable” alla sína
æfi, svo framarlega sem þeir hafa gegnt
forsetastarfinu í 3 ár.
Bandaríkjastjórn hefir skipað erind-
rekum sínum á Þýzkalandi að rann-
saka grandgæfilega, hvort rétt sé, að
í)ar séu nú unnin klæði, er byssuskot
vinni ekki á, og ef þau séu til, þá
úr hvaða efni gerð o. s. frv.
AUir vinnumenn Great Northern
félagsins á þeirri deild brautarinnar,
er Montana Central heitir, hættu vinnu
> gærkveldi og heimta hærra kaup,—
Síðan hefir vinnustöðvanin út breiðst
Þangað til allir flutningar eru bann-
aðir á Great Nortliern brautinni- Þykir
mögulegt að vinnumönnum Northern
Pacific félagsins verði einnig skipað
að leggja niður verk. — Forstöðunefnd
hins sameinaða félags járnbrautar-
manna I Norður-Ameriku (Canada
meðtalið) ræður þessu verkfalli.
MÁNUDAG 16. APR.
ÞRIÐJUDAG 17. APR.
I ársskýrslu sinni gerir fjármála-
stjóri Breta ráð fyrir að öll gjöld
stjórnarinnar á næsta fjárhagsári verði
$177 milj., en tekjurnar $24 milj. minni.
Gerir hann því ráð fyrir að hækka
tekjuslcattinn um 1 penny á hverju
pundi sterl., en þó eru undanþágur
svo útbúnar, að skatthækkunarinnar
gætir ekki fyr en tekjurnar eru meiri
en 500 pd. st. á ári. Erfðaf járskattur
verður einnig aukinn, og fer smáhækk-
andi eftir auðmagninu; verður minst
1% (á erfðafé Sem ekki er jTfir $2.500
að upphæð) en 8% hæzt (á $5 milj.
eða þar yfir). Toll á áfengisdrykkjum
öllum á og að' hækka.
Itíkisþing þjóðverja hefirnumiðúr
gildi lög sem bönnuðu Jesúítum að-
setur í Þýzkalandi.
Nýlátinn er í Ottawa Dr. Tache.
bróðir erkibiskupsins í St. Boniface,
Man., 74 ára gamall.
Þriðja í röðinni að tekjumagni, í
Canada, er pósthúsið í Winnipeg, segja
skýrslur sambandsstjórnarinnar. Tor-
onto pósthúsið er tekjuhæst, tekjur
þess á árinu alls $394,168,41, þá Mon-
treal, tekjurnar $342,874,67, þá Winni-
peg, tekjurnar $93,211,56. í fyrra var
Winnipeg 4. í röðinni.
Ástralíu-stjórn ákveður að lána
bændum peninga, sem liggia á spari-
bönkum í ábjTgð stjórnarinnar, gegn
5% afgjaldi. Gerir stjórnin þetta af því
peningastofnanir allar í Ástralíu heimta
svo óhóflega vöxtu, er sérstaklega til-
finnanlegt er nú í harðærinu.
Bólusóttin er að sögn að útbreið-
ast í Chicago. Bæjarstjórnin bj'rjaði
í dag að rannsaka hvert einasta hús
í þeim hluta borgarinnar er sóttin kom
upp i, í því skyni að fregna fjTÍr vissu,
hvað útbreidd sýkin er.
Manitoba f jdkis-þingtnál blönduðust
inn i ræður á sambandsþinginu í Ottawa
í gærkveldi. Var það ræða á fylkis-
þinginu í vetur, eftir James Fisher,
sem siterað var í. En ræða Fishers
gekk út á að sjTna að Marteinn krummi,
núverapdi fulltrúi Winnipegmanna á
sambandsþinginu, hefði hafið skóla-
málsdeiluna, eftir að hafa lofað þvi
hátíðlega í nafni "liberal”-flokksins, að
ekkert skjldi luej'ft við skólafyrir-
komulaginu.
