Heimskringla - 26.04.1895, Blaðsíða 4
4
Winnipeg.
Lögreglustjóri fylkisstjórnarinnar,
J. M. Clark, hefir sagt af sér.
Keimili séra M. J. Skaftasonar er
nú : 588 Notre Dame Ave.
Samkvæmt veiðilögunum má eng-
inn maður veiða fisk í Rauðá frá 5.
Apríl til 15. Maí.
Efnismikil skemtisamkoma verður
höfð í Tjaldbúðinni á fimtudagskvöldið
kemur (2. Mai). Lesið auglýsinguna á
öðrum stað í blaðinu.
Guðlaug Magnúsdóttir frá Finns-
húsum í Fljótshlíð á íslandi er vinsam-
lega beðin að láta Mrs. Fredrik Hansen
í Spanish Fork, Utah, vita núverandi
“addressu” sina.
Unglingsmaður, Marteinn Jóhann-
esson að nafni, sem vann á verkstæði
hér í bænum, fótbrotnaði fyrir skömmu
og hefir síðan verið á sjúkrahúsinu.
Brotnaði beinið svo illa, að hætta Þykir
á að hann máske missi fótinn.
í haust er leið hvarf ung þýzk stúlka,
Lena Bender að nafni, hér í bænum og
var sagt að hún mundi hafa fyrirfarið
sér. Fyrir skömmu fanst lík ungrar
stúlku í Rauðá nálægt Selkirk, og er nú
sannað að það er lík þessarar stúlku.
FyTÍr fáum dögum flutti Rev. Mr.
Pedley fyrirlestur um Manitoba-skóla-
málið í kyrkju sinni Central Congrega-
tional. Sækjandi þessa máls fyrir hönd
kaþólíka, Mr. J. S. Ewart, hefir nú
fengið kyrkjuna lánaða og svarar þar
presti á mánudagskveldið kemur.
Leiðréttingar. í grein Jóns E. El-
dons í síðasta blaði Hkr. ■ eru þessar
prentvillur : í öðrum dálkparti: “til-
hneiginga-tilraunir;”á að vera hilminga-
tilraunir; í 4. dálkparti: “Hverja þá?”,
á að vera Uverju þá; í 5. dálksparti :
“niðurdreps bölvunar”, á að vera niður-
dreps og bölvunar.
Skógerðarverkstæði á að koma á
fót í St Boniface i sumar og hefir bæj-
arstjórnin veitt félaginu $10,000, sem
borgast skal á 5 árum ; að auki undan-
þiggur hún félagið skattgjaldi um 15
ár. Félagiö er skuldbundið að hafa 35
menn í þjónustu sinni fyrsta árið og 70
2. árið.
Unglingafélag Tjaldb íiðar-snfnaðar.
Eins og áður hefir verið getið um hér í
blaóinu, þá var myndað unglingafélag i
Tjaldbúðarsöfnuði um síðastliðið nýár.
Félagið heitir : “Hið fyrsta íslenzka
lúterska unglingafólag í Winnipeg”.
Það heldur fundi sina í Tjaldbúðinni
hvert fimtudagskvöld kl. 8 e. h.
You (anT Goío SLfEP
|n Church
| F V0U VE OOT
A BAD COUGM.
A quick
PleASArrf'
Cure
for AH
obsfí noí'e
Cough.Cold
I %-Hoörseness
oif
BroncbiTis
ECTORAl
Bi(5 BoTHe 25«
HElMSKKINtííJk 2G. APRÍL 1835.
t
Að þvi er vér framast vitum, hefir
öllum líkað ágætlega við söguna: Valdi-
mar munkur. Þó teknr henni langt
fram sagan sem byrjar í næsta blaði —
rússneskt leiksvið aftur.
Á fundi sem hið íslenzka “Base
Ball Club” “Norður stjarnan” héltþann
23. þ. m. voru eftirfylgjandi embættis-
menn kosnii': President H. Lindal,
Vice-President Geo. Ellis, Secretary S.
Anderson, Treasurer B. Olafson, Cap-
tain F. W. Frederickson.
Tiðin hefir verið hin ákjósanlegasta
aUau mánuðinn, til akuryrkjustarfa, en
heldur lítið hefir rignt. Hveitisáninger
líklega algerlega um garð gengin, eða
því sem næst, og margir búnir að sá
nokkru af öðrum korntegundum Uka. —
Mesta frostið í mánuðinum kom aðfara-
nótt fimtudagsins; sázt þá héla á jörð
snemma morguns, sumardaginn fyrsta.
