Heimskringla - 16.06.1894, Síða 1

Heimskringla - 16.06.1894, Síða 1
VIII. ÁR. NR. 24 Heimskringla. WINNIPEG, MAN., 16. JÚNl 1894. LÍFSÁBYRGÐARFÉLAG. Aðalból - - Winnipeg - - Manitoba. J. H. BROCK FOHSTÖÐUM ADUlt. Uppborgaður höfuðstóll.... S 140.014.22 Varasjóður................ S 54.720.00 Lífsábyrgð í gildi við lok tyrsta ársins........... S2.268.000 Lífsábyrgð veitt með hvaða helzt nýmóðins fyrirkomulagi sem vill. Kaupið ábyrgð í Tiie Great West og tryggið yður. á þann veg þann hagnað, er háir vextir af peningum fé- lagsins veita. Þetta fjelag dregur ekki Jje Inirt úr fylkinu. K. S. Thordarson - - agent. 457 Main Str., AVinnipeg. Skógurinn. Mér þúkæri skógur skín, skemtun færir munar-heimi; þó að fjærist þér að sýn, þína skæru mynd ég geymi. Ilblóm grundu anga við Edens bundin dýrri sælu ; ymur lundur léttum klið— ljúf er stund í morgun-kælu. Finn ég yndi ekkert meir, en í lind, und grænum meiði, skoða mynd »f rósa reir reifðum vindi’, á sumarheiði. Langt á fund eg færi þinn —friðarstund gefst liuga minum— mætti ég blunda síðsta sinn svásum undir greinum þínum. Hulda. FRETTIR. DAGBÓK. LAUGARDAG 9. JÚNÍ. Ómunalega grófur haglstormur gekk yfir Vínarborg í gær, mölvaði yfir 100- 000 glugga, eyðilagði jarðargróða, og sópaði laufi af trjánum, svo þau eru nakin eftir eins og um hávetur. Eft- ir skúrinn var hagl-lagið 6 til 8 þuml. þykkt. Ófriðlegar horfur á Sikiley. Þar eru 30,(XX) námamenn atvinnulausir og allslausir og búnir að vera það svo mánuðum skiftir. Eru þeir nú farnir að hóta að hóta að ganga um og eyðileggja alla uppskeru á eyjunni svo að fleiri en þeir sjálfir svelti til dauðs og annað sjá þeir ekki fyrir. Bandaríkjastjórn er að hugsa um að lögsækja fyrverandi formenn Central Pacific brautarfél., til þess að ná inn einhverju af peningunum. er stjórnin' á hjá því. Central Pacific er þáttur af Union Pacific brautinni, og hjá þesstim félögum báðum á stjórnin um «50 milj. Á sumum strætunum i Portland, Oregon, er vatnið 10 feta djúpt. í bænum sjálfum skiftir eignatjónið mil- jónum dollara og eina járnbrautina, er þangað liggur.Union Pacific, þarf að sögn að leggja eins og að nýju á 200 mílna kafla. Borgin Milwaukee er gjaldþrota, svo að engum þjóni bæjarráðsins hefir verið borgað nú um fleiri vikur, og talað um að loka skólunum, af því ekki er hægt að launa kennurunum. Vandræðin stafa af þvi, að allur sjóð- ur bæjarins var í vörzlum eins banka, er fór á hausinn, að -sögn fyrir stuld formannsins. Frost gerði skaða í miðhlut Illi- nois-ríkis aðfaranótt föstudagsins. — Hefði það átt sér stað í Manitoba, þá hefði fréttin verið útbreidd hvervetna með stóru letri, en ekkert er tekið til þessa í stórum, löngu bygðu mhéruðum landsins. Ný gufuskipalina er komin á lagg- irnar á stórvötnunum, eign Great Northern brautarfél. Fyrsta skip henn- ár, “Nortli West,” kom til Duluth frá Buffalo í gær og fögnuðu Duluth-menn Því mæta vel. Fiumvarp Senator Boultons áhrær- andi bygging Hudsons Bay járnbraut- arinnar, fékk rothögg í efri deild Domionþingsins í gær — var lagt á hilluna um næstu 6 mánuði. 