Ráðagerð sambandsstjórnarinnar,
að leggja 10% toll á te þegar það er
leypt annarstaðar en i löndum sem
það er rajttað í, er óþoltkasæl mjög
á Englandi, og er likast að fjTÍrhug-
uðu fyrirkomulagi verði breytt.
MIÐVIKUDAG, 18. APRÍL.
Rússar vilja ekki fækka hermönn-
unum, segir fregn frá Parísarborg. Að
fengnu leyfi Austurríkiskeisara og íta-
líukonungs haföi Vilhjálmur Þýzka-
lands keisari ritað Rússakeisara og ósk-
að eftir að hann kallaði saman stór-
veldafund til að ræða um og gera ráð-
stafanir til að fækka hermöunum al-
Brasilíu-uppreistin er enduð ; svo
^Sja hraðskeyti frá Brasilíu, en greini-
legar fregnir eru enn ckki komnar.
Segir sagan, að Mello aðmíráll hafi
gengið af skipum sínum og með hon-
um 1500 hermenn, á föstudags-morgun,
og gefið sig á Vald stjórnarinnar í
Uruguay. Þess má geta, að jafnframt
koma aðrar fréttir að sunnan, er segja
alt þetta einber ósannindi.
Nýtt ráðaneyti hefir tekið við
taumhaldinu í Nýfundnalandi. For-
maður þess er Augustus Frederick
Goodridge. Þingsetu verður frestað
til þess útkljáð eru málin gegn með-
limum fj’rverandi stjórnarráðs.
Fregnir frá Þýzkalandi lýsa voða-
meðferð á svertingjum i landeign þjóð-
mennt og rýra herkostnað. Rússakeis-
ari hafði neitað að gera þetta.
Bæjarstjórnarkosningar með ný-
móðins fyrirkomulagi fóru fram í St.
Johns í New Brunswick í gær og þótti
vel ganga. Gamalli venju var breytt
að því leyti, að allir kjóseudur bæjarins
kusn meðráðendurna, eins og oddvit-
ann. Hingað til hefir þar eius og ann-
ars scað ir verið sú venja, að hver deild
út af fyrir sig hefir kosið sinn meðráð-
anda, en allir bæjarmenn kosið oddvita
einungis.
Maður oinn, Charles Sullivan að
nafni, í Windsor, Ont., hefir að sögn
fundið upp á lagi til að búa til bienni'
vúisflöskur, sem verða ónýtar um leið
og þær eru tæmdar,—Ekki hafa menn
peninga upp úr því að selja gyðingum
tómar flöskur, eftir að þessir gallagrip-
ir lcomast á gang.
Henrj’ Caibot Lodge, Senator frá
Massachusetts, vill fií þeirri tillögu skot
ið inn í tolllagafrumvarp Bandaríkja-
stjórnar, að tvöfalda tollinn á tolluðum
varningi frá Englandi og öllum land-
eignum Breta, og leggja 30% toll a allan
varning aðfluttann frá þeim löndum, en
sem nú er ótollaður, og halda þessum
tolli þangað til England samþykkir
allsherjar samning um silfurpeniuga
sláttu.
Foringi Ný-Englands deildar iðn-
aðarhersins (Coxey’s göngumanns), hef-
ir eent bænarskrá til þjóðþingsins í
Washinliton, og er stjórnin þar beðin
að gefa ábýlisjarðir og verkstæði, þar
sem atvinnulaust fólk geti ætíð framveg
is fengið verkefni sér og sínum til lífs-
viðurhalds ; að nema úr gildi rentuber-
andi skuldabríf og gefa þau ekki út
framaa ; að gefa öllum atvinnulausum
mönnum atvinnu nú þegar við akbrauta
gerð víðsvegar um landið ; að gera all-
ar járnbrautir, hraðfréttaþræði og all-
ar málm- og koianámur að þjóðeign ;
að sjá til að alt land, sem nú er ónotað
sé gefið þeim sem vilja yrkja það, og,
að setja nefnd til að rannsaka, hvort
ekki s<5 tiltækilegt að gera að þjóðeign
in stóru verzlunar- og verkstæðafélög,
er vinna sainan í því augnamiði að
halda uppi vöruverðinu.
