Heimskringla - 12.05.1894, Page 1

Heimskringla - 12.05.1894, Page 1
VIII. ÁR. NR. 19 WINNIPEG, MAN., 12. MAÍ 1894. THE GREAT IEST LÍFSÁBYB.GÐARFÉLAG. Aðalból - - Winnipeg - - Manitoba. J. H. BROCK FORSTÖÐUMAÐUR. Uppborgaður höfuðstóll.... 8 140.014.22 Varasjóður................. 8 54.720.00 Lífsábyrgð í gildi við lok tyrata ársins.......... 82.268.000 Lífsábyrgð veitt með hvaða helzt nýmóðins fyrirkomulagi sem vill. Kaupið ábyrgð í The Great West og tryggið yður á þann veg þann hagnað, er háir vextir af peningum fé- lagsins veita. Þetta fjelag dregur ekki jje burt úr fylkinu. K. S. Thordarson - - agent. 457 Main Str., Winnipeg. CIIAS. BAGSHAWE, Real estate loan & INSURACE AGENT. 875 Main Str. Telephone 803. Building Loans a speeiality. F örumaðurinn. Sólin var að enda hið dýra dagsins skeið, hún dreifði aftangeislum á förumanns- ins leið, eins og hana langaði’ að létta hans þraut, sem lötraði þreyttur um steinótta braut. Hann var orðinn lotinn með hélugráa kinn, hárið næstum snjóhvftt og þungur svip- urinn. Augun voru döpur og ellileg brún, á andlit hans var grafin hin dýpsta sorgar rún. TJm gönguprik lítið hann greipti krepta mund, sem göngumóður styðst á, er hvíldar þiggur stund. Með skjálfandi kné hann skjögrar til og frá. skelfing var að horfa þá píslarmynd á ! Hefði’ ég átt að dæma’ af hans hryggi- legu nekt,— hann hlaut þá að vera í ógurlegri sekt— En þess er ekki’ að geta, því himininn hár hörðum jafnt sem mildum hann gefur sín tár. Reisulegum stefndi’ hann að einum bónda bæ, um brautina gekk liann, sem snuðrandi hræ; og þurfamanna-pokann á bakinu bar, sem bættu litt þá tötra, sem i hann klæddur var. Ef nýtilegt eygði, hann o’n að því laut, en æskan brekótt kímdi, þegar hann hnaut. Henni þótti gaman að gjá þessa sjón, en sorglegt var að bera slíkt hamingju- tjón ! Þótt væri hann svo hlaðinn af veraldar eymd, vonin hans með öllu þó sýndist ei gleymd. Með barmafull augun hann brosir í ró, sem boðskap hann ætti um huggun og fró. Fyrir hvern mola, sem fékk hann þótt smár;— færði hann að launum eitt þakklætis tár ; það líka var hið eina, sem átti hann til, eg álit því hann gerði hin fegurstu skil. Að manna væri’ hann úrkast, það vissi hann vel. en vegna hvers hann skildi ei, né það ég heldur tel. Honum fannst ei léttbært, að fá sér þannig brauð, en fátækin er harðstjórn og böðull er nauð. Hve mörg hann hafði lifað svo æfinnar ár, engan hafði grunað, ne hvað þung hans voru tár. Angurshvein né stunur liann engan heyra lét, einsamall í lífinu hló hann og grét. Litlu síðar frétti’ ég hann uppgæfi önd, augun væri brostin og stirðnuð hans hönd. En hvert var hann nú farinn ? Ó, herr a minn liár ! Er haldin nokkur bók yfir aumingjans tár ? X. Derby plötu-reyktóbak selst ákaílega vel og sala þess íer sívaxandi. FRETTIR. DAGBÓK. LAUGARDAG, 5. MAÍ. Antwerp-sýningin—alþjóða-sýning, var opnuð fyrir almenningi i dag, eins og til stóð, og sýningaskálarnir vígðir í viðurvist 50 000 manns. Sýningin heldur áfram til 12. Nóvember í haust. —Þó sýning þessi sé alþjóðasýning er hún smáræði eitt í samanburði við sýn- inga-tröllið i Chicago í