Heimskringla - 01.09.1894, Blaðsíða 2

Heimskringla - 01.09.1894, Blaðsíða 2
2 HELMSKRINGLA 1. SEPTEMBeR 1894. komr út á Laugardögum. Tiio ileiiaskrÍDgla Pt«. & Fubl.Co. útgefendr. [Publishers.] Verð blaðsins 1 Canada og Banda- ríkjunum : 12 inánufSi $2,50 fyrirframborg. $2,00 6 ----- $1,50 ---- — $1,00 3 ----- $0,80; ------- — $0,50 Ritstjórinn geymir ekki greinar, sem eigi verða uppteknar, og endrsendir þær eigi nema frímerki fyrir endr- sending fylgi. Ritstjórinn svarar eng- um brófum ritstjórn viðkomandi, nema í blaðinu. Nafnlausum bréfum er enginu gaumr gefinn. En ritstj. svar- ar böfuudi undir merki eða bókstöf- um, ef höf. tiltek. slík* merki. Uppsögn ógild að lögam,nemakaup- andi sé alveg skuldlaus við blatsið. Ritsjóri (Editor): EGGERT JÓHANNSSON. Ráðsmaðr (Busin. Manager): J. W. FINNEY kl. 9—12 og kl. 1—6 á skrifst. Peningar sendist í P.O. Money Or- der, Registered Letter eða Express Money Örder. Banka-ávísanir á aðra banka, en í Winnipeg, eru að eins teknar með afföllum. 653 Pacific Ave. (McWilliam Str.) Merkur Islendingur látinn. 22. Júlí síðastl. lézt aðjheimili sínu i Parísarborg, eftir þjáningarfulla þriggja mánaða legu, hinn mikilsvirti franski blaðamaður, Islendingurinn Ólafur Bjarni Gunnlögsson, dr. phil., sonur Stephans landfógeta Gunnlaugs sonar þrests Þórðarsonar að Hallorms- stað í Suðurmúlasýslu. Hann var bróð ir austurlanda málfrseðingsins próf. Albert Högna Gunnlögsonar, sem nú er æðriskólakennari í Tacoma í Washing- ton-ríkinu vestra. Dr. Gunnlogsson var fæddur í Reykjavík og ólzt þar upp. Gekk hann þar fyrst á skóla og útskrifaðist af latínuskólanum. Þaðan fór hann til Jíaupmannahafnar og gekk þar á há- skólann. Þaðan fór hann svo til Bel- giu og hélt áfram háskólanámi, og þar fékk hann nafnbótina : “doktor í vís- indum”. í meir en 30 ár var hann leið- andi stjórnarritari hins merka Parísar- blaðs “Le Nord” og um síðastl. nokkur ár var hann aðal-ritstjóri þess. Auk þess ritaði hann og margt oí mikið fyr- ir önnur blöð og tímarit á Frakklandi. í blaðaheimi Frakka átti hann fáa maka sem fjölfræðingur, og hvað snerti þekkingu á stjórnmálum ailra Norður- álfulanda var hann höfði hærri en allir samtíðar blaðabræður hans á Frakk- landi. Blaðamannafélagið í Parísarborg ýUniou des Journalistes francais), er hann var einn af frumkvöðlum að er það var stofnað, stóð fyrir útför hans 27. Júlí, er var hin veglegasta. Var hann graíinn í grafreitnum Bagneux, nálægt ; Parísarborg. Meðal merkra Norðurlanda-manna, er viðstaddir voru jaröarförina, voru þeir Jonas Lie, norski skáldsagnahöfundurinn, og próf. N. C. Fredricksen, danski hagfræðing- urinn, sem Skaudinövum í Ameríku er kunnugur fyrir veru hans hér, ekki sið- ur en landsmönnum hans í Danmörku. Um dr. Gunnlögson ritar Jón rit- stjóri Ólafsson í Chicago fróðlegagrein í “Norden”, dagp. 25. Ágúst. Getur hann þess þar meðal annars, að þegar hann (J. Ó.) var 9 ára sá hann Gunn- lögson í fyrsta og síðasta skipti. Kom hann þá til íslands, upp á Fáskrúðs- fjörð, með tveimur kaþólskum