Heimskringla - 10.05.1895, Síða 1
i
Heimskringla.
C.c ttpo TTftorn • rr *ttttw
IxTárTT WINNIPEG, MÁN., 10. MAl 1895. NR. 19.
Er vafalaust
að vér seljum með lægra verði en aðrir.
Það sést á því hve mikið menn kaupa hjá oss. Ef þig
langar til að nota þér þessi góðu tækifæri, þá kómdu strax
og veldu það sem þú vilt hafa.
Yér græðum ekki á því!
Vörurnar verða að seljast!
Hinn mikli afslattur
á Karlmanna, Drengja, Unglinga og Barna-fötum.
gerir verzlun vora f jörugri en nokkur önnur verzlun í bænum. Það hefir gengið
svo vel hjá oss, að vér bjuggumst ekki við öðru eins. Síðan við byrjuðum, hefir
fólk úr öllum pörtum bæjarins komið til okkar. íbúar norðurbæjarins komu og
fóru heim ánægðir. Ibúar vesturbæjarins komu og voru hissa á hve ódýrt alt
var. Margir hafa komið til okkar utan af landi, og ýmsir hafa sent skriflegar
pantanir, bæði stórar og smáar ; vér afgreiðum híhar smærri eins fljótt og hin-
ar stærri. Við setjum okkur það mark og mið, að uppfylla það sem við lofum
og halda við það sem við auglýsum. Við vitum að allir sem eiga viðskifti við
okkur viðurkenna, að vörurnar séu eins góðar eins og þær eru sagðar, að þær
séu ódýrar og að þær séu “móðins.”
HEIMSKRINGLA
— OG-
ÖLDIN.
Nýbúið er að endurprenta fyrsta núm-
erið af Öldinni. sem brann í Maí 1893.
Fyrir $ 2.25
fyrirfram borgað, fá nú nýir kaupendur
Heimskringlu frí byrjun sögunnar :
“Mikael StrogofE,” til næsta nýárs, og
Öldina frá upphafi (3 árganga, 30 númer)
einnig til næsta nýárs, meðan upplagið
hrekkur.
Fyrir $ 2.00.
Öldin frá upphafi (þrir árgangar) til
næsta nýárs, verður seld sérstök á $2.00
fyrirfram borgað.
í Öldinni eru, eins og flestum er kunn-
ugt ágætis kvæði, fræðiritgerðir um
visindalegt og sögulegt efni, sögur, þar
á meðal hinar frægu “Sögur herlæknis-
ins” (um 30 ára stríðið), eftir .Zakarías
Topelius, ásamt ýmsu fleiru — alls 480
blaðsíður i stóru broti. Öldin er mjög
fróðleg og skemtileg bók, enda í sérlegu
afhaldi hjá öllum þeim, sem hafa eignast
hana og ættu allir þeir, sem ekki hafa
Þegar fengið hana með Heimskringlu,
að nota þetta tækifæri til að fá þrjá ár-
ganga af Öldinni fyrir svo sem ekki neitt
Munið eftir skilmálunum :
Heimskringla frá 1. Maí þ. á. til
ársloka ásam t Öldinni, 3 árg.,
fyrirfram borg., að eins $2.25
Öldin 1893, 1894 og 1895, (30 bl.)
fyrirfram borg., að eins $2.00
Upplagið er Ktið, (að eins 250) og því
hetra fyrir þá, sem sœta vilja þessu boði,
að gerastkaupendur nú þegar.
Forstöðune fndin.
FRÉTTIR.
DAGrBÓK.
EÖSTUDAG 3. MAÍ.
Fjármálastjóri Breta flutti ársskýrslu
sína í gær, og sýnir hún, að tekjuhalli
stjórnarinnar var rúmlega $1J milj. á
úrinu. Með því að auka tollinn á hverri
gallónu af öli um 12 cents, sagði hann
að stjórnin gæti fyrirbygt annan eins
tekjuhalla næsta ár.