fyrra. Sýning- in er á velli með íram ánni Scheldt, sem er 200 ekrur að flatarmáli, og er svo um búið, að nokkur hluti af stórskipa- bryggjunum er innan sýningagarðsins, svo ókostbært er að flytja munina að sýningunni og frá henni. Á sýninga- vellinum hafa verið gerðar líkingar af 90 merkum fornhýsum í Antwerp, sem nú eru ekki lengur til. Stærð þeirra verður hin sama og útlit alt og búning- ur öldungis eins. Merkasta smíðin á þessari sýningu verður “loftkastalinn”, salur mikill 25X100 fet að innanmáli, er sveimar i loftinu, en festur með járn- reipum við 6 sameinaða loftbáta, sem aftur eru tengslaðir við jörðina með 16 járnfestum, sem eiga að halda öllu föstu á sama stað, en lausu i loftinu. Að næturlagi verður loftkastalinn lýstur með rafmagnsljósum, og þar sem vegg- ir hans eru mestmegnis gerðir af stál- vír og silkislæðum, verður hann til að sjá eins og glóandi eldhnöttur. 150 manns geta verið i honum í senn og 2 lyftivelar flytja menn að honum og frá. Bandafélögin i Minnesota tala um að sameina sig í þeim tilgangi, að vinna bug á hveitikaupmönnunum, en verzla sjálfir við stórkaupmennina í hafnstöð- unum eystra. Gætu þeir komið því á, búast þeir við að fá 10 cents meira fyrir bush., en nú. Kólera gengur í rússisku héruðun- um á Póllandi. Allir helztu naglasmiðjueigendur í Bandaríkjunum höfðu fund í Cleveland, Ohio, í gær, og ásettu að hækka verð á öllum tegundum af saum. 89 að meðaltali kostaði hvert atkv. er kastað var fyrir frávikinn stjórnar- meðlim í Nýfundnalandi við síðustu kosningar. Svo segja vitni í mútumáls rannsókninni, er þar stendur yfir.—Af því Greenway hefir ekki verið kærður fyrir sama glæp, er ómögulegt að segja. hvort hann hefir borgað meira eða minna, þegar hann sótti síðast. ítölsku anarkistarnir tveir, sem nýlega voru teknir fastir i Lundúnum, hafa verið dæmdir til fangelsisvistar, annar til 20 ára, en hinn til 10 ára. Millión dollars virði af varningi og húsum eyðilagðist af eldi í Dyflinni í dag. “Einn kemur þá annar fer”. Brazi líu-uppreistin er búin að vera, en um leið er uppreist komin á stað i San Salvador í Mið-Ameríku. Rússar senda skipsfarm af húsavið og matbjörg til hins nauðstadda fólks í Grikklandi. MÁNUDAG 7. MAÍ. í Júni i fyrra sendi Quebec-stjórn- in flokk af landkönnunarmönnum af stað, til að fara norður um miðbik Labradors og niður að sjó að norð- an. Foringi ferðarinnar var Mr. A. P. Low, og frá honum er nú komið bréf, er sýnir að hann komst norður úr og kom niður að Ungava-flóa, en sökum vistaskorts gat hann ekki dval- ið Þar neitt, heldur mátti taka sér far suður til mannabygða á austurströnd- inni. kar hann við Hamilton-fjörðinn er hann ritaði bréfið, og þaðan ætlar hann að leggja í göngu þvert vestur um öræfin til Hudsons-flóa, undir eins og sumarið er komið, en það er sögð enn hættumeiri för en sú norður um öræfin. — í brefinu segir hann að 200 Indíánar hafi fallið ur harðrétti síðastl. vetur. Náttúrusmíð segir hann sé bæði fögur og stórkostleg á leið þeirri, er hann fór norður. Almennar fylkisþingskosningar fara fram 20. Júní næstk. í Ontario. Yerkamenn á Englandi, Skotlandi og írlandi