$890,652 virði af bókum var flutt til
Canada frá úfiöndum á síðastliðnu ári.
Á $686,106 virði af þeim hvíldi 15% toll-
ur, á $13,130,15% og að auki 124% rit-
lnuna tollur, á $157,788 5% tollur, en
$31,628 virði af bókunum var tollfrítt.
Gjaldþrotalögin, sem getið var um
um daginn, verða að sögn ekki lögð
fyrir fulltrúadeild þingsins í þetta
skifti. Verða einungis rædd og þeim
breytt að þörfum í efri deildinni. Að
pví búnu verður fruinvarpið prentað og
eiutök send öllum verzlunarstjórnum í
landinu, svo þeim gefist kostur á að at-
huga þið til hlýtar áður en annað þing
kemur saman.
FIMTUDAG, 19. MARZ.
Merkiskona, madam Marie Therese
Joniaux i Antverp í Belgíu, var í gær
tekin föst og kærð fyrir að hafa ráðið 3
ættingjum sínum bana með eitri, til
þess að ná lifsábjTgð þeirra.
Meginhluti þorpsins Huntsville i
Ont. eyðilagðist af eldi í gær. Eigna-
tjón $120,000.
500 þýzkir verkamenn gerðu upp-
hlaup í Detroit, Mich., í gær. Tveir
menn biðu bana og 5 eða 6 særðust. Or-
sökin var sú, að verkfræðingur bæjar-
stjórnarinnar fann upp á að borga verk
mðnnum ákveðua upphæð fyrir hvert
tenings-“yard” af jörð, er þeir losuðu, í
stað ákveðinna daglauna. Pólverjar
hættu þá vinnu, en aðrir menn voru
teknir, og á þá réðust Pólverjar.
Samkvæmt beiðni félagsins hafa
dómstólar alríkisstjórnarinnar fyrirboð-
ið fyrverandi þjónum Great Northern
félagsins, að snerta eignir þess í því
skjmi að skemma þær. Að þessu boði
fengnu sendi félagið 2 fólkslestir af stað
í gær, frá St. Paul; skyldi önnur þeirra
fara vestr að Kyrrahafí. Tveir gufu-
vagnar voru settir fj-rir hvora lest og
velbúinn varðmannaflokkur fylgdi
hvorri.
Bandaríkjastjórn hefir skipað varð-
mannaflokk til að verja göngumönnum
Coxej-’s aðgang að vellinum umhverfis
þinghúsið og garðinum umhverfis for-
setahúsið.
Fimtán mílna breið ísspöng á Sup-
erior-vatninu. fram af og á höfninni i
Port Arthur, fyrirbyggir skipagöngur
þangað enn.
Hudson Bay járnbrautarfélaginu
eru óðum að græðast meðmælismenn á
sambandspingi.
Von er sögð til þess að Manitoba
& Northwestern járnbrautin verði
lengd í snmar. Þingm. allir frá
Manitoba og Norðvesturhéruðunum
sýndu stjórnarformanninum fram á
þörfina um framlenging brautarinnar,
og tók hann vel í að eitthvað yrði
gert í því efui áður en þingi lýkur.
Tennyson á að fá einkennilegan
minnisvarða á Wight-ej'junni. Það á
að byggja vita mikinn á tanga á
eynni og nefna hann Tennyson-vita.
Ljós það á að sjást frá öllum aðal-
skipaloiðum fyrir suðurenda Englands.
Sambandsstjórnin hefir ákveðið að
auka fjárveitinguna til Norðvestur-
fj'lkjanna. Enn fi'emur hefir hún gefið
héraðastjórninni lej-fi til að fjölga
kjördæmunum, svo að framvegis sitji
31 þingm. á héraða þinginu, í stað
26 nú.
I dag er mikið um dýrðir í Cobourg
á Þýzkalandi; er þar vorið að vigja í
hjónaband stórhertogann af Hesse og
Victoriu prinséssu af Cobourg, sonar-
dóttur Victoriu Englands-drottningar
(dóttur Alfreds prinz, fyTverandi her-
togi af Eninaborg, en nú af Cobourg).