Á mánudagskvöldið kemur (29. þ.
m.) eru aUir trésmiðir í bænum, að
cantractors undanskildum, velkomnir á
Carpenters Union fund í Trades Hall á
Main Str. Hérlendir félagsmenn óska
eftir að sem flestir íslenzkir trésmiðir
mæti á fundinum og gerist félagsbræð-
ur, ef þeim þá sýnist það ráðlegt. — Á
siðasta fundi félagsins, síðastl. þriðjn-
dagskvöld, gengu í félagið um 40 tré-
smiðir.
Iljónavígsla. í gærkveldi (sumar
dáginn fyrsta) voru þau gefin saman i
hjónaband í fyrstu lút, kyrkjunni hér í
bænum : Andrés Frecman, skrifstofu-
stjóri á lögreglu- og vínsöluleyfisskrif-
stofu fylkisstjórnarinnar, og ungfrú
Oddný B. Paulson. Að vígslunni afstað-
inni var veglegt samsæti haldið að
heimili þeirra hjóna Mr. og Mrs. J. A.
Blöndal, 546 WiUiam Ave. Brúðhjón-
unum voru færðar margar fagrar gjafir,
jafnframt heillaóskum. — Hkr. árnar
hinum ungu hjónum allra heilla, og svo
munu hinir mörgu vinir og kunningjar
beggja gera.
Blaðið Nor’-Wester var selt með tU-
heyrandi eignum á föstudaginn var og
heitir hinn nýi eigandi þess Thomas A.
BeU, frá Fort William, Ontario. Eign-
in var seld á 75 cents doUarsvirðið. Það
litur svo út sem eitthvað óhreint sé við
þá sölu, þvi sumir af meðráðendunum í
stjórnarnefndinni vissu að sögn ekki
um neitt þetta fyrr en sama daginn og
salan fór fram, og sumir jafnvel ekki
fyrr en alt var um garð gengið. Lítur
svo út að ekki nærri aUar skuldir hafi
111 meðferð er engan vegin hættu-
legri fyrir heilsuna en hósti og kvef sem
látið er vera afskiftalaust. Yið öUum
lungna og hálssjúkdómum er Ayer’s
Cherry Pectorial hið bezta meðal. Það
er óviðjafnanlegt við barnaveiki, kíg-
hósta, barkabólgu og influenza.
Vorið er háskalegt fyrir alla sem hafa
veika byggingu og þola illa veðrabreytni
og aðrar óheilnæmar breytingar sem þá
koma fram. Til þess að styrkja líkam-
ann, ogundirbúa hann undir veðrabrey t-
ing er ekkert eins gott eins og Ayers
Sarsaparilla. Takið hana nú.
JWuðeu la
Paing
^ Why tjoT
. Try rKcíS^-C.
)i(ent}j*l Pla§ler.
my wífejof me
one. it'cured
J rke magic.
For a lornf time I 6uflfere<i with Rheumatismln
the Back so severely that I could not even sit
straijrht. My wife ariviaed a D. & L. Menthol
Flaster. 1 trieri it. and wa« uoon jfoinj; about all
ritrht. S. c. Ml’ntkr, Bweet ii Coruers.
Prico 25c.
Sketches of Wonderland
heitir auglýsingarit, sem Northern Paci-
fic fél. hefir gefið út rétt nýlega. Það er
bók eigi alUitil og sérlega vönduð að öll-
um frágangi, með mörgum ljómandi vel
gerðum myndum af því sem ber fyrir
augu ferðamanns með þeirri braut vest-
ur yfir KlettafjöU. I bókinni er einkar
fróðlegur kafli um ferð manna nokkurra
er klifruðu upp á hið mikla fjall Rainier
sumarið 1894 og fylgir litmynd af fjalls-
toppinum og jökulmynduninni á krún-
unni,- Bókin er í hæzta máta eiguleg og
fæst fyrir 6 cents í silfri eða Bandaríkja-
frímerkjum, hjá Chas. F. Fee, General
Passenger & Ticket Agent, St. Paul,
Minn.