héldu fundi mikla í gær og heimtuðu 8 klukkustunda vinnu- tima 4 dag. Þeir á írlandi heimtuðu að auki kosningarrétt fyrir hvorn mann sem lögaldri hefir náð, að þingmönn- um sé launað fyrir þingsetustörfin, að lávarðadeild þingsins sé afnumin, og að járnbrautir allar sé gerðar að þjóð- eign. Tillögur í sömu átt voru og samþyktar á ýmsum stöðum á Eng- landi. Stjórn Þýzkalands er nú í óðaönn að losa um böndin er hún til þessa hefir álitið nauðsynleg á ibúum her- teknu héraðanna allra. Ætlar fram- vegis að skoða þá sem innfædda borg- ara og veita þeim sama rétt. Er þetta að undirlagi Bismarks, sem nú er orð- inn sáttur við keisarann. Gladstone er orðinn mjög hrumur, segja fregnir til blaðs í New York, og hefir hrörnun hans stórum ágerst síðan hann hætti að taka þátt i opin- berum málum. Fyrir fám dögum var hann í samkvæmi og flutti ræðu, en svo voru líkamskraftarnir þrotnir, að hann stóð ekki upp meðan hann tal- aði og þurfti jafnvel í sætinu að treysta á staf sinn sér til stuðnings. Sams konar krabbamein og varð Friðrik Þýzkalandskeisara að bana, þjáir að sögn Humbert ítaliukonung og þykja engar Kkur til að hann verði læknaður. Ófriðarhorfur eru sagðar á Ind- landi. Col. Robt. G. Ingersoll segir það hafi verið óhappastryk er Bandaríkja- stjórn gerði þegar hún tók Coxey fast- an. Það hefði ekkert illt hafst af þó honum hefði verið leyft að tala á þing- hússvellinum, en illt muni standa af handtöku hans. ÞRIÐJUDAG 8. MAÍ. Sir John Thompson lagði i gær fyrir þingið frumvarp til laga, er gera fyrsta mánudag í September löglielg- an hvíldardag og nefnist verkamanna- dagur (Labor day). Aukakosning unnu Roseberry-sinn- ar á Englandi i gær, en atkvæða- munurinn féll úr 1146 við síðustu al- mennar kosningar, niður í 192 í gær. Bæjarráðsformaðurinn í New York gefur út áskorun um samskot handa nauðstöddu fólki á Grikklandi. Frumvarp til laga var í gær lagt fyrir Washington-þingið, er fer fram á, að forseta sé heiinilað að afnema, eða takmarka eftir þörfum, vöruflutn- ing frá Canada um nokkurn hluta Bandaríkja, svo framarlega sem sann- að verði að Bandaríkjamenn njóti ekki sömu réttinda og Canadamenn á sigl- ingum eftir Canadiskum skipaskurðum. Hon. Robert Reid, landvarnarstjóri í Victoria-héraðinu i Ástralíu, er á ferð í austurfylkjum Canada og mælir fast með nánari verzlunarviðskiftum Canada og Ástralíu. Steinolíu-einveldið mikla í þessu landi, “Standard Oil Company,” hefir að sögn komist að samvinnuskilmálum við öll oliufélögin á Rússlandi. Al- heims oliu-einveldi er því í vændum. Innflutningur í Rainy River-hér- aðið er nú byrjaður í stórum stil. Gufu- skip fór af stað þangað í morgun frá Rat Portage og fengu færri en vildu far með því. Mörg hundruð manns eru nú á leiðinni þangað frá Dulutli og víðar frá, um Port Arthur og Rat Portage. Kolanámur eru fundnar á vestur- strönd Skógavatns í grend við enda- stöð fyrirhugaðrar Manitoba-Suðaust- urbrautar. Eftir því sem enn er ljóst, er kolalagið beggja megin landamær- anna, en þó meira Canada megin. Bænarskrá með 5000 undirskriftum var í dag lögð fyrir sambandsþingið í Ottawa, þnr sem stjórnin