prestum, er áttu að staðnæmast á íslandi, læra málið og gróðursetja þar kaþólska trú. Annar þeirra var hinn góðkunni kaþ- ólski prestur Baudoin, er fyrir skömmu Jézt i Reykjavik. AðgerðLr Greenway’s í Suðausturbrautarmálinu vill Lögberg verja, sem vonlegt er. En það geng- ur ekki vel, enda illmögulegt að verja það að gagni. Snúningar og vöflur koma ekki að liði í svona máli og því göngum vér fram hjá flestu i síðustu grein Lögbergs um þetta efni. En athugasemdalaust er ekki rétt að sleppa henni allri. Um Dauphinbrautar-fjár- veitinguna segir það : “En ekki get- uim vér neitað því, að oss finst alt öðru máli að gegna um þær tvær brautir. Dauphinbrautin átti að leggj- ast um svæði, þar sem mjög mikil bygð er þegar komin.....Hún átti að hjálpa sveit sem er brautarlaus. Suðausturbrautin aftur á móti á að leggjast um óbygðir, og eftir sameig- inlegri skoðun nær því allra fylkisbúa, að undanteknum nokkrum Winnipeg- mönnum, mundi hún lítið hjálpa öðr- um hlutum fylkisins en Winnipeg.” Þetta er hálfur sannleikur en ekki meira. Það er rétt, að Dauphin-braut- in átti að leggjast um svæði þar sem bygðin er þétt orðin á 35—10 mílna svæði vestur fyrir Portage La Prairie, en um þetta þ&ttbygða nvieði liggur Mani- tóba og Norðvestur járnbrautin og til henn- ar þarf enginn á því svæði að sækja lengra en 10—12 mílur og fáir svo langt. Á þessu svæðinu er því engin Virýn þörf á annari járnbraut, að minsta kosti ekki svo brýn, að fylkisstjórnin sé sjálfsögð að verja $10,000 á hverja mílu til að fá hana bygða og það á með- an fylkið er ráðalaust að fá það fé end- urgoldið, sem það fyrrum lánaði Mani toba norðvesturbrautinni, ráðaleysi, er stafar af efna- en ekki viljaleysi félags- ins. Á leið Dauphin-brautarinnar fyTÍr norðvestan þetta þéttbygða svæði eru líklega ekki yfir 2000—8000 manns alt talið. Það er rótt og sjálfsagt, að þeir menn fái sinn tiltölulega styrk af opin- beru fé, en $1 125 000 sýnist meir en tiltölulegur skerfur. "Suðausturbrautin aftur á móti á að leggjast um óbygðir”, segir Lögb. og er hér einnig sagður hálfur sannleikur, en ekki meira. Brautin mundi leggjast um óbygðir á 60 milna kafla, en á 40 mílna smeði austur frá Rauðá leggst hún eftir þéttbygðu héraði, eins þéttbygðu eins og samsvarandi héruð upp og ofan eru nokkursstaðar vestan Rauðár. Þetta svæði er enn þá alveg brautar- laust. Ofan á afdráttarlausa neitun um styrk til brautar um þetta svæði bætir svo stjórnin og hennar málgögn því við, að nefna þetta blómlega hérað “óbygð”. Það skyldi þó aldrei vera, að það sé pólitísk “óbygð”, sem áttervið? Víst er um það, að helmingur íbúa þessa héraðs eða meir aðhyllist kaþólska trú og þess vegna lítil von um atkvæði fyrir Greenwáying, og það þó vel væri skamtað viðbitið dagana fyrir kosning- arnar. Að Suðausturbrautin komi fylkinu í heild sinni að litlu gagni, er nokkuð fljótfærnisleg ljugsun. Íþvíboði, sem síðast var framlagt, var lofað niður- færslu á flutningi kornmatar til Sup- erior-vatns, að fenginni samvinnubraut austur þangað, og sem greinileg