Skemtisamkoma
verður haldin
í TJALDBÚÐINNI
næsta fimtudag 2. Maí kl. 8. e. h.
Séra Hafsteinn Pétursson heldur
tölu um Martin Luther.
Mrs. J. Polson og fleiri lesa upp.
Auk þess verður þar margbreyttur
söngur og hljóðfærasláttur. Ágæt
skemtun.
AðgangseyTir 25 cts. fyrfr fullorðna
og 15 cts. fyrir börn.
Ágóðinn af samkomunni fer í bygg-
ingarsjóö Tjaldbúðarinnar.
Saga rakarans.
LANGIR VINNUTÍMAR OG VIÐ-
VARANDI STÖÐUR ORSÖKUÐU
NÝRNASJÚKDÓM.
Varð að hætta vinnu og hélt að
hann yrði að hætta við hand-
verk sitt. — Hvernig hann fókk
lækningu.
Tekið eftir Stratforð Beacon.
Á meðal íbúa Stratford bæjarer má-
ske enginn jafn vel þektur og jafn vel
metinn sem Mr. James E. Smith, rakari
á Ontario stræti. Mr. Smith er alþckt-
ur í Toronto og vann þar lengi í rakara-
búð á Young Str. Fyrir stuttu síðan
sagði Mr. Smith fregnrita blaðsins ‘Bea-
con,’ sem hann er mjög handgenginn,
hvernig Ixann hefði náð sér eftir sjúk-
dóm, sem hefði þjáð hann fyrir skömmu
síðan. Hann sagðist hafa í nokkur ár
þjáðst af bakveiki, og svo lasinn var
hann, að eftir að hafa lotið um hríð, gat
hann ekki rétt sig upp hjálparlaust og
að lyfta þungum hlut, gat liann alls
ekki. Hans eigin orð eru þessi : “í fleiri
ár var ég svo magnlítill að ég gat ekki
halflið á kolafötu.” Læknarnir sögðu
honum, að það væri nýrnasjúkdómur,
sem að honum gengi, en hann gat samt
ekki læknað hann. Loks fór honum að
fara aftur að mun og megrast. Það var
alltítt að hann varð að hætta við vinnu
svo vikum skifti og fara alveg í rúmið.
Hann misti matarlystina, varð fölur og
KJÖRKAUP.
verið framtaldar, og af því ráða sumir
að hugmyndin hafi verið að hafa fé af
þeim, sem hvergi voru við til að fram-
leggja reikninga. Þessu neita þeir sem
sölunni réðu, en segja að framboðnu
verði skuli skift jafnt meðal allra er
blaðið skuldaði og telja sem ástæðu til
þess að svona pukurslega var gengið til
verks, af) á þann hátt hefði fengist
meira fyrir eignina, en ef hún hefði ver-
ið boðin upp á opinberu söluþingi,
Tyggið
T uckett’s
T & B
“MAHOGANY”
og “BLACK”
Munntobak.
TrLBÚIÐ AP
The Geo. E. Tuckett & Son Co., Ltd.
HAMILTON, ONT.
Bollr.
Eg hefi nú fengið mikið upplag af vorog sum-
arvörum, og eru þar á meðal hinir inndælu
“Watchspring”-bolir, sem öllum íslenzkum
stúlkum líka svo vel. Þeir eru úr betra efni
en nokkru sinni áður, og 25 cts. ódýrri. —
Snmarbolir eru bolir með nýju lagi og
mjög ódýrir.—Imprever eru einn-
ig bolir eftir nýustu tízku, sem allir “dress-
makers” mæla með. Þeir eru 50 cts. ódýrri
en nokkru sinni áður.
BœnuihiUN lijorkaup.
60 pakkar af inndælu kjólaefni. Þetta kjóla-
efni er 25 til 50 cts. virði, en verður selt þessa
viku á 17$ til 35 cents.
Rcgnliliíar og regnkapur.
Af þessum vörum höfum vér meira en búast
má við að hægt verði að selja fyrir vanalegt verð, og verðum vér því að selja
þær mjög ódýrt til að losna við þær.
Solílíar oj; lianzkar.
Vér höfum meira af þessu en nokkurn tima áður. Þetta eru sérlega vand-
ar vörur í öllu tilliti og verðið lægra en nokkurntimu áður hefir þekst.
Karlinannaskyrtur.