Alt ensk-þýzka keisara og konunga
frændfólkið er þar saman komið.
FÖSTUDAG. 20. APRÍL.
Vegna partískunnar í Canada biðja
núkaþólskir byskupar í Canada Eng-
landsstjórn að taka Manitoba skólamál-
ið til meðferðar.
Áreiðanlegar fregnir segja Brazilíu-
uppreistinni lokið. Melloer i Argantínu.
Great Northern formenn og þjónar
hafa fund í-St. Paul á morgun (laugard.).
ÍSLANDSFRÉTTIR.
(Eftir Austra).
verið þar alla æfi ; var Guðmundur
heilsulasinn altaf og var hjá systkinum
§ínum Katrínu sál. og Eiríki bónda
þar, sem einn lifir nú eftir sj'skina
sinna. Katrín sál. var ráðskona hjá
Eiríki bróður sínum allan hans búskap;
voru þau bæði ógipt og barnlaus, en.
höfðu tekið til fósturs og alið upp fjölda
barna, bæði skyld og vandalaus, svo
þess munu engin dæmi hér um slóðir,
að á einu heimili hafi verið alin upp jafn
mörg fósturbörn, enda munu flestir
foreldrar sem til þekktu, og þurftu að
fá börnum sínum fóstur, hafa kosið
fremur að eiga þau undir handleiðslu
þeirra sj-skina en flestra annara. Er
þessa því hér getið, af þvi þessháttar
hjálpsemi virðist nú að verða nokkuð
fágæt, og eins og “að falla úr móð”....
Sömu nóttina, sem Katrín andað-
ist, andaðist þar líka Málfríður Sigfús-
dóttir, systur- og fósturdóttir þeirra
syskinanna, kona Sigfúsar Eiríkssonar
er þar býr....
SejTðisfirði 2. Marz.
verið með séra N. S. Þ fyrirfarandi
ár, en hálfu meiri er hún nú. Enn
í þrógun þeirrar óánregju á séra B.
B. J. engan þátt, hann var liér af-
skiftalaus af öllu prestamála þrasi>
sem sízt best á því, að hann var
ófáanlegur til að le-a eða segja neitt
úr bréfi frá séra Níelsi er hann (B.
B. J.) fékk dagana áður en hann fór;
(það hefir hlotið að vera heldur
svartnættislegt bvéf?) séra B. B. J-
kvaðst vona að menn tækju Niels
prest í sátt við sig aftur, enn eftir
því sem atkvæði safnaðanna féllu í
vetur, eru engar líkur til að eining
verði hér eftir, milli prests og þeirra,
og það sýnist að vera frjálsum
samboðið, að sýna það þrek að standa
við úrskurð atkvæðisins.
Manndauði: Ný dáin er í Marshall
Elizabet, dóttir Sigurjóns Svanlaugs-
sonar og Elizabe'ar Guðmundsdóttur
frá Arnórsstöðum á Jökuldal, Norðvir-
Múlasýslu; dauðamein : eftirstöðvar af
barnsburði, (barnið lifir.) Fyrir rúmu
ári síðan, giftist hún Jóni Jósefssjmi,
frá Strandhöfn í Vopnafirði. Hún var
gáfuð og góð kona.
Sevðisfirði, 18. Janúar 1894.
Hinni íslenzku þjóð hefir loks hlotn-
ast sú gæfa ! að fá hér á stofn sett ar-
gantínskt vísikonsúlat, og mun þar
með vera bætt úr hinni megnu eftirþrá!
þjóðar vorrar á að homast í nánara sam
band við hið góðfræga ! argentinska lýð
veldi og er vonandi að hinum tíðu sam-
göngum! og margvíslegu! viðskiftum
Islendinga og Argentina sé hér með
borgið!
Vísikonsúllinn er horra lj’fsali Ernst
á Seyðisfirði.
Slj's. Milli jóla og nýárs vildi það
voðalega slj's til, að unglingspiltur,
sem ætjaði að skjóta rjúpur í Egilsstaða
skógi, skaut sig voðaskoti til bana.