4265 nautgripir voru sendir til Englands frá Montral í útrennandi viku. MÁNUDAG, 11. JÚNÍ. Járnbrautarslys tvö áttu sér stað á C. P. R. á laugardaginn seint, bæði á milli Winnipeg og Port Arthur. Fyrra slysið[orsakaði-t þannigí að brotnaði niður brú yfir á, 28 milur fyrir vestan Efravatn, undan hraðlestinni að aust- an. Yfirbygging brúarinnar var gerð úr tré og hafði kviknað í því frá skóga- eldi í grendinni. Niður í ána hljóp gufuvagninn, bögglavagninn, póst- og “Express” vagninn og tveir fólks- vagnar, en á sporinu stóðu eftir 3— fólksvagn, snæðingsvagn og svefnvagn. Yið slysið biðu bana 2 menn svo víst sé, og ef til vill 3, en 7 meiddust meira og minna. Vagnarnir, sem niður hrundu, brunnu ’alveg niður að vatnsborði og fórst alt eða nær alt, sem í þeim var. Pósturinn allur brann.—Við síðara slysið, um 200 milum nær Winnipeg, varð ekkert manntjón. Minnesota-þingmennirnir á Was- hington þingi hafa á ný vakið máls á þörfinni á samgöngufærum milli Ame- ríku og Evrópu um Hudsonflóa. Hafa þeir nú samið tillögu og lagt fyrir nefnd þá, fem fjallar með mál um járnbrautir og vatnavega-bætur, er fer fram á, að Bandaríkjastjórn fái Canadastjórn til að taka þátt í kostnaði við að athuga hvort tiltækilegt sé, og ef svo, hvað það kosti, að útbúa óslitna skipaleið frá Mexico-flóa að sunnan til Hudson-flóa að norðan. Austurrikiskeisari hefir viðurkennt hið nýja ráðaneyti Ungverja, er Dr. Wekerle hefir stofnað, þrátt fyrir að keisaranum er sérlega illa við einn manninn í ráðaneytinu. Allar þessar þrætur eru því niðurbældar. Brazilíu-fregnir segja að uppreist- armennirnir haldi áfram enn að stríða gegn stjórninni ognýlega.hafi verið liáð ar margar orustur. Sagt er og að Da Gama, uppreistarstjórinn, sé nú í Evr- ópu að leita eftir 'sainskotum til að lialda áfram nppreistinni. Læknafélagið í Ontario úrskurðaði nýlega að drykkjuskapur værisjúkdóm- ur, en ekki gltepur, og að fylkisstjórn- inni bæri að koma upp stofnunum, þar sem drykkjumenn verði læknaðir, í stað þess að hegna þeim með fangelsis vist. ÞRIÐJUDAG 12. JÚNÍ. I gær var hafið réttarhaldið í mál- inu gegn Erastus Wiman, í New York. Heill herskari af vinum Wimans, frá Bandarikjum og Canada, voru við- staddir. F ormaður Hurontario-skipaskurð- arins f3rrirhugaða, er á að samtengja Torónto og Georgean Bay á Huron- vatni, segir að vegstæðismælingin byrji að mánuði liðnum og að þá verði fél. búið að fá saman eina milj. dollara (skurðuriun á að liosta $50 milj.) Skurðurinn verður 66 mílna langur, vatnsdýpi í honum 22 fet, og skipa- leiðina frá vesturenda Efravatns til Montreal á hann að stytta urn 600 mílur. Sambandsstjórnin ákveður að gera nýja tilraun til að fá Manitoba og Northwestern brautina framlengda til Prince Albert á skemmri tíma en tíu árum. Fast-ákveðinn 10 ára frestur verður því ekki veittur fyr en búið er að athuga hvað félagið getur. Astralíu sendimennirnir á nýlendna- fundinn í Ottawa, komu til Victoria, Brit. Col. í gær, með Ástralíu-skipinu "Arawa.” Lake of the Woods hveitimylnu- fél. liefir gefið vagnhlass (410 sekki) af hveiti til nauðstaddra í British Columbia. Sænskur velmegandi bóndi, Andrew Anderson að nafni, fyrirfór sér á bú- jörð, er liann hafði leigt í grend við þorpið Melita í Manitoba, í gær. Bróðir hans, er bjó með honum, veit ekki hvaða ástæður voru til þessa úr- ræðis. Soldáninn yfir Morokkó, Mulej- Hassan, er látinn, 73 ára gamall. 