Þær eru makalaust ódýrar. Góðar skyrtur á 25 cts., mikið betri á 35 cents,
ágætar á 50 cents og reglulegt afbragð á 65 og 75 cents.
Snniarfot fyrir <lrenj;i.
Vér höfnm þau nú fyrir $1,25. Karlmannafatnaði, vaxkápur, nærföt, háls-
bindi, hatta og húfur með ákaflega lágu verði. — Vér bjóðum alla velkomna
að koma og skoða vörurnar áður en þeir kaupa annarstaðar.
G. Johnson,
South-west corner fíoss & IsabelStr.
svo taugaóstyrkur, að hann varð alveg
að hætta við iðn sína. “Þeir sem láta
raka sig, kæra sig ekki um að hafa
skjálfhenta menn til þess,” sagði hann.
Hann hafði veriðírúminu nokkurn tíma
og verið að brúka meðul þegar konan
hans sagði sagði við hann einn morgun :
“Jim, ég hefi hér nýtt meðal, sem ég vil
að þú reynir.” Hún hafði Dr. Williams
Pink Pills. Hann hafði á móti að brúka
meiri meðul, eins og sjúklingum er
gjarnt til, en að lokum fór hann þó að
ráðum konu sinnar eins og svo murgir
skynsamir menn hafa gert. “En vertu
viss,” sagði hann, “ég hafði enga trú á
meðulum og brúkaði þær að eins til að
geðjast konunni.” Það var lán að hann
gerði það, því að litlum tíma liðnum gat
hann aftur farið að vinna, og hafði hann
þá að eins brúkað upp úr fáeinum öskj-
um. Eftir að liafa hrúkað pillurnar í
tvo mánuði, var hann orðinn eins og nýr
maður og hafði þyngst um 20 pund. Það
er áreiðanlega ekki hægt að finna hraust-
' legri mann i þessum bæ heldur en Mr.
Smith. Síðan hann læknaði sig með Dr.
WiIIiams Pink Pills, hefir hann ráðlagt
mörgum kunningjum sínum að brúka
þær, og getur sagt frá, að það var ætíð
beðið um meira af þeim eítir að búið var
að reyna þær einu sinni.
I líkum sjúkdómstilfellum og þetta,
eru Pink Pills óyggjandi lækning og í
raun og veru eru þær óyggjandi við öll-
um þeim sjúkdómum, sem koma af
slæmu hlóði og veikluðu taugakerfi.
Dr. Williams Pinlc Pills lækna það
sem aðrir læknisdómar geta ekki lækn-
að. Þær eru seldar hjá öllum lyfsölum
og sendar með pósti fyrir 50cts. askjan
eða sex öskjur fyrir $2.50, frá Dr. Will-
iams Medicine Co., Brookville, Ont. eða
Schenectady, N. Y. Þessar pillur eru
aldrei seldar í stórslöttunx, heldur að
eins í öskjum, og ex-u umbúðirnar prent-
aðar með rauðu hleki og merktar : “Dr.
Williams Pink Pills for Pale People.”
Piliur, sem boðnar eru til sölu í ann-
ars konar umbúðum, hvernig sem þær
kunna að vera á litinn, eru ónýt eftir-
stæling.
Wm. Amlcrwoíi
118 Lydia Str. Winnipeg.
Hinn eini Isl. agent fyrir allskonar
hljóðfærum og Music.
Ábyrgist að útvega löndum sínum hljóð
færi fyrir lægra verð enn þeir geta feng-
ið hjá öðrum í bænuxn. Gömul hljcðfæri
tekin sem borgun upp í ný.
Rakarahúð Árna Þórdarsonarcx- að
— 218 Jaiucs Str. West —
rétt á móti Police Station. í búðinni
vinnur enskur rakari, sem áður hefir
unnið í íslenzkri rakarabúð hér í bænum.
Komið við í nýju búðinni.
*
MERKI: BLÁ STJARNA
434 Main Street.
Selur ætíð með sægsta verði.
“ TC 'FV 'If*
: : : ÞESSI : : :
- - Buxna sala - -
er hið stórkostlogasta sem vér þekkjum.
Það hefir verið stöðug ös alla síðustu
viku. Vór erum nauðbeygðir að upp
fylla það sem vér sögðum í fyrstunni.