Pilturinn hét Einar Sveinn, sonur Jóns
bónda Guðmundssonar í Ekkjufellsseli.
3. Febrúar.
Snjóflóð féll hér nokkuð um Fjarðar-
öldu 31. f. m. um það bil er snjóflóðið
mikla féll j-fir, gamla hótel-grunninn og
út í sjó fj'rir utan Glasgow, en ekki
gerði það neitt mein mönnum eða skepn
um, enda var það miklu minna en hið
fyrra, frá 1885, og tók sig vist upp
nokkru neðar í f jallinu.
Þetta snjóflóð tók skúr, sem stóð
þar sem hótelið hafði staðið, braut hann
og flutti viðina úí í'sjó.
1. Marz.
Bréf úr Kyrkjubæjarsókn, 3. Góudag.
Hann er nú liðinn “þessi blessaður
Þeriú”. Tíðarfarið hefir verið snjó-
komusamt og óstilt mjög, en annar
gestur en voðalegri heimsótti þó Hór-
aðið með þorrabj'rjun. Það var Influ-
enzan. Hún hefir orðið hér Isannkölluð
drepsótt. Það standa rúm 20 lík uppi
hér í sókn nú. Að hún varð hér svo
mannskæð kom eflaust meðfram af því,
að tíðin breyttist snögglega um leið og
veikiri kom ; var því loft í húsum kald-
ara og ójafnara en ella og margir þurftu
að fara vesalir út í veður við gripahirð-
ingar, og snerist því veikin á mörgum
upp í lungna- eða brjósthimnubólgu og
varð þeim þannig að bana. Víða var
ekki hægt að þjóna gripum, þvi allir
köstuðnst niður í einu.
Það á margur um sárt að binda,
eftir þenna mánuð og á mörgu heimili
hefir orðið tilfinnanlegt skarð fj-rir
skildi. Má fyrst telja á Torfastöðum í
Jökulsárhlið, þar andaðist Rannveig
Jónsdóttir (bónda Vigfússonar frá
Gunnhildargerði), kona Jóns snikkara
Jónssonar bónda þar. Hún var eflaust
ein hin mesta og bezta kona hér um
slóðir og mun kjark hennar og þreki til
sálar og líkhama lengi viðbrugðið af
þeim er þekktu Ihana. Hún var skör-
ugleg og stillileg í framgöngu, trygg og
vinföst, glaðljTnd og gestrisin. Hún
ávann sér því ástsæld og virðing allra
sem þekktu hana.
Á sama bæ andaðist h'ka Jón
Snorrason frá Dagverðargerði. Hann
var ungur maður og liinn efnilegasti og
var organisti f Kyrkjubæjarkj-rkju og
hafði verið barnakennari hér i sókn
nokkur undanfarin ár og áunnið sér ást
og virðing allra þeirra er liann kjmntist
fyrir staka siðprýði, lipurmennsku og
samvizkusemi í stöðu sinni.
I Brekkuseli f Tungu andaðist bónd
inn þar, Arngrímur Eiriksson, fátækur
fjölskyldumaður, en drengur góður og
vinsæll. Hann lætur eftir sig ekkju og
7 börn, flest ung. Þar dó líka Jónas
Jónsson húsmaður, svo þar var engínn
karlmaður lifandi eftir á heimilinu
nema nýfermdur drengur.
Eitt af þeim heimilum, sem mest
hefir misst, eru Vífilsstaðir í Tungu.
Þar dóu syskinin Guðmundur Eiríks-
son og Katrín Eiríksdóttir. Þau höfðu
Tíðarfar er enn óstöðugt og hríða-
samt og snjókoma mikil, svo óvíða er
jörð góð nema á upphéraði.
Síld og fiskur er enn sagður á Suð-
urfjörðunum, en það hefir ekki verið
hægt að stunda róðra fj'rir gæftaleysi
og veikindum. Hér í Seyðisfirði hefir
enn orðið vart við síld af og til. Það
mun vera málstunna síldar, en ekki
“strokkurinn”, er kaupmenn hafa gefið
hór 3 kr. fyrir.