Stjórnarformaður, Sir McKenzie
Howell, skýrði, í gær, efri deild domini-
°n þingsins frá aðgerðum stjórnarinnar
í Hudsonsflóa brautarmálinu. Kom þar
fram. sem sagt hefir verið, að stjórnin
hefir lofað að lána félaginu $10.000 fyrir
hverja mílu brautarinnar norður að
Saskatchewan-fljóti, frá Winnipeg.
^rygging stjórnarinnar verður $80.000 á
úri í 20 ár, sem stjórnin eða þingið hafði
áður veitt fólaginu fyrir póst og annan
flutning stjórnarinnar á þeirri leið, og
*tð auki fær stjórnin fyrsta veðrétt í allri
landeign fálagsins. Þó er þetta lán veitt
tneð þeim skilmálum, sem auðvitað er,
að þingið samþykki frumvarp þess efnis.
Sagt er að þeir Vanderbilt-bræður
séu að reyna að ná tangarhaldi á Great
Northern-brautinni. Til að afstýra því
fór J. J. Hill snögglega af stað til Lund-
úna í gær.
Indíánar í North Dakota láta ófrið-
lega og hafa hertekið þorþið St. Johns,
smá-kauptún rétt fyrir sunnan Mantoba
fandamærin.
Stjórnin í Washington hefir að sögn
ákveðið, að upphefja nautgripavörðinn
á Canada landamærunum og leyfa naut-
gripum frá Canada inngöngu rannsókn-
arlaust.
Fellibylur í Kansas varð 15 manns
að bana í gær.
HAUGARDAG 4. MAÍ.
Fjármálastjóri Canadastjórnar flutti
ársskýrslu sína í gær og sýnir hún, að
tekjuhallinn á yfirstandandi fjárhagsári
er motinn $4J milj. Við tekjuhalla á
n®sta fjárhagsári er einnig búizt og
hann metinn $1.700.000. Á þremur fjár-
hagsárum, 1894, 5 og 0, er tekjuhallinn
samtals $7.400.000. Til þess að afmá
væntanlegan tekjuhalla á næst fjárhags-
ari. hefir stjórnin afráðið að leígja J cts.
toll á hvert pd. af sykri. hreinsuðum eða
óhreinsuðum; enn fremur aukinn tollur-
mn á áUngisdrykkjum, sem bruggaðir
efu i ríkinu og eins þeim aðfluttu.
í gær voru lögð fyrir dominionþing-
ið öll skjöl áhærandi Hudsonsflóabraut-
armálið og öll bréf, sem farið höfðu milli
stjórnarinnar og félagsins, síðan það
æskti eftir styrknum í nýrri mynd. Síð-
asta bréfið er dagsett 26. Apr.
15 menn fórust af fiskiskipi frá Se-
atle, norður við Alaskastrendur í síðastl.
Apríl.
Skeyti frá Kina segir, að af ótta fyr-
ir áhlaupi á Peking, hafi Kínastjórn lát-
ið rjúfa flóðgarða við fljót í grend við
borgina, svo vegurinn jtöí ófær Japan-
ítum. Flóðið lagði hérað mikið í rústir
og drekti hundruðum íbúanna.
Auglýst er. að 8. þ. m. staðfesti
keisari Kínverja friðarsamninginn, sem
Japan keisarinn staðfesti 20. f. m.
Acadia-sykurgerðarfél. í Halifax
græddi $335.000 á J cts. tollinum, sem
lagður er á sykurpundið — átti svo mik-
ið fyrirliggjandi af óhreinsuðum sykri.
Um árið, þegar tollinum var alveg svift
af sömu vöru, tapaði þetta félag yfir
$300.000.
MÁNUDAG, 6. MAÍ.
Indiánarnir í Norðr-Dakota gáfust
upp umsvifalaust, þegar þeir sáu að
Bandaríkjastjórn var alvara með að
senda þangað hermenn. Þeir sáu þá
viturlegast að framselja timburþjófana
og með það er upþreisn þessi á enda.