Vér verðum að selja þrisvar sinnum eins
mikið af buxum þetta ár, eins og í fyrra
og vér getum líka gert það hvað sem
aðrar búðir í bænum gera.
VERÐSKRÁ.
Góðar buxur fyrir...............Sl,25
Agætar starfsbuxur fyrir........$1,50
Afbragðs buxur fyrir............$2,00
Beztu buxur fáanlegar fyrir.....$2,50
Drengjabuxur vel gerðar, fóðraðar $0,50
Drengjaföt....-.................$1,50
Drengjaföt. $5.50 virði, fyrir.$3,50
Unglingafatnaðir, $7.50 virði, fyrir $4,50
Við gerum það sem við segjum,
Munið eftir
BLUESTORE
Merki—Blá stjarna.
434 MAIN STREET.
A. Chevrier.
Ég sendi varning til allra
staða í landin.
Athugið vel
hvers þið þarfnist fyrir jóiixx
og uýjárið.
Sparið peninga.
Að spara peninga er sama sem
að innvinna sér peninga.
Kaupið vindla og vín í inni alkunnu búð
H. L. CHABOT
Gegnt City Hall-513 Main Str.
----- 131 Higgin Strcet -----------
gefur hverjum sem hafa vill
mjöl, gripafóður og eldivið
ari vörur, eftir gæðum, en nokkur annar i þessum bæ.
'd- -pTTpi y* /—v 17-1sem sannað getur að
við 111 u hann ekki ódýr.
t Watertown Marb/e & Granite Works.
é Selur marmara og granit minnisvarða, bautasteina, járngirðingar,
é blómpotta, Etc.,
Legsteinarnir kosta $12,00 til $300,00. Fjögra — fimm feta háir
\ legsteinar kosta $50.00 til $100,00, uppsettir i kyrkjugarðinum af
T umboðsmanni félagsins án aukagjads. Mismunandi verð eftir stærð
\ og frágangi.
á Aðal-umboðsmaður félagsins er
5 ÍSL. V. LEIFUR,
Glasston, N. Dak.
232 Valdimar munkur.
liennar; ég veit um brögð þín á móti Damanoff
greiln, og—ég veit líka um samsæri þittgegn
keisara þínum. Ekki eitt orð ! Þú ert tkki
lengur herlogi af Tula ! Það er betri og meiri
maður, sem framvegis gengur með bertoga-kór-
ónuna. liúrik Nevel skal iramvegis saipa hið
tignuða sæti, sem þú ert sviftur, og ég veit að
hann upphefur nafnið á það tignarstig, sem það
skipaði fyrrum”.
Um leið og keisarinn endaði ræðnna, gaf
hann varðmönnunnm bendingu, og leiddu þeir
þá bandingjana út. Savotano sagði ekkert, en
Olga fór bölvandi eg ragnacdi.
Þegar þeir voru alveg burtu úr húsinu, sneri
Pétur keisari sér til Rósalindar og tók um hönd
henuar. Harðneskja haus var þá öll á burt, en
tárin glóðu í augum hans og varirnar titruðu af
tilfinningu.
‘•Ég gat ekki lofað þér, unga, fagra frænka
mín”, sagði hann í lágum, blíðum róm, “lausn
frá að giftast hertoganum af Tula, því ég liafði
jaínvel þá fastsett mér að það skyldi verða. En
íg vona það verði ekki átakanlega hartaðgöngu
nú. Ilvað heldur þú 7”
Rósalind leit þakklátum augum upp á keis-
arann og þakklætisorðin titruðu á vörum hennar,
en komust ekki út. Táraflóð—þakklætis og
gleði táraflóð brauzt fram og kunni hún því ekki
í það skiftið að þakka nema með augunum. Pét-
ur keisari þrýsti kossi á euni hecixar, lagði svo
— 2 —
5 centa peningnm. Svo reið ég heim að hverj-
um bygðum bjálkakofa, sem ég sá, og bað um
vatn að drekka. Venjulegakom lítil stúlka með
vátnið í ansu og bragðaði ég það ætíð og lét svo
5 centa pening ofan í það. Afleiðingin varð hver
vetna sú, að móðirin kom að vörmu spori úttil
þess að sjá þennan heiðursmann. Það var mér
nóg. Eg taldi mér víst atkvæðið frá því heimili.