von er um að 1 til 2 árum liðnum, er svarar 3 til 4 cents á hvert bush. í haust verða send austur að minnsta kosti 20 millíón- ir bush. og að 2 árum liönum þá að lík- um 25 milliónir. Setji maður svo, að niðurfærslan sé að eins 3 cents á bush., gerir sú niðurfærsla á 25 millíónum bush. samtals $750 000 á ári. Hveiti- bændurnir, með öðrum orðum, fengju þá $75 0 000 meira en þeir fá nú fyrir hveiti sitt. Bóndi, sem hefðilOOO bush. il að selja, fengi þá $30 meira fyrir hveitið, heldur en hann fær nú. Hvað langt mundi verða að bíða þess, að Dauphin-brautin áynni slíkt hið sama? Ekki getum vér gert að því, að oss virðist það nokkuð “skringileg” röksemdaleiðsla hjá voru heiðraða sam, tíðarblaði, að af því Commercial hafi alt til þessa verið lilynt Greenway- stjórninni sé svo kátlegt að sjá aðfinn- « jngar þess, að allir hlægi nema Hkh. En þetta álit vort er að líkum sprottið af vanafestu, því þessi röksemdaleiðsla Lögb. er sjálfsagt svo markverð upp- götvun í pólitískum visindum, að hún ætti skilið að skipa sama flokk og upp- götvun Þorsteins Gíslasonar um fram- tíð mannkynsins. Til þessa hafa menn að jafnaði haft þá skoðun, að ekki sé ástæðulaus umkvörtun andstæðinganna þegar vinirnir sjálfir snúast á móti ríkj- andi stjórnarfiokknum og fylla flokk andstæðinganna. En nú sýnir þessi upp- götvun Lögbergs, að alt slíkt er lok- leysa, en að það er bara til athlægis, þegar vinirnir snúast á móti. Undir þeim kringumstæðum væri því vitleysa ein að geta þess til, að þessi hláturs- kviða stjórnarinnar stafi af þvi, að hún só að þokast á annan harnsaldurinn, eins og kemur fyrir að hendir einstakl- inga, þegar æfin er orðin löng og líður að kvöldi. Neyðin í Pullman. Um neyðina í “fyrirmyndar”-bæn- um Pullman hefir farið mörgum sög- um að undanförnu. Fyrra mánud. heimsótti Illinois góvernorinn, John P. Altgeld, þorpíð, fyrir bænastað verka- mannanefndar. Fór hann af handa hófi hús úr húsi í ýmsum hlutum þorpsins, talaði við kúsráðendur og leit inn í hvert herbergi. Alstaðar var sama sagan fram borin, ekkert að borða nema það, sem góðviljaðir menn gáfu og enginn hafði fengið fullkomna máltíð um langa tíð. Útlit fólksins, klæðnaður þess og fátækt að því er húsmuni snerti, alt þetta var og þegj- andi vottur um að fólkið sagði satt. Húsin eða hólfin, sem ætluð voru einni fjölskyldu, voru lítil, 3 og 4 lii.il her- bergi, en leigan fyrir þessi herbergi var $12—$13 fyrir fjögur herbergi, en $8—$10 fyrir þrjú herbergi. Að rann- sókninni lokinni komst governorinn að þeirri niðurstöðu, að í Pullman og Kensington (þorp áfast við PuUman) væru að minsta kosti 1000 fjölskyld- ur, sem þjáðust bæði af hungri og nekt og sem útheimtist að tafarlaust væri veittur styrkur, ef þær ættu ekki að verða hungurmorða. Skrifaði hann þá Pullman sjálfum og lét í ljósi, að hans skylda væri að gera eítthvað til að draga úr neyðinni. Því bréfi svaraði Pullman strax á þá leið, að hans félag vfldi helzt vera sjálfrátt gerða sinna og gæti ekki tekið tU greina aðsendar ráðleggingar. í því bréfi