er beðin að knýja C. P. R. fél. til að lækka flutn- ingsgjaldið í Vestur-Canada. Vppreist er sögð hafin i Argent- ínu, en jafnframt koma fregnir er neita því. MIÐVÍKUDAG 9. MAÍ. í Albany, N. Y., var i gær sett- ur fundur mikill sem á að heimta ýmsar grundvallarlaga-breytingar i New York ríki. Meðal annars ætlar fundurinn að heimta, að engir hafi kosningarrétt, sem ekki hafa verið 5 ár í Bandaríkjunum. Eins og nú er hafa allir kosningarrétt í þvi ríki, sem unnið hafa þegnskyldu-eið Bandarikja fyrir 10 dögum. Það horfir til vandræða enn með- al Great Northern forstöðumannanna og þjónanna, og ekki óliklegt að verk- fall verði aftur. Er ástæðan nú, að félagið neitar að gefa sumum fyrver- andi þjónum sinum vinnu, af því þeir hafi gert tilraunir til að skemma eða eyðileggja eignir félagsins. Mennirnir bera á móti þessu, en segja, að samn- ingurinn hafi verið að taka alla menn- ina í sátt. Fjármálanefnd efrideildar Wash- ington þingsins liefir breytt 400 til 500 atriðum í Wrilson-tolllaga frum- varpinu og hjálpar það ekki til að sameina hinn sundurskifta fiokk demókrata. Þeir i neðri deildinni eru mjög óánægðir með þessar bre.vting- ar, þvi þeir væntu eftir frumvarpinu lítið sem ekkert breyttu frá efrideild. Þessar þvælur þykja og liklegar til skemma málstað demókrata út um landið. Þrjár eða fjórar nýjar gufuskipa- línur ganga í sumar milli Evrópu og Canada. Sú er síðast er tilgreind er irsk, frá Belfast. Fyrsta skip hennar Teelin Head, fer frá Montreal um 15. Júní næstkom. Sambandsstjórnin er farin að láta smíða fjölda af kjörseðlakössum, er eiga að vera fullgerðir eftir 8 mánaði. Eru kosningár í nánd ? Flóð mikil haldast enn í grend við Quebec og er fólk og býli manna sum- staðar í hættu. Eitt þorp, St. Anne, er nærri eyðilagt, fjöldi af húsunum borinn burt með vatnsföllunum. Friður er á kominn i járnnáma- héraðinu í Minnesota og námamenn teknir til vinnu aftur. Hveitiverðið hefir aldrei orðið eins lágt eins og það varð í gær á Chicago- markaðinum. Hæsta boð í hveiti, sem afhent skal í Júli næstk., var 58 cts. bush. Jarðskjálfti í Grikklandi aftur i gær. Stjórn Frakka heimtar að Engla- stjórn framselji Panama-fjárglæfra- manninn Cornelius Herz, þrátt fyrir að liæstiréttur Frakklands gerði sér að góðu að hann borgaði Panama- félaginu li milj. franka. Um 1000 nautgripir og um 500 sauð- fjár fór af stað frá Montreal til Evr- ópu í síðastl. viku. FIMTUDAG, 10. MAÍ. ítalskur maður, Antonio Lucanio að nafni, var hengdur úRegina í morg- un. Félagi hans, Antonio D’Egidio, var einnig dæmdur til aftöku, en var gefið lif, en æfilangt fangelsi. Þessir menn myrtu mann einn nálægt Gren- fell í fyrra. Coxey var látinn laus í Washing- ton í gær gcgri 8500 veði. Hann var fundinn sekur um að hafa “gengið á grasinu á þinghúsvellinum ! Innan við 894 millíónir var gullið í fjárhirzlu Eandaríkjanna um helgina var. Aukist innstraumur þess ekki bráðlega, er búizt við að út verði gefin ný skulabréf, til að hafa lögákveðna upphæð saman. Franska gufuskipafélagið stóra, sem fjölda skipa hefir í förum hver- vetna á Atlantsliafi og Miðjarðarhafi, vill nú ná í