Manndauðinn. Eftir því sem vér
höfum getað næst komizt, þá var mann
fallið fj'rir influenza-veikinni í eftir-
töldum héruðum nýskeð^orðið þetta :
í Kyrkjubæjarsókn 26.
I Ássókn.............. 8.
I Valþjófsstaðasókn 5.
I Vallanessókn.... 5.
í Hallormsstaðasókn 1.
í Eiðasókn............ 6.
í Hjaltastaðasókn 3.
í Seyðisfirði.... 5.
í Mjóafirði...... 4.
í Norðfirði...... 6.
í Rej'ðarfirði... 8.
í Fáskrúðsfirði... 5.
Lengra að er ekki enn þá tilspurt,
en lausafrétt er komin um það, að in-
fluenzan hafi tekið fólk mjög geyst í
Austur-Skaftafellssýslu, eftir skipkom-
una á Papós, en póstur er enn ókominn
að sunnan.
Auk þeirra, er áður er getið hér í
blaðinu, eru þessir merkastir af hinum
látnu, er vér höfum tilspurt: Bjarni
Stefánsson, er lengi var hreppstjóri og
sáttasemjari í Norðfirði, og bjó leugst
þar á Ormsstöðum. Auðunn Hansson í
Stóru-Breiðuvík í Rej'ðarfirði. Anna
Jónsdóttir, móðir Jóns hreppstjóra
Þorsteinssonar í Gilsártegi í Eiðaþing-
há, Guðfinna Oddsdóttir, kona Sigfús-
ar bónda Oddssohar i Meðalnesi í Fell-
um og Hinrik bóndi Hinriksson á Dal-
húsum.
FRÁ LöNDUM.
Úr biiéfi FRá Chicago dags. 16.Apríi.:
“Okkur líður þolanlega, en samt
man ég ekki eftir öðru eins hörm-
ungar ári, hvað atvinnu snertir, eins
og þessu. Það er líka lítið útlit fyrir
að ástandið batni, meðan ráðherrarn-
ir í Washington gera ekki meiri rögg
af sér en komið er.
Frú Magnússon er sem stendur i
Cincinnatti, Ohio, hjá fólki Reeve’s
sál., Islands vinar, sem þar býr. En
bráðum mun dvöl liennar hér megin
hafsins lokið.”
MINNEOTA,*MINN., 16. April 1894.
Frá fréttaritara Hkr.
Annir: Hveiti og hafra sáðning
er nú búin hér hjá almenningi.
Tíðarfar er enn, sem áður hið á-
kjósanlegasta.
Veikindi hafa verið inikil í Minn-
eota nú í vetur, sem sagt er að sé
La grippe. Vigfús Andrésson heúr
legið rnjög þungt lialdinn nú í all-
langan tíma, en er nú á batavegi.
Verzlun: Landvara í lágu verði
smjör 8—10 ceuts, egg 7 cents, liveiti
heldur að stíga, hefir komist yfir 50
cents.
Prestainál: Nú er síra Björn B.
Jónsson farinn héðan og báðu hann
allir velfara og víst flestir heilann
aftur koma; með lipurð sinni, vann
liann sér hér almennings hylli, sem
prestur og “prívat" maður. Enn
óvíst er að hann komi liingað aftur.
Hann kvaðst ekki geta ráðið sig hér,
sem prestur meðan allir söfnuðurnir
hefðu ekki sagt upp þjónustu Níelsar
prests.
Mikil hefir óánægja nianiia hér
. Tindastóll, Assa, 9. Apríl,
Herra ritstj. Hkr,
Næst því að óska þér til lukku við
ritstjórn Heimskringlu, votta ég herra
Jóni Ólafssyni beztu þakkir fjTrir alt,
sem hann hefir ritað í Hkr og Oldina.