lét hann og í ljósi, að neyðin væri upp- gerð ög sagði ekki langt síðan einn af þeim, er nú þættist nauðstaddur, hefði tekið úr banka sínum $1300 til að kaupa fasteign fyrir. En þá sögu segja aUir að PuUman sjálfur hafi sam- ið. Þá lét hann og í ljósi þykkju sína yfir því, að þegar governorinn kom til Pullman voru á vagnstöðinni tveir formenn Pullmanfélagsins, er buðu að gerast leiðsögumenn hans. Því boði neitaði governorinn stuttlega, en fór með þar til kjörnum atvinnulausum mönnum, er ekki þurfti að óttast að gerðu honum sjónhverfingar. Að sjón- hverfingar hafi verið ákvarðaðar sann- ar og það, að Pullman skyldi reiðast. Þessu bréfi Pullmans svaraði gover- norinn á þá leið, að ekki væri þa um annað að gera, en skora á alþýðu að bjarga þessu fólki og það gerði hann líka tafarlaust. Gekk það vel og hefir síðan rignt niður samskotafé úr öUum áttum. Þessi undirtekt Pullmans styður ekki mál hans fyrir almanna dómnum. Það gera heldur ekki uppgötvanir þær, sem smátt og smátt eru gerðar fyrir rannsóknarróttinum, er situr i Chicago til að skoða þetta mál alt niður í kjöl- inn. Er þvi nokkur Von til að eitthvert gagn komi af málarekstri þeim. Ef ekki verður annað gagnið, verður þaö þó að vændum það, að útheimurinn hættir að dást að PuUman-þorpinu, sem fyrirmynd aUs hins fagra og góða, og hættir þá um leið að vcgsama höfund- inn, George M. PuUman, sem endur- lausnara verkalýðsins svo langt sem hann nær. Indíánarnir í Canada. Sú skoðun er almenn hór eins og annarstaðar, að frumbyggjar Ameríku, Indiánarnir, sóu óðum að deyja út, að hverfa fyrir morðvopnum Evrópu- manna, vopnum sem ekki eru nauð- synlega eggjárn eða byssur. Að þvi er Canada snertir, þá er þessi skoð- un ekki rétt. Samkvæmt síðustu fólkstöluskýrsl- um rikisins (AprU 1891) eru í Canada um 110 000 Indíánar, eða um 6000 fleiri en árið 1881. Eigi að síður er það rétt, að ýmsir flokkar þeirra höfðu orðið fyrir mann- fækkun á áratugnum síðusta, sérstak- lega “Blood” flokkurinn í grend við Fort McLeod í Alberta. Sá flokkur er mjög skammt á veg kominn að því er siðfágun snertir, en eru nú óðum að læra hvítra manna háttu. Mönnum, er þetta hafa athugað, þykir með þessu fengin ein sönnunin enn fyrir róttlæti þess álits þeirra, að Indíánar þoli sízt breytingar-tímabilið, tímabilið, á með- an þeir eru að .breytast frá villumanna á menntaðra manna stig. En að eftir að þeir hafa náð stigbreytingunni þrif- ist þeir eins vel og hver annar þjóðflokk ur í landinu. Þrátt fyrir fólksfækkun í þessum flokki og smávægilega í nokkrum öðr- um, hafa Indíánar í Manitoba og Norð- vesturhéruðunum i heild sinni fjölgað svo nemur 4000 á áratugnum. 