Bretar léttu akkerum á Corinto-
höfn i Nicaragua í gær og héldu brott,
eftir að Bretastjórn tók gilt loforð Ni-
caragua-stjórnar um að borga $77,500 í
skaðabætur til Breta, er sviftir voru
eignum og gerðir landrækir. Salvador-
stjórn hljóþ undir bagga og ábyrgðist
upphæðina fyrir bróðurþjóð sína.
Sex þumlunga djúpur snjór féll í
Colorado á laugardaginn. — Sama dag-
inn 65—70 stiga hiti í Manitoba.
Skeyti frá Kína segir aö Japanítar
hafi látið undan þeim þremenningunum
Rússum, Frökkum og Þjóðverjum, og
sleppi öllu tilkalli til Port Arthur kast-
alans og Liao Tang skagans, sem kast-
aiinn stendur á. Þessi fregn hefir ver-
ið send öllum þremur hlutaðeigandi
stjórnum.
ÞRIÐJUDAG, 7. MAÍ.
Ástæðurnar á eynni Formora. sem
nýlega er orðin eign Japan-manna, eru
svo iskyggilegar, vegna óánægju yfir
eigendaskiftunum, að Bretar og Þjóð-
verjy hafa lileypt her á land til vernd-
ar erlendum mönnum búsettúm á eyj-
unni.
Yfirheyasla í tekjuskattsmáli
Bandaríkjastjórnar var hafiðíWashing-
ton í gær, að viðstöddum öllum hæzta-
réttardómurunum.
Járnbrautarlest, sem þau konungur
og drottning á Italíu voru að ferðast
með norðan frá Florence, hljóp af spor-
inu í dag og meiddist fjöldi af farþegj-
unum, en kongshjónin sluppu óskemd.
Hjólreiðarmaður er á ferðinni frá
Halifax til Winnipeg; ætlar að fara á
hjólhestinum alla leið og án þess aðeyða
einum dollar í fæði á ferðinni. I gær
var hann kominn tilBellevilleí Ontario.
MIÐVIKUDAG 8. MAÍ.
Einhverjir andvígismenn sambands-
ins við Canada gerðu tilraun í gær að
ofbjóða útibúum canadisku bankanna i
Nýfundnalandi, með þvi. að skjóta
þeirri flugu í munn mönnum, að þeir
væru valtir. Öllum var borgað í gulli
og þegar kvöldaði var æðið afstaðið.
Almennur fundur var hafður i
Lundúnum í gær til aðsamþykkjamót-
mælayfirlýsing yfir meöferðinni á Ar-
meniu-mönnum. — Samdægurs kom út
bréf úr Armeniu í blaðinu “News” þar
sem segir frá tilraunum Tyrkja að
smeigja sér undan ábyrgðinni fyrir
voðaverkin í haust er leið. Karlar og
konur eru pintaðar til þess að ná undir-
skriftum þeirra undir vitnisburð, er al-
gerlega sýknar Tyrki í því efni. Blóð-
baðiðá þar aðveraKurdista-ræningjum
einum að lcenna.
Japanítar fá$50'milj. í peningum
fyrir að sleþþa tilkalli til Port Arthur
kastalans. Þremenningarnir, er geng-
ust fyrir þessari breytingu, eru að sögn
ánægðir með þetta fyrirkomulag,
Þing Rómverja var rofið í gær. Nýj-
ar kosningar fara fram 26. þ. m. og 2.
Júní næstk. Hið nýja þing á svo að
koma saman 2. Ágúst í sumar.
FIMTUDAG, 9. MAÍ.
Sagt er að vindurinn, sem fylgdi
steypiregninu á laugardaginn var,, hafi
valdið eignatjóni á stöku stað í vestur-
hluta Manitoba.
Frézt hefir um tvo ’skipskaða í Be-
ringssundi, skip frá Victoria, British
Columbia, með 23 mönnum og skip frá
San Francisco með 17 mönnum.
