Heimskringla - 29.03.1895, Page 4

Heimskringla - 29.03.1895, Page 4
4 lít.lMöKRiNGLA 29. MAKZ 1895 Fluttur a Main 5treet “ - Nr. 534 = = Framvegis geta hinir mörgu íslenzku viðskiftamenn mín- .... ir fundið mig að 534 ilain Str., tveimur dyram jj§x fyrir norðan harðvörubúð þeirra Campbell bræðra. Jafnframt leyfi ég mér að tilkynna löndum mínum, nær og fjær, að ég hefi fengið talsvert af úrum og klukkum og allskonar gull- og silfur-varningi. Tilgangur minn verður framvegis, eins og að und- anförnu, að gera hvem sanngjaman viðskiftamann &- nægðan. G. THOMAS, Manuf. Jeweller. Saga málarans. Winnipeg. Hr. Stephan Sigurðsson, kaupmað- ur f Breiðuvík, kom til bæjarins á laug- ardaginn var og fór aftur á mánud. TJmtalsefni séra M. J. Skaptasonar á sunnudagsdkeldið kemur íUnity Hall: Að standa með sannfæringu sinni. Skólamálið í Manito a verður um- talsefni séra Hafsteins Péturssonar, i Tjaldbúðinni, á sunnudagskveldið kem . Wl\ I kvæðinu i seinasta blaði Hkr. er prentvilla. Þar stendur í fyrsta versi: friðarreit, en á að vera friðar- leit. Lesið tombólu-auglýsinguna á öðr- um stað í blaðinu. Þar er margt og mikið framboðið fyrir að eins kvart.— Hjálpið fátækum landanum. Hr. ^nar Hjörleifsson fer af stað héðan alfarinn, með konu sína pg bijrn, til Hevkjavíkur, laugardag. ínn 6. Ápril níéstkðflli Með ljúgvitnuih tókst gyðingnum að vinna niálið, er tvetr piltar frá Nýja íslandi höfðuðu gegn honum fyrir pen- ingaþjófnað síðastl. haust. Guðm. kaupm. Johnson heflr feng- ið óvenjulega miklar byrgðir af vor og sumar varningi, léreftum allskonar, silki o. s. frv. — Meira næst. Samferða hra. E. Hjörleifsson til íslands verða, að vér höfum heyrt: ul- afur ísleifsson, JónEinarsson Snæbeck, ogef tii vill fleiri. Ennþá geta menn fengiö flutning til Nýja-íslands með pósti — frá Selkirk, en ekki Winnipeg. Fer hann með rúm- góðan vagn meðan gaddur er í jörðu. Sendimaðurinn frá Ottawa, með réttarbótakröfuna fyrir kaþólika, kom til bæjarins á sunnudaginn var og af- henti fylkistjórninni skjölin á mánu- dagsmorgun. Mál fyrir trygðarof höfðaði islenzk stúlka, Lillie Foster (Guðlaug Jóhanns- dóttir), ættuð af Austfjörðum, gegn frönskum manni, og voru henni á mánu • daginu dæmdar skaðabætur, er nema $550.00. Á almennum fundi í Albert Hall hér i bænum, á þriðjudaginn 9. Apríl næst- komandi, eiga að mæta 5 fulltrúar con- servatíva frá hverri sveit í Selkirk-kjör- dæmi, til þets að útnefna þingm.efni í því kjördæmi. Snoturt heimili við íslendingafljót er til sölu með súrstaklega góðum kjör- um. Menn snúi sér því viðvíkjandi sem allra fyrst til eigandans S. B. Jóns- sonar, Icelandic River P. O., eða Mr, Einars Ólafssonar, Winnipeg. Tyggid T uckett’s T & B “MAHOGANY” og “BLACK” Munntobak. TrLBÚIÐ AF Thb Geo. E. Tuckbtt & Son Co., Ltd. HAMILTON, ONT. Hr. Einar Hjöríeifssón kötn heim aftur úr fyrirlestrar-ferð sinni á laugar- daginn var, þá vestanúr Argyle. Hver- vetna var honum vel tekið og með lofs- orði minst á hann í enskum blöðum í bygðunum, er hann heimsótti. Þegar litið er á peningaþröngina, hafði hann vonum fremúr gagn af ferð ‘„inni, en miklu betur hefði genfr ^ ef bctur hefði árað, í samanburði við vorvsðrið í Febr. var Marzmán. kaldur þangnð til þann 17. Síðan sumarveður að v’ndantekn- um tveim dögum, og snjór