póstflutning milli Montreal og Havre á Frakklandi. Laxniðursuðufélögin í British Co- lubiu eru að sameina sig í því skyni, að hækka verðið á niðursoðnum laxi. Verzlana-hrun eru tíð í Buenos Ay- res í Argentinu. Samlagðar skuldir jieirra, er gjaldþrota hafa orðið á síð- astliðnum 10 dögum, eru um 20 millí- ónir dollars. FÖSTUDAG, 11. MAÍ. Óvanaleg flóð ganga i Ástralíu, segja fréttir með Astralíu-skipinu Warrimo, er liom til Vancouver í gær. Stór héruð í Queensland eru undir vatni og á kafla var vatnið 13 feta djúft 4 járnbrautarsporinu. Fellibylur hafði sópað burt yfir 100 húsum og orðið um 20 manns að bana. Nýtekið manntal í Brandon Man. sýnir að þar eru nú 5,076 ibúar Sú fregn er gosin upp aftur eftm langa hvíld, að búið sé að veita A. W. Ross, sambandsþingmanni, Governors- embættið i Manitoba. í gær var gengið til atkvæða um það á þingi Breta, hvort lesa skyldi fjárlagafrumvarp stjórnarinnar í annað skipti, og var það samþykkt með 508 atkvæðam gegn 294. Það var almennt búizt við að stjórnin mundi feld verðn á þessari atkvæðagreiðslu, og var því þinghúsið troðfult af áheyrendum. 84 4000 000 var ávinningur “spila- helvítis” eigandanna á Monte Carlo á síðastl. ári. Harðærið kemur ekki nið- ur á slíkum stofnunum. Birds Hill-búar vilja undir engum kriugumstæðum fá sorpið frá Winnipeg út þangað. íslendingurinn sem meiddist, er reykháfurinn hrundi, heitir Sigurrín Jónsson og á heima á Pacifíc Ave. vestarlega. Eftii' “Sunnanfara.” Kaupmannahöfn Apríl 1894. Bjarni Jónsaon stud. mag. hefir verið miðbikið af vetrinum suður á Þjóðverjalandi ; kom hingað aftur í síðasta mánuði. Aageir kaupm. Aageiraaon hefir af gufuskipafélagi þvi, er heitir ‘Danmörk’, keypt eimskip mikið (um 500 lesta), er “Helgi” nefndist, og hefir nú skýrt það um og kallað “A. Asgeirsson.” Meðal annars á það að ganga til ís- lands til verzlunar hans. Það er eitt- hvert manntak í þessu, og margur er nú orðinn sá maðurinn, sem hefir at- vinnu við þá verzlun og þann skipa- útveg, er hann rekur. Víkingafelag eða Orkneyinga, Hjalt- lendinga og Norðmannafélag var stofn- að um síðustu áramót í Limdúnum (Viking Club) til þess að efla samband meðal allra þeirra, er leggja hug á norræn vísindi; félagið varð eigin- lega fyrst til 1892, en náði þá að eins yfir Orkneyjar og Hjaltland. Heldur það fund i mánuði hverjum og kallar lögþing, og öll eru nöfn embættismanna félagsins tekin úr íslenzku, svo sem vikingajarl, jarl, jarlmaður (einn af þeim er Eiríkur Magnússon), lögmað- ur, sagnameistari, skattmeistari, skatt- . teki, umboðsmaður, þingboðsmaður, lögréttumaður, og þar fram eftir göt- unum. 12. Janúar i ár flutti F. York Powell (vinur Guðbrandar Vigfússonar) þar erindi um fornnorrænar bókmentir. Verólaunum fyrir eina eða tvær bestu skáldsögur um islenzk efni upp á svo sem 8 dálka í blaðinu heitir Sunnanfari, alt að 20 kr. fyrir hvora. í nefnd til þess að dæma um sög- urnar eru þeir stúdentarnir Sigfús Blöndal, Þorlákur Jónsson og Þorsteinn Gíslason og til vara Sigurður Péturs- son frá Sjáarborg. Sögurnar eiga að vera komnar nefndinni í hendur fyrir 1. Nóv. þ. á. Bezt er að