Heimskringla - 15.12.1894, Side 4
TTF7M«KT?T*GT.A ir. TJÉFEMPET? 1004.
1894, « NOVEMBER « 1894.
Hefir verið ágætur mánuður fyrir
okkur í
Blue Store.
MEÐ BLÁSTJÖRNU MERKINU.
434 MAIN STR.
— SEM ER HIN —
Odyrasta fatasolubud i Winnipeg.
Síðan 1. Nóaember höfum við selt meira af buxum en á undanförnum
þrem mánuðum, og kemur það af því að við seljum alt fyrir hálfvirði.
Þeir sem rengja það, œttu að koma og sjá það sjálfir.
Þetta er sýnishorn af fataverðinu :
HEIMSKRINGLA
Printing & Publishing Co.
heldur ársfund sínn á skiifstofu
blaðsirs, comer Ross Ave. & Nena St.,
laugardagskveldið 29. þ. m., kl. 8.
Þar verða þá framlagðir reikn-
ingar félagsins, kosnir menn í stjórn-
arnefnd þess fyrir komandi ár og
annað það fyrir tekið er pauðsyn
kann til að bera.
Winnipeg, 7. Dec. 1894.
The Hkr. Prtg. &. Publ. Co.
J. W. FINNEY,
forseti.
Winnipeg.
Bæjarstjómin hefir ákveðið að
kaupa nýja slökkvi-vél, Kostar $5,450.
Utanáskrift til hr. S. B. Bene-
diktssonar verður framvegis : Bardal,
P. O., Manitoba.
Á þriðjudaginn var byrjaði bæj-
arstjórnin að gefa atvinnulausum
mönnum atvinnu við uð brjóta stein
til strætagerðar. 30 menn gáfu sig
þegar fram.
Meðlimir stúkunnar “Heklu” háfa
í undirbúningi skemtisamkomu mikla,’
sem haldin verður milli jóla og nýárs—
hina venjulegu afmælisveizlu stúkunn-
ar. Meira í næsta blaði.
Eftir langa dvöl hér efra fór hr.
Gestur Oddleifsson heimleiðis á mánu-
dagskveldið var. í þetta skifti er
hann hættur við að sækja um með-
ráðanda stöðu í sveitarstjórn Nýja
íslands.
Húsfyllir var á Bijou leikhúsinu á
föstudagskvöldið var, Jtil að hlýða á
ræður þeirra Woods og Wallace frá
Ottawa. Þó margir væru andstæðing-
ar þeirra á fundinum, var þeim veitt
bezta áheyrn.
Vegna fráfalls Sir John Thompsons
verður ekkert af þvi að Sir Ch. Hibbert
Tupper staðnæmist hér eða hafi fund
á austurleiðinni. Hann hætti við öll
störf vestra og fór af stað heim undir
eins og andlátsfregnin barst vestur.
Þegar þið þurfið að bregða ykkur
tij Nýja íslands, þá megið þið ekki
gleyma að Kristján Sigvaldason fer frá
Selkirk á hverjum þriðjudagsmorgni,
að hann hefir ofnhitaðann; rúmgóðann
sleða, og að hann er æfinlega hárviss
að ná takmarkinu á tilsettri stund.
Lesið auglýsinguna um ódýra stein
oliu í öðrum dálki blaðsins. Panti
maður oliuna hjá löndum sinum, eru
meiri líkur til að pöntunin verði fljótar
afgrcidd. heldur en þegar menn eiga við
hérlenda, sem reynslan hefir sýnt að
hættir til að gleyma ;heimili manns og
nafni.
Hið ágæta vísindalega vikublað
Tiie Open Court (Paul Carus ritstj.)
verður selt fyrir $1 árgangurinn, frá 1.
Jan, næstk., rétt helmingi minna verð
en verið hefir á því. Vonast útgefend-
urnir eftir að allir lesendur blaðsins geri
sér að skyldu að útbreiða Open Court
með þvi, að útvega því nýja kaupend-
er nú, þegar varð blaðsins er svo lágt.
Sendið 1 dollar í bréfi til Th» Open Court
Publ, Co. Monon Bldg., Chicago, 111.
Nokkrar konur í Tjaldbúðarsöfn-
uðinum hafa nýlega myndað kvennfé-
lag, er heitir : Kvennfélag Tjaldbúðar-
safnaðar.
Meðlimir Unítara-safnaðarins eru
beðnir að koma saman í kyrkju sinni
annaðkvöld (sunnudag) kl. 7. Árið-
andi málefni verða rædd og er þess
vegna nauðsynlegt að allir safnaðarlim-
ir sæki fundinn.