100 ára afmæli staðarins Brandon, Man., á að halda hátíðlegt í sumar. Bærinn sjálfur er ekki nema 13 ára gamall, en það eru liðin 100 ár í sum- ar frá því Hudson Bajr fél. stofnaði verzlun, með venjulegu virki umhverf- is, í grend við bæjarstæðið. Þessa verzlunarstöð nefndi félagið Brandon House. í gær afréð efrideild Bandaþings ins í Washington að leggja að meðal- tali 40% toll á öll bómullarléreft, tvinna o. þ. h. Var áður 55%, undir McKinley-lögttnum. Allir vinstrimenn á Belgíu-þingi gengu af þingi í dag og segjast ekki koma aftur. Ástæðan er að gömul lög ákveða að þingið skuli ekki sitja eftir 12. Júni. MIÐVIKUDAG 13. JÚNÍ. Vatnsmagnið í Frazer og öðrum fljótum vestan Klettafjalla er nú óðum að minnka. Einn dyravörðurinn í Kaupmanna- samkundunni í Chicago var bóluveik- ur að verki sínu í gær og sagt hann hafi staðið vörð fleiri daga síðan veikinn greip hann. Hann var fiuttur á sjúkrahús undireins og kunnugt varð hvað að lionum gekk. Óttaslegnir mjög urðu allir viðstaddir og ekki að ástæðulausu. Námamenn i Bandaríkjum halda áfram að eyðileggja járnbrautir og flutningafæri. Á einni braut. í Ala- bama hafa þeir nú brennt 7 brýr yfir vatnsföll. Læknarnir á Englandi, sem stjórn- in skipaði til að rannsaka canadiska nautgripi, álíta að í einum þeirra hafi þeir fundið vott um sjúkdóminn er þeir óttast — lungnaveiki. Einhver bráðdrepandi veiki æðir um Kína og banar um 100 manns á dag, Bandaríkjastjórn hefir heyrt að póllenzkur maður, en þegn hennar og heimilisfastur í Buffalo, hafi verið tek- inn fastur í Póllandi o g dæmdur til langs tíma þrælkunar í saltnámunum í Síberíu. Tveir flokkar af smjör- og osta- gerðar-kennurum eru nú að ferðast um Manitoba upp á kostnað sambands- stjórnarinnar. Aðsókn bænda er mikil hvervetna og þykja allar líkur til að gagn mikið verði að tilsögn þessari. FIMTUDAG, 14. JÚNÍ. Eitt New Yoi'k blaðið, sem liingað til liefir þó verið Tammany-fiokknum lieldur hlynt, kemur nú fram og sýnir, samkvæmt því er upp hefir komið við rannsókn þar að lútandi, að lögreglan i New York dregur á ári liverju yfir $10 millíónir í sinn sjóð á ólögmætan hátt. Allmikill snjór féll í þessari viku í fjallendinu á austur-Frakklandi. Vandræðalegar horfur eru sagðar á Kórea-skaganum. Uppreistarmenn hafa haldið uppi ófriði um undanfarinn tíma og eru nú að sögn búnir að Jná haldi á höfuðborginni Seoul. 1200 brunnu nýlega í borg einni í Japan og fórust 13 menn i eldinum. Vatnsflóðið á leið C. P. R. spors- ins er nú hlaupið fram svo að í gær byrjaði óslitinn lestagangur gegn um fjöllin. Hagl gerði skaða á ýmsum stöðum í Minnesota í gær. Duncan Mcltyre, auömaður milc- ill og einn af stærstu hluthöfum í C. P. R. félaginu, lézt í gær að heimili sinu í Montreal, eftir langa legu. Haglól gerði skaða á allmiklu svæði í Assiniboia-liéraðinu vestra í gær. Mcð einu C. P. R. skipinu, er geng- ur til Japan og Kína, og sem kom til Vancouver að austan í gær, bárust nánari fréttir um sóttveiki þá er roðir um Kína. Eftir því sem henni er lýst, er hún líkust "Svarta dauðanum”, er geysaði í Lundúnum á 16. öld. Hita- veikin grípur