höfundurinn hafi nafn sitt í lokuðu umslagi, er hafi sömu einkennisorð og sagan sjálf ; vitanlega verður nafnsins ekki getið, nema því að eins að höf. vinni verð- launin. Ialenxkar akdldaögur þýddar d út- lend mdl. Kœrleiksheimilið eftir Gest Pálsson í þýzkri þýðing eftir Dr. C. Kuchier er að koma úr í 2. útg. Sömu- leiðis eru að koma út i þýzkum þýðing- um i tímaritum eftir sama mann. Vordraumur og Tilhugalífið eftir Gest og Leidd i Kyrkju og Sera Sölvi eftir Þor- gils gjallanda [Jón Stephanson Mývetn- ing]. Ddiner 5. Apríl á Diakonissustofn- uninni hér i borginni eftir langan sjúk- dóm frú Laura kona Jóns skólastjóra Þórarinssonar i Hafnarfirði og dóttir Péturs amtmanns Havsteins, gáfuð og góð kona. Lík hennar fer nú með póst skipinu til íslands. Bdðning hafa þeir nú fengið hjá yf- irboðurum sínum “helvítis” prestarnir, sem nú er farið að kalla þá, er héldu ræðuna góðu yfir sjódauðu mönnunum á Jótlandi í haust og getið var um fyrr hér í blaðinu. Þeir fá ræðuna liklega betur borgaða liinumegin, skulum við ætla. Hdakólaajóðurinn. Moritz læknir Halldórsson í Vesturheimi hefir góð orð um að hugsa til liáskólasjóðsins með 100 dollurum (370 kr.) frá sér sem fyrsta tillagi svona við hentugleika. Það er laglega af sér vikið. Sendiherra Bandaríkja í Danmörku fer til íslands í sumar að kaupa sauðfénað og nautgripi til kynbóta á nokkrum stað í Vesturheimi. Atta hunda frd íalandi héfir, að þvi er blöð segja, hermálastjórnin danska falicT Kristensen kapteini í Árósum að kaupa til þess að venja þá til her- þjónustu. FRÁ LÖNDUM. HNAUSA, MAN., 2. MAÍ 1894. (Frá fregnrita Hku.). Síðan ég skrifaði síðast hefir fátt borið til tiðinda. Veðráttan hin æski- legasta síðan illviðrið á sumardaginn fyrsta. Snjór allur af jörð og gripir farnir að ganga úti. Frostlaust um nætur og hiti um daga. íslendingafljót hefir enn þá einu sinni fiætt yfir bakka sína í Geysir- bygð, svo að fólk frá fjórum húsum hefir orðiö að fiú til nágranna sinna; hefir það farið hvað hæst lijá Einari Eyjólfssyni, Sigurði Hatliðasyni, Tóm. asi Björnssyni og Páli Jónssyni, og auk þess illvært í 3—4 húsum þar með fljótinu, þótt ekki yfirgæfi menn þau. Það er galli á þessari bygð, hvað þar er flæðihætt af fljótinu. í þetta sinn vilja sumir kenna Gests-“loggum” flóðið, en aðrir guði; hverjir réttara hafi fyrir sér, læt ég ósagt, en víst er um það, að fyr hefir flóðið farið yfir bakka sina, en “loggum” Gests var til að dreifa. En hvað um það, menn mega vera Gesti þakklátir fyrir framtakssemina og taka undir með skáldinu og segja : “Þar hef ég marga fylli fengið, fyrir uxa, hund og mig.” Sér M. J. Skaftason fór, þrátt fyrir flóðið, vestur í Geysir-bygð þann 28. f. m., messaði hann þar og fermdi 5 börn og skýrði 7. 29. s. m. messaði hann í Breiðuvík og hafði hreinskiln- ina að umtalsefni og gaf sama dag saman í hjónaband Mr. Ásmund Björns- son (Geirmundssonar) og Miss Helgu Sigurðardóttir (Björnssonar). Jakob, postuli mormóna, er hér 4 slæðingi; hann hagar þannig trúboði sínu, að fáir hlýði á boðskapinn í senn; mun hann búast við betri veiði með þessari aðferð en annari. Var hann hinn öruggasti með árangurinn og kvaðst mundi mynda hér mormóna- 8Öfnuð áður en hann færi héðan. Væri slíkt upphefð mikil fyrir N.