Hvort sem það hefir verið um fræðandi
opinber mál eða persónulegt þras, þykir
okkur “græningjunum” hann fjölhæfur
og pennafær blaðamaður, og kvíðum
nú fyrir “þroskun Hkr. gömlu niður á
við” í staðin fjTÍr upp á við. *
Fréttir héðan úr bygð eru Shitar og
blíður isíðastl. viku—30—60 fj'rir ofan
zero á Farh. um miðjan dag í skugga,
suma daga—. Ekki urðum við hér var-
ir við hríðarkast það, sem blöðin geta
um að gengið hafi yfir Manitoba, Da-
kota, Minnesota og Wisconsin á föstu-
daginn langa. Að sönnu gerði þurra-
kulda með norðaustan nepju á aðfara-
nótt laugardagsins, er hélzt á laugar-
daginn, en á páskadag var allra mild-
asta veður. 29. Marz gerði hér tölu-
verða rigningu, sem er heldur óvana-
legt, en fremur varð Jhún endaslepp og
endaði með bleytuhríð og frosti. Isinn
er nú að leysa af Red Deer-ánni, er hef-
ir orðið illfær fyrir hesta síðastl. viku.
Sjöunda Apríl var leikin sjónar-
leikur eftir St. G. Stephanson í hinu
nýja skólahúsi, sem bygt hefir verið á
landi, er hann hefir sezt að á, og var
það vigt með þessari samkomu. Þar
voru flestir bygðarbúar saman komnir,
og þótti leikendunum takast vel, og
sumum ágætlega vel, einkum þeim er
léku amtmanr.inn og drykkju-prestinn,
enda hafa þeir æft leikaralist öðrum
fremur, af þeim sem hór eru. Skemmt-
anir byrjuðu kl. 9 síðdegis og stóðu jTfir
fram á albjartan dag næsta morgun.
Fj'rst var leikið leikrit það, sem áður er
nefnt; þar næst þáttur úr “Skugga-
Sveini”. Mr. Stephanson talaði nokkur
orð fyrir og eftir leikina. Þar næst brá
unga fólkið sér í dans, en við það kom
í ljós, að ekki J af samkomugestunum
kunni þá list, svo þessir fáu, sem það
kunnu, fengu áreiðanlega að æfa sig þá *
nótt.—Þar næst fóru fram veitingar,
kaffi með alls konar smábrauði, sem
nöfnum tjáir að nefna, og heitir drykk-
ir; litið eitt af vinanda var þar til
smekkbætis og upplífgunar, en ekki svo
að nokkur sæist ölvaður.
Þessu næst flutti St. G. Stephanson
ljómandi fallegt ástakvæði til íslands,
og, eftir minni þekkingu á skáldskap,
eitt hans bezta kvæði. J. J. Húnfjörð
færði húsbjTggingarnefndinni þakkará-
varp fjrir framtakssemi og dugnað, og
um leið áminningarræðu til foreldranna
um að láta nú börn sín nota þetta skóla
hús, til þess sem er mest áríðandi, sem
er menning og menntun hinnar ungu
uppvaxandi kynslóðar. Síðan var á
víxl sungið hljóðfæralaust,(og hejrði ég
engan finna neitt að honum, enda tel ég
sjálfsagt að mönnum hafi farið fram sið
an á íslendingadaginn síðastl. sumar,
enda var maðurinn, sem setti mest út á
söngin og færði okkur þá fregn í blöð-
unum, að honum hefði verið “mjög á-
bótavant, ekki brúkaður núna fyrir
fyrir forsöngvara eins og þá), eða dans-
að og spilað á fíólin, lesin upp kvæði og
töluð nokkur orð þeim til útskýringar,
og skildu menn glaðir og ánægðir og
kunna leikendunum og þeim sem
skemtu, en sérstaklega forstöðunefnd-
lnni, beztu þakkir, ásamt gáfumannin-
um og skáldinu .Stephanson, sem var
eiginlega hfið og sálin í því öllu saman.
Hús það, er ég hefi getið um hér
að framan, er bygt af samskotafé b\Tgð-
armanna og er tilgangurinn sá, að hafa
það með tímanum fjTrir skólahús.
Stærð þess er 18X26, úr köntuðum trjá-
bolum með borðviðar og spónþaki.
Frágangur á því er snotur innra og
ytra, en ekki er það fullgjört enn.
Jóhann Björnsson.
*) Thanks. Ritstj.
i