mann upp úr þurru, höf- uðþyngsli mikil [og magnlejrsi fj’lgir henni og líkamshitinn stigur í 105 og j*fir. Eitlar allir bólgna, einkum á liálsi og undir höndunum, og verða stórir eins og fuglsegg. Innan 24 kl. stunda drepur sótt þessi flesta, en lifi menn 6 sólarhringa, er von um bata. Sótt þessi kom fyrst upp f Can- ton, í Aprílmán., og útbreiddist þaðan. Það livessti í Dominion þingsaln- um um tíma í gær, eftir að oinn af fjdg- ismönnum stjórnarinnar kærði einn þingmanninn í flokki Lauriers fyrir tilraunir að fá samþj kkt lög á Banda- þinginu í Wasliington, er hindrað gæti Canadastjórn frá að nejrta afls síns. Blaðið Empire í Toronto gróf þetta kærumál upp og prentaði brenarskrá frá Jolin Charlton, Dominion þingmanni, til efri deildarinnar í Washington, þar sem hann sýnir hvernig Bandaríkja- stjórn geti liagað löggjöf sinni svo að Canada liði óliag af, en geti ekki aðgert. Eitt af því, sem hann bað um, var breyting á 'toll-lögunum, að þvi er snerti borðvið, og að honum væri hag- að svo, að Canadastjórn gæti ekki lagt útflutningstoll á borðvið til Banda- ríkja. Crispi, ráðherrastjóri á Italíu, hefir lokið við að mynda nýtt ráðaneyti og eru margir lians gömlu meðráðamenn i því. Hið nýja ráðanejrti tók sæti á þinginu í dag. FÖSTUDAG 15. JÚNÍ. Victoria-búar eru hræddir við svarta dauðann í Kína og hafa beðið Dominion stjórnina að viðhafa stranga lœknis-skoðun á skipum að austan, er þau koma að vestur-odda Vancouver- eyjar. Stjórnin hefir þegar skipað að hefja. slíka rannsókn tafarlaust. Lík tveggja manna eru nú fundin í ánni, er C. P. R. lestin hrundi í um daginn. Þannig eru það 3 mann- eskjur, er beðið hafa bana við slys þetta. Nálægt fjórðungi bæjarins Panaraa á Panama-eiðinu í Mið-Ameríku brann til ösku í gær. Eignatjón að minnsta kosti $1J millión. Háj’firdómarinn á Englandi, John Duke Coleridge, lávarður, lézt í gær- kveldi í Lundúnum, 73 ára gamall. í Ástralíu er talað um að sameina hin ýmsu héruð undir eina sambands- stjórn, með sama fj-rirkomulagi og er i Canada. I Ohio er nú bjTjað að flytja kol til markaða, en hermanna vörður fylgir hverri vagnalest. Söngva-salurinn mikli í Toronto, er miljónaeigandinn H. A. Massey, byggði og gaf borginni, var vígður í gærkveldi með mikilli viðhöfn. Salurinn kostaði S150,000 og eru sæti í honum fjrrir 4000 áhejTendur. Regn allmikið féll í gær bæði í Norður og Suður Dakota og í norðvestr héruðum Minnesota. YMISLEGT. Htegfara eru járnbrautarlestirnar á Spáni, ef dæmt er af því, hve blöðin þar dáðust að þvi nú nýlega, að vagn- lest skyldi komast sem svarar rúmum 25 milum enskum á 1 kl. stund. Túnskdldiö nafnfrœga, Beethoven, varð snemma heymardaufur og upp á síðkastið svo he.vrnarlaus, að hann gat ekki greint trumbusláttinn í flokki leikaranna. Hann heyrði aldrei sína frægustu tóna leikna eða sungna. ófríðasta krennfólkið i heimi er í flokki Garo-þjóðflokksins á Indlandi, á hálendinu milli Bramapootra ogGoorma dalanna. En undir eins eru konur þar kvenna duglegastar. Þær stjórna öllu, þær annast búin, biðja sér manna, ráða ríkinu og öllum lögum og í einu orði gera alt sem karlmenn annarsstað- ar gera. Ef samskonar myndbrej-ting fjlgir jafnrétti karla og kvenna, þá