-ísl. og bæri ljósan vott um trúar, — og jafnvel likamlegt — fjör og fastheldni. Ekki ber á að Jakob sé farinn að skýra hér enn þá, enda er Winnipeg- vatn á ís, en hann mun hugsa þeim gott, sem trúna taka, þegar vatnið leysir, og dífa þeim í, enda mundu fæstir vilja vinna það fyrir þann hei- laga anda, sem Mormónar kvað sýna í sinni idífingar-skýrn, að láta stinga sér ofan í pollana, sem myndast hafa fram undan lækjarósum hér og þar, því það gæti orðið til að drepa menn. Jóhann Jóhannsson, postuli hinna presbyteriönsku í Winnipeg, hefir dval- ið hér í víkinni síðan 21. f. m. og “gerir það gott”, vinnur fyrir sér við húsa- byggingar.—Ekki er hann farin að pré- dika hér opinberlega enn, en búast má við því þá og þegar. Séra 0. V. Gíslason kvað vera bú- inn að fá köllunarbref reglulegt frá Bræðrasöfnuði til að gerast prestur þeirra lútersku þar. Af þessu geta menn séð að útlit er fyrir, að við Ný- íslendingar höf um u m ýmis trúarbrögð að velja með tímanum, fari þessi fjölg- un í vöxt. Verzlun hér í Víkinni fremur dauf i egg 10 cents tylftin, smjör 124 cents pundið enn þá ; vorfisk taka nú verzl- anir hér ekki; Strong Baker-hveiti81,95, molasykur 12—18 pd. fyrir dollar, stein- olia 40 cents gallónan—ekki góð,—Mr. Baldvin Jónsson er byrjaður hér 4 dá- lítilli verzlun og selur heldur ódýrara en þeir Sigurðsson Bros.; einkum er steinolía bæði betri og ódýrari hjá hon- um. Afkoma manna um þenna part Nýja íslands er allgóð ; nóg að bita og brenna, og heilsufar gott. Lönd í Mikley óðum að byggjast á austur- og suðurströnd eyjarinnar. Fá lönd eru ótekin hér í landi fram með vatninu, og þau fáu, eru farin þeg- ar minnst vonum varir.—J. M. Bjarna- son búinn að “taka rétt” á landi í Geys- ir-byggð og farin að byggja á því. Myndir Chicago-sýningarinnar— gjöf Hkr.—hefi ég meðtekið; það eru góðar myndir; kærar þakkir fyrir. í dag er hér bleytu-slcttings-bylur af norð-austri, og jörð alhvít, kl. 6 e.m. O. G. Akraness. FOLKIFIN8T það ekki vitrlegt að vera að reyna ó- dýrt samsull, sem kallað er blóðhreins- andi enheífr í rauninni enganlækninga kraft. Að viðliafa nokkuð annað en iö gamla fyrirmyndar-lyf Ayer’s JSiir- Napnrilla — ið ágæta blóðhreinsun- arlyf— er brein og bein eyðsla á tíma, fé og heilsn. Ef þig þjáir kirtlaveiki, kvef, gigt meltipkarleysi, útsláttr, vessareusli, þroti eða einhver annar blóðsjúkeómr, þá vertu viss um að þad mun borga sig að brúka Ayer’s SarsapRrilla, og Ayer’s ein- ungis. AYEK’S Sarsaparilla má jaínaa reiða sig á. Hún er ekki breptileg. Hvín er jafnan in sama að gæðum, skamti og áhrifum. ísamsetning, lilnt- follum og vvtliti, og að öllu. sem miðar til að endrhressa líkamanu, senv veiktr er orðínn af sjúkdvtmi og kvöl ber hún aföðrvun Ipfjnm. llún leitar uppi öll ölireinindi blóðsins og rekr þau út ina eðlilegu leið. AYBR'S SARSAPARILLA Tibúið af Dr. J. C. Ayer, Lnwell, Mass Slteíöllum lyíjabúðum og ilmsmyrslal- búðum. L.EKNAR AÐFvA, LÆIÍNAR ÞIG.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.