Vér leyfum oss að mæla með, að
allir kjósendur í 4. kjördeild komi á
fund þann í Verkmannafélagshúsinu á
Jemima Str. á mánudagskveldið kemur,
sem auglýstur er annarsstaðar í blað-
inu.
Catarrh.—Brúkaðu Nasal Balm.—
Fljót og viss lækuing ; linandi, hreins-
andi, læknandi. (2
Hr. Jón Július kom vestan frá
Argyle á mánudaginn var og hafði
þá fullgert skurðinn úr flóanum aust-
ur í Cypress River. Er skurður sá
2^ mílur á lengd, 16 fet breiðastur
og 6 íet dýpstur. Á þriðjudaginn fór
hann með McDonell til Nýja-íslands
til að líta eftir vegagerð og kosn-
ingum.
Kyrkjuvígsla. Á morgun kl. 11 f.
h. verður kyrkja Tjaldbúðarsafnaðar
á horninu á Sargent og Furby vígð,—
Öllum íslenzku prestunum, ritstjórum
íslenzku blaðanna hér í bænum og
nokkrum hérlendum mönnum hefir sér-
staklega verið boðiðjað vera viðstaddir.
Allir Islendingar í Winnipeg eru vel
komnir.—Vigslu-athöfninjbyrjar á slag-
inu kl. 11.
Nýr spámaður
þarf sá ekki að vera, sem sér að jóla-
vikan verður hin mesta anna-vika hér
hjá mér. Eg veit sjálfur mikið vel, að
þegar þessar nýju jólavörur koma sem
ég á von á ásamt mörgu öðru af nýj-
um vörum, þá fer alt í bál og brand.
En mér bregður ekki viðjþó ég hafi nóg
að gera, það hefir verið svo í alt haust
og segi.ég því alla velkomna eins og fyrr.
Akra, N. Dak.
T. THORWALDSON.
M. W. A. Charlesworth
hefir almennan fund meðal íslenzkra
kjósenda í Ward 4 d mdnudagskvöldið
kemur, 17. þ. m.-, í Yerkmannafélags-
húsinu á Elgin Ave. Allir íslendingar
sem hafa bæjarkosningasrétt í þessari
kjördeild eru beðnir að koma á fundinn.
—Byrjar kl. 8.
Þvættings-ritlingar.
Heimurinn heldur áfram og altaf
koma út nýjar og nýjar bækur. Mánuð
eftir mánuð koma út nýjar og nýjar
bækur með óvanalega lágu verði. Mikið
af þessum bókum er bara þvættingur,
ónýtur og óhafandi á heimilum. Verk
margra merkra höfunda fást nú fyrir
sama verð og flest af þessum ónýtu
skrípa-ritum. Canadamenn eru gæddir
svo mikilli skynsemi, að þeir ættu að
hafa vit á hvaða bækur eru þess virði,
að þær sé þess virði að þær sé hafðar á
heimilum. Hinir margreyndu og vönd-
uðu Diamond-litir kosta ekkert meira
en ýmsir af hinum óvönduðu og sviknu
litum sem alstaðar eru í boði. Diamond
litir eru hinir beztu í alla staði : litur-
inn er sterkur, fagur og endingargóður.
Hver liturinn er þá hinn ódýrasti og
bezti ?
Sveitarlífið og
Reykjavíkurlífið,
fyrirlestur eftir mennta og gáfukonuna
Bríet Bjarnhéðinsdóttir, konu Valdi-
mars ritstj. Ásmundssonar.
Fyrirlesturínn er 56 bls. að lengd
og er skarplega dregin pennamynd af
lífi manna á íslandi. Er hann fróðleg-
ur fyrir alla, en þó sérstaklega fyrir þá,
sem yfirgáfu ættjörðu sína á unga aldri
Fáein eintök fást keypt á afgreiðslu
stofu Hkr.
Eintakid 20 cents.
Skemtisamkoma.
Skemtisamkoma, með veitingum,
verður höfð í Northwest Hall í kvöld
til arðs fyrsta lút. söfnuðinum. Að-
gangur 25 cents fyrir fullorðna og 15
cts. fyrir börn innan 12 ára. Sam-
koman byrjar kl. 8 og er programmið
sem fylgir:
Söngur : nokkur börn.
Fíólín og munnharpa :
Fr. Swanson og S. Anderson.
Duet: Dr. Ó. Stephensen og A. Jónsson.
Lestur: Guðjón Hjaltalín.