allur farinn fyrir viku síðan. Bændur vestur um fylkið, og enda í grend við Winnipeg, byrjuðu að undirbúa jörð fyrir sáning og sá hveiti fyrir siðustu helgi. Rakarabúð Árna Þórðarsonar er að — 218 Jame* Str. West — rétt á móti Police Station. í búðinni. vinnur enskur rakari, sem áður heflr unnið í íslenzkri rakarabúð hér i bænum. Komið við í nýju búðinni. Fyrirlestur sinn um Vestur-íslend- inga flytur Einar Hjörleifsson í Unity Hall annað kveld (laugardag 30. Marz), sjá augl. á ððrum stað. Það er ekki of- sagt að segja, að það sé skylda Winni- peg Islendinga að sækja þennan fyrir- irlestur. Fyrst er það, að það er ef til vill í síðasta skifti, um langan tíma að minsta kosti, sem menn eiga kost á að heyra hann lesa eða flytja ræðu. Svo er hitt, að þetta er í eina skiftið nú langa, langa lengi, að hann boðar menn á fund sjálfum sér til arðs. Að undanförnu hefir hann jafnan verið manna fúsastur til að hjálpa, þegar á hefir legið að safna fé með samkomum, og það vita þær stofnanir, er hafa leitað liðs hans, að hann hefir þá ekki ósjaldan verið segul- aflið, sem dregið hefir mestan fjöldann. Það er því skylda alira þeirra, er þannig hafa leitað liðs hans, að minnast þess nú og gera sitt til, að þessi kvöldstund verði honum arðberandi. Fundarboð. Bændafélagsdeildin 1 Mountainview’ í Akra Township, Pembina Co., N. D., hefir ákveðið að halda fund Laugard, 6. Apríl 1895. kl. 1 e. h. i félagshúsinu á Sandhæðunum, til að ræða um fram- faramál félagsins og jafnvel að breyta stefnu þess, sem gæti orðið félaginu til hagsmuna. Allir fá þar málfrelsi og er óskaðeftir að fundurinn verðivelsóttur. A. R. McNjcol Esq. Gen. Manager Mutual Reserve Fund Life Association, Winnepeg. Kæri herra ! Ég viðurkenni með þakklæti að hafa tekið á móti $900 frá félagi yðar, sem borgun að fullu á [ lífsábyrgð konunnar minnar sál. Ingibjargar Guðbrandsson upp á $1000. $100 var mér borgað strax eftirdauðsfallið, til að borga með greftr- unarkostnað m. m. Gerið svo vel að færa forseta yðar og öðrum embættis- mönnumjfélags yðar innilegt þakklæti mitt fyrir greið skil á þessu, sem, sam- kvæmt samningum, ekki féll í gjalddaga fyrr en 9. Apr. Ég mun ætíð ráða mönn- um til að ganga í yðar félag, sem er hér um bil helmingi ódýrara en hin, sem halda gamla lífsábyrgðarfyrirkomulag- inu. Yðar einlægur. Guðmundur Guðbrandssou. (2*K "|A ekta Confede- J.U ZiU rations-seðlar seldir á 5 cents hver seðill, $100 og $50 seðlar 10 cent hver, 25 og 50 centa seðl- ar á 10 cent hver,$l,00og $2,00 seðlar 25 cents hver. Pantanir sendar í góðum umbúðum, ef peningar fylgja pöntun. Sendið til Ciiask & Barker, West Atlanta, Ga. ÝMISLEGT. — Oröf Eou er (sögð).í grafreiti rétt fyrir utan borgarhliðin í Jeddah og koma iþangað 50,000 pílagrímar á ári hverju til að skoða hana. •— Startta eimrekan * í heimi hefir nýlega verið smíðuð a Skptlandi, Er hún 208 fetft löng, 40 ffetá breið, 17j fetft djúp og ber 2,200 tons. Er hún öll ger af stáli Og er keðjan, sem ber rekurnar sjálfar upp og ofan og henni tilh yrandi útbúnaður um 100 tons að þyngd. Vél þessi getur mokað á 45 feta dýpi og var gerð sérstaklega til að dýpka ákveðinn farveg skipa við Bermuda-eyjar. Til þessa hefir engin slík reka getað klofið grjót og hefir því þurft að sprengja klettana á undan