1881 voru þeir samtals 37 000 í þessum lands- hluta, en 1891 voru þeir orðnir fuU 41- 000. í British Columbia standa þeir sem næst í stað, að þvi er fjölgun snertir. Þó eru þeir heldur að fjölga en fækka. Yoru tæp 35 000 árið 1891, en heldur vfir 35 000 1891. ‘ í sjófylkjunum eyítra, Nova Scotia og New Brunswick, eru þeir heldur að fjölga; voru þar alls innan 4 000 1891. En sú litla fjölgun vegur ekki meir en á móti fækkun þeirra í Quebec fylkinu. Þar voru þeir nokiiuö á 13.000 1881, en 1891 voru þar 12 000 eða því sem næst. í þessum þremur fylkjum standa þeir því í stað. í Ontario hafa þeir aftur á móti fjölgað svo nemur 1600 á áratugnum. Voru 15,900 1881, en voru orðnir 17,500 1891. Fólkstöluskýrslurnar sýna ekki hvaða flokki þessi eða hinn Indíáninn tilheyrir, enda eru flokkarnir ótölulega margir. En flesta þessa flokka má samt sameina í 4 aðal-ættbálka, sem upprunalega voru feður þessara mörgu smáflokka. Fyrstan ber að nefna Iroquis-ætt- stofninn sögurika og hinar ýmsu kvísl- ar hans, svo sem Mohawk, Oneida og Ohandaga-flokkana o. fl., aUir sögurík- ir og almenningi ef til vill kunnugastir fyrir Skinnsokkasögurnar (The Leather stocking Tales) eftir James Fenimore Cooper. ÖUum þessum miklu flokkum lýsir Cooper mæta vel, þó einum væri í þetta skifti hallmælt af þvi söguhetjan hans útheimti það. Þessi ættbálkur allur heldur sér mikið til á sínum gömlu stöðvum í Ontario, Quebec og austur- fylkjunum öðrum. Annar ættbálkurinn heitir Algon- quin og er útbreiddari miklu en Iroquis ættin, þó ekki sé hann eins frægur í sögunni. Þeim ættbálki tilheyra Mik- mak-Indíánarnir í Nova Scotia, Objib- way-flokkarnir í grend við Sarnia, Ont., og á hálendinu norður og vestur af Efravatni. Þessum ættbálkí tilbeyra og Cree Indiánarnir í Assiniboia og víð- ar á sléttlendinu vestra, Blackfeet- flokkurinn í Alberta o. fl. o.fl. Þriðji ættbálkurinn heitir Atha- basca og er hann minnst þekktur og kvíslar hans, en honum tilheyra aUir Chippeweyan-flokkarnir og töluverður hluti British Columbia Indíánanna, þeirra, erbúa austur um fjöllin, upp frá hafinu. Fjórði ættbálkurinn heitir Sioux og er stundum nefndur Dacotah. Var það fyrrum óefað herskáasti Indíánaflokk- urinn í öUum norðurhluta Norður-Ame- ríku, og á hann rót sína að .rekja til Bandaríkja. Þessi ættbálkur er fyrir löngu sundurliðaður í ótal smáflokka og er hann mannmargur mjög í Manitoba og hvervetna á sléttlendinu. Uppruna ætt Indíánanna, er búa strandlengis í British Columbia, þekkja menn lítið. í heild sinni erú þeir nefnd ir Siwashes, þó margir séu flokkarnir. í sjón eru þeir allólíkir bræðrum sínum austan Klettaf jalla, þó hörundsliturinn sé einn og hinn sami. í fólkstöluskýrslunum eru 25 000 Indiánar taldir protestantar, 40 000 kaþólskrar trúar, en 45 000 ýmist heiðn- ir, eða ekki hægt að komast eftir hverr- ar trúar þeir eru. Bismark Kínverja. Það þóttu merkisfregnir um daginn þegar sagt var að keisari Kínaveldis hefði svipt sinn mesta mann heiðurs- einkenninu æðsta í Kína—“gulu káp- unni”. Þessi maður er Li Hung Chang hersliöfðingi og stjórnmálamaður mest- ur í Kína, sem nú er kominn yfir sjöt- ugt. Hvað hann hafði til saka unnið er ekki greinilegt, nema ef vera skyldi það, að keisarinn óttist vinfengi hans við ýms Norðurálfu stórmenni á ófrið- artíma. Því það hefir öllum, er mann- inum hafa kynnst, verið ljóst nú í mörg undanfarin ár, að hann hefir verið allra manna fúsastur á