væri sorglegt að veita fallegu amerík- önsku kvennþjóðinni pólitísk réttindi. Ai.lih ehu miljóna-eioendur. Svitaholurnar á líkama manns á meðalstærð eru samtals um 7 miljónir. Svitliolurnar eru 2800 á hverjum ein- um ferhjTningsþumlingi liörundsins, en ferhyrningsþumlungarnir eru alls 2500 á meðal ínanni. —Pall Mall Budget. Sama hér. “I observe that the edi- tor is out”, said the visitor. “Yes, sir, out of everything ; ain’t lieen a dollar around here since Christ- mas !” GæDi reyktóbaksins “Ðer- by Plu<r" eru alment viður- kend. 5, 10 og 20 cts. plötar Orða-belgurinn. OpiD bréf til Rsy. B. Fav Mili.s frá R. C. Adams, President of the Canadian Secular Union. Herra. I ræðu j ðar síðasta mið- vikudag, og sem birtist í blaðinu Wit- NESS í Montreal, er þér hélduð jrfir ung- um mönnum, spjrjið þér : “Er liinn efagjarni ungi maður liólpinn?” Þér svarið: “Hann getur ekkí verið á- nægðtir ; ej'ðilegging og sj-nd sækja liann heirn”. Þér segið sögu af presti, er á að hafa framsett spurningar á yan- trúarmanna fundi á þessa leið : Hvað hafið þér gert til að bæta líf manna í þessariborg? Hvað hafið þér gert til að hjálpa börnunum ? Hvað hafið þér gert til að hjálpa þeim sjúku og óláns- sömu ? Þér segið að þeir hafi engu getað svarað, og svo bætið þér við: Jeg hefi aldrei hej-rt getið um neina hjálp, von eða gleði bjóðast þeim van- trúuðu; sj-nd og örbyrgð er á vegi þeirra. Síðan segið þér frá kvölum þeim er Voltaire og Tomas Paine hafi tekið út í dauðanum. Alt þetta frorið þér fram í þeim tilgangi, að menn skuli síður voga að neita kenning yðar, og koma mönnum til að trúa því, að van- trúarmenn séu ólánssamir og gagns- lausir heiminum. Ég hefi eitt sinn hejrt j’ður prédika og einnig lesið kafla úr prédikunum yð- ar, e.r birzt hafa á prenti, og það gladdi mig að sjá þá framför í betrunarkenn- ingunni er þar birtist, hinn veglega framburð yðar og einkum það, að þér lögðuð meiri áherzlu á gott siðferði, en trú á friðþæging, meiri áherzlu á elsku til guðs, en á blóð Jesú Krists, og minnist aldrei á helvítis eld. Þér líkt- ust ekki hinum öðrum evangelistum, er renna um borgirnar sem hamstola, til að bjarga sálum íbúanna, og ég vonaði, að j-ður mundi takast að bæta líf margra og vér mundum þess vegna mæta meiri djarfleik og sannleiksást, en svikum og ranglæti meðal hinna mörgu kristnu. • En fyrirlestur hins ofanritaða nej-ð- ií mig—sem leiðandi manns hins frjáls- hugsandi flokks í Canada—-til að lýsa þessa sögu jrðar um efagirni og trú- lejrsi algerlega ósanna. Ef þér vitið að þér farið með ósannindi, eruð þér ger- samlega óhæfur fyrir þá stöðu, er þér hafið tekið að j'ður, en ef þér vitið það ekki, eruð þér óhæfur lcennari lýðsins, því þá þekkið þér ekki heiminn í kring um yöur, og fyrir þekkingarleysi á bókmenntum verðið þér óhrofur til að fræða og bæta lýðinn. Ég álít að þér brúkið orðið Infidel, e ins og Webster þýðir það—þann sem ekki trúir á Krist sem guðs son, höf- und kristninnar—. Og ég verð að segja, að sögn yöar um gæfulejrsi og gagnslejrsi þessara manna er öfug við söguna, bæði hins liðna og yfirstand- andi tíma'. Að sönnu hefir gæfu þeirra og framkvæmdum verið spillt af ofsókn um hinna kristnu, og