þeim, en þetta heljar- hákn útheimtir enga slika fyrirhöfn. Hún mokar ósprungnum klettum eins og leirjörð væri, og það á hún líka að gera í álnum, sem hún á að dýpka í Bermuda, því hann er grýttur. *) Svð nefnum vér vél þá, er á ensku heitir •'Dredge”, og brúkuð er til að dýpka árfarvegi, hafnir o. þvl. Fyrirlestur ---XJM----- / V estur-Islenclinga - - - flytur - - - Kinar lljorleifNSon og les nokkur kvæði og sögukafla, í XJNITT HALL annað kveld — 30 Marz, kl. 8 e. h. — Inngangur 25 cts. — Og einnig sama fyrirlestur í West Selkirk í samkomusal ----- - - - - Þorst. Oddsonar þriðjudaginn kemur (2. Apríl) kl. 8 e. h. — Inngangur 25 cent. Tombola og Dans k Northwest IIall (Corner Ross Ave. & Isabel Str.) næstkom. þriðjudag — 2. April. kl. 7J e. h. Program : 1. Tombola. 2. Mr. B. L. Baldwinson flytur ræðu. 3. Mr. S. Anderson syngur sole. 4. Mr. S. J. Jóhannesson les upp. 5. Dans. Drættir á tombolunni verða fáir, en yfir höfuð í betra lagi og margir ágætir. Inngangur að eins 25 cts., og fylgir einn dáttur ókeypis. — Ágóðanum verður varið til styrktar fátækum, heUsubiluð- um landa. — Munið eftir deginum : þriðjudaginu kemur, kl. 7J e. h. Tombola, ræður, söngur, dans, — alt fyrir ein 25 cent. — Wm. Amlerfton 118LydiaStr. Winnipeg. Hinn eini ísl. agent fyrir allskonar hlióðfærmn^g^Iusic^ Ábyrgist að útvega löndum sínum hljóð færi fyrir lægra verð enn þeir geta feng- ið hjá öðrum í bænum. Gömul lUjóðfæri tekin sem borgun upp í ný. Orðabelgurínn, Kattaþvottur Jóns og Alberts, má yfirlýsingin í Lög- bergi nr. 7, með réttu nefnast; en eftir- tektaverður er hann þó, og ekki síst sú upplýsing, að það hafi verið Mr. Jón PétursSóll, éém sé bendíaður við þetta, sem Albert Jóhannesson nefnir ‘mútu’- mál. Það sætir furðu, ef J. P. kann því vel af honum sem kunningja sínum, (að minsta kosti við síðustu sveitarráðs- kosningar), að leggja nafn hans við ann- an eins óþokkaskap, og hér er um að ræða, og einkennileg afleiðing af kunn- ingsskap þeirra, að A. skuli sýnast nafn J. P. eiga heima í sambandi við slíkan ófögnuð. Undir líkum kringumstæðum hefði einhvern tíma verið sagt, að sá hefði höggvið sem hlífa skyldi, og ómögu- legt var að ‘sverta’ J. P, rækilegar með öðru fremur, en bendla hann við þetta tuddastryk. “Miklir menn erum við. Hrólfur minn,” Engan mun hafa grun- að að annað eins byggi í Jóni, eins og hann nú sýnist gætinn, mjúkur og góð- ur, en “ekki er alt sem sýnist,” segir máltækið. Að Albert skyldi taka til sín ‘mútu’- glósu-greinina, sem hann kallar, i þ. á 3. nr. Hkr.. er alveg merkilegt. Skyldi þar sök hafa bitið sekan ? Skyldi sá grein- arhöfundur hafa hitt rétt á hausinn á naglanum ? Hvort tveggja mun nú mega svara játandi, því hversu illa að yfirlýsingin opinberar J. P., þá hefir þó Albert opinberað sjálfan sig hálfu ver, eins og sjá má af þessum hdskalegu vott- orðum : Ég undirritaður hefi heyrt Aibert JóhannessoD, Geysir P. O., sjálfan segja, að sér hafi verið boðin þóknun fjrrir að greiða Mr. J. Magnússyni at- kvæði sitt 18. Des. síðastl. Þessa yfírlýsing er ég reiðubúinn að staðfesta með eiði, hvenær sem þörf ger ist. Geysir P. O. 27. Febr. 1895. Andrés Skaofeld. Ég undirskrifuð, Þóranna Björns- dóttir, Geysir P. O., lýsi hérmeð yfir, að ég hefi heyrt Mr. Albert Jóhannes- son, GeysirP. O., sjálfan