að taka sér snið af N orðurálfu þjóðum og hefir verið þeirra einlægur vinur, að svo miklu leyti, sem hann hefir við ráðið. Það er líka óneit- anlega honum að þakka, að friðsamleg- ar endalyktir hafa orðið á þrætum Kín- verja við ýmsar Evrópu þjóðir og enda við Japaníta. Honum einum er það að þakka, að Kínverjar eiga nokkurt nýtilegt herskip, nokkuð af nútíðar vopnum og að kínverskir hermenn haía notið tilsagnar Evrópu herforingja. Það er og honum að þakka og honum ein- um, að nokkrir fréttaþræðir liggja um Kínaveldi og að nokkrar tilraunir hafa verið gerðar að leggja jámbrautir. I stuttu máli er það honum að þakka, að nokkur tilraun hefir verið gerð að fylgja tímanum í Kínlandi. Þó hann sé sviptur “gulu kápunni”, heldur hann enn sínum mörgu og miklu embættum. Hvað mörg þau eru er ó- víst.en þau helztueru þessi :Hann erund irkonungur í héraðinu Pechile, er telur 25 millíónir íbúa og þar í er keisarasetr- ið Peking. Hann er forseti ráðaneytis- ins, stórkanslari, bermálastjóri og sjó- flotastjóri m. m. o. fl. Svo ættstór er hann og mikilsverður i veldinu, að vel hefði hann getað stofnað nýjan konung- dóm, gerzt konungur sjálfur og klofið hið kynmarga Kínaveldi, enda hefir hann um dagana fengið margar bend- ingar um að það skyldi hann gera. En alt sUkt hefir hann látið eins og vind um eyrun þjóta og staðið stöðugur í þjónustu keisaranna, eins fram af öðr- um. Fyrir alt þetta smánar nú strák- hnokkinn, sem skipar keisarastólinn, Kwangsu keisari, þennan mikilsvirða öldung og framfaramann. Li Hung Chang er fæddur 16. Febr. 1823 og er óblandaður Kinverji í báðar ættir. Snemma var hann settur til mennta, að nema kínversk fræði, og út- skrifaðist eftir óvanalega stuttan náms- tíma. 1847 var honum veitt doktors- nafnbót í kínverskum vísindum. 1851 var hann skipaður ritstjóri keisarans, en það þýðir, að honum bar að búa til prentunar allar stjórnarskipanir, lesa prófarkir og sjá um að engir gallar væru á Iritinu. Jafnframt bar honum að annast um ritun sögu keisaraveldis- ins. Taiping-uppreistin .batt enda á þessa friðsömu stöðu hans, því hann var sendur til að draga saman her og kenna vopnaburð. Hækkaði hann fljótt í þeirri stöðu og varð innan skamms hægrihönd undirkonungsins í PechUi, Tseng Kwo Fan, en sá maður var fað- ir stjórnfræðingsins nafnkunna, sem lengi var sendiherra Kína í Lundúnum og Paris, Tseng greifa, sem nú er lát- inn. í þessari stöðu kynntist hann mörgum Evrópu hershöfðingjum og þar á meðal George Gordon, sem kallað- ur hefir verið Kína-Gordon, og sem um árið lét lífið í Soudan. Reyndist Gor- don honum ótrauður liðsmaður, enda lionum mikið að þakka, að Chang um síðir gat bælt niður uppreist þá hina miklu, er kostaði meir en millíón Kín- verja líf- Þó fór sú vinátta út um þúf- ur í endalok styrjaldarinnar. Gordon hafði fangað hóp mikinn af uppreistar- mönnum og heimtaði Chang, sem þá var orðinn Governor og bjó í Shanghai, þá framselda, en Gordon neitaði, nema ef Chang lofaði að gefa þeim upp sakir. Því lofaði Chang, en lét drepa alla und- ir