Fregn frá Nýfundnalandi aegir, að
Whiteway-stjórnin sé hætt að hugsa til
sameiningar við Canada, vegna mót-
spyrnunnar, en aðhún munirýra stjórn
arkostnað allan um þriðjung eða meir
og leita svo eftir láni á Englandi og í
Bandaríkjunum, til að mæta skuldum,
sem falla í gjalddaga í Júní nsestk.
Samningurinn í gildi. Eins og aug
lýst hafði verið staðfesti keisari Kin-
verja friðarsamninginn við Japaníta í
gær, í borginni Chee Foo.
Winnipeg & Great Northern
járnbrautin.
Þetta er nýja nafniðá Hudsonsflóa-
brautinni, nafn sem félaginu var gefið í
fyrra á dominionþingi, samkvæmt ósk
þess og af þeirri ástæðu, að allir. sem
ekki vora því kunnugri, rugluðu saman
stofnununum tveimr: Hudsonsflóabraut
arfél. og Hudsonsflóaverzlunarfélaginu
mikla. Nú er yfírmaður H. flóaverzl-
unarfél. Sir Donald A, Smith, einn stór
eigandi C. P. R. fél., og er þá hugsan-
legt, að honum hafi ekki verið kært að
menn rugluðu saman nöfnunum. Fram-
vegis mun Hkr. nefna fél. og braut
þessa með sínu nýja og eina löglega
nafni, þrátt fyrir að oss,eins og flestum
er tamara, að nefna hið upprunalega
nafn.
Það er lítið nýtt að fegja um þetta
fyrirtæki enn. Eins og frá er skýrt
annarsstaðar voru öll skjöl áhrærandi
væntanlega hjálp stjórnarinnar lögð
fyrir þingið á föstudaginn var. I sömu
svifum var fjárlagafrumvarpið lagt fjT-
ir þingið og hvarf þá áhuginn fj'rir
járnbrautarmálinu í bráð. Við það sit-
ur enn (miðvikudag) Og ekki hægt að
geta á hvenær það mál kemur til urn-
ræðu og því síður atkvæða. Að það
fái mótspyrnu er vitanlegt, en hvað
mikil hún verðurer nokkuð, sem enginn
veit. Það hefir verið sagt, að Joseph
Martin (Winnipeg þingm.) verði á móti
nokkurri breytingu á styrknum, en svo
hafa ýmsir “liberals” hór í bænum sent
honum “kveðju guðs og sína” og til-
kynt honum, að liann þurfi ekki að ó-
maka sig vestur hingað, ef hann styðji
ekki stjórnarsinna í þessu máli.
I millitíðinni halda contractararnir
áfram að búa sig til starfa. Á þriðju-
daginn l'igðu mælingamenn af stað til
að ákveða brautarstæðið og er því mið-
ur fullsannað nú, að hún á að liggja
um Portage La Prairie og norður fyrir
vestan Manitobavatn. Mælingamenn-
irnir sem sé taka til starfa nokkrar
mílur norðvestur frá Portage La Prai-
rie. Strax eftir næstu helgi er búizt
við að tekið verði til að byggja grunn-
inn. Eru contractararnir nú að semja
við járnbrauta bj-ggingamenn hér í
bænum um að takast verkið í fang. Eru
þeir samningar að sögn fullgerðir við
Geo. H. Strevel, J, W. Buchanan, An-
drew Smitli, R. R, Keitb, J. G. Denison
og .1. J. Egan. Fleiri menn ér og sagt
að sé tilbúnir að takast grunnlegging
á hendur, en samningar ekki fullgerðir
enn. Hver þessara manna fer mo.ð 20
til 25 pör hesta og all-mikinn mann-
fjölda, og eru þeir nú óðum að búa sig,
gera að verkfærum, tjöldum o. s. frv.