segja, að sér hafi verið boðin málsverður til þess að greiða atkv. með Mr. Jóhannesi Magn- ússyni, sem oddvitatfni, við sveitarráðs- kosningar í Gimlisveit í síðastl. Desem- bermán. Þeesa yfirlýsing mína er ég reiðu- búin að staðfesta með eiði hvenær sem krafist verður. Geysir P. O., 26. Fehr. 1895. Þóranna Björnsdóttir. Ég, Guðmundur Guðmundsson, Geysir P. O., lýsi hérmeð yfir, að ég hefi heyrt Mr. Albert Jóhannesson, Geysir P. O., sjálfan segja, að sér hafi verið boðin málsverður til þess að greiða atkv. með Mr. Jóhannesi Magn- ússyni sem oddvitaefni, við sveitarráðs- kosningarnar í Gimlisveit í síðasti. Des- embermán. Þessa yfirlýsingu mína er ég reiðu- búinn til að staðfesta með eiði, hvenær sem krafist verður, Geysir P. O., 26. Fehr. 1895- Guðmundur Guðkundsson. Sér nú ekki Albert af þessum vott- orðum hvar hann er staddur? Ekki lætur Albert sér nægja að gera Mr. J. P. að ómerkilogum manni — (ég mundi í sporum J. P. senda Albert ‘hnútu’ fyrir, hann ætti það nú sannar- lega skilið) — heldur einnig einhvern af kjósendum Mr. St. Sigurðssonar; en af því að fáir þeirra munu vilja gera svo litið úr sér, að skamma annan eins sið- ferðislegan vesaling og Albert er, þá er best að lofa honum að standa við orð sin með því að sanna þau, á sama hátt og hann er nú sannaður að sök ; að öðrum kosti stendur hann og hans meðhjálpar- ar alstrípaðir, eða hvað verra er : æru- leysis-háðunginni iklæddir. Kjóaandi St. Sigurðasonar. HONUM YAR ÆTLAÐ LÍF EINN MÁNUÐ. Fékk fyrst gigtarkast, og þar næst limafallssýki. — Var orðinn von- laus, og langaði til að deyja og losast við kvalirnar að lokum fann hann meðalið og segir hina merkilegu sögu sína. Tekið eftir Sherbrook Gazette. Hinar góðu verkanir sem Dr. Willi- ams Pink Pills hafa eru vel kunnar blaðinu Gazette það er all-títt að fólk kemur inn á skrifstofu þess og segir frá að það hafi læknað sig með þeim. Stundum heyrum við hreint yfirgengi- lega merkilegar sögur um hinn lækn- andi kraft þeirra og eina af þeim heyrðum við nýlega, sem var svo eftir- tektaverð í sjálfu sér að oss fanst ástæða til að gera ýtarlega rannsókn henni viðvíkjandi. Vér brúkuðum öll fáanleg tækifæri til þess og getum með sanni sagt að eftirfylgjandi frá- saga er sönn. Það eru fáir betur þekktir í þessu héraði en Mr. A. T. Hopkins frá Johnville Que. Áður en hann flutti til Johnville bjó Mr. Hop- kins við Windsor Mills og var í þrjú ár í sveitarstjórn þess héraðs. Þegar Mr. Hopkins var ungur var hann al- kunnur fyrir krafta og lipurð sem glimumaður kraftar hans komu sér vel því að hann vann ákaft að strangri vinnu : færði til og írá þunga mjöl- sekki í millu sinni marga klukkutíma á dag og hélt þó stundum áfram fram fram á nótt. Þó hann væri sterkur og þó hann væri ötull þá er ekki langt síðan að hann var eins ósjálf- bjarga eins og barn, og leið óbærilegar kvalir. Fyrir hér um bil þremur ár- um, þegar hann bjó við Windsor Mills varð hann veikur af ákafri gigtar- bólgu, Það versnaði stöðugt þrátt fyrir meðul og forskriftir og þegar veikin hafði varað eitt ár fékk hann limafallssýkiskast. Hægri höndin og hægri fóturinn urðu máttlaus, og sár komu á líkamann. Hann þjáðist ó- bærilega og hafði hvorki viðþol nótt eða dag. Hann fékk sér þá heztu meðalahjálp sem kostur var á