eins og hann fékk tangarhald á þeim. Reiddist þá Gordon og leitaði að Cbang í þeim tilgangi að taka líf hans, en hann lá í leyni meðan Gordon var í grend- inni. Skildi svo með þeim. Að upp- reistinni lokinni tók Chang á mála flokk mikinn af hermönnum, er verið höfðu undir stjórn Gordons. Um það leyti náði liann til þjónustu Sir Halli- day Macartey, er mestan þátt hefir átt í að Evrópísera her Kínverja og vopna- búning allan. Þennan herforingja setti Chang til að kenna þessum flokk sínum, er nefndur var "svarti fáni”. Er sú herdeild nú úrvalalið Kínverja og eru í henni 40 000 til 50 000 hermenn. Er nú herdeild þessi almennt kölluð Li Hung Chang herinn. í þakklætisskyni fyrir alla þessa frammistöðu var Chang skip- aður undirkonungur í héraðinu Two Thiang árið 1865 og sat hann þá í borg- inni Nankin. Tveim árum síðar var honum veitt sama embætti í Hon Kwang og var þá stjórnarsetur hans í Hankow. Frá þeim tíma féUu heiðurS- nafnbætur og stór embætti þétt og fast í skaut hans. 1870 var hann skipaður undirkonungur i héraðinu PechiUi, eft- irsóknarverðasta embættið ,í ríkinu, næst keisarastólnum, og gerðist hann þannig eftirmaður Tseng Kwo Fan, er hann 20 árum áður var sendur tU að hjálpa, er uppreistin hófst. Þó höfuð- staður veldisins, Peking, sé sem næst í miðju héraðinu og þó karl þurfi að heita má daglega að sitja á fundi með keisar- anum og ráðgjöfum hans, býr hann samt ekki í Peking. Stjórnarseturhans er sjóstaðurinn Tsen-Tsin, um 90 mílur frá höfuðborginni, og er karl þar um’ kringdur af sínu úrvalaliði á landi, en sjófloti hans ýmist liggur við bryggj- urnar eða sveima um Gula floann með fram ströndunum. Sólsagnirnar og guðspjöllin. Eftir Fjalliconunni. Fyrir skemstu hélt Norðmaðurinn Kristofer Janson, skáld og únítaraprest- ur, fyrirlestra í Khöfn um kristnu trú- brögðin og andatrúna (spiritismus), sem hann aðhyllist nú. Segist hann hafa verið fráhverfur henni ifyrstu, en sann- færzt um það í Ameriku, að kún hefði við eitthvað að styðjast. Úr fyrirlestri hans um kristindóminn er hér tekinn eftirfarandi kafli um áhrif sólsagnanna á frásagnirnar um Krist. Hjá öUum hinum elztu þjóðum hafa verið til sólsagnir, og eru þær aUar hver annari líkar í aðalatriðunum. Sól- in er skoðuð eins og frelsarisá, er fæðist 25. Des., þá er stjörnumerki jungfrúar- innar sést yfir sióndeildarhringnum í austri.—Stjarna ein boðar fæðingu sól- arinnar, sem fæðist í heUi og hefir 12 fylgisveina (dýrahringinn). Hún upp- vekur dauða, en bíður voveiflegan bana fyrir myrkrinu. Á indverskum pening- um er sólguðinn myndaður krossfestur með útrétta handleggi. Enn hann ris aftur upp frá dauðum, og upprisudagur hans er 25, Marz. Þessum sögnum um sólguðinn hafa nú allar hinar elztu þjóðir snúið upp á trúbragðahöfunda sína. Hindúar snúa þeim t. d. upp á Krischna. Hann fæð- ist f helU og er dýrkaður af konungum, en annar iUur konungur hótar honum dauða og flýr hann undan morðráðum hans og eftirsókn. Á unglingsaldri sín- um gerir hann kennifeðurna forviða á lærdómi sínum. Hann