Dúet : Mrs. BlöDdal op; V. Magnússon.
Solo: S. Anderson.
Veitingar.
Söngur : nokkur börn.
Lestur : E. Hjörleifsson.
Solo : Albert Jónsson.
Guitar Duet:
Misses Benson og Stephanson.
Recitation : B. T. Björnsson.
Trio : Blöndal, Benson og Johnson.
TOMBOLA
og daiis fyrir fólkið,
verður haldin á Northwest Hall þriðju-
daginn 18. þ. m. Vér viljum vekja
athygli fólks á þvi, að þessi tombola
verður dálítið öóruvísi en vanalega
gerist. Það verða alt nýir og eigu-
legir hlutir, mjög hentuglegir fyrir
jólagjafir, töluvert af dýrum munum
svo sem nokkur album sem kosta frá
$1—$6, og ýmsir fleiri hlutir er kosta
$2 og yfir. Notið tækifærið því jólin
eru í nánd.
Drátturinn 25 c. ásamt aðgang að
danzinum. Aðgöngumiðar fást allan
mánudag og þriðjudag hjá G. Johnson
og Á. Thorðarson. á horninu á Ross
og Isabel Str. Dansinn byrjar kl. 9
e. h. Stringbandið spilar.
Bústaðar-skifti.
Hér með læt ég landa mína vita, að
ég er fluttr frá Cavalier til Hamilton og
er reiðubúinn til að selja ykkur greiða
þegar þið komið hingað, móti borgun
út í hönd. Ég er eins vel undirbúinn
að mæta ykkur nú eins og ég hefi verið
nokkurn tíma áður.
Með virðingu.
RUNÓLFUR SIGURÐSSON.
STEINOLÍA
á 20, 25 og 30 cts. gallonið.
Flutt borgunarlaust til allra staða
í borginni. Pantanir sem lagðar eru
inn hjá undirskrifuðum verða afgreidd-
ar fljótt og vel:
Thorbj. Guðmundsson 519 Nellie Ave,
Ólafur Ólafsson 216 Nena Str. Jacob
Thorsteinsson 124 Lydia Str. eða
J. S. BAIN
EIGANDA. Toronto Str.
Til kjósenda
- í -
Ward Four.
Undirskrifaður bjður ykkur vin-
samlegast að veita sér fylgi og greiða
atkvæði með sér við bæjarfulltrúa-
kosningamar 18. Desember. Géð og
hagsýn bæjarstjórn er hans mark og
mið.
GEORGE CRAIG.
Til kjósenda
- í -
Ward 4.
Ég er í kjöri til .bæjarstjórnar
og vonast eftir fylgi yðar og at-
kvæðum 18. Desember. Greiðið at-
kvæði með manninum sem styður
réttindi verkamanna.
Yðar einlægur
W. A. CHARLESWORTH.
TIL KJÓSENDA í ÞRIÐJU
KJÖRDEILD.
Með því að ég hefl verið tilnefnd-
ur sem bæjarfulltrúi þessarar kjör-
deildar fyrir 1895 og 1896, þá leyfi
ég mér að sækja eftir atkvæðum yð-
ar. Auk þess sem ég vísa til þess
orðs, er af mér fór sem bæjarfulltrúa
árin 1883 og 1884, ætla ég bráðlega
að boða til funda í kjördeildinni og
skýra frá mínu prógrammi. Fyrst
um sinn bið ég yður að lofa engu um
atkvæði yðar, þangað til öll fulltrúa-
efnin hafa fengið tækifæri til að láta
til sín heyra. Eg ætla að finna svo
marga ykkar, sem mér verður unnt,
fyrir kosningardaginn.
'W'. F. McCrcary.
Jolin Arbutlmot
Mælist virðingarfyllst til
að fá atkvæði ykkar
og
fylgi við
bæ j ar st j órnarkosnin garn ar
-í-
- WARD 3. -
Ward 3.
— KJÓSIÐ -
Jolm O’Donoliue
í SKÓLASTJÓRN
FYRIR
WARD 3.
Góðar vaðmálsbuxur...........$1.50
Áferðarfínar Worsted buxur
$6.50 virði.............$3.50
Drengjabuxur.................$1.00
Hversdagsfatnaðir af ýmsum
litum $9.50 virði.......$6.00
Vönduð föt $15.00 virði bezta
tilboð í Winnipeg.......$8.00
THE HTJB
484 MAIN STR.
Stórt upplag af
-FATNAÐI —
keypt inn fyrir
50 cents á dollarnum
verðurselt með afarlágu verði.