Landeign félagsins er meir en lítil,
svo framarlega sem það byggir braut-
ina. Á dominionþingi 1885 var því
veitt land sem fylgir:
Fj-rir brautina fullgerða frá aðal-
braut C. P. R. fél, í Manitoba norður á
takmörk fylkisins 1,440,000 ekrur ; á-
ætluð vegalengd 225 mílur.
Fyrir brautina frá norðurtakmörk-
um Manitoba til endastöðvanna við fló-
ann (við Nelson-ármynnið) 5.440,000
ekrur : áætluð vegalengd 435 mílur,
Fyrir kvísl af brautinni frá Saskat-
chewan-fljóti suðvestur um land alt að
Manitoba&Northwestern járnbrautinni,
en ekki j-flr 250 mílur að lengd, 1,609
þús, ekrur.
Alls er því landeignin 840,000 ekrur
ef brautin verður bygð samkvæmt
samningi. En þessu landi á stjórnin
að halda sem tryggingu á meðan félag-
ið er að vinna af sér $21J milj. lánið
sem stjórnin nú hefir lofað að veita og
sem sjálfsagt verður, ef þingið verður
viðráðanlegt. í því sambandi verður
að hafa það hugfast, að nálega alt aust-
urlandið er fyrirtækinu andvígt, af
þeirri hugmynd að braut þessi muni
draga frá því verzlun og viðskifti.
/.
Islands-fréttir.
Eftir “Austra”.
Seyðisfirði, 29. Marz 1895.
l'iðarfar. Eftir miðjan þ. m. hafa
gengið töluverðar hríðar og sett niður
allmikinn snjó.
SíldaraUinn helzt alt af við á Suður-
fjörðunum; en nú veiða þar að eins O.
Wathnes menn með nótum, og gengur
að vanda veiðin vel,
Þegar síðast fréttist var síldin enn
þá í góðu verði erlendis.
Nú er síld farin að Jfiskast hér í
Seyðisfirði.
Snjóflóð kom á Rimum í Mjóafirði
og braut 2 fjárhús, en skepnur náðust
flestar lifandi.
“EgilV' og póstur eru enn ókomnir.
Skagafirði 8. Febr. 1895.
Herra ritstjóri!
Þér biðjið mig um fréttir úr Skaga-
firði fyrir árið sem leið. Ég byrja þá
eins og alment gerist á veðráttunni.
Hún var mjög góð yfir höfuð allt árið.
Hver dagurinn var öðrum blíðari og
betri alt sumarið og haustið. Grasvöxt-
ur mikill á harðvelli, en lakari ímýrum.
Heyskapur ágætur, bæði mikill og góð-
ur. Síðast á árinu voru nokkrir um-
hleypingar.
Yertlun fremur hagfeld. Utlend
vara var með allgóðu verði, og með enn
betra verði í pöntunarfélaginu. en á
Sauðárkrók, feins og eðlilegt er enda er
það talinn fremur dýrseldur verzlunar-
staður.
Aðaliundur kaupfélagsins var hald-
inn á Ási 9. og 10 f. m. Var þar ákveð-1
ið, að halda félaginu áfram í sama horfi
og að undanförnu með sömu starfs-
mönnum innanlands og utan eins og
næstliðið ár. Formaður er Pálmi Pét-
ursson óðalsbóndi á Sjávarborg, og
varaformaður Konráð Jónsson, hrepp-
stjóri í Bæ. Formaður var settur á
600 kr. föst laun. Áður hafði hann 12%
af vörum. Hann hefir mikið að gera.
Á sauðasölunni hefir félagið ekki
haft neinn liag í þetta sinn. Verðið
kemur merkilega heim við verðið á
mörkuðum hér næstl. haust. Hið sama
er um verðið á hinum vörutegundunum,
er seldar voru í félaginu.
Fiakiafli var ágætur næstliðið ár
hér, svo að einnig í þessu tilliti verður
að telja árið 1894 með beztu árum.
Hlutir í haust voru almennt hér inn-
fjarðar 1000—1400.