en lækn- arnir gáfu honum enga von. “Hann deyr sjálfsagt innan mánaðar,” sagði einn merkur læknir sem hjá honum hafði verið. “Hann verður fatlaður aila æfi,” sögðu tveir aðrir læknar. Það var engin furða þó'. að honum findist iífið þungbært, og að hann langaði til að deyja, Þegar þarna var komið sögunni var komið1 fram í Ágúst 1892. í Október um haustið heyrði hann fyTst getið um. Dr. Willi- ams Pink Pills og afréð hann það í vonleysinu að reyna þær. Hann gerði það, og áður en langur timi var lið- inn gat hann farið að koma út. Hann hélt áfram með pillurnar og fylgdi vandlega forskriftum, og nú er hann. eins sterkur og hraustur eins og hann var í ungdæmi sinu, og getur nú stundað atvinnu sína óhindrað. Þannig er þá hin merkilfega saga sem fregnrita blaðsins Gazette var sögð af Mr. Hopkins sem þakkaði Dr. Willi- ams Pink Pills bata sinn og hann er reiðubúinn til að segja hverjum sem vill þessa sögu sína. Slæmt blóð eða veiklað taugakerfi. er orsökin til flestra sjúkdóma sem þjá mannkynið, og með því að Dr.. Williams Pink Pills bæta blóðið og styrkja taugarnar uppræta þær flesta sjúkdóma, og koma sjúklingum til: heilsu og krafta. Þær eru óyggjandi við limafallssýki, mænusjúkdóm, riðu. mjaðmagigt, gigt, heirnakomu, kirtia- veiki etc. Þær eru einnig sérlega góðar við ýmsum sjúkdómum sem eru einkennilegir fyrir kvennfólk. Þær bæta litarháttinn og gera líkamann hraustan. Karlmenn sem hafa ofþreytt sig á þungri vinnu fá ekkert betra meðal. Pillurnar eru seldar hjá öllum lyfsölum og sendar með pósti fyrir 50 cents askjan eða sex öskjur fyrir$2.50> frá Dr. Williams Medicine Co. Brock- ville Ont. eða Shenectady N. Y. Varið yður á eftirstælingum sem sagðar eru “alveg eins góðar.” FRÆ. Nú er tíminn til að panta og kaupa hið bezta FRÆ sem fáanlegt er. Farið í þess konar erindagerðnm til hins alkunna og áreiðanlegal fræ- J. M. PERKINS, 241 Main Str. WINNIPEG. 200 Valdimar munkur. XVII. KAP. Hvað gerðist í náttmyrkrinu. “Ég þori það ekki—þori það ómögulega!” “En það er þó eina vonin”. “Hvert getum við farið 7” “Eitthvað. Það er alt betra en að sitja hér- Þú veizt það, elsku húsmóðir œín, hvað fyrir þér liggur, ef þú bíður hér, Þetta er alveg eini veguriun til að losna undan oki hertogans”. ‘•Og ég verð að fylla flokk ókunnra manna— kasta öllu, sem mér er kært ?” “En, Rósalind, það er þó sannarlega einn maður til í Moskva, sem sér aumur á þérog getur hjálpað þér. Við skulumfara til keisarans. Ef h uin er eins og af honum er látið, þá er ég viss um að hann hlýðir á orð þín”. “já, en hertoginn er hár í völdum, Zenoba, og áhrif hans í hinni miklu hirð eru meiri en lít- il. Keisarinn þyrði ekki að stríða á móti vilja hans”. “Það getur verið, en égtrúi þvi ekki. At— hugaðu þá lika hvar þú stendnr í þvi tilliti. Þú hefir engu að tapa. Þetta jarðneskalif með öll- um þess þrautum og sorgum getur ekki boðið pðr neitt liræðilegra en sambúð við hertogann. Ef þú þe^e rigDi ítt þé *kki sé nema eitt tækifæri Valdimar munkur. 