Munið eftir staðnum-
484 MAIN STR.
S. A. Ripstein
ek;am>i
Mr. Jósep Skaftason
vinnur í búðinni.
Falleg Navy Blue föt úr írsku
Serge $18.00 virði........$12.00
Ágætar yfirhafnir............$ 5.50
Loðkragar úr ýmsuin grá-
vörutegundum........$ 2.00 og yfir
Gáið að! Coon yfirhafnir $22.50 og yfir
Islendingar!
Þér fáið hvergi betri hárskurð og rakstr
en hjá
Sam. Montgommery,
Rakstur 10 cents. Hárskurður 15 cents.
. . . . 671 Main Str.
Eftirmaður S. J. Sclievings.
Ég sendi varning til allra
staða í landin.
Athugið vel
hvers þið þarfnist fyrir jólin
og nýjárið.
Sparið peninga.
Að spara pening , er sama sem
að innvinna sér peninga.
Kaupið vindla og vín í inni alkunnu búð
H. L. CHABOT
Gegnt City Hall--513 Main Str.
ÍSLENZKR LÆKNIR
DR. M. HALLDORSSON,
Park River — N. Dak.
Alt verður að seljast. — Komið sem fyrst.
Munið að þessi tilboð eru frá — — — — —
The Blue Store
434 Main Street.
4. Chevrier.
þu gleymir aldrei!
Ef þú kemur einusinni við í ketsölubúðinni á horninu á
Isabell og Elgin Ave.. sérðu hið besta ket sem hægt er að
fá, alt af ungum, öldum gripum. Það er öQruvisi en það
sem hingað til hefir verið á boðstólum. — Við höfum lika
ágæt PORK PIES. Reynið þau,
Watt & Rands.
Corner Isabell & Elgin Ave. BUTCHERS.
74 Valdimar munkur.
eins og töframaður”, sagði Alarik eftir litla þögu
og lait með aðdáun á sigurvegarann. “Svei mér
mér eí ég vildi ekki gefa alt sem ég á, á þessu
augnabliki, og stöðuna tneð, ef ég kynm að beita
sverðinu eins vel og þú”.
“Já”, svaraði Rúrik, “það er satt, að ég er
vopnfimur vel. En ég hefi lagt mikið á míg til
að öðlast þann lærdóm”.
“Já, það er nú ekki eingöngu lærdómur”,
svaraði Alarik. “Afl þitt er á við heilan her-
flokk út af fyrir sig”.
“Og þó þekki ég miklu kraftaminni menn”,
svaraði Rúrik, “sem mundu yfirbuga mig auð-
veldlega, að minnsta kosti eru líkur til þess”.
“Þeir eru þá ekki i þessum bæ”, svaraði
lautenantinn.og hristi liöfuðið.
“Þaðer rétt, Alarik. Það er ekki siður minn
að raupa af atgervi mínu. en ég held mér sé ó.
hætt aðsegja, að í Moskva er enginn maður
yopnfimari en ég, livaða vopn sem reyna
skal”.
“Lautinantinn var fús á að viðnrkenna að
svo væri víst, og svo hættu þeir þessu tali, en
sneru sér að málefni greifans og því, hvernig
liann liefði komið tram frá því fyrsta. Voru þeir
enn að tala um það, er þeir komu að húsdyrum
Rúfiks. Þar skildu þeir, Því Alarik vild ekki
koma inn. Rúrik kvaddi hanu mcð þakklæti
ftrir vinnuna og lét x ljósi þá vou, að hanii ein-
hverntima gæti launað honum.
Claudia sat í þægindastól við arninnog voru
Valdimar munkur. 79
höllina. Getur verið að þér sleppið, en fari
bölvað, ef ég vildi vera í yðar sporum”.
Rúrik leizt þýðingarlaust að tala um þetta
mál við menn, sem voru því allsendis ókunnug-
ir og sat þe-s vegna þegjandi í sleðanum. Það
var komið fast að sólsetri þegar þeir staðnæmd-
ust við keisarasetrið, og var Rxírik því tafarlaus
leiddur fyrir keisarann.
Pétur keisari var þá staddur í einum hinum
smærri gestaherbergjum í höllinni. Sat liann
þarviðstórt borð, sem gullofið Qólublátt klæði
iiafði verið breitt yfir.en sinn þjónn var við hvora
hlið hans. Keisarinn var kornungur maður,
þremur árum yngri en Rúrik, en andlit lians var
þó tiltölulega ellilegt. Ilann var fremur lágur
vexti, grannvaxinn, en þó krafta'.egur maður.