Þess er vert að geta, að nú er byrj-
að að stníða brúna yfir austari Héraðs-
vötnin; liefir í næstl. mánuði duglega
verið ekið grjóti að staðnum, sem er
norðan við Gljúfrá þar sem hún rennur
í Vötnin fyrir utan Hofstaðasel. Yfir-
smiður er Bjarni Gúlason úr Siglufirði,
ötull maður. Verður brúin hin mesta
framför.
Húnavatnssýslu 8. Marz 1895.
Veturinn hefir verið svo góður til
þessa, að fáir hafa slíkir vetrar komið
hér norðanlands langa lengi. Nú alauð
jörð, svo sem á vori væri milli sumar-
mála og krossmessu. Sjaldan frost að
mun.
Nú mun bráðapestin loks vera hætt
um sinn, og geta menn því notað hina
góðu tíð fyrir skepnur sínar. Það eru
ekki svo litil hey, sem eyðst hafa í vetur
PYNY - PECTORAL
brings quick relief. Cures all ir.-
flatmnation of thc bronchial
tube9, throat or chest. No un-
certainty. Relieves, soothes,
heals promptly.
A Large Bottle for 25 Centa.
^ OAVIS A LAWaEfiCE CD.S LTD.
PR0PRIET0R8.
MONTREAL.
Karlmannaföt.
Vér höfum ekki rúm til að segja mikið
um þessi föt. Vér höfum hér um bil
3000 alfatnaöi úr kanadisku vaðmáli,
rúðóttu, röndóttu og marglitu. Einnig
Worsteds og Cheviots tvíhneft og ein
hneft á $3,30, $4,50, $5,50, $6,50, $7,75 og
$8,75. Hvert af þessum fötum er ágætt
og sá sem á annað borð vill fá sér föt,
sleppir ekki þessu tækifæri.
WALSH’S
drengja og barna-föt
Vér höfum sérlega mikið af drengjaföt-
um af öllum tegundum. Drengjaföt
með löngum buxum, skólaföt og sunnu-
dagaföt. Stuttbuxur á 35, 40 og 50 cts.
Saálorföt 90c. $1,25 og $2,00. Vaðmáls-
föt $1,50 til $3,50. Svört Worsted-föt
$2,50 til $4,50. Drengja og barna hatt-
ar og húfur 25c. og jrfir.
vegna pestarinnar, því menn hafa þá
trú — sem líka mun á rökum bygð —
að góð heygjöf muni vera talsverð vörn
við henni
Hin nýbygða kjrkja á Blönduósi
var vígð 1. sunnudag eftir þrettánda,
að fjölda manns — hátt á þriðja hundr-
að — viðstöddum.
Mannalát. 17. f. m. andaðist —
varð bráðkvaddur — óðalsbóndi Jónas
Erlendsson á Tindum hálf áttræður.
Við jarðarför hans, er framfór 4. þ.
m. kom annað mannslátið fjTÍr er engu
síður þótti mikils umvert og næstasvip-
legt. Einn af hoðsmönnunum, Sigurð-
ur Hjálmarson frá Búrfellshól, gekkfrá
matborði útá bæjarhlað; þogar hann
hafði lítið eitt gengið þar, hné hann
niður. 2 menn er stóðu þar á hlaðinu,
fóru þeerar þangað og báru hann inn,
því þeir héldu hann hefði fallið i ómeg-
in. Þegar inn kom, sýndist hann vera
látinn; voru samt rejmdar ýmsar lífgun-
artilraunir, en allar urðu þær árangurs-
lausar. Maður þessi mun hafa verið
miðaldra og sagður dugnaðarmaður, eu
að öðru leyti er hér í sveit eigi kunnur
lífsferill hans.
Varðskipið. Það hefiv farið betur
en áhorfðist með varðskipjð. Ríkisdag-
nrinn hefir veitt féð og hiugað kemur
bráðum til landsins til eftirlits með hin-
um útlendu fiskimönnum ágætt, nýtt
og mjög hraðskrej’tt herskip ‘ ‘Ileim-
dallur” skipstjóri Schxdz, og þar eríyfir-
mannaflokki næstelzti sonur krónprinz-
ins (prinz) Carl. “Heimdalli” er einkum
ætlaðar stöðvar hér fyrir Austurlandi.