205 “Það eru nú áríðandi mál, mál, sem ríkið varðar meira en mig”. “Segðu þá frú málavöxtum”. Það voru að eins tveir menn viðstaddir, De- metrius hinngríski og einn þjónn, og samtalið fór fram £ einni prívat-stofunni nálægt svefnher- bergi keisarans. “Herra”, svaraði hertoginn. “Þú manst eftir byssusmiðnum, sem hingað var leiddur ekki alls fyrir löngu”. “Já ; það var hann, sem tók sverðið af Grikkjanum mínum”. “Sami er maðurinn. Hefirðu heyrt frá hon- um síðan ? ’’ “Svei því, ef ég hafði ekki alt að því gleymt honum, herra hertogi, en nú man ég vel eftir honum. Það var stæitur strákur I” “Já, og hættu'.egur líka, herra minn, hættu- legur m&ður!” og hertoginn hristi höfuðið. “Einmitt ! Hvað hefir hann gert ?” “Hann hefir, semógveit fyrir víst, veriö viðriðinn ýmisleg rán. Þaö var núna rett ný— lega, að hann bftiði einn af vorum góðu prestum og tók af honum alt sem hann hafði með sér.— Hann er forsprakki ræningjafélags”. “Er það mögulegt ?” “Já, herra, ég reit það !” “Því skyldi ég aldrei hafa trúað”. “Það hefði ég heldur ekki gert, herra, ef ég hefði ekki fengið ótvílugar sannanir. Eins og 201 Valdimar munkur. hefði vitað að hún var þar sjálf, er óvíst að hann hefði getað meinað henni að ganga vit. En nú kom honurn ekkert slikt í hug, lauk því upp liliðinu orðalanst. og strokumeyjaraar voru frjáls- ar á götunni. “Nú erum við þó æfinlega komnar út úr kastalanum”, sagði Zenobia með andköfum. "Leiðin er ekki löng, en nú skulum við flýta okkur”. Rósalind svaráði engu, en vafði að sér yfir- höfninni, sem bezt hún gat, því vindurinn var nístandi kaldur, og gekk svo leiðar sinnar, því nú var vonin alvöknuð í brjósti hennar. flún leit um öxl sér sem allra snöggvast og sá þá Ijós- ið í gegnnm tjöldin, er hún skildi eftir í her- bergi sínu. í þessum kringumstæðum virtist lienni það vera eldlegt auga kölska aamla sjálfs og að það væri að horfa á eftir henni, Varð það til þess að hún greikkaði enn meir sporið. Tvisvar sinnnm þennan sama dag hafði her- toginn gert boð fyrir keisarann, en í hvorngt skiflið var hann heima. Um kveldið gekk hon- nm betur. Keisarinn var þú heima og fékk Olga þegar inngöngu leyfi. “Jæja, herra hertogi”, sagði Pétur, er Olga gekk inn. “Hvaða erindi kalla þig að heiman um þetta leyti dags ?” Valdimar munkur. 201 af þúsund, þl er vænlegast að reyna að hagnýta það, hafandi það fyriv augum, að hvernig sem fer er engu tapað. Við skulum fara á fund keis- arans”. “En hvernig getur það látið sig gera Zeno- bie?” “Það gerum við í kvöld, þegarmyrkt er orðið i borginni. Þá hefjum við gönguna og ég, sem sagt, trúi því ekki, að keisarinn láti slíkt rang- læti hafa framgang, rétt til að þóknast hertogan- um. Hann er of göfuglyndur maður og einbeitt- ur til þess”. Rósalind svaraði ekki undireins, en sat og hélt hönd undir kinn. Þegar húnrétti sig upp, var auðséð að hún hafði gert fasta ákvörðun, enda sagði liún þá liiklaust: “Já, við skulum fara til keisarans, og beri hann mannlegt hjarta í brjósti, skal hann hjáipa mér”. “Það eitt er víst”, sagði Zensbie, “að hann getur_undir engum kringumstæðum unnið þér mein”. “Hvernig a að skilja það?” “ílann getur ekki annað meira, en kúgað < þig til að giftast Olga. Og í samanburðinum er öll önnur meinsemd sem fis”. “Það er satt, Zenobie. Við skulum fara”. Þess lengur sem Rósalind velti þessu fyrir sér, þess meir glæddist von hennar og varð til þess að hún ræddi meir en venja hennar var til í seinni tíð við þjónustustúlkuna, og endur og sinnum var sem brosflýgi um varir hennar. Þó

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.