með með löglegu banni gegn arfieiðslugjöfum til að hjálpa máli þeirra áfram,* og þaðer ein- ungis festu þeirra og þoli að þakka, að hin mikla framför er orðin í flokki þeirra. Kreddur trúlej'singja er nátt- úrutrú; kreddur hinna kristnu er kraftaverkatrú, og þér munuð fljótt geta séð, að öll pólitík og mannfélags- leg framför á rót sina að rekja til vits mannlegrar brúkunar, uáttúrlegra hluta. en liefir ekki framkvæmd fjTÍr bænir til guðs hinna kristnu. Það er afar-þýðingarmikið atriði, ' að frum- herjar allra breytinga til umbóta liafa lang-oftast verið vantrúarmenn. Ameríka á að þaklia sjálfstæði sitt vantrúarmönnum, Franklin, Jefferson, Tomas Paine og Washington, og hinn efagjarni Lincoln frelsaði þræla hins ameríkanska þjóðveldis. Garibaldi og og Mazzini eru lietjur hinnar samein- uðu Ítalíu. Hinu franska þjóðveldi er ágœtlega stjórnað af frihyggendum. Vantrúarmennirnir Robert Owen og Jacob Holjroke eru feður jafnréttis- umbóta þessara tíma. Flestir hinna miklu auðfræðinga, svo sem Adam Smith, Mill, La Salle og Hara, hafa verið skjmsemistrúarmenn. Frumherj- ar frelsisbaráttu þrælanna i Ameríku voru vantrúarmenn, og þú munt varla dirfast í þínu eigin landi að atyrða Garrison og Sumner. — í bókmenntum skal ég nefna Göthe, Martineau, Carlj'le Georg Eliot og Emerson. Skáld eins Og Burns, Byron, Shelly, Longfellow og William Whitmann. Einnig þeir sem hafa látið heimmn hlæja, svosem hinn trúlausi Mark Twain, er telst ineðal heimsins velgjörðamanna, en mundi þó fyrirlita yðar sjálfræði og telja orðtæki yðar óþolandi. Slíka frum- herja visindandanna, sem Sjiencer, Dar" win, Huxley, Tyndall og heil herfylk- ing af uppfindingamönnum ásamt hin- um allra-frægasta Edison, er allir hafa unnið lieiminum ómetanlegt gagn, án þess að trúa á Jesús Krist. Menn þeir, er hafa bj;ggt járnbraut- ir vorar og stofnað stórkostleg verk- stæði fyrir allskonar iðnað, hafa flestir vcrið vantrúarmenn. Meðalmannanna i þessu landi er ekki hafa trúað ritning- unni og þó lagt út stórfé í almennings- þarfir, skal nefna : Peter Bej’ham, sem gaf 3 millíónir dollara til sjúkrahúss i Boston ; Stephan Girard, er gaf 6 mrllí- ónir dollars til að stofna skynsemistrú- arskóla í Philadelphia (er kristnir hafa umsnúið); James Lick, er gaf 6 milh'ón- ir dollars til vísindalegrar starfsemi og stofnaði liið mikla stjörnuhús í Califor- nia ; Peter Coojier, er gaf $3 milliónir til uppfræðingar í New York ; Smith- *) A Englandi er það bannað með lögum að gefa til vantiúarstofnana. Pýð. son er Smithsonian-stofnunin í Washing ton er j'iðkennd.Og ég vil segja j’ður.þótt hinir ungu menn í Toronto ekki viti um þetta, er ég hér hefi talið upp, þá vita þeir þó að í yðar eigin borg, Montreal, hafa vantrúarmenn lagt til $1 millión til McGill háskólans í Montreal, og þegar leitað var að mönnum, er bezt mœtti trej’sta til að bj’ggja það húsa- þorp, voru teknir tveir alþekktir van- trúarmenn. Ef til vill hafið þér sjálfir þekkt, að þá er þér fjwst komuð í þessa borg, var gerð almenn tilraun að rj’ðja úr borgarráðinu einum mikilsvirtum manni, er var methodisti, en þeir fengu engan er þeir treystu til að verða hlut- skarpari en formann friþenkjara- flokksins. Gagnvart