Klæðabúningur lians vur óbrotinn og bar vott um
algertkæruleysi að því er snerti snið fatanna og
hvernig þaix fóru. Var því stór munur að sjá
hann og þjóna hans, er stóðu þar uppfágaðir í
allri sir,ni dýrð og að því skapi drambsamari en
hann.
Þannig var Pétur mikli Rússakeisari—barn
að aldri, lítill vexti og hirðulaus um það, sem
mestu varðar í gjálífri Keisara hirð—skrautbvin-
ing og glys. Og þó var hann fter um að bera á
herðum sínum allan stjórnmálabagga jafnmikils
ríkis. Hann bafði voldugt beilabú og við-
kvæmt hjarta í brjósti, og hann þyrsti ineir eft-
ir að vinna þjóð sinni til gagns og góða, en ad
evala liéeómleguiu fýsnum síu eða annara.
78 Valdimar munkur.
•‘Vertu hæg, móðir min”, sagði Rúrik. “Það
er öllu óhætt enn”. '■
“Komið strax”, sagði fyrirliðinn. “Það er
er orðið framorðið og Pétur þolir illa að bíða”.
“En þeir meiga ekki gera lionum neitt!”
hrópaði Claudia og hélt um son sinn. “Nei, nei,
móðir, vertu óhrædd. Ég kem bráðum aftur”,
svaraði hann, og sagði hermöununum jafnframt
að ganga af stað, hann væri feiðbúinn.
“Sittu nú hérna, móðír mín, og vertu hug-
hraust”, sagði svo Rúrik við móður sína [og setti
hana niðtir á þægindastólÍDn. Svo gekk hann
út, kastaði á sig yflrhöfninni í ganginum og
skelti svo hurðinni í lás. Hermennirnir biðu
hans úti og höfðu þar. skrautlegan sleða með
tveimur gœðingum speDtnm fyrir lionum. Sett-
ust þeir allir í hann og hleyptti svo n sprett.
“Það erekki að sjá að yður finnist mikið til
um að drepa einn aðalsmann Rússlands”, sagði
einn af hermönnunum þegar þeir voru komnir
af stað.
“Er liann dauður?” spurði þá Rúrik.
“Það er hann nxi reyndar ekki, en læknarnir
segja hann í liættu. En það er ekki aðal-atriðið.
Þér befðuð drepið hánn, ef þér hefðuð getað !”
“Nei, nei. Það er ékki satt. Það veit ham-
ingjan. Allir viðstaddirgeta borið vitni um, að
ég reyndi aðforða lífi hans”.
“Getur verið !” sagði hermaðurinn. "V.’ð fá-
um nánaii fregr ir um það ettir að við komuin i
Valdimar munkur, 75
hugsanir liennar alt annað en þægilegar. Hún
sat með liönd undir kinn og svo taugaslök var
Iiúd, að hún stökk ósjálfrátt á fætur í hvert skifti
sem hún heyrði þrusk úti fyrir húsinu. Um
síðir heyrði linn bjöllur lxringja og færðist hljóð
ið n*r og nær. Hún heyrði að ekið var heirn
að dyruuum og svo hætti bjölluliringlið. Hún
var að hugsa um að standa upp og ganga tii
dyra, en skorti þrek til þess, svo hún settist
niður aftur. Hún laut áfram í sætinu, krefti
hnefann og lilustaði. Innan stundar var hurð-
inni lokið upp. Var mögulegt að nekkur annar
en hann Uæmi inn án þess að berja. Hxxn stóð
á fætur aftur og titraði eins og hrísla, og í þvf
opnuðust dyrnar og maður gekk hvatlega inn.J
‘,Móðir mín !”
“Rúrik sonur minn! Heill á liófi”.
Skjálfandi færði hún sig uær honum þangað
til hún gat lagt liöfuðið á brjóst kans og vafið
lieudurnar um liálsinn á honum, á meðan liún
grét af fögnuði og þakkaði guði fyrir verndun-
ina. Smámsnman létti liouni, en samt var rauna
og sorgarsvipur á andliti hennar. Rúrik sá
hvað það var sem hún vildi segja og svaraði þvi
spurningunni að fyrrabragði.
“Greifinn er lifandi”, sagði liann.
“Og ósserður?” spurði hún þú.
•‘Nei. liæltulega sár”, svaraðf Rúrik, “en eg
gat ekki að því gert”. Svo sagði hann henni
greÍDÍletra fráallri viðreignÍDni.
MOðir lians ;at hugsand; um stand eftir að