Annaðlierskip “Ingóltnr” skipstjóri
Commandör Vandel verður við mæling-
ar hér í sumar fyrir vestan land og i
Grænlandshafi.
Þessi herskip hefir stórkaupmaður
Ásgeir Ásgeirson tekið að sér að byrgja
upp í sumar með kolum, og mun því
guíuskip hans “Á. Ásffeirston” væntan-
legt hingað við og við í sumar.
Gufuskip Otto Wathnes, ”EgiU”\a.x
í Hamborg þann 26. Marz, þá ferðliúið
til Stavanger, og er því eins og líka
“ Vaagcnvæntanlegt hingað á hverjum
degi.
Hattar! Hattar!
Stórkostleg kjörkaup.
Mikið að skoða í hattadeildinni, Vér
höfum aldrei áðurhaft jafnmikiðaf hött-
um eins og nú. Allir með nýjasta lagi.
Þér getið fengið hvers konar hatt sem
þér viljið. $1.00 hattar nú á 50c., $1.50
hattar nú á 75c., $2,00 hattar að eins
$1,00, $2,50 hattar á $1,75, $3,00 hattar á
$2,00 og $4,00 hattar á $2,75, Skyrtur
og annað þess konar fyrir drengi og full-
orðna með afarlágu verði. Flannelette
firskyrtur að eins 20c., axlabönd 10c.,
vítar skvrtur að eins 65c. Karlmanna-
hanzkar 75c., kostuðu $1.50. Hálsbindi.
á 5, 10 og 15c., kosta helmingi meira.
Vér verðum að minka fátabjTgðirn-
ar og á meðan á því stendur lokum vér
augunum fj’rir hinu rétta verði vörunn-
ar og seljum hana fj’rir það sem fæst
fyrir hana alt fram að 25. Mai. Á með-
an á þessu stendur verður það regluleet
flóð af fatnaði sem fer út úr búð Walshs
á aðalstrætinu.
Flutningsskip þeirra Zollners og
Vídalíns, “Stramýord” átti að fara frá
Kaupmannahöfn 3. þ. m. til Newcastle,
liggja Þar fáa daga, og mun væntanlegt
hingað um páskaleytið.
Stórkaupmaður Thor. E. Tulinius
hefir nú leigt gufuskipið “Itjúkan” til
vöruflutninga í sumar, og er það vænt-
anlegt hingað til Austurlandsins bráð-
lega, svo það lítur út fyrir að samgöng-
urnar við útlönd verði í bezta lagi í
sumar héðan frá Austurlandi.
Snjóflóð. Nýlega fórust karlmaður
og kvennmaður í Vattarnesskriðum
milli Rej’ðarfj. og Fáskrúðsfjarðar.
Þann 24. f. m. fóll snjóflóð á bæinn
Stórudali í Mjóafirði og braut þar bæði
búr og eldhús og skemdi matvæli, það
braut og fjárhús á túninu og drap 4
kindur. — Annað snjóflóð féll samdæg-
urs á næsta bæ, Grund og hefir víst gert
mikinn skaða á túni.
Arni nokkur Sigurðsson, ættaður úr
Skaftafellssýslu, varð úti á Fjarðarheiði
fyrir skömmu.
Tíðarfar viðvarandi snjóasamt og
óstilt.
Hafíshraungl iiefir s'zt útaf Iléraðs-
flóa, og fáeinir jakar á Borgarfirði.
VEITT
UÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNN
IÐ BEZT TILBÚNA.
Obiönduð vínberja Cream of Tanar
Powder. Ekkert álún, ammonia eóa
önnur óholl efni.
40 ára rejTizlu,
WALSH’S fatasolubud
515 og 517 Main Str. — — — — Gegnt City Hall.