safnar að sér lærisveínum og gerir kraftaverk þau sem nokkrum hundruðum ára síðar eru heimfærð upp á Krist. Hann ummynd ast, er að síðustu krossfestur og lagður spjóti i síðuna, og sól og tungl myrkv- ast við dauða hans. En á þriðja degi ris hann upp frá dauðum. Krischna er önnur persóna í trúarþrenningu Hin- dúa. Hann er kallaður “upprisan og lífið”, “hinn góði hirðir” o, s, frv. Hér má sjá, að viðburðirnar í sögu Krichna samsvara alveg viðburðunum i sögu Krists. Einstaka orþódoxir guð- fræðingar hafa reynt að sýna, að Hin- dúar hafa tekið þessa viðburði eftir ævi sögu Krists og heimfært þá upp á Krischna. En það tekur engu tali, því hin fornu indversku musteri eru miklu eldri en kristindómurinn enn í þeim eru myndir, sem lýsa viðburðunum úr lífi Krischna. Það er því í augum uppi, að hin elzta kyrkja hefir tekið allan þennan sagnflokk, sem upphaflega hneig að sól- guðinum, ogheimfært hann upp á Krist alveg eins og Indverjar. Egyptar og Persar heimfærðu sagnirnar upp á sína trúbragðastofnendur. Og hvers vegna gerði kyrkjan þetta ? Af því að henni hefði annars verið ófært að keppa við hin önnur trúbrögð. Heimurinn mundi aldrei hafa viðurkent Krist sem guð, hefði líf hans ekki verið skreytt hinum sömu undra viðburðum, sem skreyttu líf hinna trúbragða stofnendanna. En hin elzta kristilega kyrkja var sér þess ofur vel meðvitandi, að þetta voru ekki sannir sögulegir viðburðir. Þetta má ineftal annars marka af því, að Gnóst- ikarnir, einhver elzti flokkurinn í hinni kristilegu kyrkju, töldu alla þessa við- burði sem munnmælasögur og skoðaði þá er tóku þá í bókstaflegum skilningi eins og bókstafa-þræla og “idióta”. En bókstafs þrældómurinn vann sigur, og alt það sem upphaflega var skilið sem munnmæla skáldskapur, það var nú skoðað eins og sögulegur veruleiki, og ekki nóg með það, heldur þar á ofan gert að sáluhjálpar skilyrðum. Það er því ekki auðiðnú, að sundur greina munnmælin og líkingaskrúðið frá hinni sönnu sögu, og það því fremur sem vér höfum ekki aðrar frásagnir um Krist að styðjast viðen þær sem standa í guðspjöllunum, sem hafa tekið upp all- an þennan áðurnefnda sagnflokk. Sam- tíða sagnirnar hjá Gyðingum og heið- ingjum segjía ekkert frá honum.—Sú þögn hefði ekki getað átt sér stað. ef allir þessir undra viðburðir hefðu í raun og veru verið tengdir við líf hans. Sumum kynni svo að virðast. að með þessum hætti yrði lítið eftir af h'fi Krists. En það er misskilningur. Því það sem gerði hann mikinn í vorum augum, það voru ekki kraftaverkin, — það var hugprýðihans, hið sjálffórnanda líferni hans, orð hans í fjallræðunni, hin ar djúpnæmu samlíkingar hans og bar- átta hans fyrir frelsinu gegn liinni lög- gildu kenningu prestanna. Orða-belgrinn. Ósannsögli B. Herra ritstj. í Hku. nr. 30 p. á. birtist lyga- þvælu-grein eftir Mr. B. Arason í Kjal- vik, og af því að ýmsum atriðum í þeirri grein er beinlínis dróttað að mór, og greinin samin í þeim tilgangi, að reyna að svívirða og smána einstakann

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.