“Einn morgun snemma, eftir að hafa beðið
um vatn komst ég að því, að ég átti ekki ein-
skilding í vasanum. Góð ráð vom dýr og sagði
ég þá við litiu stúlkuna: “Eg hefi vanalega 5
cent til að endurgjalda vatnið með, vina mín, en
nú á ég ekki ceut. Ég ætla því að gefa þér það,
sem næst peningunutn kemur ungri stúlku vel.—
einn koss”. Svo tökk ég af baki og kyssti hana
í stað hennar bláeygu litlu dóttur minnar heima.
í því kom fram önnur svarteyg mær og kysti ég
hana í stað frænku minnar, sem hún var áþekk í
sjón. Að því búnu sá ég þriðju stúlkuna, höfði
hærri en hinar, og til þess að vera ekki lilutdræg-
ur kysti ég hana líka. Þegar ég leit upp aftur
voru þar komnar fjórar eða fimm stúlkur, og sá
ég ekki annað vænna en byrja á nú—byrjaði á
þeirri minnstu og endaði á þeimi stærstu. í
flaustrinutók ég ekki eftir því, að sú seinastavar
fullvaxin stúlka og prýðis iagleg—fyrr en ég var
búinn að kyssa hana! Ég gat ekki séð atS henni
fyndist til um það, en nokkrar gamlar konur í
grendinni veltust um í blátri Ég liaíði ástæðu
til að ætla aö þær væiu að hiæí.'ja að mér, svo ég
236 Valdimar munkur.
greifans. “-Látum framtíðina sýna live þakjj-
lát við öll getum verið íyrir þessa blessuðu
stund. Og þegar við lítum til gnðs í bæninni
megum við ekki gleyma höfundi allrar þessarar
gleði okkar, vorum göfuga keisara—Pétri á
Rússlandi”.
Þannig fellur 'fjaldið—á samræmið gleðióp
allra í samkvæminu : “Guð blessi keisar-
ann”.
Þessn augnabliki gleymdi Pétur keisari
aldrei. Á seinni árum, þegar stórlyndisskýin
stundum byrgðu sálarsjón lians, mintist liann
þessarar stundar með fögnuði. Það var unaðs-
stund œskuára hans, sem lionum ætið þófti svo
vænt um.
ENDIR.
Ilann var enginn gikkur.
“Okkar fólki er yfir höfnð illa við gikkshátt í
hvaða mynd sem er”, sagði fyrrverandi vara-go-
vernor í Kentucky. og sagði svo eftirfylgjandi
sögu þeirn ummælum sínum til sönnunar :
“Einusinni, þegar égvará kosningaíerð um
eitt fjallhérnðið, keypti cg mér 25 dollara virði af
Valdimar munkur. 233
liönd hennar í útrétta liönd Rúriks og sagði svo
brosandi :
“Þú mátt til með að verða fjárhaldsmaður og
umsjónarmaður liennar framvegis. Ef þú þreyt-
ist við það skylduverk, skal keisari þuin ætíð
reiðubiunu að ijá beuni það skýli og það lið, setn
liún þarfnast”.
Það er liðin vika síðan fyrgreind söguatriði
áttusérstxð. Binn fyrrverandi hertogi af Tula,
Olga, var sekur fuudinn um landráð og var nú
kominn á leiðina til eyðinxarkanna í Síberíu
En liann náði þangað aldrei. Ilans drambláta
súl þoldi ekki niðurlæginguna, og bann lézt, ó-
kunnur öllum og hjúkrunarlaus í hrörlegu hreisi
í dalverpi austur í Uralfjöllum. Ilann grátbændi
varðnxenn sina að segja ekki bændunum hverrar
stéttar bann var, og hugðu þeir því að hann væri
réttur og sléttur ferðalangur, sem þeir jörðuðu í
eyðilegri gröf. Þannig endaði æfiferill lxins stór-
láta hertoga.
Savotano, liinn kryppavaxni klerkur, var
liálshögginn eius og liver óbrotinn morðingi.
Sainvinnumenn hans alljr héldu lífx, en liver unx
sig fékk maklega hegningn.
Og svo kemur þá seinasta atriöið.
I stærsta salnum í hertogasetrinu var saman
kominn göfugur gestaskari og var keisarinn sjá.l.f
ur aðal-ráðsnxaðurinn. Fyrir honum kraup Rú_