hinum margendurtekna tilbúningi um endalj’kt Voltairs og Tomas Paines, sem þér þykist gera lrogra undir höfði með því að kalla hann Tom, vildi ég ráðleggja yður að lesa æfisögu Voltairs eftir jafnfræga rit- höfunda sem John Morelej’ og James Partou.og um TomasPaine eftir G.Con- way, og í staðin fyrir að treysta upp á jafnhlutdræga og lygna böfunda eins og þá kristnu, er rituðu um þessa menn. Það er þér segið um Voltair, hefir reynzt ósatt, því vér höfum það eftir sjónarvotti, að hann lézt kl. 11 þ með mestu rósemi. Tveim dögum áður.þegar aðstoðarprestnr frá St. Sulpice spurði hann. hvort hann trj’ði ekki á guðdóm Krists, fálmaði hann með hendi sinní til prestsins, snéri sér skyndiiega til annarar hliðar og mælti: “Látið mig dej’ja í friði”. Conway segir : “Tomas Paine hræddist alls ekki dauðann”, og talar um þau ónota svör, er hann hafi gefið Dr. Romaine, að hann hafi dáið eftir rólega nótt. Hinn fyrri æfisöguritari og óvinur Tomasar Paines, Cheatburn, varð sekur fjrir níðfit fjrir dómi í New York, og Conway sýnir fram á, hve gjarn hann hafi verið á ósannindi. Ef þér viljið ekki opinberlega taka aftur ósannindi yðar af hræðslu fyrir að þá muni færri trúa “dogmu” yðar, þá spjr ég, hvort þér viljið ekki# opin- berlega hafa samræður við mig um það, hvort undirstöðuatriði kristindómsins munu betur hjálpa til velferðar mann- félagsins, heldur en undirstöðuatriði náttúrutrúarinnar ? Ef þér ekki takið þessu boði og neitið að færa sannanir fjwir framburði yðar, hljóta fríhyggj- endur i Toronto að álíta j’ður hej’ra til þeim flokki presta, er haga sér svo, að prédikunarstólar þeirra hafa fengið nafnið “ragmennsku-vígi (Cowards Castle), þar sem aftur á móti fáir frí- hykgjendur halda ræður, án þess að bjóða mótstöðumönnum aðhlusta á og hafa málfrelsi. Að síðustu, ef ég fro ekki þannig tækifæri til að mœla móti framburði jrðar mun ég prenta þetta í því eina blaði hér í Toronto, er hefir svo menntaðann ritstjóra að þola van- trú og krorir sig ekkí um hvað er tízka eða hvað er bezt fjrir trúna. Trúið mér. herra minn, ég er ekki að ásaka jrður fjrrir vísvitandi ósann- indi, en held við mína seinni tilgátu, að dómur yðar hafi komið til af því, að þér hafið ekki haft nægan tima til lest- urs vegna embættis yðar, Ég fellst hjartanlega á sumt i yðar siðferðislegu kenningu og álít það muni hafa góð á- hrif, og þó er ég viss um að það hefði meiri áhrif ef þér bj’gðuð meira á sönn- um vísindum í staðin fjwir að byggja á því, sem er eftir minni hjrggju úreltar “dogmur”, efasamar og ósannaðar sög- ur. Prestur þessi skrifaði Mr. R. C. Adams kurteist bréf og baðst undan því að fara í kappræður um þetta efni. (Eftir Free Thinkirs Macazine). Jóhannes Siourdsson þýddi. Þetta er gott sýnishorn af þvi, hvernig vantrúarmenn í Ameriku at- huga um hverja ræðu og ritgerð hinna orthodoxu, og líka sýnir það. hve gjarn ir þeir orthodoxu eru á að fullvröa um það er þeir ekki þekkja. Þýð. VEITT HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNING UNN IÐ BEZT TILBÚNA. Oblönduð vínberja Cream of Tartar Powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára reynzlu.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.